Morgunblaðið - 06.06.2000, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000 37
LISTIR
Hefðin er
spegill okkar
■oniiiBiniiiiimii
1 88.
Söngflokkurinn heimskunni Ladysmith
Black Mambazo heldur tónleika á Hótel
7
Islandi á vegum Listahátíðar í Reykjavík
í kvöld. Árni Matthíasson hitti að máli
hugsjónamanninn Joseph Shabalala sem
stofnaði flokkinn og bjargaði með því
merkilegri sönghefð.
Morgunblaðið/Amaldur
Söngflokkurinn heimskunni Ladysmith Black Mambazo sem syngur á
Hótel Islandi í kvöld.
SÖNGHEFÐ er sterk í Suður-Afr-
íku og þá ekki síst sú hefð að karlar
syngi saman og gjarnan án undir-
leiks. Ekki eru þó mörg ár síðan sú
gamla hefð var á undanhaldi og
hefði kannski dáið út ef ekki hefði
komið til atorka og þrautsegja eins
manns, Josephs Shabalala, sem átti
sér þann draum að endurvekja og
endurnýja hefðina, miða henni til
komandi kynslóða eins lifandi og
hún var forðum. Joseph dreymdi
söng, hann dreymdi raddir sem
sungu á nýstárlegan hátt, en þó með
rætur í gömlum tíma. Þrátt fyrir
vantrú manna í kringum hann
ákvað hann að reyna að endurskapa
þá tónlist sem hann heyrði í draum-
um sínum.
Joseph er hæglátur, maður lávax-
inn, snöggklipptur með hrokkið
kolsvart hár en grásprengt skegg.
Honum liggur lágt rómur, en þegar
hann talar um draum sinn er eins og
hann hækki um nokkra sentimetra
og þrekni að sama skapi og þegar
kemur að þeim málum sem liggja
honum mest á hjarta, framtíð Suð-
ur-Afríku, er röddin orðin sem
þrumugnýr, en eins og hendi er
veifað verður hann sami Ijúflingur-
inn; í honum býr listamannsskap.
Hefðin er
spegill okkar
Joseph talar af mikilli virðingu
um kennara sína, sem kenndu að
syngja eins og forfeðurnir og inn-
rættu honum einlæga ást á söngv-
um fyrri tíma. Hann segir að þeir
hafi aftur á móti ekki tekið hug-
myndum hans um endurnýjun
hefðarinnar eins vel. „Þegar ég fór
að tala um að mig langaði að semja
eigin lög gripu þeir um eyrun eins
og ég færi með goðgá; sögðu mér
að hætta þessari vitleysu og syngja
bara það sem sungið hafði verið
alla tíð,“ segir Joseph og bætir við
brosandi: „Aðrir aftur á móti, fé-
lagar mínir og ættingjar, sögðu
mér að hætta að syngja þessa
gömlu tónlist, að það væri ekkert
varið í þessar gömlu hefðir. Ég
fann það aftur á móti að hefðin var
grunnurinn að því sem við áttum að
gera í framtíðinni, hefðin er spegill
okkar og við verðum að viðhalda
henni til að vita hverjir við erum,
nota hana til að skapa eitthvað
nýtt, til að skapa nýja hefð,“ segir
Joseph með áherslu.
Joseph hóf að syngja m£ð sveit-
inni The Blacks og varð snemma
leiðtogi kórsins og samdi fyrir hann
sönglög og útsetti. The Blacks nutu
mikillar hylli og urðu með tímanum
helsti söngflokkur Zulumanna, en
Joseph segir að sér hafi þótt eitt-
hvað vanta í tónlistina, þar hafi ver-
ið tómarúm í henni sem hann leitað-
ist við að fylla með því að bræða
Zulusönginn saman við aðra söng-
hefð, kirkjusöng. Félagar hans voru
ekki ýkja spenntir fyrir tilraunum
Josephs og svo fór að hann sagði
skilið við sveitina, kallaði til frænd-
ur sína og vini og setti saman nýjan
kór, Ladysmith Black Mambazo,
Ladysmith eftir þorpinu sem þeir
bjuggu í og Mambazo, sem þýðir öxi
á Zulumáli, til að skjóta andstræð-
ingum í kórakeppnum skelk í
bringu.
Gat ekki annað en
fylgt draumnum
„Menn voru alltaf að skensa mig
fyrir það hvað ég tæki þetta allt al-
varlega en það var mér nauðsynlegt
að fylgja draumnum, ég gat ekki
annað,“ segir Joseph Shabalala al-
vörugefinn. Heldur lyftist þó á hon-
um brúnin þegar honum er bent á
að hann hafi greinilega gert rétt í að
láta brjóstvitið ráða því ekki hafi
hann bara náð alþjóðlegum frama
heldur hafi hann blásið nýju lífi í
gamlar hefðir og í raun skapað nýj-
ar.
„Það þykir mér mest um vert að í
dag eru ótal sönghópar í Suður-Afr-
íku sem halda sönghefðinni lifandi
og eru um leið að taka þátt í að
skapa nýja hefðir,“ segir Joseph og
það leynir sér ekki að honum þykir
það ekki leitt. Hann segist reyndar
hafa einna mest gaman af því nú-
orðið að kenna ungu fólki sönghefð-
ir og ýmsar hugmyndir sem hann
langar til að hrinda í framkvæmd.
„Ég hætti ekki að syngja með Lady-
smith Black Mambazo fyrr en það
er kominn sterkur leiðtogi sem get-
ur tekið við af mér, ég get ekki
hugsað mér að láta kórinn minn
lognast útaf. Ef það verður myndi
ég gjarnan vilja eyða meiri tíma í að
kenna börnum að syngja og þá ekki
bara heima í Suður-Afríku, heldur
um allan heim,“ segir Joseph og
bætir við að hann hafi velt því fyrir
sér í nokkur ár að setja saman
blandaðan kór til að flétta saman
raddir pilta og stúlkna. „Svo á ég
svo mörg lög sem ég á eftir að
hljóðrita," segir hann og bætir við
að fyrstu árin hafi flokkurinn tekið
upp tvær plötur á ári, en vegna anna
taki hann ekki ugp nema eina plötu
á ári nú orðið. „Ég er með hausinn
fullan af lögum,“ segir hann og
tekst allur á loft af tilhugsuninni um
öll þau skemmtilegu verkefni sem
hann á eftir að leysa af hendi.
london Tl4.000 kr.
stansted
með flugvallarskatti
báðar leiðir
nýja lágfargjaldaflugfélagið í eigu british airways
250 kr. aukaafsláttur ef
bókað er á www.go-fly.com
flugfar á lægsta verði selst hratt, samt sem áður er enn hægt að fá flugfar frá aðeins 14.000 kr. báðar leiðir
london stansted • alicante • barcelóna • bilbao • bologna • kaupmannahöfn • edinborg • faro • ibiza • lissabon • madrid • malaga • mílanó • napolí • palma • prag • róm • feneyjar
miöast við eftirspurn I samkvæmt skilmálum