Morgunblaðið - 06.06.2000, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000 45
LISTIR
Maraþonsöngur
TOJVLIST
Salurinn
SÖNGTÓNLEIKAR
60 íslenzk einsöngslög. Valgerður
Guðrún Guðnadóttir sópran, Ás-
gerður Júníusdóttir mezzosópran,
Garðar Thor Cortes tenór, Ágúst
Ólafsson barýton. Jónas Ingi-
mundarson, pianó. Þriðjudaginn
30. maíkl. 20:30.
SEXTÍU laga prógramm er hátt
í þrefaldan kvöldskammt, og ef
þungaviktarar eins og Wolf, Muss-
orgskíj eða R. Strauss hefðu verið
í meirihluta hefðu maraþontónleik-
arnir á vegum Listahátíðar og
Tónskáldafélags íslands í Salnum
sl. þriðjudag líklega teygzt fram
undir óttu. En sem betur fór voru
gullaldarlögin íslenzku fremur
stutt. Tónleikagestir gátu farið
heim um skikkanlega háttatíma
eftir tæplega þriggja stunda út-
hald með hléi, og lögin voru valin
af slíkri kostgæfni að lítið sem
ekkert var um daufa punkta. Og
ekki stóð á áhuga tónleikagesta,
því uppselt var og margir urðu frá
að hverfa. Því undarlegra var að
sjá á þriðja tug auðra sæta þegar
leikar hófust, og bendir það til að
Salurinn þyi’fti að koma sér upp
e.k. biðmiðasölukerfi svo nýta
megi „no show“-sætin, líkt og
þekkist í leikhúsum. Söngvararnir
voru af yngri kynslóð og meirihluti
þeirra enn við framhaldsnám er-
lendis. Hafi dagskrárefnið myndað
sýnishorn af íslenzka sönglaginu á
20. öld undir yfirskriftinni
Draumalandið beindist athyglin
því ekki síður að frammistöðu
hinna tiltölulega lítt reyndu ein-
söngvara.
Ásgerður Júníusdóttir náði sér
fyrst á flug í Taktu sorg mína
(Bjarni Þorsteinsson) og einkum í
Nótt (Árni Thorsteinsson), sem
opinberaði sérkennilega hljóm-
mikla mezzo-rödd, þó að veikustu
tónar ættu til að hverfa í stórum
sal. Vöggukvæði Emils naut fal-
legrar kyrrðar, og textameðferðin,
sem framan af var svolítið dauf,
lifnaði við í skemmtilegri túlkun á
gamansöng Páls ísólfssonar, Litla
kvæðið um litlu hjónin. Veiku nót-
urnar voru laglega sungnar í Þú
ert (Þórarinn Guðmundsson) og í
Islenskt vögguljóð á Hörpu (Jón
Þórarinsson), og raunar líka í
Söknuður Hallgríms Helgasonar,
þrátt fyrir heldur óskýrari fram-
burð. Aðeins meiri kraftur á
áherzlustöðum hefði sett punkt yf-
ir i-ið í kankvíslegu lagi Jórunnar
Viðar, Kall sat undir kletti. Ás-
gerður var fullvökur á styrkbreyt-
ingum í Við Vatnsmýrina (Sigfús
Halldórsson), þar sem veikustu
staðir heyrðust varla, og annars
brilljant píanóleikur Jónasar
skyggði af sömu sökum á Söngfugl
að sunnan (Atli H. Sveinsson).
Dýnamíska flöktið var enn full-
áberandi í Krummi Tryggva
Baldvinssonar, en hin stutta Vor-
vísa Jakobs Hallgrímssonar
heppnaðist aftur á móti vel, að
maður tali ekki um síðasta lag Ás-
gerðar, Yfirlýsing (Hjálmar H.
Ragnarsson), þar sem söngkonan
fór á kostum við óborganlegan
texta Magneu Matthíasdóttur.
Valgerður Guðrún Guðnadóttir
mun Ijúka prófi í júlí úr Guildhall í
Lundúnum. Eftir prýðilega með-
ferð á Gígjunni og Sólskríkju
Laxdals vakti látleysi hennar í Þú
eina hjartans yndi mitt (Kalda-
lóns) og í dag skein sól (Páll ís-
ólfsson) fyrstu eftirtekt manns.
Sjá dagar koma (Sig. Þórðarson)
vantaði nokkurn epískan þunga og
Una (Gunnar Sigurgeirsson) kraft
á neðsta sviði. Hið launframsækna
lag Bjarna Böðvarssonar, Kveld,
gekk vel, en það var ekki fyrr en í
„seguediilu“ Lofts Guðmundsson-
ar, Biðilsdansi, að Valgerður tók
til óspilltra mála með Carmenskt-
tælandi tilþrifum, er náðu enn
hærra í háðperlu Jórunnar Viðar,
Vort líf. Sumar sönghendingar
voru svolitið andstuttar í annars
vel heppnuðu Hvert örstutt spor
Nordals, sem ágerðist á endanót-
um í Hjá lygnri móðu (Jón Ás-
geirsson) og dró smáskugga yfir
annars fallega túlkun. Hin ágæta
míníatúra Jónasar Tómassonar,
Róa, róa rambinn, var í meðallagi,
glettnistykki Johns Speight, Prins-
essan á bauninni, vantaði skýrari
texta og yfirvegaðri tímasetningu,
en exístensíölsk ballaða Gunnars
Reynis Sveinssonar, Maður hefur
nú, tókst aftur á móti mun betur,
einkum undir lokin, þrátt fyrir of
hratt tempó og rausnarlega fort-
epedalnotkun píanistans.
Gullpálmaþegi kvöldsins var óef-
að Ágúst Olafsson, sem mun í
framhaldsnámi við Sibeliusaraka-
demíuna í Helsinki. Strax í fyrsta
lagi hans, Sverri konungi (Svbj.
Svbj.) rann manni kalt vatn milli
skinns og hörunds, því ekki var að-
eins flutt af réttum myndugleika,
heldur minnti hetjubarýtonröddin
í ofanálag allt að því óhugnanlega
á nestor íslenzkra bassabarýtona í
þessu fræga glansnúmeri Kristins
Hallssonar. Sá tilviljunarháði
skyldleiki varð enn sérkennilegri í
lygilega þroskaðri túlkun á Enn
ertu fögur sem forðum (Á.T.) og í
Rósin (do.), þar sem veikróma
depurð vafðist ekki fyrir Ágústi
frekar en þrautgæzka birkibeina-
foringjans. Hvað þá tandurskýr
textaskil á harðaspretti í Á
Sprengisandi Kaldalóns. Vel
heppnuð voru einnig hið angur-
væra í rökkurró (Björgvin Guð-
mundsson), frábær Kvöldvísa
Markúsar Kristjánssonar og reim-
leikaleg tónsetning Jóns Leifs á
Máninn líður, þrátt fyrir örlítið út-
haldsleysi í síðastnefndu, enda
hendingar langar og líðandi. I fjar-
lægð Karls O. Runólfssonar var
tæpast hægt að túlka betur, en þó
var enn lengra seilzt í Útlaginn
eftir sama höfund, þar sem slyng
útfærsla andstæðna var snilldin
uppmáluð. Það er óvenjulegt að
heyra álíka sannfærandi tragíska
túlkun jafnsnemma á söngferli og
birtist í Horfinn dagur - kómísku
tilþrifin virðast nýgræðingum öllu
tamari - en þar eins og stundum
áður þurfti að trúa augum frekar
en eyrum að ekki væri hálfu eldri
maður á ferð.
Fjölþætt litagallerí Ágústs
blómstraði í meistarastykki Sig-
fúsar Haldórssonar, I dag, er
auknefna mætti „tempramentin
fimm“, og einu fegurðarblettirnir
birtust í Krummavísum Magnúsar
Bl. Jóhannssonar og Bráðum kem-
ur betri tíð (Gunnar R. Sveinsson),
þar sem nokkur erfið tónbil og
stökk voru ekki nógu hrein. Það
hvarf þó sem dögg fyrir sólu í
einhverri mögnuðustu útfærslu á
Maístjömu J.Á. sem undirritaður
man eftir.
Tenórhljóðfæri Garðars Thors
Cortes virtist hlutfallslega skemur
á veg komið en boldangsbarýton
Ágústs, einkum í styrk, en áferð-
arþýð rödd hans og fallegur ís-
lenzkuframburður, ásamt látlausri
og óþvingaðri túlkun, fleytti hon-
um langt. Meðal beztu augnablika
hans mætti nefna hið ljómandi vel
flutta Ég lít í anda liðna tíð
(Kaldalóns), ljóðræna léttleikann í
Lífið hún sá (Ingi T. Lár.), lauf-
léttu epíkina í Kom ég upp í Kvísl-
arskarð (Sig. Þórðars.) og ekki sízt
unaðstregann í Fjólu Þórarins
Jónssonar (glimrandi leikið af Jón-
asi). Fuglinn í fjörunni (J.Þ.) vant-
aði kraft á neðra sviði, en textinn
var aftur á móti til fyrinnyndar í
Smalastúlku Skúla Halldórssonar.
Þrátt fyrir eitt hátónsbrot í Ég
leitaði blárra blóma (sami höf.)
náði lýríska lipurðin þar fallegum
þokka, og kyrrlátum tærleika í
Vögguvísu úeifs Þórarinssonar.
Snert hörpu mína (A.H.S.) var síð-
asta lag Garðars, sungið á lágvær-
um en eftirminnilega göfugmann-
legum nótum, látlaust en
músíkalskt.
Ríkarður Ö. Pálsson
Þrjár systur o g pabbi
KVIKMYNDIR
Stjörnubfó
SYSTRAGENGIÐ „HANG-
ING UP“★ ★
Leiksljóri: Diane Keaton. Handrit:
Delia og Nora Ephron eftir skáld-
sögu þeirrar fyrrnefndu. Aðal-
hlutverk: Diane Keaton, Meg Ryan,
Lisa Kudrow og Walter Matthau.
Columbia Tristar 2000.
EINS og lífið og tilveran sé ekki
nógu flókin á síma- og gervi-
hnattaöld þó maður þurfi ekki líka
að hugsa um klikkaðan, gamlan
pabba, sem ekki á langt eftir? En
þetta á við hjá systrunum Eve,
Maddy og Georgiu, sem eiga fullt í
fangi með að hugsa um sjálfar sig
og framabrautina, að ekki bætist
við að vera að takast á við fjöl-
skylduna. Húsmóðirin, tímaritaút-
gefandinn og sápuóperustjarnan
nota því símann til að útkljá
vandamál sín.
Þessi kvikmynd sem skrifuð er
af þeim systrum Noru og Deliu
Ephron, og byggist að einhverju
leyti á sannsögulegri reynslu, er
alls ekki nógu góð. Hún á að fjalla
um systrabönd og innri fjöl-
skylduátök á ljúfsáran hátt, en er
svo ómarkviss að maður veit varla
um hvað eða hvern hún er. Nora
ætti að fara að hugsa sig tvisvar
um áður en hún tekst á við næsta
handrit, en eftir að hafa skrifað
mjög áhugaverð handrit, eins og
„Heartburn" og „When Harry met
Sally“, hefur allt verið á niðurleið
hjá henni, og það er ekki spurning
að hún bregst aðdáendum sínum
með þessari mynd.
Eins og Nora virðist halda að
hún geti bara gert hvað sem er og
það verði að gulli, má eiginlega
segja það sama um leikkonurnar
þrjár. Mér finnst þær reyndar all-
ar mjög skemmtilegar, og eiga fáa,
en samt nokkra, góða spretti í
þessari mynd, þá eru þær óskap-
lega svipaðar því sem þær eru allt-
af, og þar fer Meg Ryan fremst í
broddi fylkingar. Ég get ekki sagt
að handritið bjóði upp á dýpri
túlkun á þessum persónum, og þar
liggur hundurinn sjálfsagt grafinn.
Eitt og eitt atriði, ein og ein setn-
ing inn á milli búa yfir einhverju
sem jafnóðum verður að engu, þar
sem sorgleg heimildamyndin kæfir
allt. Af hverju reyna þessar ágætu
konur líka ekki að skrifa konuhlut-
verk sem eru alvöru, í stað þessara
hallærislegu klisjukvenna? Eiga
karlarnir í Hollywood að gera það?
Hanging Up er væmin, þreyt-
andi og ófrumleg kvikmynd, þar
sem reynt er að græða á einhverju
sem þegar er búið að græða á.
Hildur Loftsdóttir
Offset fjölritun
Til sölu hentug og passlega stór offset fjölritun með góðan vélakost,
fasta viðskiptavini og í eigin húsnæði sem einnig gæti verið til sölu.
Sér einnig um setningu og frágang. Fyrirtæki fyrir 2 eða fleiri starfs-
menn. Laust strax. Þekkt fyrirtæki á borgarmarkaðinum.
Mikið af stórum fyrirtækjum á skrá.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
F.YRIRTÆKIASALAN
SUÐURVE R I
SlMAR 581 2040 OG 581 4755, REVNIR ÞORGRÍMSSON.
Júnísprengja
Heimsferða til
Benidorm
27.júní
frá kr.
29.955
Síðustu!
I Heimsferðir bjóða nú einstakt til-
I |tt»* I boð á síðuslu sætunum í júní til
Benidorm, en í lok júní skartar
sumarið sínu fegursta og þú getur notið hins besta í
sumarleyfinu á hreint frábærum kjörum. Við höfum nú tryggt
okkur viðbótargistingu á Don Salva gististaðnum í hjarta
Benidorm, íbúðir með einu svefnherbergi, allar íbúðir með eld-
húsi, baði og svölum. Móttaka á hótelinu, veitingastaður, lítill
garður og sundlaug. Og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjón-
ustu fararstjóra Heimsferða
allan tímann.
Verð kr. 29.955
M.v. hjón rneð 2 böm, 27. júní, vikuferð.
Verð kr. 36.990
M.v. 2 í stúdíó, vikuferð.
Verð kr. 39.955
M.v. hjón með 2 böm, 2 vikur,
Don Salva.
Verð kr. 47.990
M.v. 2 í stúdíó, 2 vikur, Don Salva,
27. júní.
HEIMSFERÐIR
D
: www.
hejHjS&fÍ!cÍfi