Morgunblaðið - 06.06.2000, Qupperneq 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Ráðstefna Sameinuðu þjóðanna um stöðu kvenna
Nokkur ríki sökuð um að
vilja hindra umbætur
Sameinuðu þjóðunum, New York. AP.
MANNRETTINDASAMTÖK
gagnrýna ýmis aðildarríki Samein-
uðu þjóðanna (SÞ) fyrir að beita sér
gegn aðgerðum til að bæta stöðu
kvenna á ráðstefnu sem nú er haldin
á vegum SÞ í New York. Markmið
ráðstefnunnar, sem hófst í gær, er að
meta hvaða árangur hefur orðið af
kvennaráðstefnu SÞ í Peking árið
1995 og leggja línumar um fram-
haldið. Fulltrúar 188 ríkja sitja ráð-
stefnuna og munu ræða um leiðir til
að hraða umbótum til að bæta stöðu
kvenna í samræmi við 150 blaðsíðna
framkvæmdaáætlun sem samþykkt
var á Peking-ráðstefnunni.
Mary Robinson, yflrmaður mann-
réttindamála hjá SÞ, sagðist í gær
hafa áhyggjur af því að árangur ráð-
stefnunnar yrði ekki sem skyldi
vegna andstöðu nokkurra ríkja gegn
viðleitni til að bæta hag kvenna.
Sagðist hún jafnvel óttast að ráð-
stefnan kynni að verða skref aftur á
bak miðað við framkvæmdaáætlun
Peking-ráðstefnunnar. Robinson
nefndi þó ekki á nafn þau ríki sem
vilja koma í veg fyrir úrbætur í mál-
efnum kvenna. Hins vegar sagði að-
alritari mannréttindasamtakanna
Amnesty International, Pierre Sane,
í gær að Aisír, Líbýa, íran, Pakistan
og Vatíkanið væru að reyna að koma
í veg fyrir að ráðstefnan næði
markmiði sínu.
Þokast vonandi fram á við
Elsa S. Þorkelsdóttir, fram-
kvæmdastjóri jafnréttisráðs, er ein
þeirra sem sitja ráðstefnuna í New
York fyrir íslands hönd. Hún segir
að nú sé verið að fara
yfír árangur af fjöl-
mörgum ráðstefnum
SÞ sem haldnar hafi
verið á árabilinu 1993-
1996 og sé ráðstefnan
nú liður í þeirri endur-
skoðun. Elsa segir að
það hafí komið vel fram
í undirbúningsvinnu
vegna ráðstefnunnar
hve áherslur þjóða séu
ólíkar þegar kemur að
málefnum kvenna. „Til
dæmis má nefna að
þegar rætt er um þró-
unaraðstoð, vill að
okkar mati kynjasjón-
armiðið gjaman
gleymast. Við viljum ræða um þró-
unaraðstoð í sömu andránni og rætt
er um að bæta kjör kvenna. Einnig
er mjög mikið tekist á um rétt
kvenna til að ráða yfir eigin líkama
og önnur réttindamál. Deilurnar eru
í raun magnaðri en ég hafði búist
við.“
Elsa segist samt sem áður ekki
trúa öðru en að markmið ráðstefn-
unnar muni nást og að samþykkt
verði ný áætlun í lok ráðstefnunnar
nk. föstudag. „Það er a.m.k. ljóst að
hún verður ekki spor aftur á bak og
vonandi þokast eitthvað fram á við
miðað við Peking-ráðstefnuna.“
Unnið í ríkjahópum
Vinna á ráðstefnum sem þessari
fer að miklu leyti fram innan ríkja-
hópa þar sem þjóðir móta sameigin-
lega stefnu. Islendingar eiga aðild að
sk. Juscanz-ríkjahópi
ásamt Japan, Banda-
ríkjunum, Kanada,
Noregi, Liechtenstein,
Sviss, Hollandi og
Ástralíu. Lengi vel
mynduðu Norðurlönd-
in ríkjahóp á vettvangi
Sameinuðu þjóðanna
en eftir að sum þeirra
gengu í Evrópusam-
bandið hefur það
breyst.
Elsa segir að sú
spenna sem ríki milli
ólíkra sjónarmiða á
ráðstefnunni komi
einkum fram þar sem
fulltrúar allra þátttök-
uríkja eiga í viðræðum en einnig í
smærri málefnahópum. Hvarvetna
sé mjög hart tekist á um orðalag í
gögnum ráðstefnunnar.
Aðspurð segist Elsa sannfærð um
að ráðstefnur sem þessar skili raun-
verulegum árangri og verði á ýmsan
hátt til þess að bæta kjör kvenna.
„Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ,
gaf nýlega út skýrslu þar sem farið
er yfir það sem ríki hafa gert til að
bæta stöðu kvenna á þeim tíma sem
liðinn er frá Peking-ráðstefnunni. Að
mati hans hefur ýmislegt áorkast, þá
er t.d. verið að tala um aukinn skiln-
ing stjómvalda á því að heimilisof-
beldi gegn konum sé ekki einkamál
fjölskyldunnar, og eins mætti nefna
að víða hafa jafnréttismál fengið
aukið vægi í stjómsýslu ríkja, s.s.
með því að komið hefui' verið á fót
sérstökum jafnréttisskrifstofum."
Hillary Clinton hélt
ræðu á ráðstefnunni.
Blair úr tengsl-
um við flokk sinn
Lundúnum. The Daily Telegraph.
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, varð á sunnudag fyrir óvæntri
gagnrýni eins af helstu stuðnings-
mönnum sínum sem sagði að forsæt-
isráðherrann væri ekki lengur í
tengslum við grasrótarhreyfingu
Verkamannaflokksins. Sawyer lá-
varður, fyrrum framkvæmdastjóri
flokksins og einn af aðalhvatamönn-
um „Nýja verkamannaflokksins“
sagði í viðtali við BBC á sunnudag að
Blair hefði fjarlægst fólk sitt mikið
síðan hann komst til valda og ef
árangur hans væri borinn saman við
árangur Margaret Thatcher, fyrrum
forsætisráðherra, hefði honum mis-
tekist að viðhalda tengslum við kjós-
endur.
Gagnrýni Sawyers lávarðs á Blair
var óvægin og er hún sögð hafa komið
forsætisráðherranum á óvart í sömu
mund og hann snýr aftur á hinn póli-
tíska vettvang eftir tveggja vikna
feðraorlof.
í viðtalinu sagði Sawyer að staða
forsætisráðherrans innan flokksins
hafi veikst síðan hann komst til valda
og að hans bíði stór vandamál vegna
„útbreiddra vonbrigða" meðal flokks-
manna. „Ég held að í kosningunum
hafi fólki fundist Tony Blair vera
þeirra maður, okkur líkar við hann.
Það er ekki svo mikið um þetta núna.
Þegar Thatcher var upp á sitt besta
fannst fólki hún standa sér afar nærri.
Það má segja að fólki finnist þetta
ekki um Tony, því finnst hann vera at-
orkusamur og afar hæfur en hann er
ekki „Tony okkar“ og því verður hann
að ná,“ sagði Sawyer í viðtalinu.
Sagði hann að margir stuðnings-
menn Verkamannaflokksins væru úr
tengslum við þau vinnubrögð og
menningu er einkenndu Downing-
stræti 10 og að þeim þætti sem raddir
þeirra væru lítils metnar af forystu
flokksins. Þá sagði hann að tilraunir
Blairs til að hafa áhrif á val á borgar-
stjóraefni flokksins i Lundúnum og
forystu hans í Wales hefðu skaðað ím-
ynd hans meðal almennra flokks-
manna. Taldi hann að ákveðinn trú-
verðugleikabrestur væri milli
ríkisstjómarinnar og flokksins sem
væri mun verra en brestimir milli
stjómarinnar og kjósenda. ,Að mínu
mati er flokkmmn meira vandamál en
kjósendur. Vinsældir Blairs meðal
kjósenda em enn nokkuð miklar en
staða hans innan flokksins beið
hnekki vegna borgarstjóra Lundúna
og velska þingsins.“
Ummæli Sawyers em þau síðustu í
röð gagnrýnisradda á flokksforyst-
una en íyrir stuttu vömðu Peter Kil-
foyle, fymim vamarmálaráðherra, og
Mark Fisher, fyrrum menningarmál-
aráðherra, Blair við því að hann væri
að fjarlægjast stuðningsmenn sína.
Stephen Byers, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, kom þó Blair til vam-
ar og sagði að honum hefði tekist að
ná til breiðs hóps kjósenda með stefn-
umálum sínum. „Stefna okkar höfðar
MADELEINE Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, kom í gær
til Jerúsalem til þess að vega og
meta hvað hafi áunnizt í samninga-
viðræðum deiluaðila. í Ijósi niður-
staðna Aibrights mun Bill Clinton,
forseti Bandaríkjanna, ákveða hvort
Ehud Barak, forsætisráðherra ísra-
els, og Yasser Arafat, forseta heima-
stjómar Palestínumanna, verður
boðið til fundar í Bandaríkjunum.
Albright fundaði með Barak í gær,
og á fréttamannafundi að því loknu
sagði hún að ögurstund í samninga-
viðræðum Israela og Palestínu-
manna færðist nær og hvatti deiluað-
Tony Blair, fórsætisráðherra
Bretlands, hóf í gær störf eftir
tveggja vikna feðraorlof. Hér
sést Blair með Leo, yngsta með-
iim Blair-fjölskyldunnar.
til breiðs hóps - ekki aðeins þeirra
sem kallaðir em kjaminn í flokknum,
heldur þeirra sem komið hafa til
Verkamannaflokksins í fyrsta sinn.
Það sem er mikilvægast í náinni fram-
tíð er að halda utan um þetta banda-
lag“
ila til að „setja á fulla ferð“ í
samkomulagsátt.
í dag mun hún hitta Arafat að
máli. Síðan liggur leið hennar til
Kaíró í Egyptalandi þar sem hún
mun ræða við Famq al-Shara, utan-
ríkisráðherra Sýrlands, auk
egypzkra ráðamanna.
Staða Jerúsalem er einn erfiðasti
hjallinn í friðarumleitununum, því að
Palestínumenn vilja að vesturhluti
borgarinnar verði höfuðstaður sjálf-
stæðs ríkis þeirra, en ísraelar hafa
ekki hvikað frá þeirri afstöðu að Jer-
úsalem óskipt sé eilíf höfuðborg
ísraels.
Albright í Mið-
Austurlöndum
Jerúsalem. AP, AFP.
Liðhlaupi segir íran hafa staðið að
baki Lockerbie-sprengingunni
Reuters
Meira en áratugur er sfðan þota Pan Am flugfélagsins sprakk fyrir ofan
skoska þorpið Lockerbie með þeim afleiðingnm að 270 férust.
Hefur viður-
kennt fjölda
hryðjuverka
Washington, Ankara. AP, AFP, Reuters.
STARFSMENN Bandarísku leyni-
þjónustunnar (CIA) em sagðir hafa
yfirheyrt fyrrverandi franskan leyni-
þjónustuforingja sem segist bera
ábyrgð á sprengingu sem grandaði
bandarískri farþegaþotu árið 1988.
Ahmad Behbahani, sem gerðist ný-
lega liðhlaupi og flúði til Tyrklands,
sagði í samtali við fréttamenn banda-
rísku CBS-sjónvarpsstöðvarinnar
íyrir skömmu að hann hefði sem yf-
irmaður hryðjuverkadeildar írönsku
leyniþjónustunnar lagt á ráðin um
sprenginguna um borð í þotu Pan
American-flugfélagsins sem fórst yf-
ir bænum Lockerbie í Skotlandi með
270 manns innanborðs. Greint var
frá framburði mannsins í fréttaþætt-
inum „60 mínútur" og hefur málið
vakið mikla athygli, ekki síst vegna
réttarhalda sem nú standa yfir í
Hollandi yfir tveimur Líbýumönnum
sem grunaðir hafa verið um ódæðið.
Auk Lockerbie-tilræðisins hefur
Behbahani sagt að Iran beri ábyrgð
á fjölda annarra morða og myrkra-
verka í öðrum löndum, þ.á.m.
sprengingum í stöðvum bandaríska
flughersins í Saudi-Arabíu árið 1996
og í miðstöð gyðinga í Buenos Aires
árið 1994. Á annað hundrað manns
lést í þessum árásum.
Palestínskur hryðjuverkamað-
ur sljórnaði aðgerðinni
Behbahani heldur því fram að
Lockerbie-tilræðið hafi verið hefnd
fyrir árás bandarísks herskips á ír-
anska farþegaþotu fyrr á árinu 1988.
Yfirmenn skipsins héldu farþegaþot-
una vera orrustuþotu og skutu flug-
skeyti að henni með þeim afleiðing-
um að alls 270 manns létust, 259 um
borð og 11 á jörðu niðri.
Að sögn Behbahanis stjómaði
Ahmed Jabril, foringi palestínsks
hryðjuverkahóps í Sýrlandi, aðgerð-
inni og hafi íranir látið honum í té
sprengiefni og annað sem til þurfti.
Hópur Líbýumanna hafi einnig tekið
þátt í tilræðinu og hafi hann fengið
sérstaka þjálfun í íran. Behbahani
segir að Jabril þessi hafi einnig ann-
ast skipulagningu vegna sprenging-
arinnar í miðstöð gyðinga í Buenos
Aires árið 1994 og hafi Sýrlendingar
búsettir í Argentínu séð um fram-
kvæmdina.
Varð undir í valdabaráttu
Fyrrverandi forseti írans, Bani
Sadr, sem nú dvelur í útlegð í Frakk-
landi, mun hafa komið fréttamönn-
um 60 mínútna í samband við Behba-
hani. Sá síðarnefndi segist hafa orðið
undir í valdabaráttu innan íranska
stjórnkerfisins fyrir nokkrum mán-
uðum og verið handtekinn en náð að
sleppa með einhverjum hætti. Hann
hafi síðan flúið yfir landamærin til
Tyrklands og dvalið þar í flótta-
mannabúðum síðan. Tyrkneskir ör-
yggisverðir hafi gætt hans þar vegna
ótta við að útsendarar Iransstjórnar
reyndu að hafa uppi á honum og
drepa. Ekki var hægt að taka upp
framburð mannsins því tyrknesk yf-
irvöld bönnuðu allar myndatökur í
búðunum. Þurfti fréttamaðurinn,
kona af írönskum uppruna, að
bregða sér í gervi íransks flótta-
manns til að ná fundi Behbahanis.
Framburður Behbahanis hefur því
enn sem komið er aðeins birst í end-
ursögn konunnar.
Auk áðurnefndra hryðjuverka
segir fréttakonan, Roya Hakakian,
að Behbahani hafi stært sig af því að
hafa drepið marga íranska andófs-
menn, menntamenn og rithöfunda.
CIA grunaði íran
Ýmsir telja að frásögn íranska
leyniþjónustuforingjans geti haft
mikil áhrif á réttarhöldin yfir tveim-
ur fyrrverandi starfsmönnum Líb-
ýsku leyniþjónustunnar sem nú
standa yfir í Hollandi. Mönnunum
hefur verið gefið að sök að hafa kom-
ið sprengjunni fyrir í þotunni sem
sprakk í loft upp yfir Lockerbie en
ekki er ljóst hvort frásögn Behba-
hanis geti orðið til að styrkja eða
veikja málsóknina gegn mönnunum.
Verjendur mannanna hafa haldið því
fram að palestínsk hryðjuverkasam-
tök hafi staðið að baki tiiræðinu.
Vitað er að CLA grunaði lengi að
íran hefði staðið að baki Lockerbie-
tilræðinu og reyndi lengi að afla
sannana um að svo hefði verið en án
árangurs. Fulltrúar CIA eru sagðir
hafa yfirheyrt Behbahani á föstudag
og laugardag.
Kirkjum
breytt í
knattspyrnu-
musteri
Ósló. Morgnnblaðið.
ÁHUGI Norðmanna á Evrópu-
meistaramótinu í knattspyrnu
yfirskyggir nú flest annað og
nú hafa þeir miðalausu og
hjónaleysi í giftingarhugleið-
ingum ákveðið að fylla norsku
sjómannakirkjumar í Hollandi
og Belgíu.
Sjómannakirkjunum í Rott-
erdam, Antwerpen og Brussel
verður breytt í eins konar
knattspyrnukirkjur meðan á
mótinu stendur og í þessum
húsum drottins verða sýndir
allir leikir norska liðsins og
margir aðrir líka. Hafa prest-
amir tekið að sér að selja alls
konar glingur, flögg og fána,
trefla og annað tengt þátttöku
Norðmanna. Prestarnir búast
líka við góðum tekjum af gift-
ingum meðan á mótinu stend-
ur, ekki síst ef norska liðið
stendur sig vel.