Morgunblaðið - 06.06.2000, Page 48

Morgunblaðið - 06.06.2000, Page 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000 UMRÆÐAN MORGUNBLADIÐ Ljósí myrkrinu OKKUR sem vinn- um að umhverfismál- um á breiðum grund- velli finnst oftar en ekki lítið miða til hins betra í þeim málum. Allt snýst um það að sjá til þess að svokall- aðir „fjárfestar" hagnist og það veru- lega, sama á hvers ■. kostnað það er. Allt of margir taka orðið þátt í þessari „rúllettu" og hugsa þess vegna lítið um annað en að niður- stöðutölur fyrirtækj- anna sýni sem mestan hagnað til þess að hlutabréfin þeirra hækki í verði. Hvaðan hagnaðurinn er tekinn og hvernig hann verður til skiptir engu máli. I sjálfu sér er engin kurteis leið til að segja að við- skiptaheimurinn sé að ganga frá jörðinni sem við búum á og við til- heyrum öll þessum viðskiptaheimi sem framleiðendur, seljendur eða kaupendur. Fæstir viija taka ábyrgð enda er mesti umhverfis- vandi heimsins sá að hver einstak- lingur telur að hann skipti hvort eð er ekki máli einn og sér. Ég varð þeirrar hamingju að- njótandi að sonur minn útskrifaðist sem stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 27. maí sl. Við hjón- in fórum að sjálfsögðu á útskriftar- hátíðina í hátíðarsal MH og áttum yndislegan eftirmiðdag. Öll hátíð- aratriðin voru frábær og bar þar mest á kór skólans undir góðri stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur "i ásamt hljómlistarfólki úr skólan- um. Athöfnin tókst sem sagt í alla staði vel og var nemendum og stjórnendum skólans til mikils sóma. I lokaorðum rektors, Lárus- ar H. Bjarnasonar, gaf hann ný- stúdentum sínum ráðleggingar og þar kom „ljósið í myrkrinu" sem mig langar til að deila með ykkur. Lárus Bjarnason er einn af okk- ar betri stærðfræðingum og er meðal annars í framkvæmdanefnd ólympíuliðs okkar í stærðfræði sem fer til Kóreu á næstunni. Ég hef haft nokkuð mikinn vara á miklum stærðfræðingum þegar að um- hverfismálum kemur og fundist þeir frekar en ekki reikna sig frá hlutunum þegar umhverfið er ann- ars vegar. Það er að sjálfsögðu minn vandi en ég fékk leyfi Lárus- ar til að birta hér lokaorð hans sem fylgja hér á eftir: Góðir nýstúdentar! Þið hafið nú náð mikilsverðum áfanga á menntabrautinni, áfanga sem hefur sjálfstætt gildi, en hitt er ekki veigaminna að með honum ljúkast upp dyr að ýmsu því fram- haldsnámi sem hugur ykkar stend- ur til. Þessu til viðbótar geta góðar minningar menntaskólaáranna ylj- að um ókomnar stundir. Vonandi hafa árin hér í MH þroskað ykkur og menntað, eflt ykkar hæfni til þess að virða ólík sjónarhorn, kennt ykkur að spyrja spurninga og efast. Þegar við áttum saman morgunstund á síðasta kennsludegi fyrir mánuði sagði ég yfir hópinn að ég efaðist ekki um að þið mynd- uð erfa landið með sóma, svo ágæt- ir fulltrúar ungs fólks sem þið er- uð. Við þröskuld nýrrar aldar er freistandi að velta fyrir sér hver muni verða erfiðustu viðfangsefni ykkar kynslóðar, fólksins sem er að verða virkir þátttakendur og áhrifavaldar í samfélagi framtíðar- innar. Aður en ég deili með ykkur hugrenningum í þessa veru er svo- —lítill formáli. Texti Jónasar úr Hulduljóðum sem nokkrir úr hópi ykkar stúd- enta sungu rétt áðan er óður til náttúrunnar eins og mörg ljóða hans. Jónas Hallgrímsson var mik- ill náttúrufræðingur og sá íslend- inga sem fyrstur reit eitthvað að ráði um þau efni. Um hans daga voru menn sem óðast að uppgötva, flokka og greina helstu einkenni móður jarðar og rannsakandinn stóð auðmjúkur andspænis sköpunarverkinu og áhrifamætti þess. Nú um stundir víkur þessu nokkuð öðruvísi við. Valdahlutföllin hafa snúist mann- skepnunni í vil. Við þurfum ekki lengur að lúta duttlungum nátt- úrunnar í einu og öllu; visindi og tækni gera manninum kleift að grípa inn í framvindu náttúru og lífríkis með áður óþekktum hætti. Hugtök á borð við líftækni, genarannsóknir, einrækt- Heilræði Fæstir vilja taka ábyrgð enda er mesti um- hverfisvandi heimsins sá, segir Guðlaugur Bergmann, að hver einstaklingur telur að hann skipti hvort eð er ekki máli einn og sér. un og erfðaverkfræði eru til marks um þetta, en þessi orð var svo sannarlega ekki að finna í orða- forða Jónasar og þeirra Fjölnis- manna. Ég held að glíma mannsins við sjálfan sig, í víðum skilningi, kunni að verða eitt hið erfiðasta sem fást þarf við næstu áratugina í hinum svokölluðu velferðarþjóðfé- lögum. Hér hef ég m.a. í huga fjöl- mörg siðferðileg álitamál sem leiða af hinu mikla valdi sem við höfum þegar öðlast gagnvart náttúrunni og fer hratt vaxandi. I hve ríkum mæli eigum við að að fórna nátt- úruperlum fyrir virkjanir eða íbúð- arbyggð, er sjálfsagt að beita erfðatækni til að skapa kýr sem framleiða brjóstamjólk, búa til sjálflýsandi mýs eða framleiða laxa og svín af tvöfaldri stærð? Bændur sem fyrrum erjuðu jörðina með handverkfærum höfðu tvö megin- markmið; að lifa af landinu og skila þvi a.m.k. jafngóðu til næstu kyn- slóðar. Við megum ekki missa sjón- ar á þessum gömlu gildum þótt að- stæður nú séu aðrar. Það er fyllsta þörf á gætni í samneyti okkar við umhverfið; við hljótum að bera ábyrgð á að rýra ekki möguleika komandi kynslóða til þess að lifa jafngóðu lífi og við gerum. í þessu eins og svo mörgu öðru er meðal- hófið vandratað. Mikilvægi hóf- semdarinnar var einmitt rauði þráðurinn í svonefndri prófræðu sem dimmittend Jónas Hallgríms- son flutti við brautskráningu úr Bessastaðaskóla 1829 og voru þó veraldargæðin harla fábreytt á nú- tímamælikvarða. Ég ætla að gerast svo djarfur að lokum að leggja nýstúdentum eina lífsreglu sem ég sæki orðrétt í þessa gömlu ræðu frá Bessastöð- um: „Það sé þá vor höfuðregla: Aldrei að gjöra eftirsókn nokkurra jarðneskra muna að lífsins höfuð- augnamiði.“ Megi ykkur vel farn- ast. Ég á enga ósk heitari en að stúd- entarnir sem úskrifuðust frá MH þennan laugardagseftirmiðdag svo og aðrir sem á hlýddu og þetta lesa muni þessi ábyrgðarfullu lokaorð Lárusar og hafi þau til hliðsjónar í lífinu. Með kveðju undan Jökli. Höfundur er verkefnisstjóri Staðar- dagskrár 21 (Snæfellsbæ. Guðlaugur Bergmann • • Oldrunarrannsóknir - Rannsóknin 80+ SUNNUDAGINN 4. júní hófst 15. Norræna ráðstefnan í öldrunarfræð- um og öldrunarlækningum. Ráð- stefnan er sú fjölmennasta til þessa með gestum frá mörgum þjóðum. Meðal efnis sem kynnt verður eru 80+ rannsóknirnar. Öldrunarfræðin eða gerontologia er sú íræðigrein nefnd er fjallar um allar hliðar öldrunar. Það er talið að öldrunarfræðin hafi eignast sinn fyrsta vísindamann og rannsakanda þegar Adolphe Quetelet, f. 1796, sem var belgískur stærðfræðingur, birti 1835 niðurstöður sínar um meðalgildi og dreyfingu ýmissa mannlegra breyta s.s. handstyrks og hæðar. Það er þó fyrst á þessari öld sem öldrun- arfræðin hefst sem fræðigrein og hef- ur hún eflst og aukist alla þessa öld. Nóbelsverðlaunahafinn Elie Metchnikoff er sagður hafa fyrstur nefnt orðið gerontologi 1903, en það er ættað úr grísku þar sem geront merkir gamall maður. Gerontologia er öldrunarfræði og er henni skift upp í fjögur meginsvið: 1. Rannsóknir á öldrunarbreytingum. 2. Rannsóknir á öldruðum. 3. Rannsóknir á félagslegum þátt- um öldrunar, heimspekilegum, sögu- legum og bókmenntalegum. 4. Nýting á niðurstöðum rann- sókna innan öldrunarfræðinnar til að auka velferð og lífsgæði aldraðra ein- staklinga. Erlendar rannsóknir hafa sýnt fram á að aukin veikindi og að þörf á samfélagsþjónustu eykst hratt eftir að áttatíu ára aldri er náð. Margir þættir, t.d. einmanaleiki og að eiga fáa vini, geta haft afgerandi þýðingu fyrir vellíðan og á því hvemig hver og einn tekst á við aldurstengdar breyt- ingar. Rannsóknir á öldrun þurfa því að ná yfir mörg svið. Það er einnig kostur að bera saman þjóðfélög því ytri umgjörð hefur áhrif á mörgum sviðum. Áttatíu+ rannsóknirnar hófust í Svíþjóð 1988 en þá var einstaklingum áttatíu ára boðið til rannsóknar. Síðar komu til rannsóknir á Islandi og nú síðast í Fredricton í Kanada. Með því að rannsókn með sama sniði er fram- Jtín Eyjólfur Torbjöm William Jtínsson Svenson Randall Öldrun Margir þættir t.d. einmanaleiki og að eiga fáa vini, segja William Randail, Jón Eyjdlfur Jónsson og Torbjörn Svensson, geta haft afgerandi þýðingu fyrir vellíðan. kvæmd í fleiri löndum opnast sá möguleiki að bera saman öldrunar- ferlið og hópáhrif í víðtækara sam- hengi, en þó ekki hafi verið settar fram tilgátur tO að vinna úr milli landa er ljóst að greina má viss sam- félagsleg áhrif með samanburði milli landa. Á ráðstefnunni munu verða kynnt- ar niðurstöður þess hóps sem er fæddur 1918, William Randall mun kynna niðurstöður frá Kanada, Jón Eyjólfur Jónsson og Berglind Magn- úsdóttir niðurstöður frá Reykjavík og Torbjöm Svensson, sem er frumkvöð- ull áttatíu+ rannsóknanna mun halda yfirlitserindi um rannsóknimar. Margar áhugaverðar niðurstöður hafa komið í Ijós hér á Islandi. Flestir þeirra sem fæddir vora 1913 hættu að vinna um sjötugt. Að- spurð svöraðu 47% að sá hluti ævinn- ar, sem þau hafa verið á eftirlaunum, hafi verið mjög góður og í heild svara 97% að þessi tími hafi verið þeim góð- ur - mjög góður. Að eftirlaunatíminn hafi verið eins og þau bjuggust við eða betri svöraðu 86 % játandi. Þriðjungur (30%) þessara einstak- linga hittir eitthvert barna sinna dag- lega og rúmlega helmingur (56%) til viðbótar hittir bömin sín einu sinni í viku eða oftar. Síminn er líka mikið notaður, en tæplega 70% era í dag- legu símasambandi við börnin sín og önnur 25% hringjast á einu sinni eða oftar í viku. Flestum finnst þetta nægjanlegt þar sem aðeins 11% töldu sig hafa samband of sjaldan við böm- in. Við þökkum þeim fjölmörgu sem hafa lagt rannsókninni lið, en rann- sóknin á íslandi hefur hlotið styrki frá Vísindasjóði Öldranarfræða- félagsins, heilbrigðisráðuneytinu, Öldranarráði (Framkvæmdasjóður aldraðra) og Minningarsjóði Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjáns- sonar. Höfundar eru William Randall, öldr- unarlæknir frá Kanada, Jón Eyjólfur Jónsson öldrunarlæknir við Land- spítalann - háskólasjúkrahús og Torbjöm Svensson, öldrunarlæknir frá Svíþjóð. Aðstoð við snúsfíkla SÆNSK heilbrigðis- yfirvöld leggja nú tals- verða fjármuni og orku í að aðstoða munn- tóbaksfíkla við að hætta að nota snús. Undirrit- aður er m.a. ábyrgur fyrir að þróa meðferð við tóbaksfíkn í tengsl- um við sænska síma- þjónustu við tóbaks- fíkla (Sluta-röka linjen). Þegar þetta er skrifað eru u.þ.b. 500 snúsarar í meðferð hjá okkur. Helstu einkennin sem þetta fólk kvartar yfir era staðbundnar skemmdir á tann- holdi, ör hjartsláttur, hár blóðþiýst- ingur og þunglyndi þegar menn reyna að hætta. Rannsóknir sem hafa tengt snús við hjartasjúkdóma, krabbameinsvaldandi efni í snúsi og nýjar rannsóknir á tengslum snúss og sykursýki, fjöldi eiturefna, auk mikils kostnaðar og óþrifnaðar af snúsnotkun gera það að verkum að sífellt fleiri snúsarar reyna að hætta. Fíknin Því miður er reynsla okkar sú að það er mun erfiðara að aðstoða snús- ara við að hætta en reykingamann. Snúsið inniheldur meira nikótín og virðist vera meira vanabindandi. Það er því að fara úr öskunni í eldinn að beina reykingamönnum yfir í snús. Eina rétta leiðin er að aðstoða þá til að hætta að nota tóbak og þar höfum við náð allgóðum árangri. Það vekur ugg hjá sænskum heilbriglisyfirvöld- um að fyrrverandi reykingamenn sitji fastir í snúsfíkn vegna þess að enn er, að flestra dómi, langt í land að hægt sé að full- yrða um langtíma af- leiðingar snúsnotkunar á heilsufar þjóðarinnar. Einnig hefur það komið í ljós að snúsið verður sífellt útbreidd- ara meðal unglinga. Þetta er m.a. ástæðan fyrir því að Evrópu- bandalagið hefur enn einu sinni hafnað þeirri kröfu sænska snúsiðn- aðarinns að leyfa inn- flutning á snúsi til aðildarlandanna. Þai’ vilja menn hafa vaðið fyrir neðan sig. Snús Víði og öðrum íslensk- um snúsfíklum, segir Asgeir R. Helgason, sem vilja fá aðstoð við að hætta er velkomið að hafa samband við mig í Stokkhólmi og fá ráð. Eðli vísinda Það er eðli vísinda og hlutverk vís- indamanna að efast um niðurstöður og gagnrýna aðferðafræði. Það er því engin móðgun við vísindamenn að niðurstöður þeirra séu dregnar í efa. Allir alvöra vísindamenn era sjálfir afar gagmýnir á eigin niðurstöður. í dag era mun fleiri rannsóknir sem sýna fram á skaðsemi reykinga en snúss. Eins og ég sagði í minni fyrstu grein er ég persónulega þeirrar skoð- unar að snúsið sé ef til vill skaðminna hvað krabbamein varðar en reyking- ar. Ég er þó langt frá því að vera sannfærður og vil bíða og sjá í nokkur ár. Hinsvegar era margir aðrir sjúk- dómar undir sólinni og því afar óvar- legt að reka áróður fyrir snúsi. Eina rétta leiðin er að hætta tóbaksnotkun og leita sér hjálpar ef viljastyrkurinn er ekki nægur. Ég aðstoða gjarna Ég sé enga ástæðu til að svara síð- ustu grein Víðis Ragnarssonar um snús enda sniðgengur hann megin- inntak fyrri greinar minnar um að- ferðafræðilega galla sem hann kallar „spurningalista dr. Ásgeirs“. Það eina sem ég vil leggja til í lokin er að þetta tal Víðis um 98% minni skað- semi snúss miðað við reyktóbak er al- gerlega úr lausu lofti gripið og gerir annars ágæta tilraun Víðis til að verja sitt ástkæra snús afar ótrúverðuga. Víði og öðram íslenskum snúsfiklum sem vilja fá aðstoð við að hætta er velkomið að hafa samband við mig í Stokkhólmi og fá ráð. Símanúmer og e-póstfang geta þeir fengið hjá Tóbaksvamanefnd eða Krabba- meinsfélagi Reykjavíkur. Höfundur er doktor í læknavísindum og starfar á Samfélagslækninga- deild í Stokkhólmi. Ásgeir R Helgason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.