Morgunblaðið - 01.07.2000, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kristnihátíðin verður
sett á Þingvöllum í dag
U ndirbúningi
lokið í glamp-
andi sólskini
KRISTNIHÁTÍÐ hefst í dag á
Þingvöllum og stendur nú um
helgina. Iðnaðarmenn luku við
síðustu framkvæmdir vegna há-
tíðarhaidanna í gær og að sögn
Júlíusar Hafstein, framkvæmda-
stjóra Kristnihátíðarnefndar, hef-
ur allt gengið samkvæmt áætlun.
„Ég á von á því að Islendingar
fjölmcnni á þessa háti'ð og verði
vitni að merkum viðburðum,"
sagði Júlíus og benti á að aldrei
áður hefði jafnmikið verið lagt í
tækjabúnað til að koma list-
viðburðum vel til skila til áhorf-
enda.
Sólin skein á þjóðgarðinn á
Þingvöllum í gær og fór hitinn í
21 stig. Samkvæmt upplýsingum
á Veðurstofu íslands vcrður
áfram blíðviðri á Þingvöllum alla
helgina; hægviðri og fremur
hlýtt, og hiti allt að 20 stigum.
Gert er ráð fyrir að léttskýjað
verði og fari svo að vökni verði
það af völdurn hitaskúra.
Vegna Kristnihátíðar verður
boðið upp á ókeypis ferðir með
rútum til Þingvalla frá fimm
stöðum á höfuðborgarsvæðinu.
Upphaflega var gert ráð fyrir að
í þessum ferðum yrðu 70 til 80
rútur, en vegna verkfalls Bif-
reiðastjórafélagsins Sleipnis
verður fjöldinn ekki svo mikill.
Alls verða þó um 25 til 30 rútur í
stöðugum ferðum milli Reykja-
víkur og Þingvalla báða dagana.
Rúturnar fara frá Laugar-
dalshöll og verður akstri þeirra
hagað eftir fjölda farþega og bif-
reiða. Stefnt er þó að þvf að þær
gangi á klukkustundar fresti - á
heila tímanum.
Aksturinn hefst kl. 9 í dag og
kl. 8:30 í fyrramálið, en síðasta
ferð frá Þingvöllum báða dagana
verður klukkustund eftir að dag-
skrá lýkur.
Sleipnismenn hafa gert athuga-
semdir við þessar ferðir og sagði
Óskar Stefánsson formaður fé-
lagsins í gær að hugsanlega yrði
reynt að stöðva þær.
MorgunblaðiOTtristinn
Lokaæfing fór fram á stóra sviðinu á Þingvöllum í gærkvöld.
Tjara í malbiki
bráðnar í sólinni
Lögregla
biður fólk
að sýna
aðgát
LÖGREGLAN í Borgarnesi mælist
til þess að vegfarendur sýni aðgát
um helgina þar sem borið hefur á
því að tjara í malbiki á þjóðveginum
hafi bráðnað vegna hitanna undan-
farið og sest á yfirborð vegarins.
Varð eitt umferðarslys af þessum
sökum í gær þegar bíll rann yfir á
öfugan vegarhelming í tjörunni og
skall á öðrum bíl.
Að sögn Birgis Guðmundssonar,
umdæmisstjóra hjá Vegagerðinni í
Borgarnesi, hefur verið borinn
grófur sandur á malbikið þar sem
ástandið er verst.
Malbikið þolir ekki mikinn hita
Birgir segir að malbik sem notað
er hér á landi þoli ekki mikinn hita.
Hann segir að í gærdag hafi þó
nokkuð verið um að tjörublettir
mynduðust þar sem lofthiti hafi
verið mikill og sólskin allan daginn
auk þess sem mikill umferðarþungi
hafi verið á veginum.
Birgir segir þetta geta verið
hvimleitt þar sem tjaran límist við
hjólbarða bifreiða en einnig geti
myndast hálfgerðir hálkublettir af
þessum völdum.
Morgunblaðið/Golli
Ungir Reykvíkingar flatmaga í sólinni við Austurvöll, en mestur hiti í
Reykjavik í gær mældist 19 gráður.
Veðurstofan spáir blíðviðri fram á fímmtudag
Varað við solbruna
Lítil skjálftavirkni
á Suðurlandi í gær
LÍTIL skjálftavirkni var á Suður-
landi í gær og fór enginn þeirra
u.þ.b. þrjú hundruð smáskjálfta,
sem mældust í gær, mikið yfir 2 á
Richter.
Sagði Þórunn Skaftadóttir, jarð-
fræðingur hjá Veðurstofunni, að
lítið hefði borið til tíðinda á
skjálftasvæðinu í gær, smáskjálft-
amir sem mælst hefðu væru
dæmigerðir eftirskjálftar.
Kortið er fengið af vef Veður-
stofunnar, www.vedur.is/ja/skjalft-
ar/svest.html, og uppfærist það
sjálfvirkt á hálftíma fresti.
Dökkrauðir punktar tákna nýjustu
skjálftana og dökkbláir þá elstu en
um er að ræða alla skjálfta sem átt
hafa sér stað 48 klukkustundum
fyrir útgáfu kortsins.
Viðbúnaður á Rey kj avfkurflugvelli
Lending* tókst áfallalaust
SÓL skein í heiði um allt land í
gær og óvenju hlýtt var í lofti.
Víða um land mældist hiti um eða
yfir 20 gráður og við Mývatn, þar
sem hlýjast var, mældist hitinn 25
gráður. Fjölmargir spókuðu sig fá-
klæddir í sólinni.
Haraldur Ólafsson, veðurfræð-
ingur, sá ástæðu til þess að vara
fólk við sólbruna í veðurfréttum
Sjónvarps í gærkvöld en spáð er
áframhaldandi blíðviðri fram á
fimmtudag og því skynsamlegt að
taka mark á viðvörunum Haralds
og nota sólarvörn ef fólk ætlar að
vera úti við næstu daga. Þótt veðr-
ið verði gott um allt land geta
þokubakkar slæðst með ströndum
á Norður- og Austurlandi með til-
heyrandi kulda en í innsveitum
ætti þokunnar ekki að gæta. Góða
veðrið geta landsmenn svo þakkað
hæð sem liggur 300 kílómetra
suðaustur af Jan Mayen.
VIÐBÚNAÐUR var á Reykjavík-
urflugvelli á níunda tímanum í
gærkvöld vegna farþegaflugvélar
sem var að koma frá Húsavík.
Nefhjól vélarinnar hafði orðið fyrir
höggi í flugtaki og reykur komið
frá því. Lendingin á Reykjavíkur-
flugvelli tókst hins vegar áfalla-
laust.
Vélin, sem var af Metro-gerð,
var í áætlunarflugi fyrir Flugfélag
íslands og hafði innanborðs 19 far-
þega. Ekki var ljóst í gærkvöld
hvort skemmdir hefðu orðið á nef-
hjólinu.
Sérblöð í dag
SftSlHNk
¥ ¥7Ci¥¥#^*^
LLoDOiv
ÁLAUGARDÖGUM
4SÍHR
Groningen vill
Peterson B/1
Sex sundmenn reyna
við ÓI-lágmark/Bl
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is