Morgunblaðið - 06.06.2000, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 06.06.2000, Blaðsíða 68
68 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ Bakarameistarinn sigrar á Mjóddar- móti Hellis SKAK Göngugatan f M j 6 d d MJÓDDARMÓT HELLIS 3. júní 2000 BAKARAMEISTARINN sigraði á Mjóddarmóti Hellis sem fór fram laugardaginn 3. júní. Teflt var í göngugötunni í Mjódd. Það var Þor- steinn Þorsteinsson sem tefldi fyrir Bakarameistarann og hlaut ð'/z vinn- ing í 7 skákum. Þrjátíu keppendur og fyrirtæki tóku þátt í mótinu. Með- al keppenda voru þrír alþjóðlegir meistarar. í öðru sæti á mótinu varð Héðinn Steingrímsson, en hann tefldi fyrir Esso. í 3.-5. sæti urðu: Suzuki-bílar (Amar E. Gunnarson), Islandsbanki, Breiðholti (Sævar Bjarnason) og Nettó í Mjódd (Stefán Kristjánsson). Úrslit urðu annars sem hér segir: 1. Bakarameistarinn (Þorsteinn Þorsteinss.) 6V2 v. 2. Esso (Héðinn Steingrímss.) 5/2 v. 3. Suzuki-bílar Amar E. Gunnars- son 5 v. 4. íslandsbanki, Breiðholti (Sævar Bjamas.) 5 v. 5. Nettó í Mjódd (Stefán Krist- jánsson) 5 v. 6. Olís (Sigurður Daði Sigfússon) 4(4 v. 7. Lyf og heilsa, Mjódd (Davíð Ól- afsson) 4 v. 8. Islenska útvarpsfélagið (Jón Viktor Gunnarsson) 4 v. 9. Bókabúðin Hlemmi (Sigurður Páll Steindórsson) 4 v. 10. -14. Kaffi París (Björn Þor- finnsson), Gullsmiðurinn í Mjódd (Jóhann H. Ragnarsson), Fröken Júlía (Þórður Ingólfsson), Músík og myndir (Ingvar Þór Jóhannesson), Fróði (Harpa Ingólfsdóttir) 3/2 v. 15.-19. Verslunarmannafélag Reykjavíkur (Guðjón H. Valgarðs- son), Gatnamálastjórinn í Reykjavík (Jóhann Ingvarsson), Vogue (Ólafur Kjartansson), VISA ísland (Guð- mundur Kjartansson), B. Benedikts- son (Björn Víkingur Þórðarson) 3 v. 20.-30 Innrömmun og hannyrðir, Hjá Dóra, Pizzahöllin, Ljósmynd- arinn í Mjódd, Búnaðarbanki íslands í Mjódd, Efnalaugin Björg, Johan Rönning, Pizza Hut, Pizzahúsið, Verkfræðistofa Sigurðar Thorodd- sen, Sorpa. Skákstjórar vom Davíð Ólafsson og Gunnar Bjömsson. Það sýndi sig að vissara er að halda „útiskákmót“ undir þaki, því skömmu áður en mót- ið byrjaði fór að rigna. Mótið vakti mikla athygli þeirra sem leið áttu í göngugötuna í Mjódd meðan mótið fór fram. Anand sigrar í León Ciudad de León-skákmótið var haldið í 13. skipti dagana 2.-4. júní. Að þessu sinni máttu keppendur nota skákforrit og skákgagnagrunn meðan á skákunum stóð. Mótið var með útsláttarfyrirkomulagi. Kepp- endur vora fjórir og tefldu tveggja skáka einvígi. Alexei Shirov og Miguel Illescas áttust við fyrsta keppnisdaginn og sigraði Shirov ör- ugglega, vann báðar skákimar. Næsta dag tefldi Viswanathan An- and við Judit Polgar. Báðum einvíg- isskákunum lyktaði með jafntefli, en Anand hafði betur þegar teflt var til úrslita og fékk þá P/2 vinning gegn Vz vinningi Judit Polgar. Þeir Shirov og Anand tefldu því saman um efsta sætið á mótinu. Anand sigraði í fyrri skákinni, en hélt jöfnu í þeirri síðari og sigraði því á mótinu. Boðsmótið hafið Tveimur umferðum er nú lokið á Boðsmóti Taflfélags Reykjavíkur. Þrír keppendur era jafnir og efstir og hafa unnið báðar sínar skákir. 1. Stefán Kristjánsson 2 v. 2. Amar E. Gunnarsson 2 v. 3. Einar K. Einarsson 2 v. 4. -7. Jóhann H. Ragnarsson, Ólaf- ur Kjartansson, Kjartan Maack, Bjami Magnússon IV2 v. 8.-9. Bergsteinn Einarsson, Ólaf- ur Isberg Hannesson 1 v. + fr. 10.-16. Ingvar Þór Jóhannesson, Bragi Þorfinnsson, Guðmundur Kjartansson, Guðni Stefán Péturs- son, Kjartan Guðmundsson, Hjörtur Þór Daðason, Björn Þorfinnsson 1 v. o.s.frv. Þriðja umferð var tefld í gær- kvöldi, en þá mættust m.a. Amar E. Gunnarsson - Stefán Kristjánsson og Jóhann H. Ragnarsson - Einar K. Einarsson. Boðsmótið hefur lengi verið einn af föstu liðunum í skáklífinu í Reykjavík og þetta skemmtilega skákmót hefur notið mikilla vin- sælda. Eins og svo oft áður er mótið sterkt, en fjöldi þátttakenda er þó með minnsta móti, eða 21. Skákþing Hafnarfjarðar Skákþing Hafnarfjarðar 2000 fer fram dagana 9.-11. júní. Mótið er öll- um opið og er hður í íslensku bikar- keppninni. Tefldar verða sjö umferð- ir, þijár atskákir og fjórar kappskákir. Mótið hefst föstudaginn 9. júní klukkan 20. Þá verða tefldar þrjár atskákir með 25 mínútna um- hugsunartíma. A laugardeginum og sunnudeginum verða tefldar fjórar kappskákir, tvær skákir hvom dag. Fyrri skákin hefst klukkan 11, en sú síðari klukkan 16. Tímamörkin í kappskákunum eru einn og hálfúr klukkutími á 30 leiki og svo hálftími til að Ijúka skákinni. Teflt verður eft- ir Monrad-kerfi og verður mótið reiknað til stiga. Skákmót á næstunni 9.6. SH. Skákþing Hafnarfjarðar. 23.6. Hellir. Jónsmessumót kl. 22. Daði Örn Jónsson -FA6TAFUTTM Pasta-og gufusuðupottur kr 7 ltr. 18/10 stál. Pastavél kr. 4.500. PIPAR OG SALT Klapparstlg«43ÍLmi 562 36141 ÍDAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Leig’umark- aðurinn ÉG LAS í DV miðviku- daginn 31. mars sl. grein eftir Herbert Guðmunds- son, þar sem hann geyst- ist fram á ritvöllinn og reyndi að gera htið úr Leigjendasamtökunum. Hann sagði þau gráta upp leiguverð hér. Hann talar líka um trúgimi fjölmiðla, sem taki því fegins hendi að hreppa hrikalegustu fréttir Leigjendasamtak- anna, en að grufla í leigu- markaðnum og leiða fram í dagsljósið raunverulegt ástand og ástæður þess. Leiguverð hér hefur verið hátt hér áður en Leigj- endasamtökin urðu til, en þetta okurverð á leigu- markaðnum núna er vegna hinna miklu flutn- inga fólks utan af landi. Markaðurinn og græðgin ráða ferðinni en ekki grát- ur samtaka leigjenda. Mér fmnst að Herbert ætti að kynna sér betur ástand mála heldur en ráðast gegn Leigjendasamtökun- um, sem best þekkja til mála hér. Það væri ósk- andi að fjölmiðlar myndu fjalla betur um þetta má- lefni og þá er ég hrædd um að Herbert og fleiri yrðu hissa þegar napur veruleikinn blasti við þeim. Sigrún. Elton John- tónleikarnir ÉG FÓR á Elton John tónleikana og var rosalega ánægð með tónleikana sem slíka, en ég er rosa- lega reið og svekkt yfir því að alls konar fólki skyldi hafa verið hleypt inn þegar 45 mínútur voru liðnar af tónleikunum. Tónleikahaldararnir komu oft fram í fjölmiðlum og héldu því fram, að fólki hefði verið hleypt inn þeg- ar 19 lög voru búin, það er ekki satt. Þetta voru ekki bara böm, _ heldur ful- lorðnir hka. Ég þekki fullt af fólki sem er reiðubúið að vitna að það fór frítt inn. Undirbúningurinn að tónleikunum var ömurleg- ur. Ef við íslendingar ætl- um að halda tónleika á heimsmælikvarða þá verð- um við að standa okkur betur. Einnig frétti ég að það hefði verið auglýst á Bylgjunni að það væri frítt inn á tónleikana og veit ég um fjölda manns sem dreif sig, eftir að hafa heyrt auglýsinguna. Hvernig er hægt að bjóða manni upp á annað eins? Ég vil fá svör frá tónleika- höldurunum. Hvernig geta þær komið fram í fjölmið- íum og ekki sagt satt? Mér finnst ekki hægt að fólk komist upp með þetta. Ég fer frekar á tónlistarviðburði erlendis, frekar en að láta hafa mig að fífli. Bryndfs Þorsteinsdóttir. Kattahald í Reykja- vík árið 2000 MIG langar á koma á framfæri umræðu í sam- bandi við kattahald í Reykjavík árið 2000. Er virkilega hægt að hafa frjálst og ábyrgðarlaust kattahald í höfuðborginni árið 2000? Getur hver sem vill haft kött og hleypt honum út og ég segi í garð nágranna til að gera þarfir sínar? Ég segi nei. Mjög margir hafa ofnæmi fyrir köttum eða þola þá ekki og hugsið ykkur við sem búum hér á norðurhjara og hlökkum til vorsins og fuglasöngsins, en við heyr- um grát fuglanna þegar þeir missa afkvæmi sín í kjaft kattanna. Er þetta hægt? Ég vil trúa því að Ingibjörg Sólrún borgar- stjóri sé manna líklegust til að standa fyrir reglu- gerð um kattahald sem breytir þessu ástandi til viðunandi vegar. í góðri trú að ég og margir aðrir verðum bænheyrð. Betri borg. Eldri borgari. Tapad/fundið Veit einhver um myndirnar? KONA hafði samband við Velvakanda vegna mynda sem týndust í fyrra. Synir hennar tveir útskrifuðust úr MS 1999 og lánuðu myndir af sér í útskriftar- bók frá því að þeir voru litlir. Þessi bók var aldrei gefín út. Þegar við fórum að grennslast fyrir um myndimar, virðist enginn vita hvar þær eru niður- komnar og vísar hver á annan. Þessar myndir voru teknar úr fjölskyldu- albúminu og eru okkur af- ar kærar. Ef einhver veit hvar þær eru niður komn- ar eða veit hver gæti verið með þær, er sá hinn sami vinsamlegast beðinn að hafa samband við Guð- rúnu í síma 588-1933 eða 588-1934. Silfurkeðja fannst í Kolaportinu MERKT silfurkeðja fannst í Kolportinu helg- ina 27.-28. maí. sl. Upp- lýsingar í síma 553-3472. SKAK llmsjón Helgi Áss Grétarsson MEÐFYLGJANDI staða kom upp í ísraelsku deildakeppninni á milli stór- meistaranna Al- exander Huzm- an, hvítt, (2574) og Yaacov Zil- berman (2505). 22. Hxf5! Hxf5 23. Bxf5 Dxf5 23. ... Dxg5 tapar eftir 24. Bxc8 Bxc8 25. He8+. 24. Db3+ Kf8 24. ... Kh8 leiðir til taps eftir 25. Rf7+ Kg8 26. Rh6+ 25. Re6+ Kg8 26.RÚ8I+ Kf8 27.Rxb7 Rd4 28. De3! Dd5 29. De7+ Kg8 30. Rd6 Re2+ 31. Kfl og svartur gafst upp þar sem ef riddarinn hans hörfar verður hann mát upp í borði. Med morgunkaffinu Hvar fenguð þér eig- Svo það eru gamanmál- inlega stýrimannsrétt- in þín sem ég á að muna indin. að hlægja að. Yíkverji skrifar... BRYNDÍS lekur. Víkveiji var á dögunum í Bandaríkjunum ásamt fjölskyldu sinni og flaug fram og til baka með Flugleiðum. Á heim- leiðinni var flogið með vél sem ber nafnið Bryndís. Víkverji og ferðafé- lagar hans sátu aftast í vélinni og í flugtaki byrjaði skyndilega að míg- rigna yfir eiginkonu Víkverja svo hún blotnaði talsvert. Henni varð auðvitað mjög hverft við og hélt að eitthvað alvarlegt væri að og kallaði á flugfreyju. Hún sagði að ekkert væri að óttast, þetta gerðist oft í flugtaki, en í lendingu rigndi stund- um á farþega framar í vélinni. Þetta fannst Víkverja afar ein- kennilegt og raunar út í hött að gera ekki eitthvað í málinu til að stöðva lekann. Að sjálfsögðu hefði átt að vara konuna við og bjóða henni teppi eða eitthvað til að skýla sér. Það er alveg óþarfi að gera farþegum bylt við þessum hætti. Margir era flug- hræddir og að rennblotna í flugtaki bætir svo sannarlega ekki úr skák. ANNAÐ var einnig til mikilla óþæginda á heimleiðinni. Hægra megin í vélinni heyrðist ekk- ert í hljómkerfinu. Því var ekki hægt að hlusta á tónlist og ekkert heyrðist heldur á rásinni sem ætluð var til að fylgjast með sjónvarpinu. Það var löng og leiðinleg ferð fyrir þá, sem sátu þeim megin. Víkverja er ljóst að flugfreyjumar fá engu ráðið um bil- anir af þessu tagi og þær gerðu sitt bezta til að ferðafélagar Víkverja hefðu það sem bezt á leiðinni. Meðal annars fengum við veitingar ókeypis á leiðinni. Þá er einnig rétt að geta þess, að á báðum leiðum fengum við öll sæti saman og sæti fyrir ung- bam, sem var með í fór, þó ekki bæri félaginu skylda til þess. Víkverji er þakklátur Flugleiðum fyrir það. xxx EINS og fram kom í upphafi var Víkverji í Bandaríkjunum og dvaldi hann ásamt föruneyti sínu í sveitasælunni í Wisconsin, mjólkur- landi Ameríku, eins og það fylki er gjaman kallað. Á þessu svæði er verðlag mjög lágt, en laun era svip- uð og hér á landi. Segja má að flest eða allt kosti aðeins um þriðjung þess, sem það kostar hér heima. Matur drykkur, bensín, rafmagn og svo framvegis er allt mun ódýrara og sömu sögu er að segja um fatnað. Auðvitað era á þessu margar skýr- ingar. Söluskattur er mun lægri, mest af vamingnum er framleitt inn- an Bandaríkjanna og því er ekki um innflutningstolla að ræða og flutn- ingskostnaður er minni en við inn- flutning til íslands. Skýringamar era vissulega margar, en það er ljóst að samanburðurinn við ísland er okkur afar óhagstæður. Svo virðist sem ein króna á Islandi verði tvær til þrjár vestra, enda hefur fólk á þessu svæði það mjög gott. Þama geta menn leyft sér að fara út að borða góðan mat án þess að það setji stórt strik í heimilisreikninginn og gera það óspart. Þjónusta í verzlunum og á veitingahúsum er mjög góð og fólkið er mjög alúðlegt. Þá mætti vafalítið margur íslenzkur ökumað- urinn taka sér tillitssemi Banda- ríkjamanna í umferðinni til fyrir- myndar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.