Morgunblaðið - 06.06.2000, Page 32

Morgunblaðið - 06.06.2000, Page 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Clinton o g Pútín sammála um að hætta stafí af gereyðmgarvopnum „útlagaríkja“ Náðu ekki samkomulagi eldflaug’avarnir Bill Clinton Bandaríkjaforseti skoðar aðsetur rússnesku stjórnar- innar í Kreml í fylgd Vladímírs Pútíns Rússlandsforseta eftir við- ræður þeirra á sunnudag. Moskvu. Reuters, AP, AFP. BILL Clinton Bandaríkjaforseti og Vladimír Pútín Rússlandsforseti voru sammála um að heimsbyggðinni stafaði hætta af útbreiðslu gereyð- ingarvopna til svokallaðra „útlaga- ríkja“ en náðu ekki samkomulagi á leiðtogafundinum í Moskvu um hvemig taka ætti á hættunni. For- setarnir undirrituðu hins vegar samning um að koma upp sameigin- legri miðstöð í Moskvu til að hafa eft- irlit með eldflauga- og geimskotum. Þá var undirritaður samningur sem kveður á um að hvort ríki losi sig við 34 tonn af plútoni, sem hægt er að nota í kjamavopn. Clinton sagði á blaðamannafundi með Pútín eftir sex klukkustunda langar viðræður þeirra í Moskvu á sunnudag að ríkin deildu enn um áætlun Bandaríkjamanna um að koma upp vamarkerfi til að verjast hugsanlegum eldflaugaárásum ríkja á borð við Norður-Kóreu og íran. Clinton kvaðst ekki telja að slíkt vamarkerfi myndi stofna hemaðar- legum stöðugleika og fælingarstefnu ríkjanna í hættu. „Rússar em ósam- mála þessu,“ bætti forsetinn við. „Við erum á móti lækningu sem er verri en sjúkdómurinn," sagði Pútín, sem telur að elflaugavamaáætlunin grafi undan afvopnunarsamningum ríkjanna. Léði máls á að breyta ABM-samningnum Forsetarnir undirrituðu þó yfir- lýsingu þar sem ríkin ljá máls á því að breyta ABM-samningnum, sem takmarkar eldflaugavamir þeirra, til að „varðveita hemaðarlegan stöðug- leika þrátt fyrir nýjar ógnir.“ Banda- rískir embættismenn lýstu yfirlýs- ingunni sem mikilvægri tilslökun af hálfu Rússa. Forsetamir lofuðu einnig nánari samvinnu milli ríkjanna í málum sem tengjast útbreiðslu gereyðingar- vopna og hættunni á eldflaugaárás- um. „Við höfum beðið sérfræðinga okkar að reyna áfram að jafna ágreininginn og útfæra hugmyndir um sameiginlegar aðgerðir gegn eld- flaugahættunni,“ sagði Clinton. Forsetinn lagði áherslu á að hann hefði ekki enn ákveðið hvort koma ætti eldflaugavamaáætluninni í framkvæmd og sagði að ákvörðunar væri að vænta síðar á áiinu. Pútín hefur lagt til að rfldn komi upp sameiginlegum eldflaugavöm- um nær þeim löndum, sem talin era líklegust til að beita gereyðingar- vopnum, til að hægt yrði að granda eldflaugum þéirra skömmu eftir að þeim yrði skotið á loft. Clinton sagði þegar hann svaraði spurningum hlustenda rússnesku útvarpsstöðv- arinnar Ekho Moskí eftir leiðtoga- fundinn að hann vildi ræða þessa til- lögu frekar við Rússa. Hann bætti hins vegar við að það tæki tíu ár að þróa þá tækni, sem Pútín væri hlynntur, en talið væri að Bandaríkj- unum gæti stafað hætta af gereyð- ingarvopnum „útlagaríkja" eftir að- eins fimm ár. Madeleine Albright, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, sagði að sam- eiginlega vamarkerfið sem Pútín lagði til gæti ekki komið í staðinn fyr- ir bandarísku eldflaugavarnaáætlun- ina. Hins vegar kæmi til greina að koma upp báðum vamarkerfunum. Plútonið verði notað í orkuframleiðslu Clinton sagði að samningarnir um að ríkin losuðu sig við plúton, sem ætlað er í kjamavopn, og hæfu sam- eiginlegt eldflaugaeftirlit í Moskvu væra „stór skref í þá átt að draga úr kjarnorkuvánni." Plúton-samningurinn kveður á um að hvort rfld endurvinni 34 tonn af plútoni, sem hægt er að nota í kjarnavopn, þannig að annaðhvort verði hægt að nýta það í orkufram- leiðslu eða geyma það neðanjarðar með kjamorkuúrgangi. Rfldn lofa að gera plútonið ónothæft í kjarnavopn og nota það aldrei í hemaðarlegum tilgangi. Bandarískir embættismenn segja að aðeins þurfi sex til átta kfló af plútoni í öfluga kjamorkusprengju og 34 tonn dugi í þúsundir kjarna- odda. Samkvæmt samningnum eiga plútonbirgðir rússneska hersins að minnka um fjórðung og bandaríska hersins um þriðjung. Gert er ráð fyrir að endurvinnsla plútonsins taki tuttugu ár og kosti alls 5,7 milljarða dala, andvirði 430 milljarða króna. Bandaríkin ætla að nota 25,5 tonn af plútoninu í orkuframleiðslu og geyma afganginn neðanjarðar en rússneska plútonið verður allt notað sem eldsneyti. Skiptast á upplýsingum úr gervihnöttum Samningurinn um sameiginlegt eldflaugaeftirlit kveður á um að ríkin skiptist á upplýsingum úr gervi- hnöttum og ratsjárstöðvum sínum um leið og eldflaugum eða geim- flaugum er skotið á loft. Komið verður upp sameiginlegri eftirlitsmiðstöð í Moskvu síðar í mánuðinum og hún verður starfrækt allan sólarhringinn og alla daga vik- unnar. Sextán bandarískir hermenn og sautján rússneskir eiga að starfa í miðstöðinni auk öryggisvarða og annars starfsfólks. Markmiðið með samningnum er m.a. að minnka hættuna á að eld- flaugum verði skotið á loft fyrir mis- tök vegna rangra upplýsinga um yf- irvofandi árás. Honum er einnig ætlað að bæta upp úrelt eldflaugaeft- irlitskerfi Rússlands. Nokkrir af eft- irlitshnöttum Rússa era orðnir ónot- hæfir, þannig að eldflaugaeftirlitið nær ekki til Moskvu og fleiri staða á ákveðnum tímum. Clinton sagði að samningurinn markaði tímamót í samskiptum ríkj- anna þar sem þetta væri íyrsta var- anlega samstarfsverkefni þeirra í vamarmálum. Rússland gangiíWTO Forsetamir ræddu enn fremur efnahagsþróunina í Rússlandi og Clinton kvaðst hafa mikla trú á nýja forsetanum í Rússlandi og helstu ráðgjöfum hans í efnahagsmálum. „Ég tel að Pútín sé fullfær um að byggja UPP voldugt og öflugt Rúss- land og varðveita um leið frelsi, fjöl- ræði, lög og reglu.“ P*útín lofaði að beita sér fyrir nýrri skattalöggjöf og nýjum lögum um ol- íuvinnslu til að stuðla að auknum er- lendum fjárfestingum. Clinton kvaðst vera ánægður með efnahagsbatann í Rússlandi á síðustu mánuðum og sagði stefnu Pútíns lík- lega til að stuðla að auknum fjárfest- ingum í landinu. Bandaríski forsetinn sagði síðar í umræðuþættinum í Ekho Moskví að hann væri hlynntur því að Rússland fengi fleiri lán frá Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum, IMF. Hann skoraði einnig á Rússa að ganga í Heimsviðskipt- astofnunina (WTO) þegar hann ávarpaði dúmuna, neðri deild rúss- neska þingsins, í gær. Hann sagði að Rússland hefði ekki efni á að vera eina stóra iðnríkið í heiminum sem gengi ekki í stofnunina, en hún setur reglur um heimsviðskipti. „Þið ættuð að vera í þessu kerfi með Kína, Brasilíu, Japan, löndum Evrópu- sambandsins og Bandaríkjunum og eiga þátt í að móta þessar reglur öll- um tÚ hagsbóta.“ Pútín kvaðst vera ánægður með leiðtogafundinn og niðurstöður hans. Hann bætti við að Rússar vonuðust eftir góðu samstarfí við næsta for- seta Bandaríkjanna, hvort sem demókratinn A1 Gore varaforseti eða repúblikaninn George W. Bush færi méð sigur af hólmi í forsetakosning- unum í nóvember. Clinton hvatti einnig Rússa til að reyna að finna pólitíska lausn á deil- unni við aðskilnaðarsinna í Tsjet- sjníu og heimila alþjóðlegt eftirlit með ástandinu í mannréttindamálum í héraðinu. Speight hvik- ar hvergi Suva á Fgieyjum. AP. LEIÐTOGI herstjórnarinnar á Fiji- eyjum sagði í gær að George Speight, forsprakki uppreisnar- manna á eyjunum, geti ekki tekið sæti í nýrri ríkisstjórn. Speight hót- aði aftur á móti að halda gíslum sín- um „eins lengi og þörf krefur“ til þess að afstaða hersins breytist. Sæti í nýrri bráðabirgðastjórn er ein lykilkrafa Speights, sem vill koma á nýrri stjórnarskrá þar sem minnihluta eyjaskeggja, þeim sem era af indversku bergi brotnir, eru ekki tryggð sömu réttindi og meiri- hlutanum, sem í era frambyggjar eyjanna. Herstjórnin lýsti því yfir í gær að Speight og stuðningsmenn hans gætu ekki fengið nein völd. Herinn hefur boðið sakarappgjöf Speight og sex öðram, sem hnepptu ríkisstjóm landsins í gíslingu 19. maí. Herinn tók síðan völdin tíu dögum síðar. Speight neitaði að mæta til við- ræðna við herstjómina í gær og sagði að nú væri það herstjómarinn- ar að koma til sín. Þróun mála í gær George Speight þótti benda til þess að Speight muni ekki vilja láta gísla sína lausa á næstunni, en á meðal þeirra er fyrrverandi forsætisráðherra Fiji. Misskilinn ætt- jarðarvinur? í viðtali við bandarísku sjónvarps- stöðina CNN hafði Speight reynt að koma fram sem misskilinn, fijískur ættjarðarvinur. „Herinn reynir að draga upp mynd af mér sem upp- reisnar- og hryðjuverkamanni jafn- vel þótt ég sé fijískur,“ sagði hann. Leiðtogi herstjórnarinnar sagði að Fiji myndi verða fyrir efnahags- legum skakkaföllum kæmist Speight til valda. Þannig hefði Evrópusambandið hótað að hætta að kaupa sykur, sem er helsta sölu- vara Fiji-eyinga, ef uppreisnarleið- toganum yrðu fengin einhver völd. Andlega vanheil kona játar barnsmorð í Noregi Segist hafa ráðið drengnum bana í leik KONA, sem játað hefur á sig morð á sex ára gömlum dreng í Noregi, seg- ist hafa banað honum í leik að því er fram kemur í Dagbladet. Atburður- inn átti sér stað sl. fimmtudagskvöld á eyjunni Smola, nálægt Kristian- sund. Konan, sem er 23 ára og hefur áður orðið uppvís að ofbeldi gegn bömum, játaði morðið eftir langar yfirheyrslur seint aðfaranótt sunnu- dags en hafði frá upphafi legið undir gran. Konan og drengurinn þekkt- ust en foreldrar drengsins höfðu bannað honum að hitta hana. Kim Eirik Salmela Farstad hafði á fimmtudag fengið leyfi móður sinnar til að hjóla heim af íþróttavelli á eyj- unni, rúmlega eins kílómetra langa leið. Hús konunnar liggur miðja vegu milli íþróttavallarins og heimil- is drengsins. Konan mun hafa verið búin að bjóða drengnum í heimsókn og mun hafa sagst ætla að sýna hon- um krákuegg. Foreldrar drengsins vissu af heimboði konunnar en höfðu lagt að drengnum að þiggja það ekki vegna ferils konunnar. Hún bar við yfirheyrslur að drengurinn hefði bankað upp á og viljað hitta hund hennar en að síðan hafi þau gengið út á lóð hússins þar sem þau hafi spjallað og slegist í gamni. Viður- kennir konan að hafa tekið drenginn hálstaki sem hafi leitt til dauða hans. Lfldð faldi konan í runna í um 70-100 metra fjarlægð frá heimili sínu. Morðin í Kristjáns- sandi kveikjan? íbúar á Smola era sagðir anda léttar eftir að málið var upplýst en Norðmenn hafa síðustu vikur verið felmtri slegnir vegna tíðra barna- morða. Konan sem myrti drenginn bjó með fimm árum eldri bróður sín- um og er sögð vanheil á geði. Hún er þekkt fyrir að sýna árásarhneigð og var á skilorði vegna dóms sem hún hlaut fyrir ofbeldi gegn heymar- skertu barni. Að sögn bróður hennar var konan sjúklega áhugasöm um morð tveggja telpna sem framið var í Kristjánssandi í Noregi fyrir rúmum tveimur vikum. Mun hún hafa lesið frásagnir dagblaða af miklum ákafa, klippt út fréttir og drakkið í sig smá- atriði málsins. Lflmr era taldar á því að morðin á telpunum hafi kveikt drápslosta í konunni sem hún hafi svalað með því að myrða drenginn. Norska lögreglan hefur sætt gagnrýni fyrir að hafa ekki verið búin að finna lík drengsins fyrr, þar sem það var svo nálægt heimili kon- unnar. Reiðhjól drengsins fannst ná- lægt heimili hennar skömmu eftir að tilkynnt var um að hans væri saknað. Lögreglan hóf þá þegar að leita í ná- grenninu og tók morðinginn sjálfur þátt í leitinni ásamt hundi sínum um tíma á fimmtudagskvöld. Talið er hugsanlegt að hundar lögreglunnar hafi ekki getað greint lyktina af lík- inu vegna þess að á svæðinu þar sem það fannst er dýragrafreitur. Að sögn Dagbladet virðist sem konan hafi sjálf drepið nokkur þeirra dýra sem þar liggja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.