Morgunblaðið - 01.07.2000, Side 20

Morgunblaðið - 01.07.2000, Side 20
20 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT ■ •ji' • »-3 Eldur í Wash- ington Pasco i Bandaríkjunum. AP. SLÖKKVILIÐSMENN sem ígær börðust við skðgar- og kjarrelda í Washingtonríki á vesturströnd Bandaríkjanna voru í aukinni hættu vegna mögulegrar geisla- virkni. Eldarnir loguðu í nágrenni kjarnorkuversins í Hanford, en þama er mengun vegna versins meiri en við nokkurt annað kjarn- orkuver í Bandaríkjunum. Mörg þúsund manns hafa orðið að yfir- gefa heimili sín í grenndinn, og mörg íbúðarhús hafa bmnnið til kaldra kola. I gærmorgun hafði slökkviiiði tekist að ráða niðurlög- um eldsins að mestu, en hann kviknaði á þriðjudaginn þegar bíl- slys varð og eldur komst. í þurrt gras við vegarbrúnina. Eldurinn breiddist meðal annars yfir svæði þar sem úrgangur hafði verið graf- inn og yfir tvær uppþomaðar tjam- ir sem úrgangi hafði verið hellt í. Urðu slökkviliðsmenn að láta eld- inn brenna á þessum svæðum frem- ur en að koma nálægt þeim vegna hættu á geislamengun. Óttast að 500 hafí farist Ferjunnar enn leitað Manado, Jakarta. AP, AFP. Bandaríkj amenn mótmæla samningi um sölu á ísraelskum hátæknibúnaði til Kína Vill að samningn- um verði rift Jerúsalem. AFP. LEIT hélt í gær áfram að ferjunni Cahaya Bahari, sem talin er hafa sokkið á leið sinni frá Mólukkaeyjum til Mandao, en neyðarkall barst frá henni á fimmtudag. Ferjan var of- hlaðin og er óttast um líf þeirra hátt í 500 manna sem um borð voru. Ekkert hafði spurst til feijunnar eða farþega hennar rúmlega sólar- hring eftir að neyðarkallið barst. Skipstjóri Cahaya Bahari tilkynnti, áður en fjarskiptasamband rofnaði, um bilun í vélarbúnaði feijunnar sem jafnframt væri að fyllast vatni í ólgusjó. Tugir fiskibáta aðstoðuðu í gær og fyrradag fjögur skip sjóhers- ins við leit að braki í hafmu norður af HINIR fjölmörgu flugfarþegar sem fyrir löngu eru orðnir leiðir á seink- unum, týndum farangri og yfir- bókuðum flugvélum hafa fullan rétt á umkvörtunum sínum ef marka má nýjustu fregnir frá Bandaríkjunum þar sem Qöldi kvartana til flugfé- laga hefur aukist allverulega í ár fráundanfornum árum. Á síðasta ári komu bandarísk flugfélög sér undan nýrri lagasetn- ingu er tók á umkvörtunarmálum með því að heita því að veita við- skiptavinum sínum betri þjónustu og greiðari svör. Er eftirlitsmenn samgöngumálaráðuneytisins fóru í saumana á árangri fyrirtækjanna fyrr á árinu kom þó ýmislegt í Ijós sem betur mætti fara. Umkvörtunum hefur fjölgað um 74% á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs miðað við sama túna í fyrra og að kvörtunum um seinkun á flugi, sem er algengasta að- finnsluefni flugfarþega, fjölgaði um 84% á sama tímabili. Hluti aukning- arinnar er rakinn til þess að á þessu ári gáfu flugfélög viðskiptavinum sínum kost á að kvarta á Netinu en sérfræðingar segja að það sé aðeins eyjunni Sulawesi þar sem síðast spurðist til feijunnar. Leitarflokkar héldu á svæðið strax og neyðarkallið barst en veðurskilyrði hafa hamlað björgunarstarfi og hafði í gær hvorki fundist tangur né tetur af Cahaya Bahari eða farþegum hennar. Að sögn hinnar ríkisreknu frétta- stofu Antara fannst björgunarvesti í sjónum í um 60 sjómílna fjarlægð. Ekki var hins vegar vitað hvort það væri úr feijunni. „Ekkert hefur fundist hingað til,“ sagði Ering Musa, sem hafði yfir- umsjón með leitar- og björgunar- starfi. „Það hafa engar fregnir borist af fólki sem komist hefur lífs af.“ hluti vandans. Aðeins 25% kvartana berast með þeim hætti. Aftur á móti segir í skýrslu eftirlitsmannanna að flugfélög hafi bætt sig í að tilkynna seinkanir jafnvel þótt oft sé logið til um orsakir þeirra. EINN af helstu aðstoðarmönnum Ehuds Baraks, forsætisráðherra ísraels, hvatti til þess í gær að stjórn landsins rifti samningi við Kínverja um að selja þeim háþróað ratsjár- kerfi í flugvélar vegna andstöðu Bandaríkjamanna við söluna. „Við verðum að taka þessa ákvörðun þótt hún sé erfið og flók- in,“ sagði Haim Ramon, aðstoðar- ráðherra í ráðuneyti Baraks. Þetta er í fyrsta sinn sem embætt- ismaður í stjórn ísraels lýsir því yfir opinberlega að rifta beri samningn- um um að setja ísraelskt AWACS- ratsjárkerfi í rússneska flugvél fyrir Kínverja. AWACS er hátæknibún- aður sem gerir mönnum kleift að fylgjast með allri flugumferð á stóru svæði og flugvélar með slíkan búnað eru mjög veigamikill þáttur í vöm- um Bandaríkjanna. Samkvæmt samningnum eiga Kínveijar að greiða 250 milljónir dala, andvirði 19 milljarða króna, fyrir búnaðinn. Hóta að draga úr aðstoðinni Ramon sagði að stjómin hefði get- að náð einhvers konar málamiðlun- arsamkomulagi við Bandaríkja- stjórn en stæði nú frammi fyrir mjög harðri andstöðu við samninginn á bandaríska þinginu. Nokkrir þing- menn í Washington hafa hvatt til þess að dregið verði úr fjárhagsað- stoð Bandaríkjanna við ísrael verði samningnum ekki rift. Jerusalem Post hafði eftir hátt- settum embættismanni í ísraelska vamarmálaráðuneytinu að Barak hallaðist að því að rifta bæri samn- ingnum eða að minnsta kosti að fresta sölu hátæknibúnaðarins. Ramon sagði hins vegar að ekki yrði hjá því komist að rifta samningnum því ógjömingur væri að fresta söl- unni. „Ég hef áhyggjur af sölunni og hef rætt málið ítarlega við Barak for- sætisráðherra og eins og komið hef- ur fram veldur það miklum áhyggj- um á þinginu,“ sagði Bill Clinton Bandaríkjaforseti á miðvikudag. Ráðuneyti Baraks skýrði frá því sama dag að bandarískir og ísraelsk- ir embættismenn myndu reyna að leysa deiluna í næstu viku. Madel- eine Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði eftir viðræður við ísraelska ráðamenn fyrr í vikunni að bæði ríkin legðu mikið kapp á að leysa deiluna. David Levy, utanrík- isráðherra ísraels, lofaði Albright því að ísraelar myndu ekki gera neitt sem gæti stofnað Bandaríkjun- um í hættu. Bandarískir þingmenn óttast að kaup Kínverja á hátæknibúnaði geti raskað hernaðarjafnvæginu milli Kína og Taívans. Þeir hafa einnig áhyggjur af því að búnaðurinn geti stofnað bandarískum herskipum í hættu ef til þess kæmi að Banda- ríkjaher þyrfti að verja Taívan. Kínverjar sögðu á fimmtudag að samningurinn kæmi Bandaríkja- mönnum ekkert við og báðu þá að hætta afskiptum sínum af málinu. „Ekkert ríki hefur rétt til að skipta sér af innanríkismálum annars lands og viðhafa ógætileg ummæli um þró- un eðlilegra tengsla Kína við önnur ríki,“ sagði Zhu Bangzao, talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins. Fjárhagsaðstoð Bandaríkjanna við ísrael nemur um þremur millj- örðum dala á ári, andvirði 230 millj- arða króna. Þar af eru 1,8 milljarðar dala, andvirði tæpra 140 milljarða króna, ætlaðir til hernaðaraðstoðar pg megnið af því fé tengist kaupum Israela á bandarískum vopnum og hergögnum. Sakaður um „óbærilegan hroka“ Bcrlín. Reuters. ÞÝZK dagblöð voru í gær óspör á gagnrýni á framferði Helmuts Kohls, fyrrverandi kanzlara, er hann bar í fyrsta sinn vitni fyrir sérskipaðri rannsóknarnefnd þýzka þingsins í fyrradag, en hlutverk nefndarinnar er að rannsaka hvað hæft sé í ásökunum um að tengsl hafi verið milli leyni- legra greiðslna í sjóði Kristilegra demókrata (CDU) og ákvarðana ríkisstjómar Kohls. „Helmut Kohl sat fyrir rannsóknamefndinni eins og holdtekja hrokans," segir í hinu fijáls- lynda Miinchenarblaði Siiddeutsche Zeitung. „Hann sýndi hvað gerist þegar einn maður er kanzlari í 16 ár og flokksformaður í 25 ár - hann missir raunveruleikaskynið," heldur blaðið áfram. „Hroki Helmuts Kohls er óbærilegur." Berliner Zeitung sagði að Kohl gæti einfald- lega ekki vanizt því að vera ekki lengur við völd. „Hann ber svo litla virðingu iyrir leikreglum lýðræðisins og virðir hvorki lög né reglur eft- ir að hafa getað ráðskazt með lög og reglur í 16 ár,“ segir þar. Jafnvel hið íhaldssama blað Die Welt skrifar að Kohl hafi Helmut Kohi stjómað ráðuneyti sínu með „valdhroka lénsherra". Og Frankfurter Allge- meine Zeitung skrifar: „Helmut Kohl reynist sjálfum sér samkvæmur, útmálar mynd fyrir- myndarheiðarleika í „sínu“ kanzlaraembætti og heldur enn leyndum nöfnum gefenda þess fjár sem hann hefur viðurkennt að hafa tekið við [sem leynilegum framlögum í kosningasjóð CDU]. Það má vera að sviðssýning gærdagsins hafi haft sitt skemmtanagildi, en burtséð frá því að hafa eitrað enn frekar andrúmsloftið milli stjórnarflokkanna [jafnaðarmanna og græningja] og kristilegra demókrata, hefur hún ekki skilað neinu.“ Fáir leiðarahöfundar sjá ástæðu til meðaumk- unar með kanzlaranum fyrrverandi, sem hefur frá því hann missti völdin haustið 1998 tapað orð- stír sínum að stórum hluta. Viðbrögð stjómmála- manna hafa verið á svipaða lund. Einkum þykir gagnrýnivert að Kohl skyldi hafa átt trúnaðar- fundi með þeim samflokksmönnum sínum sem sæti eiga í rannsóknamefndinni, rétt fyrir mikil- væga fundi nefndarinnar á liðnum mánuðum. Óánægðum flug- farþegum fjölgar Washington. AP.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.