Morgunblaðið - 06.06.2000, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 06.06.2000, Blaðsíða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ MENNTUN * Framhaldsskóli - A námstefnu 2. júní um aðalnámskrá framhaldsskóla var m.a. fjallað um markmiðssetningu áfanga og greina. Höfundar beittu flokkunarkerfí Benjamins Bloom og greindu halla milli flokka markmiða. Gunnar Hersveinn var á námstefnunni Ný námskrá - nýr skóli í lok námskeiðs sem 42 skólamenn sóttu. Slagsíða markmiða námskrár • Markmið með tilvísun í tilfinningar og ábyrgð eru ekki áberandi. • Markmið með tilvísun í rökhugsun og skilning eru áberandi. Morgunblaðið/Amaldur Hvað segja markmið áfanga um félagslegan þroska nemenda? Námstefnan Ný námskrá - nýr skóli í EHÍ. FRAMHALDSSKOLUM ber að búa nemendur sína undir líf, starf og frekara nám. Skólamir gegna því veigamikla hlutverki hvað vai’ðar al- menna menntun og félagslegt upp- eldi nemenda auk þess sem þeir skulu vera vettvangur fyrir kynn- ingu þjóðlegra og alþjóðlegra menn- ingarverðmæta," stendur í nýrri að- alnámskrá framhaldsskólanna, bls. 13. A námstefnunni um áhrif nýrrar aðalnámskrár á innra starf íslenska framhaldsskólans sögðu Guðbjörg M. Bjömsdóttir Borgarholtsskóla, Valgerður Bragadóttir og Þórarinn Hjaltason Menntaskólanum við Hamrahlíð frá könnun sinni á markmiðssetningu nýrrar aðalnám- skrár. En samkvæmt 2. gr. laga um framhaldsskóla er hlutverk skól- anna að - stuðla að alhliða þroska nemenda svo að þeir verði sem best búnir undir að taka virkan þátt í lýð- ræðisþjóðfélagi - búa nemendur undir störf í atvinnuh'finu og frekara nám - efla ábyrgðai’kennd, víðsýni, fmmkvæði, sjálfstraust og umburð- arlyndi nemenda - þjálfa nemendur í öguðum og sjálfstæðum vinnu- brögðum og gagnrýnni hugsun - kenna nemendum að njóta menn- ingarlegra verðmæta - hvetja nem- endur til stöðugrar þekkingarleitar, m.a. með því að nýta möguleika upp- lýsinga- og tölvutækninnar. Til að ná þessum markmiðum er mikil áhersla á skipulega og ítarlega markmiðssetningu í nýrri aðalnám- skrá að mati Valgerðar og Þórarins sem kynntu niðurstöður hópsins: „Hver námsgrein á sér sín loka- markmið, þ.e. einhvers konar heild- armynd af því sem stefnt er að í kennslu einstakra námsgreina. Hver áfangi hefur einnig sín markmið. Segja má að áfangamark- miðin Iýsi tálgangi kennslunnar og þeim árangri sem að er stefnt með skólastarfinu, því skýr markmið hljóta að varpa ljósi á hvert takmark kennslunnar skuli vera.“ Ekki er skortur á markmiðum í nýrri aðalnámskrá og fá kennarar skýr fyrirmæli um það sem þeir eiga að kenna í hverjum áfanga. Mark- miðum hefur fjölgað um tugi í hverj- um áfanga miðað við aðalnám- skrána sem áður var í gildi. Dæmi: FÉL 103 úr tveimur í 26, STÆ 103 úr tveimur í 39, EÐL 103 úr 0 í 25. Höfundar vitna í og nota þekkt- asta flokkunarkerfi námsmarkmiða, sem kennt er við Bandaríkjamann- inn Benjamin Bloom. En hann byggir flokkunarkerfi sitt á þeirri hugsun að manneskjan hafi fjöl- þætta námshæfileika og að nauð- synlegt sé að skólakerfið hlúi að sem flestum. Aðalflokkar námsmark- miða eru þá þrír: Þekkingarsvið, þar sem andlegir hæfileikar nem- enda eru þjálfaðir, hugsun þeirra og rökleikni. Viðhorfasvið, þar sem til- finningalegur þroski nemenda er ræktaður, ýtt undir áhuga þeirra og jákvætt viðhorf og leiknisvið, þar sem hvers kyns líkamleg leikni og Ný námskrá - nýr skóli Björn Bjamason sagði í pallbordsumræðum að námskráin væri sífellt þróunarverkefni. ► Að námstefnunni Ný námskrá - nýr skóli stóðu 42 starfandi kennarar, námsráðgjafar og skólastjómendui’ úr flestuin framhaldsskólum landsins, sem eru að Ijúka 15 eininga fram- Iialdsnámi í námskrárfræði og skólanámskrárgerð við Endur- menntunarstofnun Háskóla ís- lands. Kynntu þeir nokkrar nið- urstöður verkefna sinna með erindum og veggspjöldum. Nám- stefnan var haldin í samvinnu við Kennarasamband íslands/ Félag framhaldsskóiakennara, menntamálaráðuneytið og End- urmenntunarstofnun Háskólans. Hópurinn stundaði námið undir leiðsögn Guðrúnar Geirsdóttur lektors við HÍ og Ingvars Sigur- geirssonar prófessors við KHÍ. ► Á námstefnunni var leitast við að svara eftirfarandi spurn- ingum: Hveijum þjónar fram- haldsskólinn? Er gróska eða stöðnun í íslenskum fram- haldsskólum? Hvaða skólastefha er boðuð f nýrri aðalnámskrá? Hefur námskráin áhrif á nám og kennslu? Hvemig verður nám- skránni hrint í framkvæmd? Hvaða hindranir eru helst á veg- inum? Hvað er skólanámskrá og hvaða þýðingu hefur hún? Er skólanámskráin áþján eða áskorun? Er almenn námsbraut afgangsstærð í framhaldsskól- anum? Leysir hún brottfalls- vandann eða er hún gervilausn? ► Á námstefnunni voru flutt erindi um viðhorf til nýrrar aðal- námskrár, framkvæmd hennar, innra starf framhaldsskólans, stöðu skólanámskrárgerðar og þróunarstarf í framhaldsskól- um. Sérstakur gaumur var gef- inn að almennri námsbraut sem menntamálaráðuneytið hefur falið starfsmönnum fram- haldsskólanna að skipuleggja. ► Almenn námsbraut er eins til tveggja ára námsbraut við upphaf framhaldsskólagöngu og er ætluð þeim nemendum sem ekki komast eða vifja ekki fara strax inn á lengri námsbrautir. Markrnið heimar er að veita góða undirstöðu í kjamagrein- um og gefa nemendum tækifæri til að glfma við fjölbreytileg við- fangsefni í list- og verknámi. ► Á námstefnunni kom fram gagnrýni um að almenna náms- brautin væri ekki skýrt skil- greind og styngi það í stúf við t.d. skiigreiningar á bóknámi til stúdentsprófs. Gagnrýnt var að framhaldsskólum væri falin of mikil ábyrgð í málinu. Ólafur Jónsson deildarsérfræðingur þjá menntamálaráðuneyt inu svaraði þessai-i gagnrýni. Almenna brautin ætti að höfða til breiðs hóps nemenda en ekki aðeins þeirra sem væm óvissir um framhaldsnám sitt. Hann sagði brautina geta verið starfstengda og að einingar innan hennar yrðu jafngildar öðrum ein. ► Dæmi vom svo flutt á nám- stefnunni um hvemig mætti út- færa almenna námsbraut og það gerðu fulltrúar Framhaldsskól- ans á Húsavík, Framhaldsskól- ans f Vestmannaeyjum, Mennta- skólans á ísafirði, Menntaskólans í Kópavogi og Verkmenntaskólans á Akureyri. í ljós kom að skólamir nýttu frelsi sitt til að hanna brautina vel og vöktu útfærslumar und- antekningarlaust aðdáun nám- stefnugesta. Almenna brautin þjá þeim virtist jafnvel falla bet- ur undir meginmarkmið aðal- námskrár en aðrar brautir. ► Námstefnunni lauk með pallborðsumræðum sem Bjöm Bjamason menntamálaráðherra tók ineðal annarra þátt í. Hann lagði áherslu á að aðalnám- skráin væri sffellt þróunar- verkefni. Hún væri fremur upp- haf að nýjum túna en iokaskref. Vinnan héldi áfram í ráðuneyt- inu og framhaldsskólarair myndu einnig hver um sig þróa eigin skólanámskrá. Samantekin áfangamarkmið í jarðfræði Þekking Viðhorf Leikni Mat 1 Nýmyndun 0 Greining 3 Beiting 4 Skilningur 19 Minni 9 Heildstætt gildismat 0 Heildarsýn / ábyrgð 0 Alúð / rækt 0 Svörun / þátttaka 0 Athygli / eftirtekt 0 Skapandi tjáning 0 Aðlögun 0 Flókin færni 0 Vélræn leikni 0 Svörun 0 Viðleitni 0 Skynjun 0 Samtals 36 Samtals 0 Samtals 0 Hlutfall allra markmiða % eftir sviðum Þekking Viðhorf Leikni fæmi er þjálfuð. Markmiðum hvers flokks er síðan skipt í þrep og era einföldustu markmiðin neðst. Eftir því sem ofar dregur gera markmið- in meiri kröfur til nemenda, til hugs- unar og gildismats, fæmi eða ann- ars andlegs og líkamlegs þroska. Einnig er nauðsynlegt að nemendur hafi náð markmiðunum á neðri stig- um til að þeir geti tekist á við markmið á efri stigum. Valgerður Bragadóttir sagði á námstefnunni að þau hefðu skoðað í þessu ljósi áfangamarkmið 40 áfanga í aðalnámskrá og loka- markmið 9 greina, samtals um 1100 markmið. „Þegar áfangamarkmið einstakra greina í aðalnámskrá eru skoðuð, kemur í ljós að töluverður munur er á einstökum fögum og greinasviðum," sagði hún og tók það fram að flokkun markmiðanna á sviðin þrjú byggðist á þeirra eigin ályktun. Niðurstaðan var að áfangamark- miðin eru langflest á þekkingarsviði og flest á „lægri“ þrepum þess stigs. Síðan koma markmið á leiknisviði, en langfæst eru markmiðin á við- horfastigi. Mikill munur er þó á ein- staka greinum. I sumum eru markmiðin eingöngu á þekkingar- sviði og ekki vikið að viðhorfum eða leikni. Dæmi um það er jarðfræði, þar sem öll markmiðin falla undir þekkingarsvið. I fjórum jarðfræði- áföngum eru 36 markmið á þekking- arsviði en engin á öðrum. Undir þekkingu flokkast t.d. mat, greining, beiting og skilningur. Undir viðhorf t.d. gildismat, ábyrgð, alúð, þátttaka og athygli. Undir leikni t.d. skapandi tjáning, skynj- un,flókin fæmi og aðlögun. Áfangamarkmið t.d. í þýsku sýna hins vegar að töluverð áhersla er lögð á leiknisviðið. Þar falla 52 markmið undir þekkingu, eitt undir viðhorf og 47 undir leikni. í einstaka greinum er tilhneigingin, sam- kvæmt greiningu höfunda, að þekk- ingarmarkmiðum fækki eftir því sem ofar dregur í faginu og við bæt- ast viðhorfs- og/eða leiknimarkmið. Dæmi: ÞÝS 603. Þar eru tíu leikni- markmið en sjö undir þekkingu. I þeim greinum sem höfundar skoðuðu (samfélagsgreinar, nátt- úrufræðigreinar, stærðfræði, þýska og íslenska) voru það helst mark- miðin í íslensku sem dreifast hvað mest á sviðin þrjú, en dreifingin í félagsgreinum er ekki langt að baki. Samansöfnuð áfangamarkmið í íslensku eru 73 á þekkingarsviði, átján á viðhorfasviði og 28 á leikni- sviði. Samansöfnuð falla 61 áfanga- markmið í sálfræði undir þekkingu, sex undir viðhorf og tíu undir leikni. Höfundum fannst athyglisvert að þegar skráð lokamarkmið greina voru skoðuð og borin saman við áfangamarkmið þá birtist ekki sama mynd. Lokamarkmiðin dreifðust mun meira á sviðin þijú heldur en raunin var í samanteknum áfanga- markmiðum, t.d. náttúrufræði- greina. „Þama gætir ákveðins mis- ræmis,“ sagði Valgerður og nefndi sem dæmi: Áfangamarkmið líf- fræði: 85 undir þekkingu, þrír undir viðhorf, sjö undir leikni. Loka- markmið náttúrfræðigreina: Fimm- tán undir þekkingu, átta undir við- horf og ellefu undir leikni. Innihald einstakra áfanga er m.ö.o. ekki í samræmi við lokamarkmið greinar- innar. í samantekt höfunda sagði Val- gerður að markmiðssetningin hafi verið stóraukin milli aðalnámskráa en að flest markmiðin væru á þekk- ingarsviði, samanber flokkunarkerfi Blooms. Markmiðssetningin er því einhæf ef markmið eiga einnig að ná til fleiri þátta en þekkingar og skiln- ings. En af öllum markmiðunum sem greind voru féllu 912 (80%) undir þekkingu, 78 (7%) undir við- horf og 142 (13%) undir leikni. Áherslan á persónu- og félags- þroska og á tiltekin gildi er m.ö.o ekki áberandi í áfangamarkmiðum þótt eitt af meginmarkmiðum fram- haldsskólans sé að þroska og móta nemendur til góðs. Höfundar veltu íyrir sér í lokin hvort þeir kennarar sem tóku þátt í námskrárgerðinni hafi ekki haft nægilega þekkingu á námskárgerð og hvort þeir hefðu ekki þurft að fara á námskeið í námskrárfræðum áður en þeir hófust handa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.