Morgunblaðið - 06.06.2000, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000 63
Ur dagbók lögreglunnar
Mikill fjöldi ökumanna
undir áhrifum áfengis
2. til 5. júní
ÞVÍ MIÐUR eru enn talsvert margir
ökumenn sem lögreglan hefur af-
skipti af vegna ölvunar við akstur.
Þessa helgi voru það 16 ökumenn
sem féllu undir slíkan grun. Öku-
menn mega búast við aukinni áherslu
lögreglu á eftirlit með ástandi þeirra.
Umferðaróhapp varð í Mosfellsbæ
síðdegis á fóstudag. Farþegar leituðu
til læknis vegna óhappsins.
Höfð voru afskipti af 16 ára pilti við
akstur fjölskyldubifreiðar að morgni
laugardags. Aksturinn getur haft
áhrif á rétt viðkomandi til að öðlast
ökuréttindi þegar lágmarksaldri er
náð.
17 ára gömul stúlka var stöðvuð á
Stekkjarbakka á svipuðum tíma einn-
ig án réttinda. Þá var 17 ára réttinda-
laus piltur stöðvaður á Laugavegi að
morgni laugardags einnig próflaus.
Aðfaranótt sunnudags hugðist lög-
reglan stöðva bifreið sem ekið var á
Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ. Öku-
maður bifreiðarinnar sinnti ekki
stöðvunarmerkjum lögreglu og
reyndi að komast undan lögreglu.
Hann missti síðan stjóm á bifreiðinni
með þeim afleiðingum að hún valt.
Ökumaðurinn, sem hefur ekki rétt-
indi til aksturs, er einnig grunaður
um ölvun og að hafa tekið bifreiðina
án heimildar.
Ölvaður ökumaður endaði akstur
sinn í vesturbænum á sunnudags-
morgun með því að aka á tvær bif-
reiðar og síðan á stöðumæli.
Vernd barna og ungmenna
Lögreglan gerði athugun á aldn
gesta á samkomuhúsum í borginni
um helgina. Höfð voru afskipti af 11
ungmennum sem dvöldu á 6 veitinga-
stöðum án þess að hafa tilskilinn ald-
ur til slíkrar dvalar.
Á annan tug ungmenna var fluttur
í athvarf í miðbænum vegna brots á
útivistarreglum. Þá voru höfð af-
skipti af ungmennum vegna áfengis-
neyslu þeirra.
Auðgunarbrot
Brotist var inní bifreið í austur-
borginni og stolið geislaspilara og
unnar skemmdir þegar reynt var að
tengja framhjá kveikjulásnum.
Tveir 17 og 18 ára piltar voru hand-
teknir á laugardag eftir þjófnað úr
herbergi á gistiheimili. Karlmaður á
fimmtugsaldri var handtekinn eftir
að hafa framvísað vákorti í verslun á
laugardag. Hann var fluttur á lög-
reglustöð til yfirheyrslu.
Karlmaður var handtekinn er hann
reyndi að brjótast inní fyrirtæki í
miðbænum snemma á sunnudag.
Ofbeldisbrot
Kai'lmaður er grunaður um að hafa
sparkað í andlit stúlku á veitingastað
í miðbænum að morgni laugardags.
Að morgni laugardags var tilkynnt
var um mann með hníf sem hefði ógn-
að fólki. Tveir voru handteknir og
fannst hnífur sem lagt var hald á.
Að kvöldi laugardags var ráðist á
mann við Kringluna og honum veittir
áverkar. Árásarmaðui-inn er óþekkt-
ur. Þolandi var fluttur á slysadeild
með skurð á enni.
Ávana- og fíkniefnamálefni
Ökumaður var stöðvaður í Ána-
naustum aðfaranótt laugardags
grunaður um akstur undir áhrifum
áfengis- og vímuefna. Ætluð fíkniefni
fundust á ökumanni sem var stöðvað-
ur á Reykjanesbraut.
Annað
Slökkviliði var tilkynnt um reyk í
stigagangi í Stóragerði á laugardag. í
ljós kom að kveikt hafði verið á hellu
á eldavél og svo illa vildi til að farsími
hafði verið á hellunni. Síminn eyði-
lagðist en ekki urðu aðrar skemmdir.
Trúðanám-
skeið í
Kramhúsinu
TRÚÐANÁMSKEIÐ hefst í
Kramhúsinu fimmtudaginn 8.
júní og stendur í fimm daga.
Leiðbeinandi er Jonathan
Young en hann stundaði leik-
listarnám í „le Cock“ í París.
Einnig hefur hann sótt trúða-
námskeið hjá Sue Morrison,
Philip Gaulier og Angelu de
Castro sem öll eru þekkt í þessi
fagi. Hann hefur sett upp sín
eigin verk, auk annarra, í Eng-
landi og Skotlandi.
VasHhugi
A L H L I Ð A
VIÐSKIPTAHUGBÚNAÐUR
i Fjárhagsbókhald
• Sölukerfi
I Viðskiptamanna
kerfi
l Birgðakerfi
I Tllboðskerfi
l Verkefna- og
pantanakerfi
I Launakerfi
I Tollakerfi
Vaskhugi ehf. Síðumúla 15 - Sími 568-2680
Vtö (nddtm HfpUMM,
ekki kiHim
Hvernig kemur bíllinn þinn undan vetri?
Við gerum við rispurnar og sjdum um blettanir með efni
sem gerir galdurinn. Þú sparar peninga og bíllinn er
tilbúinn samdægurs. Frdbær útkoma og varanleg.
*3bl
Sjón er sögu ríkari
AK GUÐBERG EHF
Sími: 567 7523
Netfang: akchips@mmedia.is - Bíldshöfða 14 Reykjavík
sumar
Ert þú litaglaður?
20% afsláttur
af öllum símaskeljum.
tilboðsverð
Innifalið: Handfrjáls búnaður, bílhleðslutæki
taska og festing i bíl.
Hafðu hendurnar á stýrínu.
20% afsláttur af öllum
handfijálsum búnaði
BOICVAL
Hauarinula 2 • ReyKjavik • sími 540 2060
Hafnarstræti 91*93
Tilboðið gildir út júní 2000