Morgunblaðið - 06.06.2000, Side 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
^Oðkaupsveislur—útisamkomur—skemmtanir — tónleikar — sýningar—kynnlngar og fl. og fl. og fl.
I “og ýmsir fyígihiutir
/t •fr*'Ekki treysta á veðrið þegar
lf% w skipuleggja ó eftirminnilegan viðburð -
Tryggið ykkur og leiglð stórt tjald
Tjöld af öllum stœröum frð 20 - 700 ml
Einmg: Borð, stolar, tialdgólf
og tialahltarar.
simi 5621390 • fox 552 6377 • bis@scout.is
NEYTENDUR
Reykjavík í heilsulind-
arsamtökum Evrópu
Kynning á bandarískri matreiðslu
Morgunblaðið/Kristinn
Marentza Poulsen matreiðslukona og Sigrún Halldórsdóttir hjá PP-
forlag, fagna útgáfu bókarinnar Brunch á 100 vegu. í sumar býðst
gestum „brunch" í Café Flóru um helgar.
Sameinar morgun-
og hádegismat
_________180 g (3dl) hveiti________
______________I tsk. salt__________
75 g kalt smjörlíki eða smjör
1 egg (geymið smávegis til að pensla)
Smjörlíki skorið í smábita, salti
og hveiti er blandað rækilega sam-
an, t.d. í matvinnsluvél, blandið
vatni og eggi út í og hnoðið deigið
vel saman. Pakkið því inn í plast-
filmu og látið standa í kæli að
minnsta kosti í klukkutíma. Fletjið
deigið út og bakið eftir uppskrift.
Fylling
500 g fersktspergilkál (brokkólí)
_________125 g reyktur lax_________
_________Viz knippi dill, klippt___
______________3egg_________________
_________2 dl sýrður rjómi 18%_____
____________1V2 dl mjólk___________
saltog pipar
Lagið bökudeig eins og lýst er að
framan, fletjið út og klæðið mótið.
Leggið ræmu af álpappir allan
hringinn yfir kantinn, stingið nokk-
ur göt í deigið með gafíli og forbakið
bökuna í 15 mín. í 200°C heitum ofn-
inum.
Fylling:
Losið spergilkálið sundur og
brytjið stilkinn í litla tenginga. Setj-
ið kálið í sjóðandi vatn í 5 mín., skol-
ið undir köldu vatni og látið renna af
því.
Leggið spergilkálið á bökubotn-
inn. Skerkið laxinn í ræmur og
dreifið milli kálbitanna. Kryddið
með dilli, salti og pipar. Þeytið sam-
an egg, sýrðan rjóma og mjólk og
hellið yfir allt saman.
Bakið við 200°C í 35-40 mín. eða
þar til eggjahræran hefur stífnað í
gegn.
Vel heppnuð baka
Lagið bökuna og forbakið daginn
áður. Hafið fyllinguna tilbúna eins
og uppskriftin leyfir. Þá er leikur
einn að framreiða bökuna rjúkandi
heita morguninn eftir.
Margar bökur eru einnig góðar
kaldar. Þannig er hægt að spara sér
morgunstörfin.
Hægt er að nota fryst smjördeig
sem fæst í flestum matvöruverslun-
um og flýta þannig enn meira fyrir
sér.
Stökk baka með
laxi og spergilkáli
Stökkt deig
Skammturinn er hæfílegur í
kringlótt tertuform 25-30 cm í
þvermál eða í 6-8 minni form
ALLS kyns bökur, skonsur, eggja-
réttir og pönnukökur eru meðal
efnis í nýrri matreiðslubók sem
heitir Brunch á 100 vegu. Bókin var
kynnt í Café Flóru í gær og er það
vel við hæfi þar sem Marentza
Poulsen matreiðslukona mun bjóða
upp á valda „brunch“-rétti úr bók-
inni þar um helgar í sumar, frá kl.
11-14.
„Brunch“ (samanstendur af
ensku orðunum breakfast og lunch)
er upprunninn í Bandaríkjunum og
er hvorttveggja; morgun- og hádeg-
isverður, að sögn Sigrúnar Hall-
dórsdóttm’, útgefanda hjá PP forlag
í Kaupmannahöfn. „Þessi siður er
lítið þekktur hérlendis en hefur
breiðst hratt út um hinn vestræna
heim á undanfömum árum. I Kaup-
mannahöfn hafa til dæmis sprottið
upp fjölmargir veitingastaðir og
kaffihús sem bjóða upp á „brunch“.“
Slík máltíð ætti einnig að henta
íslendingum, að mati Sigrúnar. Til-
valið er að vakna snemma á morgn-
ana um helgar og sitja lengi við að
borða með fjölskyldu og vinum.
Framleiðsla tekur yfirleitt stuttan
tíma en einnig eru unnt að útbúa
marga rétti fyrirfram.
í bókinni er fjallað um öll helstu
viðfangsefni „brunchmatreiðslunn-
ar“, í henni eru uppskriftir og hand-
hæg ráð. í sérstökum kafla er fjall-
að um drykki, heita og kalda,
áfenga sem óáfenga.
Bókin Brunch á 100 vegu er eftir
Lynn Andersen en þýðendur eru
Gunnar Sandholt og Linda Lea
Bogadóttir.
I bókinni er m.a. uppskrift að
böku með iaxi og spergilkáli.
Þeir sem fara í sund eru
frískari en aðrir og of-
næmi er minna hérlend-
is en í löndunum í kring
að sögn Sigmars B.
Haukssonar, verkefnis-
stjóra heilsuborgar-
innar Reykjavík.
„EF þú vilt kynnast Frakka, þá
ferðu á kaffihús, ef þú vilt kynnast
Breta, þá ferðu á krána en ef þú vilt
kynnast Islendingi þá ferðu í heitu
pottana," segir Sigmar B. Hauksson
verkefnisstjóri heilsuborgarinnar
Reykjavík, en í fyrra varð Reykjavík
aðili að samtökum heilsulindarstaða
í Evrópu. „Þessi kjörorð notum við
meðal annars í auglýsingum erlend-
is en lækningamáttur heita vatnsins
er ný leið til þess að fá ferðamenn til
landsins.“
Erfitt var fyrir Islendinga að fá
inngöngu í samtökin þar sem skil-
yrði er að ríkin séu í Evrópusam-
bandinu, að sögn Sigmars. „Rann-
sóknir sýna að Islendingar eru
meðal heilbrigðustu þjóða í heimi og
því var innganga okkar samþykkt.“
Sigmar segir það ekki vitað með
vissu hvers vegna íslendingar séu
svona heilbrigðir en það megi meðal
annars rekja til góðrar heilbrigðis-
þjónustu, lítillar streitu, lítillar
mengunar íyrir tilstilli meðal annars
heita vatnsins sem notað er til að
Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson
Sund er góð líkamsrækt.
hita borgina og síðast en ekki síst til
hollrar fæðu. „Auk þessa teljum við
að engin borg í heiminum hafi jafn
ferskt og gott andrúmsloft né eins
gott vatn. Við auglýsum því íslenska
vatnið sem kampavín norðursins."
Griðastaður eldra fólks
„Markmiðið er að borgin verði
griðarstaður eldra fólks og þeirra
sem þjást af astma, ofnæmi og
streitu til að efla heilsu þeirra. Um
1,7 milljónir gesta heimsækja laug-
araar hér á ári hverju og það er
margsannað að þeir sem fara í sund
eru frískari en aðrir. Ef fólk vill
bæta heilsuna og endumæra líkam-
ann þá er Reykjavík rétta borgin.“
Sigmar er nýkominn af ráðstefnu
bandarískra ellilífeyrisþega í Or-
lando á Flórída þar sem fram fór
kynning á samtökum heilsulindar-
staða í Evrópu. „Við kynntum
Reykjavík sem örugga borg, vin í
menguðum og hættulegum heimi,
þar sem lítið væri um afbrot auk
þess sem maturinn væri hollur og
góður. Rúsínan í pylsuendunum var
svo lækningamáttur heita vatnsins.
Þá kom í ljós að þetta fólk vissi af
fegurð landsins, að Island væri land
elds og íss, það vissi hins vegar ekki
um lækningamátt heita vatnsins en
var engu að síður mjög áhugasamt.“
Ofnæmi sjaldgæfast hér
Fyrir nokkru var gerð rannsókn
sem tók til 39 staða í 20 löndum í
Bandaríkjunum, Evrópu, Astralíu
og Nýja- Sjálandi og þar kom í Ijós
að ofnæmi er sjaldgæfast hér á landi
að sögn Sigmars. „Hátt í 70 milljónir
manna eru með frjóofnæmi í Evrópu
og Bandaríkjunum.“„Við erum í
sambandi við samtök astma- og of-
næmissjúklinga á okkar helstu
markaðssvæðum og hyggjumst í
samvinnu við ferðaskrifstofur bjóða
fólki með frjóofnæmi hingað á vorin.
Frjótímabilið hefst í byijun aprfl í
Bandaríkjunum en er töluvert
seinna á ferðinni hér á landi,“ segir
Sigmar.
Að synda er ein besta líkamsrækt
sem fólk fær að mati Sigmars, allar
hreyfingar verða auðveldari og heita
vatnið slakar á stífum vöðvum. Þá
styrkja hreyfingar í heitu vatni
hjartað og lungun. „Ekld má svo
gleyma því að vatn hefúr undraáhrif
á streitu.Við erum að bjóða fólki að
koma hingað og stunda sundstaðina
í heita hveravatninu, njóta lífsins og
byggja þannig upp heilsu sína. Þar
sem sundlaugamar eru flestar úti-
sundlaugar andar fólk að sér heil-
næmu lofti í leiðinni. Auk þess er
mun ódýrara að fara í sund hérlend-
is en í útlöndum,“ sagði Sigmar að
lokum.
ábypg þjonusta
MTD
AFSLATTUR
ALLIR MTD SLATTUTRAKTORAR MEÐ15% AFSL.
Fjöldi verð- og stærðarflokka!
VERÐ FRA KR. 169.700,-
1
V v tjs
M*=- - -•Mi 1 K
■d«
Verðáðurkr. 199.700,-
MTD MTHB 48L
5 hp B&S bensínmótor. Sláttubreidd 50 sm.
80 lítra safnkassi. Fyrir stærri lóðir.
(Ekki sýnd hór).
Verð kr. 39.800,-
MTD MT <1115
Sláttutraktor með 11,5 hp B&S mðtor. Fimm
gíra með 76 sm sláttubreidd og grassafnara.
Verð kr. 211.650,-
Veröáöurkr. 46.900,- AFSLÁTTUR
Verð áður kr. 249.000,-
mm
AFSLÁTTUR
MTD GE45
3,75 hp B&S bensínmótor.
Sláttubreidd 45 sm.
80 Ktra safnkassi.
Verð kr. 33.
HHtB
Verð áður kr. 38.900,-
Verð kr. 18.900,-
MTD bensínvél
3.5 hp bensínmótor.
Sláttubreidd 51 sm.
Stál sláttudekk.
Flymo Turbo
Compact E330
Létt loftpúðavél með grassafnara.
1400 w rafmótor.
Flymo E330 Turbo Light
Létt loftpúðavél fyrir litlar lóðir. 1150 w rafmótor.
Verð kr. 25.900,- ^Flymo| Verð kr. 17.900,-
SU 0DYRASTA A
MARKAÐNUM!
= s =
ð
ernm