Morgunblaðið - 06.06.2000, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Silli
Nýstúdentar frá Framhaldsskólanum á Laugum ásamt skólameistara.
Framhaldsskólanum
á Laugum slitið
Sameiginleg kristnihátíð
safnaða á Austurlandi
I. :> i .
Frá Þórarinsstöðum sumarið 1999. Sr. Cecil Haraldsson messaði.
Húsavík - Framhaldsskólanum á
Laugum var slitið í 12. sinn um síð-
ustu helgi við fjölmenna og hátíðlega
athöfn í íþróttahöll skólans.
Útskrifaðir voru sex stúdentar,
tveir af íþróttabraut og fjórir af fé-
lagsfræðibraut.
I ræðu skólameistara, Valgerðar
Gunnarsdóttur, kom fram að um 90
nemendur stunduðu nám við skólann
í vetur. Næsta vetur verða starf-
ræktar þrjár námsbrautir við skól-
ann, félagsfræðibraut til stúdents-
prófs, starfsnám í íþróttafræði og
íþróttagreinum og almenn náms-
braut sem hugsuð er fyrir þá nem-
endur sem ná ekki viðunandi árangri
á grunnskólaprófi. Tvær nýjar
heimavistir verða teknar í notkun að
hausti og er aðstaða þar hin glæsi-
legasta, baðherbergi og sími í hverju
herbergi. Nýr þreksalur, búinn full-
komnum þrektækjum, var tekinn í
notkun á skólaárinu.
Fulltrúar 20 og 30 ára útskriftar-
nema frá Laugum voru viðstaddir
skólaslitin og færðu skólanum gjafir.
Eftirtaldir nemendur fengu viður-
kenningu fyrir góðan ái-angur í námi
og starfi: Guðbjörg Magnúsdóttir
nýstúdent í íslensku, Guðmundur
Guðjónsson nýstúdent fyrir árangur
í íþróttagreinum og einnig fyrir að
hafa lokið flestum einingum á skóla-
árinu, alls 47. Hafþór Elíasson
nýstúdent fyrir góðan árangur í ís-
lensku og einnig viðurkenningu fyrir
að „að vera góður skólaþegn“ og
Nanna Elfarsdóttir nýstúdent fyrh-
félagsstörf.
Aðrir nemendur sem hlutu viður-
kenningu voru Asta Kristín Bene-
diktsdóttir, Kristrún Kristjánsdótt-
ir, Birna Óskarsdóttir og Hildur
Vésteinsdóttir. Piltaverðlaun fyrir
flestar einingar á skólaárinu fékk
Sigurður Pétur Sólveigarson með 47
einingar og Sandra Ásgrímsdóttir
fékk stúlknaverðlaunin með 48 ein-
ingar.
Að lokinni athöfn var öllum við-
stöddum boðið til kaffisamsætis.
UNDIRBÚNINGUR fyrir sameig-
inlega kristnihátíð safnaða á Aust-
urlandi er á lokastigi en hátíðin
verður haldin hvítasunnuhelgina 9.
12. júní 2000 i íþróttamiðstöðinni á
Seyðisfirði.
Dagskráin hefst með TTT-móti
(tíu til tólf ára) 9. júní. Þema móts-
ins verður; Trú, von og kærleikur.
Með umsjón með mótinu fara sr.
Cecil Haraldsson sóknarprestur á
Seyðisfirði og Vilborg Borgþórs-
dóttir leikmaður í Seyðisfjarðar-
kirkju.
10. júní flytur Kammerkór Aust-
urlands óratoríuna Elía e. Felix
Mendelsohn undir stjórn Guðmund-
ar Óla Gunnarssonar. Óratorían var
fyrst flutt árið 1846 og fjallar um
það hvernig Elía reynir að sannfæra
þjóðina um að ákalla frekar Guð
Israels en heiðna guði.
11. júní verður ekið til Þórarins-
staða í Seyðisfirði sem er um 10—13
km frá miðbæjarkjarnanum. A Þór-
arinsstöðum fundust leifar af staf-
kirkju frá upphafi kristni við upp-
gröft 1998 -1999. Þykir við hæfi að
syngja Prímu þ.e.a.s. morguntíð
þar. Rútuferðir verða frá Iþrótta-
miðstöðinni. Annars er vel greiður
akvegur þangað fyrir fólksbíla og
næg bílastæði rétt við Þórarins-
staði.
Tónleikar Sigrúnar Hjálmtýs-
dóttur og Önnu G. Guðmundsdóttur
hefjast kl. 13.00 og hátíðarmessa
klukkustund síðar, biskupinn yfir
Islandi sr. Karl Sigurbjörnsson
predikar, fjölmargir tónlistarmenn
af Austurlandi og víðar að sjá um
tónlistarflutning undir stjórn Agúst-
ar Armanns Þorlákssonar. Eftir
messu er kaffi í boði kristnihátíðar-
nefndar Austurlands. Þar á eftir
hefst menningardagskrá í íþrótta-
miðstöðinni þar sem fram koma
tónlistarmennirnir Rut Reginalds
og Magnús Kjartansson, Skólakórar
Seyðisfjarðar og Neskaupstaðar,
barnakór frá Homafirði, Samkór
Suðurfjarða, börn frá Djúpavogi,
þátttakendur TTT-móts o. fl.
Nokkrar sýningar verða settar
upp í tengslum við og í tilefni af
kristnihátíð, má þar fyrsta telja sýn-
inguna Norskar stafkirkjur í boði
norska sendiráðsins á íslandi sett
upp í Herðubreið, Seyðisfirði, sýn-
ingin „Mörk heiðni og kristni“ í
Minjasafni Austurlands á Egilsstöð-
um, ljósmyndasýningin „Kirkjur á
Austurlandi“ í Skaftfelli, menning-
armiðstöð Seyðisfirði og síðast en
ekki síst verður sýning á verkum
þátttakenda TTT-mótsins.
Fjölmargir hafa lagt hönd á plóg-
inn við undirbúning hátíðarinnar,
má þar nefna kirkjukóra allt frá
Bakkafirði til Hornafjarðar, organ-
ista, sóknarpresta og leikmenn í
kirkjustarfi á Austurlandi svo og
kvenfélögin í fjórðungnum og fl.
Búist er við að 1000 manns verði við
messu í hinni nýju og stórglæsilegu
íþróttamiðstöð þeirra Seyðfirðinga.
Starfsmenn Seyðisfjarðarkaupstað-
ar eru að snyrta og fegra bæinn rétt
eins og tíðkast á íslenskum heimil-
um þegar haldið er upp á merkis-
afmæli, segir í fréttatilkynningu.
UtlVIS
VINTERSPORTn
Bíldshöfða • 110 Reykjavík • sími 510 8020 • www.intersport.is
Pín fristund ■
okkar fag
Salomon III Mid CD
Léttir og liprir multisport skór.
Vatnsheldir og með hámarksútöndun.
Clima-Dry filma. Contragrip sóli.
Dömu- og herrastærðir.
McKinley Göngustafur Léttur
og sterkur þriggja hluta göngustafur
úr áli. Mjög góður í allar göngur.
Minnkar álag á hné og fætur.
Kr. 4.760 parið.
McKinley
Sitka Low Góðir
og léttir alhliða gönguskór sem hentá”
bæði innanbæjar og úti í náttúrunni.
Ytra byrði úr leðri og netnyloni. Phylon
í millisóla og gott grip í ytri sóla.
Dömu-og herrastærðir.
McKinley Blaxe
Sportlegur sandali með
Phylon millisóla og ytra
byrði í PU nubuk leðri.
Frábær sandali. Litir:
svartur eða blár.
St. 32-35 Kr. 2.990,-
St. 36-46 Kr. 3.990,-
2.9
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Utskriftarnemendur frá Verkmenntaskóla Austurlands.
Skólaslit Verkmennta-
skóla Austurlands
Neskaupstað - Verkmenntaskóla
Austurlands var slitið við athöfn í
Egilsbúð laugardaginn 20. maí. 27
nemendur útskrifuðust í þetta sinn
af sex námsbrautum. Tíu útskrif-
uðust af félagsfræðibraut, fimm af
náttúrufræðibraut, fimm af iðn-
braut vélsmíði, þrír af málmtækni-
braut, sex af vélstjórnarbraut og
einn af iðnbraut húsasmíði. Þrír
nemendanna útskrifuðust af fleiri
en einni námsbraut.
Helga M. Steinson skólameistari
flutti ávarp við skólaslitin þar sem
hún m.a. rakti starfsemi skólans.
Þá flutti Díana Dögg Víglundsdótt-
ir ávarp fyrir hönd nemenda. Þess
má geta að hjónin Sigríður Guð-
jónsdóttir og Geir Guðnason, hús-
verðir skólans, voru heiðruð við at-
höfnina en þau láta nú af störfum
eftir langt og farsælt starf við
skólann.