Morgunblaðið - 01.07.2000, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000 25
Fundnar myndir
„
•s
Halla smalar fénu/ og hrós frá öllum fær. /
Skrýtnar eru kindurnar / og skelfing jarma
þær. En efi kemur þó fyrir/ þó ótrúlegt það sé, /
að sumir verða leiðir á / að snúast kringum fé.
Þá sest að manni tregi/ og sorgum hugann fer, /
þá langar mann í þorpið/ þar sem afi manns er.
Morgunblaðið/Bragi Ásgeirsson
Sagan af Höllu; myndir - Louisa Matthíasdóttir, kvæði -
Steinn Steinarr.
MYNDLIST
II a I' n a r b o r g
KLIPPIMYNDIR
LOUISA MATTHÍAS-
DÓTTIR
Opið alla daga frá 12-18. Lokað
þriðjudaga Til 2. júlí. Aðgangur
300 krónur í allt húsið.
UM helgina lýkur hinni einstæðu
sýningu á verkum Bell-fjölskyld-
unnar í Hafnarborg og verður
ábyggilega langt þangað til slíkt
framtak verður endurtekið. Drjúg
ástæða er til að festa nokkrar línur á
blað, og sú brýnust að ekki hefur
sérstaklega verið fjallað um viðbót-
ina við hana, sem eru fundnar
klippimyndir. Fjölmiðlar hafa þó
sagt frá sjálfum fundinum og að-
draganda hans, en hann var sá
helstur, að Ragnar Jónsson í Smára
hafði á sínum tíma í huga útgáfu
bókar með kvæðum eftir Stein
Steinarr en myndskreytingum eftir
Louisu Matthíasdóttur, eða kannski
heldur öfugt, myndir eftir Louisu
sem Steinn Steinarr semdi texta við.
Þau luku bæði sínu hlutverki, en
einhvern veginn varð ekki af útgáf-
unni og ástæðan sögð að myndimar
hefðu týnst, sem má alveg vera rétt
því Ragnar átti það til að geyma
sumt svo yfirmáta vel að hann gat
ekki fundið það aftur. En svo þegar
myndirnar komu í leitirnar löngu
seinna voru aðrir tímar, myndirnar
gefnar og koma nú fyrst fyrir sjónir
almennings. Ég þekki nokkuð til
þess persónulega, að Ragnar var
hræddur um að týna myndverkum
og ekki að ástæðulausu; hann var
eldhugi sem hafði mörg jám í eldin-
um í einu. Þannig lá hluti myndlýs-
inga minna við ljóðið Áfanga eftir
Jón Helgason í meira en tvo áratugi
innan um skjöl á botni gamals pen-
ingaskáps á skrifstofu hans. Málið
kann þó að vera flóknara, en enga
getspeki hér.
Nú þekki ég einnig til þess tíma er
klippimyndirnar voru gerðar, bæði
GALLERÍ SÆVARS KARLS
Erna G. Sigurðardóttir. Erna opnar
myndlistarsýningu í Galleríi Sævars
Karls í Bankastræti. Sýningin stend-
urtil 20. júlí.
www.reykjavik2000.is, wap.olis.is
bakgrunns þeirra og annars sem
kom út af sama tagi frá Helgafelli,
og var helst eftir Nínu Tryggvadótt-
ur. Það hefur og einnig orðið til
þess, ásamt málverkum er þær stöll-
ur gerðu hlið við hlið, að menn hafa
eðlilega álitið stfleinkennin runnin
frá Nínu. En staðreyndin er, að
Louisa var farin að gera slíkar
myndir á skólaárunum í Kaup-
mannahöfn, en hún nam auglýsinga-
teikningu við listiðnaðarskóla í
Bredgade. Fleiri íslendingar námu
auglýsingateikningu í Kaupmanna-
höfn á þessum árum, og hin sér-
stöku og einföldu stfleinkenni komu
einnig fram í myndum þeirra, svo
sem Atla Más, Asgeirs Júlíussonar
og Ágústu Snæland. En það blund-
aði málari í Louisu, sem þessi og
önnur myndverk mega vera til vitnis
um. Nína nam á listaakademíunni,
og þótt stutt væri á milli þeirra á
Kaupmannahafnarárunum, varla
GRÓFARHÚSINU, TRYGGVAGÖTU 15
Óratoría hafsins. Á þessari samsýn-
ingu í Grófarhúsinu við Tryggvagötu
verða sýnd ný verk eftir Ijósmyndar-
ana Marisu Arason og Roberto Legn-
ani. Viðfangsefnin eru menningin í
náttúrunni ognáttúran í menning-
unni. Sýningin stendurtil31.júlí.
meira en 100-200 metrar, kynntust
þær fyrst í París, og var það Nína
sem átti frumkvæðið að þeim kynn-
um er hún ávarpaði Louisu á ís-
lensku í Louvre-safninu. Það var
kímið að farsælli og eftirminnilegri
samvinnu sem markað hefur drjúg
spor í íslenska listasögu, að því leyti
á Nína frumkvæðið en innbyrðis
gáfu þær hvor annarri mikið. Nína
var með reynsluna frá listaakadem-
íunni, þar sem hún var í góðum fé-
lagsskap framsækinna listspíra og
áratugurinn einn sá blómlegasti í
danskri myndlistarsögu. Louisa
hafði hinsvegar reynsluna frá list-
iðnaðarskólanum, auk þess að vera
vígð þeim óformlega málunarmáta
sem fylgdi henni allt lífið. Listspír-
urnar með fæturna á jörðinni, vel
meðvitaðar um púls samtímans.
Klippimyndirnar í Hafnarborg
segja því nokkra sögu, og innbyrðis
víxlverkun Louisu og Nínu er báð-
JPV FORLAG hefur í samvinnu við
Þjóðminjasafn Islands sent frá sér
bókina Island í sjónmáli/Islande en
vue - Franskir ljósmyndarar á ís-
landi 1845-1900/Photographes frang-
ais en Islande, sem rituð er bæði á ís-
lensku og frönsku. í bókinni eru
birtar elstu Ijósmyndir sem til eru frá
íslandi og aldrei hafa birst áðm-.
Myndimai- eru teknar af frönskum
KÓR íslenska safnaðarins í Noregi
er staddur hér á landi þessa dag-
ana í tilefni kristnitökuhátíðarinn-
ar á Þingvöllum. Kórinn mun
syngja á Þingpalli laugardaginn 1.
júlí kl. 11.30 og taka þátt i hátíðar-
guðsþjónustunni á sunnudeginum.
um listakonunum til sóma, en þessar
upplýsingar ættu væntanlega að
burtkústa og eyða öllum fram-
komnum vangaveltum og getspeki
um meint einsleit áhrif Nínu á
Louisu.
Það sem þessar einföldu klippi-
myndir og kersknu kvæði segja okk-
ur helst er að um gáfaða og næma
listakonu var að ræða svo og snjall-
an orðasmið. Einnig að sá þroski var
ekki fyrir hendi hérlendis að fyrir-
sjáanlegt væri að menn tækju
hvorutveggja opnum örmum, mun
frekar að um fórnfúst brautryðj-
andastarf væri að ræða. Listakonan
var óþekkt stærð og fólk gerði grín
að skáldinu. En kannski er þjóðin
orðið svo þroskuð í dag að ástæða
væri til að gefa bókina út, einkum i
ljósi framfara í prenttækni, og væri
full ástæða til að kanna það mál.
Ijósmyndurum við ei'fiðar aðstæður
og takmarkaðan tækjakost.
Ljósmyndh-nar i bókinni eru ómet-
anlegar sem innsýn í horfinn heim en
margar þeirra eiu einu myndheim-
ildir sem til eru um staði og fólk, seg-
ir í fréttatilkynningu.
I tilefni af útgáfunni færðu útgef-
endur bókarinnar franska sendiherr-
anum fyrsta eintak bókarinnar.
Sunnudagskvöldið 2. júlí mun siðan
kórinn halda tónleika í Langholts-
kirkju kl. 20.30. Á efnisskrá eru ís-
lensk og norsk þjóðlög bæði ver-
aldleg og trúarleg. Stjórnandi
kórsins er Brynhildur Auðbjargar-
dóttir.
Athuga-
semd frá
Armanni
Jakobssyni
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Ár-
manni Jakobssyni vegna greinar
Arnar Ólafssonar, Var Njáll
hommi?, sem birt var í blaðinu í
gær:
„Það er alltaf ánægjulegt fyrir
fræðimenn að skrifum þeirra sé
sýndur áhugi.
Föstudaginn 30. júní birtist í
Morgunblaðinu athugasemd frá
Erni Ólafssyni við grein sem ég
skrifaði í Skírni (vorhefti 2000). Þar
sem um efni hennar hefur ekkert
verið fjallað í Morgunblaðinu ann-
ars þykir mér ástæða til að skýra
málið aðeins betur.
Ymsir fjölmiðlar hafa sýnt þess-
ari rannsókn áhuga en því miður
hefur á stöku stað gætt nokkurs
misskilnings á efni hennar. Því fer
fjarri að meginefni þessarar grein-
ar sé að fletta ofan af frægum
hommum fyrri alda (sem eru þar að
auki að mestu eða öllu leyti bók-
menntapersónur). Umfjöllunarefni
hennar eru hugtökin kari og kona
og í framhaldi af því hugtökin karl-
mannlegt og kvenlegt, þ.e. þeir eig-
inleikar sem samfélagið og menn-
ingin eigna kynjunum.
I greininni er því haldið fram að
Njála sé ekki „karlmanna rit“ eins
og almennt hefur verið talið heldur
sé þvert á móti grafið undan hefð-
bundnum goðsögnum um eiginleika
karla og kynhlutverkin og karl-
menn sögunnar séu flestir „öfugir“
á einhvern hátt, þ.e. falli ekki vel að
hefðbundnum hugmyndum um
karlmennsku.
Notkun mín á þessu orði (sem er
þó skýrð í greininni) hefur valdið
misskilningi, m.a. hjá Erni Ólafs-
syni sem kýs að lesa orðið „hommi“
í stað „öfugur" og andmæla í löngu
máli þeirri grein sem kemur út eftir
þann mislestur. Örn hefði betur
velt þvi fyrir sér í hvaða merkingu
ég nota þau orð sem ég nota í þess-
ari grein (t.d. öfughneigð). í stað
þess notar hann annað orð (sem
ekki er samheiti) til að gefa henni
nýja merkingu.
I grein minni er því ekki haldið
fram að Njáll á Bergþórshvoli hafi
verið hommi. Því er hins vegar
haldið fram að hann sé „öfugur“ í
skilningi samfélagsins sem sagan
gerist í, þ.e. skorti karilega eigin-
leika og fyrst og fremst skegg.
Enda er klifað á skeggleysi hans í
sögunni. Hið sama gildir um önnur
dæmi sem ég ræði í greininni. Þau
snúast fyrst og fremst um karl-
mennsku og skort á henni.
I grein sinni 30. júní s.l. er Örn
því að andmæla öðru en því sem ég
held fram í greininni. Eg tek þar
skýrt fram að ég telji ekkert koma
fram í sögunni um það hvort Gunn-
ar og Njáll hafi átt í ástarsambandi
og er alls ekki að reyna að komast
að hinu „sanna“ um það (enda er
það ekki hægt).
Hins vegar bendi ég á að mögu-
leikinn sé fyrir hendi, ekki aðeins
hjá nútímalesendum heldur einnig
persónum sögunnar, höfundi og
væntanlega viðtakendum og óttinn
við þennan möguleika veldur að
minni hyggju átökum í sögunni.
Þó að einhverjum kunni að þykja
kynhneigð Brennu-Njáls áhuga-
verðari en kynferðisumræða Njáls-
sögu er það hið síðarnefnda sem er
meginumfjöllunarefni greinar
minnar. Ég tel eðlilegt að aðalatrið-
ið í grein sé rætt þegar um hana er
ijallað frekar en að klifa á orðum
(eins og ,,hommi“) sem eru nánast
ekkert notuð í greininni og ímynda
sér að hún fjalli um eitthvað annað
en það sem sagt er berum orðum.
Það sem máli skiptir er hvort
Njálssaga er slíkt byltingarrit sem
ég held fram í umræðu um kyn og
kynhlutverk og sem betur fer hafa
margii- lesendur og fjölmiðlar beint
sjónum að því í stað þess að deila
um keisarans skegg.“
Bragi Ásgeirsson
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Birna Ásbjörnsdóttir við eina af
myndum sfnum og með stein-
mynd I fanginu.
Helgi-
myndir
í Eden
Selfossi. Morgfunblaðið.
BIRNA Ásbjörnsdóttir mynd-
listarkona sýnir í Eden um þess-
ar mundir og fram til 9. júlí
helgimyndir málaðar á tré og
stein. Á sýningunni eru 37 mynd-
ir sem allar eru til sölu. Birna
hefur áður haldið eina sýningu á
myndum sfnum, á veitingastað í
Reykjavík um jólin í fyrra.
Birna hefur unnið að myndun-
um á sýningunni í tvö ár. Hún
smíðar rammana og vinnur tréð
undir málun og notar síðan olíu-
liti og gull í myndirnar. „Þetta
er minn stíll og það sem ég hef
þróað sjálf á minn hátt. Ég hef
alltaf verið heilluð af helgi-
myndum og því að vinna í þess-
um stíl,“ sagði Birna, sem fædd
er og uppalin á Seltjarnarnesi en
hefur starfað á Sólheimum í
Grímsnesi.
M-2000
Laugardagur 1. júlí
Inga Lára Baldvinsdóttir frá Þjóðminjasafni, sendiherrann Louis
Bardollet og Jóhann Páll Valdimarsson, útgáfustjóri JPV FORLAGS.
Franska sendiherranum
færð ný ljósmyndabók
Kór íslenska safnaðarins
í Noregi syngur