Morgunblaðið - 06.06.2000, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 06.06.2000, Qupperneq 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR DAVÍÐ ÁSMUNDSSON Davíð kvæntist árið 1953 Jónínu Elfas- dóttur, f. 10. nóvem- ber 1907, d. 12. ágúst 1974. Foreldrar hennar voru Elías Bjarnason, f. 17. júní 1879, d. 4. janúar 1970 og kona hans Pálína Elíasdóttir, f. 28. aprfl 1885, d. 7. ágúst 1974. Davíð bjó félags- búi á Búlandi í Skaft- ártungum í um 15 ár en brá búi 1947 og fluttist til Reykjavík- ur þar sem hann starfaði hjá OIíu- ¥ Davíð Ásmunds- son fæddist á Hofi í Öræfum 18. október 1908. Hann lést á Landspítalanum i Fossvogi 22. maí síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Ásmundur Davíðsson, f. 20. aprfl 1860, d. 28. mars 1936 og kona hans Þuríður Runólfsdóttir, f. 26. apríl 1868, d. 25. jan- úar 1960. Hann var yngstur 6 systkina, en systkini hans sem upp komust voru Runólf- ur, f. 20. apríl 1894, d. 8. nóvember 1971, kvæntur Sveinbjörgu Vig- fúsdóttur, f. 12. janúar 1904 og Halldóra, f. 8. aprfl 1896, d. 26. aprfl 1993, gift Magnúsi Jónssyni, f. 18. febrúar 1893, d. 8. apríl 1971. felaginu hf. þar td hann lét af störfum vegna aldurs. Útför Davíðs fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Við fráfall Davíðs móðurbróður míns er margs að minnast og leitar hugurinn aftur til ársins 1937 þegar ég fór með móður minni fyrst í sveit að Búlandi í Skaftártungum, sex ára gamall. Á Búlandi var þá tvíbýli, á öðru búinu bjuggu þau Gísli Sigurðs- son og hálfsystir hans Vigfúsína Vig- "fúsdóttir, en á hinu búinu bjuggu fé- lagsbúi systkini Gísla, þau Páll og Kristín, ásamt Davíð, en á það bú var ég vistaður. Davíð tók vel á móti mér og kom mér fljótt inn í lífíð og tilver- una á bænum, þannig að þrátt fyrir einhvem söknuð sem varð, þegar mamma fór aftur til Reykjavíkur þrem dögum síðar, hvarf hann skjótt og ég undi mér vel á staðnum. Davíð var sérlega bamgóður og frábær uppalandi, þótt hann eignaðist ekki böm sjálfur. K Vera mín á Búlandi varð sjö sumur til viðbótar og var tilhlökkunin alltaf sú sama á vorin, þegar skólinn var úti, að komast í sveitina. Ánægjan af vera minni þar var fyrst og fremst Davíð og Búlandssystkinunum að þakka enda var framkoma þeirra gagnvart mér og öðram sem þar vora í sveit, á þá lund að mér fannst Bú- land vera mitt annað heimili. Ég hef oft hugsað til þessara sumra á Búlandi, ekki síst vegna þess hversu góður skóli þau vora og hversu mikið og gott veganesti þau gáfu mér. Mér vora strax falin marg- vísleg störf á bænum og urðu þau flóknari eftir getu og aldri. Á bænum var heimarafstöð knúin af bæjar- læknum og var ég ekki ýkja gamall, þegar ég var sendur til að hreinsa slý frá sigtinu í stíflunni við innrennslið til stöðvarinnar. Við þessa aðgerð óx rennslið til stöðvarinnar og þurfti þá að koma við í rafstöðinni á leið til baka og stilla túrbínuna vegna meira rennslis. Þannig lærði maður sjálf- krafa heilmikla rafmagns- og aflfræði frá fyrstu hendi og manni fannst að rafmagn væri sjálfsagður hluti af til- veranni. Menn urðu að vera sjálfum sér nógir með flesta hluti í sveitinni, þannig vora viðgerðir og smíðar ým- iss konar hluti af búskapnum. Með þessu fylgdist maður af áhuga og fékk fljótt að glíma við margvísleg verkefni á þessu sviði. Allt þetta kom mér til góða síðar á ævinni og mest af þessu get ég þakkað uppeldishlut- verki Davíðs. Davíð ólst upp með foreldrum sín- um, sem vora alla tíð í húsmennsku, fyrst í Öræfum og síðar um tíu ára skeið í Gröf í Skaftártungum. Mikill vinskapur skapaðist milli Davíðs og ábúendanna í Gröf og bömum þeirra, sem aldrei bar skugga á til dauða- dags. Davíð fluttist að Búlandi 1932 og var þar í félagsbúskap eins og áð- ur var getið með þeim systkinunum Kristínu og Páli Sigurðssyni. Þeir Páll og Davíð bragðu búi 1947 og fluttust til Reykjavíkur og bjó Davíð © ÚTFARARÞJÓNUSTAN Persónuleg þjónusta Höfum undirbúiö og séð um útfarir á höfuðborgar- svæðinu sem og þjonustu við landsbyggðina í 10 ár og erum samkvæmt verðkönnun Mbl. með lægsta verð allra á líkkistum og þjónustu við útfarir. Sími 567 9110 & 893 8638 Rúnar Geirmundsson Sigurfur Rúnarsson _____www.utfarir.is utfarir@itn.is_útfararstjóri_útfararstjóri ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útf ararþ j ónustu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. Sverrir Einarsson útfararstjóri, sími 896 8242 BFrederiksen útfararstjóri, Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is (g>mbl.is LLTAf= e/7T//ló4Ð /\JÝT~t— fyrstu árin á heimili foreldra minna, en þar bjó einnig Þuríður amma mín og móðir Davíðs. Á þessum áram var mikil húsnæðisekla í Reylq'avík og urðu menn að sætta sig við mikil þrengsli, sem ungt fólk í dag ætti bágt með að skilja eða sætta sig við. Þröngt mega sáttir sitja og þannig var því varið með Davíð, að hann gerði ekki miklar kröfur til verald- legra þæginda, kvartaði ekki og var ætíð sáttur við sitt. Vinskapur þeirra Páls og Davíðs hélst eftir að þeir fluttust til Reykjavíkur og áttu þeir um tíma saman gamlan herjeppa. Þessi bfll er mér sérstaklega minnis- stæður enda fyrsti bfllinn, sem ég fékk að aka. Eftir að Davíð flutti tfl Reykjavík- ur fór hann að vinna hjá Olíufélaginu hf. og vann þar í 42 ár. Hann var lengst af á dæluverkstæði fyrirtækis- ins, vann við uppsetningu og viðgerð- ir á afgreiðsludælum. Hann var verk: stjóri á verkstæðinu í mörg ár. í þessu starfi ferðaðist Davíð mfltíð um landið og heyrði ég oft hjá honum mikla ánægju með að fá tækifæri til þess, enda var hann ætíð mikið nátt- úrabarn og hafði gaman af að ferðast. Davíð var hraustur alla sína ævi og vel á sig kominn þrátt fyrir háan ald- ur og tfl marks um það var hann vinn- andi á verkstæðinu fram á 81. aldurs- árið, að vísu aðeins hálfan daginn síðustu árin. Það var mfldð hamingjuspor, sem Davíð steig 1953, þegar hann kvænt- ist Jónínu Elíasdóttur. Þau vora nán- ast jafngömul og komin nokkuð á fimmtugsaldur þegar þau gengu í hjónaband og kom kunningjum og vinum beggja nokkuð á óvart. Elías, tengdafaðir Davíðs, bjó á Laufásvegi 18 í húsi, sem hann hafði byggt yfir sig og fjölskyldu sína. Þau Jónína og Davíð byggðu sér skemmtflega íbúð ofan á húsið á tveim hæðum og bjuggu þau hjónin í þessari íbúð á meðan Jónína lifði og Davíð eftir það. Ibúðin sem er á þriðju og fjórðu hæð er með frábært útsýni yfír borgina til vesturs og suðurs með tjörnina í for- granni. Oft spurði ég Davíð að því, hvort honum fyndist ekki stigamir erfiðir, en hann svaraði ætíð tfl að það væra einmitt þeir sem héldu honum í góðu formi. Hann vildi t.d. ekki setja upp dyrasíma með dyraopnara og vildi heldur trítla sjálfur upp og niður stigann, þegar bjöllunni var hringt. Jónína og Davíð áttu sérlega vel saman og án efa vora árin sem þau vora saman hamingjusömustu ár í ævi Davíðs. Þessi ár urðu því miður allt of fá því Jónína andaðist langt um aldur fram eftir óvænt vefldndi. Það var mikfll sorgardagur fyrir Davíð og aðra aðstandendur fjölskyldunnar á Laufásvegi 18, þegar þeim mæðgun- um Jónínu og Pálínu var fylgt til grafar, en þær létust aðeins með fimm daga mfllibili. Davíð var vel lesinn í íslenskum bókmenntum og átti hann gott bóka- safn, sem hann lagði mikla alúð við og hafði ánafnað bókasafninu í Skaftár- hreppi til eignar eftir sinn dag. Á seinni árum tók Davíð upp á því að yrkja og sýndi hann mér eitt sinn þegar ég heimsótti hann nokkur Ijóð og vísur, sem hann hafði samið. Davíð var einstakt ljúftnenni sem aldrei hallmælti nokkrum manni og kvaddi þennan heim sáttur við Guð og menn. Blessuð sé minning hans. Jón Reynir Magnússon. Elsku afi Davíð hefur nú kvatt okkur og óhætt er að fullyrða að heimflislífið hér í Hvassaleitinu hafi breyst heilmikið við það. Afi Davíð hefur skipað stóran sess í lífi okkar systkinanna allt frá því að við munum fyrst eftir okkur. Hann var ekki afi okkar hvað varðar líffræðileg tengsl en í okkar augum var hann alltaf afi sem sýndi okkur mikla góðvild, og þess vegna kom aldrei neitt annað til greina en að hann hlyti þessa heið- ursnafnbót. I næstum tuttugu ár var afi fastur gestur á heimili okkar. Þeg- ar við bjuggum á Háteigsveginum kom hann daglega röltandi af Laufás- veginum i morgunsopa og spjall. Þrátt fyrir háan aldur var hann alltaf hress í lund og fylgdist afar vel með fréttum og hafði sínar sterku skoðan- ir á málunum. Það var þvi alltaf gam- an að ræða við hann um heimsmálin, liðna tíma eða krossgátuna í Moggan- um. Það kom fyrir í nokkur skiptin að maður var alveg stopp í gátunni og þá tók maður upp símann og spurði afa hvað hann hefði fengið í sinni lausn. Afi hafði afar gott skopskyn og var oft hlegið að athugasemdum hans sem flugu yfir matarborðið á sunnu- dögum. Sunnudagsmaturinn var fastur liður hjá okkur og, í seinni tíð, var tekið í spil eftir matinn enda var afi harðskeyttur spilamaður. Þegar komið var að heimferð læddi hann hendinni alltaf í vasann og dró upp eitthvert nammi. Fyrir réttu ári fór afi með okkur austur á æskustöðv- arnar. Þar gekk hann um sveitirnar eins og hershöfðingi og svo stóð hann í marki, 91 árs, meðan við systkinin skutum boltanum. Þetta var afi eins og við munum hann, alltaf til í allt og lét aldurinn ekki hefta sína for. Um leið og við kveðjum þig, elsku afi, vflj- um við þakka þér fyir þá takmarka- lausu hlýju og alúð sem þú sýndir okku alla tíð. Sezt í rökkurs silkihjúp sællogklökkurdagur. Er að sökkva í sævardjúp sólamökkvifagur. (Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum) Hvfl í friði, elsku afi, Ragnheiður, Hólmsteinn og Hólmfríður. Davíð Ásmundsson var kær og ná- inn heimilisvinur. Þau Jónína foðursystir mín giftust, þegar þau vora á miðjum aldri og eignuðust engin böm. Þau önnuðust afa og ömmu, sem létust í hárri elli og þau Davíð og Jónína bjuggu í íbúð, sem þau létu gera, í sama stigahúsi. Þegar Davíð kom á Laufasveginn, var þar fyrir Erasmus, ömmubróðir minn, sem komið hafði sjúkur frá Kanada til þess að deyja í föðurland- inu. Hann sáu þau Jónína frábærlega um, þar sem hann lá í sjúkrarúmi í íbúð afa og ömmu og beið dauða síns. Davíð og Jónína vora afskaplega samrýnd og stóðu saman í öllum verkum. Hún var stjórnsöm og með afbrigðum dugleg manneskja og Davíð veitti henni mikinn og dyggan stuðning. Á jólunum kom stórfjöl- skyldan saman hjá afa og ömmu á Laufásvegi og var þá gjarnan spilað púkk í fyrstu, en hörðustu spilamenn- imir færðu sig seinna upp á loft þar sem haldið var áfram að spila vist við þau Davíð, en það spil var alltaf í sér- stöku uppáhaldi hjá honum. Til þeirra Davíðs var alltaf gott að koma. Einhver skyldleiki var með þeim hjónum og höfðu þau víst kynnzt lítil- lega austur í Skaftafellssýslu. Þau þekktu fjölmarga sveitunga sína, einkum frá Síðu og Skaftártungu. Þangað fóra þau líka alloft, komu þá við á fjölmörgum bæjum og vai- alls staðar vel fagnað. Þau vora auk þess alltaf einstaklega dugleg við að heim- sækja sveitunga sína og vini, sem komu til sjúkrahúsdvalar í höfuð- borginni, styttu þeim þar stundir og veittu mikla hlýju. Jónína lézt í ágúst 1974, tæpri viku á eftir móður sinni, og voru þær mæðgur jarðaðar saman. Hjónaband þeirra Davíðs og Jónínu hafði þá staðið í rétt rám tuttugu ár. Eftir þetta bjó Davíð einn í íbúð sinni. Á neðstu hæð í sama húsi býr Gissur, mágur Davíðs, og var samband þeirra ávallt afskaplega gott. Á hverju kvöldi eyddu þeir mágar sam- an nokkurri stund, röbbuðu saman og horfðu dálítið a sjónvarp, áður en Davíð bjó sig undir það að ganga til náða. í ibúð fyrir neðan Davíð bjó um árabil Helga, mágkona Davíðs, sem býr nú í hárri elli á Elliheimilinu Grand, og þangað fór Davíð oft síðar gangandi til að stytta henni stundirn- ar. Seinustu mánuðina fóra langar gönguferðir þó að reyna á þrek hans, og þótti honum mjög miður, hve hægt hann taldi sig komast áfram. Davíð var fremur lágur maður vexti, léttur í hreyfingum og með ein- staklega ljúfa lund. Hann var allra hugljúfi, og maður naut þess að vera með honum. Skopskyn hafði Davíð gott og hann laumaði gjarnan út úr sér glettnum og eftirtektarverðum athugasemdum. Davíð var vel lesinn og orðhagur, en leyndi því vel að hann hafði sett saman margar at- hyglisverðar vísur, ekki sízt hin sið- ustu ár. Davíð vann hjá Olíufélagi íslands fram yfir áttrætt og eignaðist þar marga góða vini. Davíð ók sínum bíl litlu lengur, en taldi sjón sína þá ekki vera orðna nógu góða fyrir öryggið í umferðinni. Hann hélt samt áfram fótgangandi og í strætisvagni að heimsækja aldna vini sína og sveit- unga, sem smám saman tíndu töl- unni. Öðrum kynntist hann þá í heim- sóknum sínum og einnig í félagsvist hjá Skaftfellingafélaginu og Félagi aldraðra í Reykjavík. Þar lét hann sig helzt aldrei vanta og hafði mikla ánægju af þeim stundum. Samband foreldra minna við Davíð var alltaf mjög gott og bára þau mjög mikla virðingu fyrir þessum trygga vini okkar. Hann fór svo að venja komu sínar oftar á heimili þeflra eftir að faðir minn fékk alvarlegt áfall og Davíð tók að stytta honum stundirn- ar. Samband Davíðs við Karen, konu mína, var einstakt. Þau féllu hvort öðru einstaklega vel í geð og þarna varð til mjög sterkt samband; sem hélzt allt fram í andlát Daviðs. I Kar- en fann Davíð góðan stuðningsmann og fljótlega varð sú regla upp tekin að Davíð hringdi eftir 10-fréttir ríkis- útvarpsins á hverju einasta kvöldi. Gekk slíkt símtal undir nafninu til- kynningaskyldan á heimili okkar. Hin síðari ár urðu símtölin á degi hverjum miklum mun íleiri, auk þess sem Davíð snæddi nær alltaf hjá okk- ur helgarmáltíðina, í sérhverju sunnudagshádegi. Að málsverði lokn- um var jafnan farið með hann í spil hjá öldraðum. Bömin okkar kölluðu Davíð fljótlega Afa-Davíð og var hann þeim alltaf mjög kær. Við söknum nú öll góðs vinar, og víst er að lífið hjá fjölskyldu minni verðrn- með öðram brag á næstunni. Hið sama gildir efalaust um fleiri, ekki sízt frænda minn, Gissur. Lífár- in vora vissulega orðin mörg, og þreytu var farið að gæta hjá höfðingj- anum okkar aldna undir lokin. Hvfld- in var kærkomin, og við þökkum hon- um allar huggulegu samverustund- imar. Guð blessi Davið okkar Ásmunds- son. Þú hefur lífs á vegi mig leitt á hverjum degi ogskilaðheilumheim. Er þróttinn tekur að þverra þá treysi ég því, minn Herra, þú leysir brátt úr vanda þeim. (D. Ásm.) Haraldur Helgason. Davíð frændi minn er látinn á 92. aldursári. Hann var yngri bróðir Dóru ömmu minnar sem lést fyrir sjö áram. Sem bam man ég ekki eftir að talað væri um Davíð nema Jónína kona hans væri nefnd í sömu andrá. Það var alltaf Davið og Jónína. Amma sagði mér að Davíð hefði verið mjög feiminn og hlédrægur sem ung- ur maður og tráði hún mér fyrir því að hún hefði alltaf verið viss um að hann mundi aldrei kvænast. Hann kom því öllum í fjölskyldunni mjög á óvart þegar hann kynnti konuefni sitt, hana Jónínu. Jónína var yndisleg og hlý kona sem öllum þótti vænt um ekki síst bömunum í fjölskyldunni. Við ótímabært lát hennar misstum við mikið. Ég get því einungis gert mér í hugarlund hvílíkt áfall það var fyrir Davíð þegar hann stóð einn eft- ir. Þegar ég byrjaði mín hjúskaparár á Urðarstígnum kynntist ég Davíð upp á nýtt. Hann bjó á Laufásvegin- um og kom oft í heimsókn. Okkur þótti mjög vænt um þesar heimsókn- ir hans og eignuðumst við Gulli góðan vin þótt 50 ára aldursmunur væri á okkur. Guðrán og Katrín fengu nokk- urs konar auka-afa sem stakk að þeim smágjöfum eða nammi eins og afar gjarnan gera. Árin okkar úti í Eþíópíu var Davíð alltaf í sambandi og sendi smábréf og kveðjur til okkar reglulega. Hann fylgdist vel með öll- um í fjölskyldunni og miðlaði fréttum á milli þar sem samband var annars slitrótt. Davíð var hæglátur maður sem hafði þó ríka kímnigáfu. Hann var Ijúfmenni og það var gott að vera ná- lægt honum. Mér þótti vænt um hann og ég mun sakna hans. Ég bið Guð að blessa minningu Davíðs frænda. Birna Gerður Jónsdóttir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.