Morgunblaðið - 06.06.2000, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 06.06.2000, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000 MORGUNBLABIÐ FRETTIR Hrylliitgsmyiid hreppaflutninga „Það hljómaði eins og bergmál úr fortíðinni að heyra að ríkis- stjómin væri virkilega að raeða að leysa á einu bretti húsnæðis- vanda fatlaðra og byggðavanda Hríseyinga mcð þvf að flytja Lausn á vanda landsbyggðarinnar vefst ekki fyrir framsóknarmönnum. Morgunblaðið/Kristinn Pallur rakst í skiltabrú ÖKUMAÐUR vörubifreiðar rak sig í sturtugírinn með hádegi í gær. Kalla þurfti dráttarbíl á vettvang til að hífa þeim afleiðingum að pallur bifreiðarinnar reistist upp, pallinn aftur upp á bílinn, en skemmdir urðu á skiltunum rakst í skiltabrú sem er yfir götuna og féll aftur af bíf- og vörubifreiðinni. Ekki þurfti að loka Kringlumýrar- reiðinni. Óhappið varð á Kringlumýrarbraut laust fyrir brautinni á meðan pallurinn var hífður á bílinn. úrvalið er Vh|á okknr Tilvalið í tækiffærisgjafir NllAÍSí ► _ ÍtLI JGGATJf )TTH Skipholti I 7 a : m 5 Reykjavík 551 2323 Ferðamál á Austurlandi Austfírðingar sækja í sig veðrið IKVÖLD klukkan 20.00 verður haldinn fundur um ferðamál á Fljótsdalshéraði. Það eru ferðamálafélagið Forskot og Markaðsstofa Austiu-- lands sem standa fyrir fundinum. Jóhanna Gísla- dóttir er framkvæmda- stjóri Markaðsstofu Aust- urlands, hún var spurð hvernig staðan væri í ferðamálum á Austur- landi? „Ferðamálin eru í sókn hj á okkur. Á mörgu þarf þó að taka svo við þurfum að vera með uppbrettar erm- ar næstu árin. Möguleikar Austurlands eru mikiir. Fjórðungurinn státar af fjölbreytilegri náttúru og stutt er á milli ólíkra svæða. Hérna á Fljótsdals- héraði erum við með tvo af stærstu skógum landsins, Hall- ormsstaðaskóg og Egilsstaða- skóg, síðan er skammt að fara nið- ur á Firði í öðruvísi landslag og menningu.“ - Hvernig er hótelmálum hátt- aðhjáykkur? „Það hefur stöðugt bætst við gistirými hér á Austurlandi á und- anfömum árum. Samt er það svo að á álagstímum þá önnum við ekki eftirspum. En vandamálið er að á veturna stendur gistirýmið meira og minna autt.“ - Hafa verið uppi nokkrar hug- myndir um hvernig ætti að bæta úr því? „Það er alla vega ljóst að við þurfum að gera átak í vetrarferða- þjónustu. Við þyrftum að geta boðið upp á meiri afþreyingu yfir vetrartímann og vonandi tekst að koma því á. Þess má geta að í fyrra var gerð tilraun um áramót til að fá fólk hingað í áramóta- og þrett- ándaferð en það náðist ekki nægi- lega góður árangur. Þessi mál eru hins vegar í skoðun núna og verið að vinna að örvun ferðamennsku á Austurlandi að vetrinum." - Hvað hefur fólk að sækja á Austurland? „Það er margt, til dæmis er hægt að upplifa veður eins og í Suður-Evrópu á Austurlandi þeg- ar vel viðrar og það er furðu oft á sumrin hér. Mikill uppgangur er hér í alls konar menningarstarfi. Á Fáskrúðsfirði verður í sumar sýning sem tengist vem franskra sjómanna við íslandsstrendur og á Héraði er Óperustúdíóið með dagskrá í júní sem heitir Bjartar nætur og ætla að sýna m.a. Rak- arann frá Sevilla. Listahátíðin Á Seyði, Seyðisfirði, er orðinn fastur listviðburður hér, þar koma þekktir listamenn erlendir sem innlendir og sýna verk sín. Við er- um með söfn hér á nokkrum stöð- um og það hefur verið stefnan að söfnin okkar sérhæfi sig talsvert, þannig að menn séu ekki að koma á sams konar sýningar í hverjum firði. Það er t.d. náttúrugripasafn í Neskaupstað, stríðsminjasafn á Reyðarfirði, sjóminjasafn á Eski- firði, tækniminjasafn á Seyðisfirði, byggðasafn á Vopnafirði og Minja- safn Austurlands er á Egilsstöðum. Ekki má gleyma Steinasafni Petra á Stöðvarfirði." - Hvað með náttúru- skoðun? „Náttúruskoðun er víða hægt að stunda héma og t.d. era margir staðir sem hægt er að fara í fugla- skoðun, t.d. í Vopnafirði era tveir aðilar sem bjóða upp á fuglaskoð- un og almenna náttúruskoðun úr bát. Þeir bjóða líka upp á sjó- stangaveiði og eins býður annar Jóhanna Gísladóttir ► Jóhanna Gísladóttir fæddist í Neskaupstað 15. febrúar 1956. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri og BA-prófi í dönsku frá Háskóla fs- lands og uppeldis- og kennslu- fræði frá Kennaraháskóla Is- lands. Hún hefur einnig verið við nám í tölvu- og upplýsingatækni og lokið prófi sem svæðis- leiðsögumaður. Jóhanna hefur starfað sem kennari en er nú framkvæmdastjóri Markaðsstofu Austurlands. Hún er gift Rúnari Laxdal Gunnarssyni stýrimanni og eiga þau þijú börn. Mikill upp- gangurí menningar- starfi á Aust- urlandi þeirra gestum upp á þátttöku í hákarlaveiðum. Þá er hægt að komast í náttúraskoðun, fugla- skoðun og sjóstangaveiði á báti frá Neskaupstað og líka frá Breið- dalsvík, þar sem einnig er boðið upp á hvalaskoðun.Úti í Húsey við Héraðsflóa er líka hægt að fara og skoða margbreytilegt fuglalíf og eins seli.. í Borgarfirði eystra er einhver besta aðstaða til fugla- skoðunar á landinu. - Er boðið upp á fjailaferðir? „Já, boðið er upp á fjallaferðir t.d. frá Upplýsingamiðstöðinni á Egilsstöðum upp á Snæfell og upp að Vatnajökli. Mjög stutt er upp á hálendi Islands héðan frá Egils- stöðum þar sem hægt er að skoða náttúruperlur eins og Eyjabakka og Dimmugljúfur, þar er og hægt að baða sig í heitum lindum.“ -Hvað með hreindýraveiðar, eru þær stundaðar af ferðamönn- um? „Það koma menn hingað á haustin þegar hreindýraveiðin stendur yfir, jafnvel erlendis frá, og veiða hreindýr, hér era starf- andi leiðsögumenn sem eru með á veiðunum. En það er líka utan veiðitímans víða hægt að sjá hreindýr við þjóðveginn, þau era ótrúlega gæf á stundum og virðast hreint ekkert hafa á móti ljós- myndatökum.“ - Er Lagarfjótsorm urinn eitt- hvað tilsýnis? „Ef þú ert að tala um orminn í ________ fljótinu þá sýnir hann sig alltaf annað slagið og ef menn taka sér ferð með nafna hans, bátnum, þá er aldrei að vita hvað gerist. Þess má geta að hægt að fara hér í flúðasiglingar og kajakasiglingar. Þá má geta þess að þann 18. júní nk. opnar Skriðuklaustur, Stofnun Gunnars Gunnarssonar skálds, og verður þar opið fyrir ferðamenn á sér- stökum tímum. Loks get ég sagt að við Austurfirðingar teljum okk- ur framkvöðla í að merkja göngu- leiðir og kortleggja þær.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.