Morgunblaðið - 01.07.2000, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ 'IKU fllf LAUGARDAGUR1. JULI2000 27
1
M
Verslað með frjósemislyf á Netinu
Reuters
New York. Reuters Health.
Selja af-
ganginn
The New York Times Syndicate.
FRJÓSEMISLYF hafa getið af sér
alveg ný viðskipti á Netinu, en þetta
getur leitt til bæði lagabrota og veik-
inda. Sífellt fleiri pör, sem þrá að
eignast bam en eru efnalítil, eru farin
að kaupa lyfseðilsskyld lyf af fólki
sem á afgang af dýrum lyfjum eftir að
þungun hefur tekist. Pamela Madsen,
framkvæmdastjóri Ófrjósemisam-
taka Bandarílqanna, segir að frjó-
semislyf séu ekki greidd af sjúkra-
tryggingum eins og önnur lyfseðils-
slqíld lyf. „Þess vegna reynir ungt
fólk oft að borga frjósemislyf úr eigin
vasa.“ . Þar að auki sitja pör oft uppi
með afgang af mjög verðmætum lyfj-
um þegar þungun hefur tekist. Hins
vegar eru pör sem þurfa að kaupa
samskonar lyf og vilja helst fá þau á
viðráðanlegu verði. Þá leitar fólk út á
Netið. Madsen tekur fram, að hægt
sé að kaupa frjósemislyf með örugg-
um hætti um Netið frá viðurkenndum
lyfjabúðum
Platlyf og ónýt lyf
Theresa Venet Grant, sem er for-
seti alþjóðlegra upplýsingasamtaka
um ófrjósemi, segir að haft sé eftirlit
með yfir 140 netmörkuðúm og reynt
að koma í veg fyrir viðskipti með lyf-
in. „Við teljum þetta stórhættulegt.
Það er verið að selja platlyf, það er
verið að selja útrunnin lyf. Maður veit
aldrei hvað maður er að kaupa.“
Sérfræðingar segja að jafnvel þótt
fijósemislyf séu tekin á réttan hátt
geti þau haft alvarlegar aukaverkan-
ir, allt frá öndunarerfiðleikum og fjöl-
burafæðingum til heilaáfalls og jafn-
vel dauða. Lyfin ónýtist með tímanum
og séu viðkvæm fyrir hita. Algeng
fijósemislyf, þ. á m. Pergonal, Hum-
egon og Repronex, geti þar að auki
valdið ofurörvunarheilkennum, séu
þau ekki notuð rétt. í alvarlegum tii-
fellum geti eggjastokkar í konum vax-
ið og orðið á stærð við greipávöxt,
með þeim afleiðingum að sjúkrahús-
vist verði nauðsynleg.
Sérfræðingar benda ennfremur á,
að auk þess að geta verið hættulegt,
sé beinlínis ólöglegt að kaupa lyf með
þessum hætti um Netið, bæði fyrir
seljandann og kaupandann.
Richard Marrs, framkvæmdastjóri
fijósemisrannsóknamiðstöðvar við
Háskólann í Kalifomíu, segir að einn-
ig geti verið varasamt að kaupa lyf frá
erlendum apótekum. Lyf sem ekki
séu undir eftirliti samkvæmt staðli
Bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlits-
ins kunni að hafa verið meðhöndluð
rangt eða ekki geymd á réttan hátt,
og kunni af þeim sökum að vera ónýt.
Marrs viðurkennir þó að erfitt sé
að gera nokkuð í málinu þegar við sé
að eiga fólk sem hafi hreinlega ekki
efni á því að kaupa dýr ftjósemislyf.
„Fjárhagsvandinn er gífurlegur, og
til að byrja með var ég fylgjandi því
að fólk færi út fyrir kerfið til þess að
fá lyfin ódýrar. En nú orðið segi ég
sjúklingum mínum að eina leiðin til að
vera viss um að lyfin séu áreiðanleg sé
að nálgast þau eftir viðurkenndum
leiðum.“
BAKTERIUR sem lyf virka ekki á
eru að verða sífellt meira vanda-
mál á sjúkrahúsum, en samkvæmt
nýrri rannsókn geta gamalgrón-
ar hreinlætisaðférðir á borð við
handþvott með sápu og vatni
dregið verulega úr sýkingum.
I rannsókninni var könnuð út-
breiðsla gullinnar klasahnettlu
(staphylococcus aureus), sem lyf-
ið meþísilín vinnur ekki á, meðal
sjúklinga sem meðhöndlaðir voru
vegna langvinnra magasára eða
opinna sára.
Gullin klasahnettla er baktería
af þeirri gerð sem finnst á húð og
veldur kýlum og ígerð, en getur
líka vaidið lífshættulegri sýkingu
ef hún berst inn í líkamann í
gegnum opin sár á húðinni. Þessi
baktería dreifist auðveldlega um
sjúkrahús og er einn þeirra sýk-
ingarvalda sem sífellt verður erf-
iðara að ráða við með sýklalyfj-
um.
Rannsóknin fólst meðal annars
íþví, að starfsfólki Broussais-
sjúkrahússins í París var kennt
að þvo sér vandlega um hendurn-
ar, nota hanska og sloppa oftar
og nota einnota tæki kerfisbund-
ið. Þá var starfsfólkinu ennfrem-
ur gert að meðhöndla fyrst þá
sjúklinga sem ekki höfðu
klasahnettlusýkingu.
í ljós kom, að á þeim þremur
árum sem rannsóknin stóð yfir,
fækkaði þeim tilfellum er sjúkl-
ingar sýktust af klasahnettlu á
sjúkrahúsinu úr 9% í 0,9%, en
fjöldi þeirra klasahnettlusýktra
sjúklinga er lögðust inn á sjúkra-
húsið var nokkum veginn sá sami
öll árin eða um 20%.
Niðurstöðumar birtust í júní-
hefti Archives of Dermatology.
MorgunblaðiS/Ásdís
Það er í lagi að fá sér rjómais öðm hvom því hófleg
fita er líkamanum nauðsynleg.
Fita er
nauðsynleg
The New York Times Syndicate.
ÞAU skilaboð hafa undanfarin ár
farið eins og eldur í sinu um hinn
vestræna heim, að fólk eigi skilyrð-
islaust að draga úr fituneyslu. Vís-
indamenn, næringarfræðingar og
íþróttaþjálfarar eru nú samt famir
að reyna að vinna bug á þeim for-
dómum sem tengjast fituneyslu.
Skilaboðin sem þeir vilja koma á
framfæri eru þau, að hófleg neysla
á fitu sé nauðsynleg. Fitulítill mat-
ur geti ekki bara dregið úr frammi-
stöðu tiltekinna íþróttamanna
heldur geti beinlínis teflt heilsu
íþróttafólksins í tvísýnu. Nokkrar
rannsóknir hafa þegar leitt í Ijós,
að fitulítill matur getur verið skað-
legur.
„Við höfum átt samstarf við
íþróttafólk, allt frá dönsurum til
knattspymumanna og langhlaup-
ara. Við höfum komist að raun um,
að matur sem inniheldur mjög lítið
af fitu - minna en 30% fítueininga -
hefur neikvæða hlið,“ segir Peter
Horvath, aðstoðarprófessor í nær-
ingarfræði við Ríkisháskólann í
New York í Buffalo í Bandaríkjun-
um.
Ennfremur kom í Ijós, að neysla
á fitulitlum mat getur haft neikvæð
áhrif á bæði heilsusamlega blóðfitu
(HDL) og skaðleg:a blóðfitu (LDL)
og þannig leitt til æðasjúkdóma.
Með því að bæta við fituneyslu úr
20% hitaeininga, er fást úr fitu, í
30% jókst magn HDL en magn
LDL minnkaði og fraministaða
bæði atvinnuíþróttamannanna og
áhugamannanna batnaði.
Næringarfræðingar telja að
flest fólk ætti að geta miðað að því
að fá um 25% hitaeininga, er það
neyti, úr fitu.
Ij/Oafslátt
títan umgj
með þínum styrk í kaupbæti
gildir til sunnudagsins 2. júlí
| jj t 1
1« f |