Morgunblaðið - 06.06.2000, Síða 6

Morgunblaðið - 06.06.2000, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Gunnlaugur Briera Gunnar Egilsson frá Selfossi raeð verðlaunagrip fyrir sigurinn í Swin- don sem annar Selfyssingur, Þorsteinn Pálsson sendiherra, afhenti. Selfyssingurinn skæðastur víking- anna í Swindon Swindon. Morgunblaðid. „SIÐAST komu víkingarnir á langskipum til Bretlands en nú koma þcir á öllu skelfilegri farar- tækjum,“ sagði útvarpsþulur sem Qallaði um keppni islenskra tor- færumanna í Swindon í Englandi um helgina. Fjórtán ökuþórar gerðu strandhögg í Bretlandi og fremstur fór Gunnar Egilsson, skipstjóri frá Selfossi, sem kom, sá og sigraði í keppninni. Um 5.000 áhorfendur voru orð- lausir hvað eftir annað af undrun yfir getu bílanna, færni ökuþór- anna og fógnuðu tilþrifum þeirra í þverhníptum brautum í Refa- brekkum. Eftir er að koma í ljós hvort landvinningar hafa unnist og mót- ið í Swindon marki upphaf út- flutnings íslenskrar torfæru sem íþróttagreinar eins og Mótorís, fyrirtæki Aflvaka, Nýsköpunar- sjóðs og nokkurra einstaklinga hefur unnið að um árabil. Altént lýstu styrktaraðilar sig ánægða með hvernig til tókst. Gunnar tók forystu strax í fyrstu þraut og lét hann ekki af hendi út allar þrautirnar átta. Hlaut 2170 stig af 2400 möguleg- um sem telst mjög góður árangur. Framan af fékk hann mikla keppni frá Ragnari Róbertssyni og Sigurði Þór Jónssyni. Keflvík- ingurinn Gunnar Ásgeirsson sótti að honum undir lokin en skákaði honum þó ekki þrátt fyrir tilþrif sem verðlaunuð voru sérstaklega. Hann hlaut 2080 stig, þriðji varð Sigurður Þór með 2020, Qórði Haraldur Pétursson með 1990, fimmti Gísli G. Jónsson með 1970 og sjötti Ásgeir Jamil Allanson með 1912 stig. Hann fékk sér- verðlaun fyrir tilþrifamesta brekkuklifrið en bíll hans stóð um stund lóðrétt ofarlega í næstsíð- ustu brekkunni. Auk þess vann Ásgeir götubflaflokk. Sjö fjölskyldur flótta- manna til Islands SJÖ flóttamannafjölskyldur frá Júgóslavíu voru væntanlegar hing- að til lands í nótt. Alls er um að ræða 23 einstaklinga, sem hafa fengið hæli á íslandi og koma frá Belgrað með viðkomu í Frankfurt í fylgd starfsmanna Rauða kross ís- lands. Þórir Guðmundsson, upplýsinga- fulltrúi RKÍ, sagði að í þessum hópi væri fólk, sem hefði verið allt að níu ár í flóttamannabúðum og ætti ekki annað en pinklana, sem það hefði meðferðis. Flóttafólkið átti að gista í Reykjavík í nótt og heldur síðan til Siglufjarðar í dag þar sem því hef- ur verið útvegað húsnæði. I Þríkynja skáldsaga Ósýnilega SO IRÍÖIO konan LBIKUBOOSYNOUH Ný bÓk CftÍf Sigurð Guðmundsson, höfund Tabúlarasa, um konuna, kallinn og hulstríð í okkur öllum - fyndin, djúp og ijóðræn. SIGURÐOI- GUÐMUNOSSON Mál og mennina Ijk/I malogmenning.is 1 jrj I Laugavegi 18 • Sfmi 515 2500 • Slöumúla 7 • Sfmi 510 2500 Fallið frá sambýli fatlaðra í Hrísey FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA hef- ur fallið frá fyrirhugaðri hugmynd um að koma upp sambýli í Hrísey fyrir fatlaða einstaklinga af höfuð- borgarsvæðinu. Friðrik Sigurðs- son, framkvæmdastjóri Þroska- hjálpar, segist fagna ákvörðun ráðherra. Það sem málið snúist um sé uppbygging á búsetuúrræðum á höfuðborgarsvæðinu. Pétur Bolli Jóhannesson sveitarstjóri í Hrísey segist ósáttur með hvernig tekið hafí verið á málinu. Um hafi verið að ræða tilraunaverkefni til þriggja ára. „Við vonum að í framhaldi þess- arar yfirlýsingar ráðherra fylgi yf- irlýsing um hvernig eigi að byggja upp þjónustu fyrir þessa rúmlega 300 einstaklinga sem eru á bið- lista,“ sagði Friðrik. „Við höfum bent á að fyrir þann hóp sem bið- listanefnd setti í forgang, þ.e. þá sem eru mest fatlaðir er slíkt hús- næði ekki á markaði heldur þarf að byggja nýtt. Það eru þessi dýru hús sem ráðherrann er að tala um en sambýli fyrir fatlaða er sambæri- legt við hjúkrunarheimili aldraða. Á hjúkrunarheimili aldraðra í Sólt- úni kostar hvert pláss í byggingu 13,3 milljónir en dýrasta sambýlis- plássið sem byggt hefur verið hing- að til kostar ekki nema 11,8 mil- Ijónir. Menn verða að átta sig á að verið er að tala um hóp sem vegna fötlunar sinnar þarf sérstakt hús- næði. Þetta eru annaðhvort ein- staklingar sem þurfa auka rými og búnað til að geta athafnað sig eða einstaklingar sem vegna atferlis þurfa sérhannað, einangrað hús- næði. Það sem málið snýst um er hvað gerist á höfuðborgarsvæðinu. Þetta Hríseyjarmál kom upp og átti að bjóða sem valkost og því mótmælt- um við, því stefna Þroskahjálpar er að hún skuli stuðla að þjónustu í heimabyggð og frá 1992 til þessa dags hefur hugsunin fyrst og fremst verið sú að þarna væri ákveðin vörn fyrir landsbyggðina að flytja ekki fatlað fólk utan af landi og til höfuðborgarinnar en nú Hlaut um- hverfis- verðlaun Reykja- víkur PRENTSMIÐJAN Hjá GuðjónÓ hlaut umhverfisverðlaun Reykja- víkur árið 2000, en verðlaunin voru veitt í fjórða sinn í gær á alþjóða- degi umhverfisverndar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri af- henti stjórnendum prentsmiðjunn- ar viðurkenningu og sagði við það tækifæri, að afar mikilvægt væri fyrir borgarbúa að atvinnufyrir- tæki lágmörkuðu óæskileg um- hverfisáhrif af starfseminni. „Frumkvæði í atvinnulífinu við að draga úr neikvæðum umhverfis- áhrifum, án þess að það komi niður á gæðum þeim eða þjónustu sem fyrirtækin veita, er auðvitað geysi- lega mikilvægt og er ævinlega lof- svert.“ Prentsmiðjan hlaut í viðurkenn- ingarskyni verðlaunaskjal og við- urkenningargrip, sem er listaverk eftir Huldu Hákon, myndlistakonu, og nefnist Eldurinn. Starfshópur á vegum umhverfis- og heilbrigðisnefndar Reykjavíkur úthlutaði verðlaununum og sagði Kolbeinn Óttarsson Proppé, for- sjáum við allt í einu andhverfu þess.“ Fatlaðir búi í heimabyggð Friðrik benti á að Þroskahjálp hafi meðal annars tekið þátt í að byggja upp húsnæði sem að stærst- um hluta væri úti á landi til að sýna fram á að fatlaðir eigi að geta búið í sinni heimabyggð. „Það á ekki að þurfa að flytja fólk vegna fötlunar," sagði hann. „Hríseyingar eiga ekki að þurfa að flytja úr Hrísey og það þýðir líka það að fatlaðir Reykvíkingar eiga ekki að þurfa að flytja út í Hrísey. Þetta er ekki landsbyggðarfjand- samlegt heldur eiga einstaklingar að geta búið í sinni heimabyggð hvort sem þeir eru fatlaðir eða ekki.“ Tilraunaverkefni til þriggja ára Pétur Bolli Jóhannesson, sveitar- stjóri í Hrísey, segist vera ósáttur við hvernig tekið hafi verið á mál- inu. Um sé að ræða tilraunverkefni til þriggja ára. „Það var gefin út skýrsla um tillögur frá Svæðisskrif- stofu um málefni fatlaðra á Reykja- nesi, þar sem þetta er allt saman útlistað en svo virðist sem það komi hvergi fram í þessari umfjöllum um hvað málið snýst,“ sagði hann. „í þessari skýrslu kemur fram að við bjóðum upp á ákveðin úrræði og nokkra valkosti." Sagði hann að ákveðið hafi verið að kynna skýrsluna fyrir Þroska- hjálp og fleirum áður en lengra yrði haldið. „Skýrslan var send út á mánudegi og barst samtökunum um miðjan dag og um kvöldið sendu þeir frá sér yfirlýsingu, þar sem hugmyndunum er mótmælt,“ sagði Pétur. „Þeir hafa því ekki sett sig mikið inn í málin og það hefur ekki verið tekið fyrir á formlegum stjórnar- fundi. Mér finnst því með ólíkind- um hvað umræðan hefur verið ómálefnanleg og okkur í óhag. Það hefur aldrei staðið til að flytja hing- að fötluð börn svo dæmi sé tekið. maður starfshópsins, að prent- smiðjan hefði verið í fararbroddi umhverfismála í prentiðnaði með þá stefnu að vera leiðandi í um- hverfismálum. Prentsmiðjan hefði m.a verið með þeim fyrstu sem tóku upp notkun á vistvænum jurtahreinsum og jurtalitum við prentverkið. Fyrirtækið hefði einnig lagt mikla vinnu í greiningu á vinnslu- aðferðum sínum og gripið til við- eigandi aðgerða til að uppfylla Síðan má spyrja hvað sé verið að tala um þegar talað er um nýja ein- angnmarstöð. Hvað má þá segja um Sólheima í Grímsnesi? Ég vil líka benda á að fyrir ári var sett upp svipað heimili á Höfn í Horna- fii-ði. Ekki heyrðist neitt í þeim þá.“ Skammtímavistun Pétur sagði að átt hefði að bjóða upp á úrræði sem hentaði fötluðum sem þyldu mjög illa áreiti og að rætt hafi verið um að bjóða skamm- tímavistun í þrjá til sex mánuði sem gæti verið góð hvíld fyrir aðstan- dendur. „Á þetta er ekki minnst í umræðunni," sagði hann. „Við höf- um verið með sumardvöl fyrir fatl- aða í nokkur ár, sem hefur reynst afskaplega vel en á það er ekki minnst. Ég er farinn að sjá að félagasam- tökin fyrir sunnan geta ekki horft upp á að fjármagn sé sett í slíka uppbyggingu á landsbyggðinni. Þau geta ekki horft upp á að flóran víkki út heldur á allt að byggjast upp á höfuðborgarsvæðinu. Vand- inn er bara miklu stærri og þvi ábyrgðarlaust tal í mönnum þegar vandinn er slíkur fyrir sunnan og við komum með þetta tilboð. Tilboð sem er verulega ódýrara og hag- stæðara en það sem útboð gefa til kynna fyrir sunnan. Um hverja er verið að hugsa? Eru það skjólstæð- ingarnir eða eru einhverjir aðrir hagsmunir í húfi?“ Drukknaði í Ölfusá LÍK mannsins sem féll í Ölfusá við Selfoss á fimmtudagsmorgun í síð- ustu viku fannst á móts við bæinn Kaldaðarnes norðan við ána um klukkan ellefu á laugardag. Maður- inn hét Guðjón Ingi Magnússon, til heimilis að Víðivöllum 6 á Selfossi. Guðjón Ingi var 24 ára gamall, ókvæntur og barnlaus. kröfur norræna Svansmerkisins, en á síðasta ári hlaut prentsmiðjan fyrst íslenskra prentsmiðja þá við- urkenningu að mega merkja fram- leiðsluvöru sína með Hvíta svanin- um. Önnur fyrirtæki sem voru til- nefnd til verðlaunanna voru Um- slag ehf., Fatahreinsunin Hraði, Mjólkursamsalan og Olíufélagið hf. Áður hafa Prentsmiðjap Oddi, 01- íuverslun íslands og Arvakur hf. hlotið verðlaunin. Morgunblaðið/Amaldur Sljórnendur Hjá GuðjónÓ með umhverfisviðurkenningu Reykjavíkur- borgar. Frá vinstri Þórleifur V. Friðriksson, Ólafur Stolzenwald og Sig- urður Þorleifsson, ásamt Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.