Morgunblaðið - 06.06.2000, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 06.06.2000, Blaðsíða 70
MORGUNBLAÐIÐ 7 0 ÞRIÐ JUDAGUR 6. JÚNÍ 2000 $£0)j ÞJQÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200 Stóra st/iðið ftl. 20.00 LANDKRABBINN — Ragnar Amalds Mið. 7/6 næstsfðasta sýning, mið. 14/6 síðasta sýning. DRAUMUR Á JÓNSMESSUNÓTT eftir William Shakespeare Fim 8/6 nokkur sæti laus, fim. 15/6. Siðustu sýningar leikársins. GLANNI GLÆPUR í LATABÆ Magnús Scheving og Sigurður Sigurjónsson. Sun. 18/6 kl. 14 nokkur sæti laus. Síðasta sýning leikársins. KOMDU NÆR — Patrick Marber Fös. 9/6 síðasta sýning. Sýningin er hvorki við hæfi bama né viðkvæmra. Litla sóiðið kt. 20.30: HÆGAN, ELEKTRA — Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir Aukasýning mið. 7/6 örfá sæti laus, fös. 9/6. Ailra síðasta sýning. Miðasalan er opin mánud.—þríðjud. ki. 13—18, miðvikud.—sunnud. kl. 13—20. Símapantanir frá kl. 10 virka daga. Sími 551 1200. thorev@theatre.is — www.leikhusid.is IEIKFELAG ISLANDS 5 30 30 30 tasTfliSNk Sjeíkspír eins og hann leggur sig fim 8/6 kl. 20 örfá sæti laus fím 15/6 kl. 20 laus sæti Panódíl fyrir tvo fös 16/6 kl. 20.30 laus sæti Síðustu sýningar í sumar jr“7rg Stjömur á morgunhimni sun 18/6 kl. 20 laus sæti ifa- W fim 22/6 kl. 20 laus sæti ■■ J Slðustu sýningar I sumar íf)fÍ0 Hádegisleikhús: LEIKIR fös 16/6 kl. 12 Slðasta sýning Miðasala fyrir bæði leikhús er I Iðnö. laugardaga, fram að sýningu sýningardaga og 2 klst. fyrir sýningu á sunnudögum. Hægt er að ganga fra greiðslu með greiðslukorti sfmleiðis. Greidda miða má sækja I viðkom- andi leikhús. Miðapantanir einníg i síma 552 3000 KatfíLcfhiiúsið Vesturgötu 3 Einleikjaröð 2000 Bannað að blóta í brúðarkjól 4. sýn. fimmtudag 8.6 kl. 21.00 5. sýn. föstudag 9.6 kl. 21.00 — Ljúffertgur málsverður fyrir sýninguna — MIÐASALA í s. 551 9055. LADDl 2000 Síðasta sýnins fyrir sumarfrí. Föstudaginn 9. júní RI.20 Pöntunarsími: 551-1384 BtOLEIKH US Frábær látbragðsleikari Paolo Nani með sýninguna „Bréfið" þri. 6.6 og mið. 7.6 kl. 20 Aðeirts tvær sýningar. Miðasala opin alla virka daga kl. 13—17 og fram aö sýningu sýningardaga. Sími 462 1400. _______www.leikfelag.is______ Listahátíd i Reykjavik || Hvad ætlar þú að sjá? N Englar alheimsins Leikgerð CaféTeatret á sögu Einars Más Guðmundssonar sem hlaut frábæra dóma í Danmörku Smíðaverkstæðið, I kvöld 6. júní kl. 20:30 Miðaverð: 2.000 kr. Ladysmith Blach Mambaio Suður-afrískur söngflokkur sem slegið hefur f gegn með lifandi túlkun Broadway, í kvöld 6. júní kl. 21:00 örfá sæti laus Miðaverð: 3.000 kr. Judith Ingólfsson Framúrskarandi fiðluleikarí sem hefur hlotið fjölda verðlauna Háskólabíó, 7. júní kl. 19:30 Miðaverð: 2.000 kr. og 2.300 kr. ÍL Stórsöngvaraveisla Úrvalslið okkar þekktustu söngvara syngur aríur og dúetta úr frönskum og ítölskum óperum. Sigrún Hjálmtýsdóttir, Rannveig Frfða Bragadóttir, Kristján Jóhannsson, Kristinn Sigmundsson og Sinfónluhljómsveit Islands undir stjórn Giorgio Croci. Laugardalshöllin, 8. júnl kl. 20:00 Miðaverð: 2.500 kr. örfá sæti laus V Niðasala Listahátíðar, Bankastræti 1 Sími: 551 8588 Opið aHa daga: 8:30- 10:00 www.artfest.is / FÓLK í FRÉTTUM ERLENDAR ooooo ★★ Kristján Sigurjónsson stjórn- andi heimstónlistarþáttarins Tengja á Rás 2 fjallar um nýj- ustu plötu Youssóu N’Dour, Joko. Sannur lista- maður á villigötum NÝJA platan frá Youssou N’Dour byijar með bravúr. Fjögur fyrstu lög- in einkennast af spila- og sönggleði, hita og svita. Youssou syngur eins og engill á woloff sem er hið opinbera mál Senegalbúa og hljóðfæraleikarar hans fara á kostum í trumbuslætti og gítarleik. Það er ekki nokkur leið að halda aftur af skönkunum sem ósjálf- rátt slá taktinn. Meira að segja má heyra gamla gít- arsándið sem fyrrum gítarleikari Youssou N’Dour - Badu N’Daye - varð þekkur fyrir á upphafsárum Super EtoOe hljómsveitarinnar. Lög- in eru blessunarlega laus við Parísar- hljóminn sem hefur tröllriðið vestur- afrískri tónlist á undanfomum árum og lýsir sér í yfirþyrmandi útsetning- um og ofnotkun á hljómþorðum og trommuheilum. Loksins fær tónlistin að njóta sín, hugsar maður eftir fyrstu fjögur lögin. Ósvikin lög frá Senegal byggð upp á allt annan hátt en vestræn tónlist, ólgandi af h'fi og Qöri. En með fimmta lagi fer heldur betur að halla undan fæti. Við taka klisjukennd popplög, hvorki betri né verri en gerist og gengur í þeim bransa, sem Youssou syngur að mestu á ensku - og það má glögglega heyra að enskan liggur ekkert sér- staklega vel fyrir honum. Það er því léttir að heyra lag nr. 10 - Yama - sem er áhrifaríkur óður tíi bamfóstr- unnar í Senegal. Næsta lag er einnig prýðilegt - This dream þar sem Petur Gabriel syngur viðlagið, en N’Dour heldur sig við woloff og syngur um draum Senegalbúa um að halda þjóð- areinkennum sínum og hefðum en taka um leið þátt í að móta tækni- væddan heim. Næsta lag, Red Clay, er hið besta af vestrænu lögunum, snoturlega samin baliaða sem N’Dour syngur bæði á woloff og ensku. í þessu lagi má glögglega heyra hve fína rödd Youssou N’Dour hefur. Youssou N’Dour gerir tilraun með að blanda saman rappi og Senegaltónlist í tveimur lögum með aðstoð Wyclef Jean úr Fugees. Þessi tilraun gengur engan veginn upp og útkoman er í besta falli hallærisleg. Túlkun N’Dour á gömlu Motown lagi eftir Smokey Robinson, Dont look back, bætir engu við upphaflegu útgáfuna. I texta í rapplaginu How come seg- ir á einum stað „Hvers vegna finn ég fyrir eilífri pressu frá útgefandanum mínum?“ Kannski kemst Youssou N’Dour þama að kjama málsins. Það em nefnilega fjölmargar þversagnir í tónlist og ferli Youssou N’Dour. Hann er fæddur árið 1959 í Dakar í Senegal, ári áður en Senegal hlaut sjálfstæði frá Frökkum. í guðsgjöf fékk hann söngrödd sem á vart sína líka og tæp- lega tvítugur var hann orðinn að stór- stjömu í Senegal. Hljómsveit hans, Super Etoile de Dakar, var sú vinsæl- asta í landinu og raddi nýjar brautir í senegalskri tónlist. Hljómsveitin náði að blanda saman tónlist hinna ýmsu þjóðflokka í landinu saman við rokk, djass og kúbutónlist, sem um árabil hafði notið mikillar hylli í landinu. Textamir vorum tíðum hápólitískir og stungið var á ýmis kýli. Um miðjan 9. áratuginn komst Youssou N’Dour í kynni við vestræna poppara eins og Peter Gabriel, Paul Simon og Sting og þar með opnaðist leið hans inn á enska málasvæðið, en hann var reyndar orðinn þekktur í Frakklandi. Síðan 1989 hefur Youssou N’Dour sent frá sér fjórar plötur ætlaðar vestrænum hlustendum þar sem hann, líkt og á nýju plötunni, hrærir saman alþjóðlegu sviplausu poppi og Youssou N’Dour vestur-afrískri tónlist. Hann á það til að sameina þessar ólíku tónlistar- stefnur innan einstakra laga eða halda stílunum aðskildum þannig að lögin em annað hvort afrísk eða ein- falt vestrænt popp. Þessi stefna, hvort sem hún er frá Youssou N’Dour eða útgefandanum komin, gerir plöt- ur hans að hálfgerðum bastörðum og maður veit ekki almennilega hvort listamaðurinn er að koma eða fara. Það efast enginn um stórkostlega hæfileika Youssou N’Dour. í Senegal er hann nánast í guðatölu og þar sendir hann frá sér tónlist á allt öðr- um forsendum en á vesturlöndum. Þar þarf hann ekki að eltast við (ímyndaða?) þörf markaðarins fyrir popp sungið á ensku. Maður spyr sig líka hvers vegna nöfn þeirra Sting og Peter Gabriel eru blásin upp í tengsl- um við útkomu Joko. Þeir koma fram hvor í sínu laginu, en bæta svo sem litlu gagnlegu við. Skyldi það vera pressa frá útgefandanum? Því miður er nýja platan frá Youssou N’Dour því marki brennd að hann er að reyna að geðjast öllum - meira að segja röppurum - en slíkt er einfaldlega vonlaust. Að vona að allir finni eitt- hvað við sitt hæfi er heldur klént markmið hjá alvöru listamanni. Þá er betra að senda frá sér hreina ensku- mælandi poppplötu sem gerir ekki til- kall tíl að vera neitt annað eða alvöm senegalska tónlist eins og heyra má í íjórum fyrstu lögum plötunnar. Sem betur fer sleppir Youssou N’Dour sér yfirleitt lausum á tónleikum og lætur þar afríska tóna og takta njóta sín. Tónleikar hans í Reykjavík á næst- unni em því virkilegt tilhlökkunar- efni. En Joko veldur vonbrigðum. Kristján Sigurjónsson \ ú'' - ' f ...... Jóakim Reynisson og íris Sveinsdóttir kljást við tæknivandamálin með fjarstýringunni. Morgunblaðið, Flateyri. Lýður Árnason hefur einfaldan smekk og kom á fyrstu sjónvarpsútsendinguna í limmósínu að hætti sjónvarpsstjóra. LAUGARDAGURINN 27. maí sl. verður örugglega minnistæður mörgum heimamanninum á Flat- eyri, þegar Lýður Árnason, lækn- ir, kvikmyndaframleiðandi og menningarsprauta staðarins, boð- aði til fyrstu sjónvarpsútsendingar frá Vagninum á Flateyri. Mikil til- hlökkun greip um sig og strax á fyrstu timum forsölunnar fyrr um daginn voru 80 miðar þegar seldir. Á tíunda timanum um kvöldið var mættur töluverður hópur í Vagn- inn og gæddu menn sér á kampa- vfni og snakki að hætti frumsýn- Sjónvarp Flateyri ingargesta. Þegar nær dró mið- nætti birtist sjálfur sjónvarps- stjórinn f limmósínu utandyra og stormaði inn ásamt söngfélögum sínum. Fram að miðnætti var boð- ið upp á þjóðlega söngdagskrá af hendi Lýðs og félaga. Ekki var laust við að áhrifa súludansins gætti í nýrri dagskrá þeirra fólaga og má segja að eftirminnilegra súluatriði hafi ekki sést lengi vel á Vestfjörðurn. Loks var komið að útsendingunni á miðnætti og líkt og um allar tækninýjungar, vill oft tæknin stríða mönnum og fóru menn ekki varhluta af því þetta kvöldið. En allt fór vel að lokum og menn hlógu dátt í þær 45 mín- útur sem Sjónvarp Önundarfjarðar var á skjánum. Að lokinni dagskrá var boðið upp á svakalegan tón- ski'fuþeyting fram eftir nóttu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.