Morgunblaðið - 01.07.2000, Síða 38
38 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Nokkrir þankar um skipulag
jarðvísindarannsókna á Islandi
ÞEGAR meiri háttar náttúruham-
faiir ganga yfir er mikilvægt að upp-
lýsingar sem berast frá jarðvísinda-
samfélaginu til almennings og
stjómvalda séu réttar og nákvæmar
eftir því sem fyrirliggjandi þekking
leyfir. Ýmsar aðgerðir einstaklinga
og opinberra aðila svo sem Almanna-
vama byggja m.a. á þessum upplýs-
ingum. Þeir sem íylgdust með frétt-
um frá vísindamönnum af jarð-
-skjálftanum 17. júní og áfram hljóta
að hafa veitt því eftirtekt að mikið
vantaði á að þær væm eins nákvæm-
ar og æskilegt væri. Svo að tekið sé
ákveðið dæmi vom fyrstu fréttir af
stærð skjálftans 17. júní þær að stærð
hans væri 5,5-5,6 á Richters kvarða
en hann er yfirleitt notaður hér á
landi (og víðar) til að gefa til kynna þá
orku sem losnar úr læðingi samfara
skjálftum. Eitthvað fannst þó bæði
lærðum og leikum óeðlilegt við þessa
stærðarákvörðun í Ijósi þeirra áhrifa
sem skjálftinn hafði. Til að skýra
þetta misræmi, sem virtist vera, kom
fram sú tilgáta að skjálftinn hefði
ekki verið bara einn heldur fleiri hver
á eftir öðram. Uppgefin stærð var á
einum skjálfta en áhrifin frá fleiram.
Nú var farið að tala um stærðina 6
fremur en 5,5. Næst tóku að berast
fréttir erlendis frá um að stærð
skjálftans hafi verið 6,5-6,6, sem svar-
ar til um 30 sinnum meiri orku en
upphaflega tilgátan um stærðina gaf
tá kynna. Viðbrögð íslenska vísinda-
samfélagsins vora að benda á að hið
nákvæma net jarðskjálftamæli-
stöðva, sem byggt hefur verið upp á
undanfömum áratug eða svo, væri
ekki hannað til að gefa nákvæmar
upplýsingar um stærð nálægra stórra
Guðmundur
Pálmason
skjálfta, til þess yrði
að leita upplýsinga frá
erlendum mælistöðv-
um. Vekur þetta
nokkra furðu þar sem
þegar var búið að nota
það til stærðarákvörð-
unar og ekki hefur
staðið á því tíl þessa að
gefa upplýsingar um
stærð skjálfta upp í 4
og jafnvel þar yfir sem
öðra hverju era að
eiga sér stað á Suður-
og Suðvesturlandi.
Þegar þessar upplýs-
ingar erlendis frá vora
fengnar barst sú vitn-
eskja frá jarðskjálfta-
rannsóknastöðinni á Selfossi sem
nýverið hefur tekið til starfa og er
rekin af verkfræðistofnun Háskóla
Islands að þeir hefðu alltaf vitað að
skjálftinn væri af stærðinni 6,5 og
talsmaður stöðvarinnar vonaðist til
að samvinna gæti tekist við Veður-
stofuna um rannsóknir í framtíðinni.
Og frá Orkustofnun barst sú frétt að
hugsanlega mætti sjá fyrirboða jarð-
skjálfta í breytingum á vatnsborði í
borholum, en af þeim er nokkur fjöldi
til á Suðurlandi. En það er eitt af því
athyglisverða við skjálftann 17. júní
að hann kom öllum að óvöram þrátt
fyrir umfangsmiklar rannsóknir und-
anfarin ár á hugsanlegum fyrirboðum
Suðurlandsskjálftans.
Sú atburðarás sem rakin var hér að
framan vakti mig til umhugsunar um
mál sem öðra hverju hefur verið til
umræðu á undanfömum áratugum en
ekki hlotið fullnægjandi afgreiðslu að
mínu mati en það er skipulag ís-
lenskra jarðvísindarann-
sókna. Það er fyrst og
fremst í kringum nátt-
úrahamfarir eins og eld-
gos og jarðskjálfta sem í
ljós kemur að þar er
mörgu ábótavant. Stjóm-
völd eiga að finna til
ábyrgðar gagnvart því að
slíkum rannsóknum sé
sinnt á sem hagkvæm-
astan hátt í almannaþágu
enda era flestir starfs-
menn sem að slíkum
rannsóknum vinna
starfsmenn ríkisins. Mér
sýnist að mjög skorti á að
stjómunarleg ábyrgð á
rannsóknunum og kynn-
ingu þeirra fyrir almenningi og
stjómvöldum sé til staðar þegar nátt-
úrahamfarir dynja yfir. Flestir kann-
ast við kapphlaup jarðfræðinga að
komast sem fyrst á vettvang þegar
eldgos dynur yfir en minna fer fyrir
skipulegri og markvissri vinnu. Þetta
er að mínu viti fyrst og fremst stjóm-
unarlegt vandamál. Þó að um al-
mannahagsmuni sé að ræða hefur
engin rOdsstofnum það hlutverk að
taka heildstætt á þeim rannsóknum
sem gera þarf vegna náttúruhamfara
eins og eldgosa og jarðskjálfta. Ein-
stakar rannsóknastofnanir sinna af-
mörkuðum þáttum þessa verkefnis,
oft til hliðar við meginverksvið sitt, en
samræming á vinnu stofnana við nátt-
úrahamfarir er sjaldnast til staðar og
þá helst í formi skammlífra sam-
starfsnefnda. Almannavarnir hafa vel
Suðurlandsskjálftar
Niðurstaða mín er sú að
þörf sé á að endur-
skipuleggja jarðvísinda-
rannsóknir hins opin-
bera hér á landi, segir
Guðmundur Pálmason.
afrnarkað hlutverk en í því felst ekki
að samræma vinnu rannsóknastofn-
ana.
í öllum öðram löndum Evrópu og
reyndar flestum löndum heims era
jarðfræðistofnanir sem starfa á veg-
um stjórnvalda og hafa það hlutverk
að sinna þeim jarðvísindarannsókn-
um sem ríkið telur sig þurfa að bera
ábyrgð á að unnar séu. Hér á landi er
engin slík stofnun til og verður það að
teljast undarlegt með tilliti til þess
hvemig náttúra landsins er háttað.
Snemma á öldinni sem er að líða var
stungið upp á því af danska jarðfræð-
ingnum Arne Noe-Nygaard að slík
stofnun yrði sett á fót hér og hafði
hann fyrir sér hliðstæður í öðram
Evrópulöndum. Ekki fékk þó þessi
tillaga neinar undirtektir og rann-
sóknastarfsemin hér á landi á þessu
sviði hefur síðan þróast meira eftir
áhugasviðum einstakra jarðvísinda-
manna en markvissri áætlun þar sem
markmið væra sett og fylgst með því
hvemig framvindan yrði. Þegar jarð-
skjálftamælingar hófust hér á landi
snemma á öldinni var þeim fundinn
staður á Veðurstofunni og mun
ástæðan ekki síst hafa verið sú að
Veðurstofan var með veðurathugun-
armenn um allt land og því heppilegt
að fela þeim rekstur jarðskjálftamæla
og gagnasöfnun þegar skjálftar áttu
sér stað. Þetta er úrelt sjónarmið í
dag þegar sjálfvirkur tækjabúnaður
sendir stöðugt upplýsingar um jarð-
skjálfta til miðstöðvar og fjölmiðlar
keppast um að birta sem ítarlegastar
fréttir og myndir af slíkum atburðum.
Miðstöð jarðskjálftarannsókna gæti
þess vegna verið hvar sem hæft
stafslið er til staðar, bæði á Veður-
stofunni og annars staðar. Margar
aðrar rannsóknastofnanir hins opin-
bera, Orkustofnun, Náttúrafræði-
stofnun og stofnanir Háskóla Islands
svo að nokkrar séu nefndar, hafa á að
skipa sérfræðingum sem geta lagt af
mörkum til markvissra rannsókna á
þeim fyrirbærum sem valda náttúra-
hamföram. Samræming á störfum
þessara sérfræðinga er hins vegar oft
minni en æskilegt væri.
Niðurstaða mín er sú að þörf sé á
að endurskipuleggja jarðvísinda-
rannsóknir á vegum hins opinbera
hér á landi með það að markmiði að
auka samvinnu milli vísindamanna og
jafnframt skilvirkni gagnvart þjóðfé-
laginu sem kostar rannsóknimar.
Hvort þetta er gert með því að koma
upp sérstakri jarðfræðistofnun eða á
annan hátt er ekki aðalatriðið. Eg hef
hins vegar þá trú að það sé ein leið til
að auka samvinnuna og umfram allt
til að koma á stjómunarlegri ábyrgð á
þessu sviði, sem sárlega vantar í dag.
Höfundur er jarðeðlisfræðingur og
fv. forstöðumaðurjarðhitadeildar
Orkustofnunar.
Múrarar - uerktakar
byggingameistarar
STEININGARLIM Margir litir
UTIPUSSNING Margir litir — 3 tegundir
RAPPMÚR Inni/úti
Traust Islensk múrefni
síðan 1972
Utanríkisráðherra,
ESB og stjórnarskráin
ÞAÐ er langt síðan
ljóst var að hugur for-
manns Framsóknar-
flokksins stefndi ákveð-
ið að inngöngu íslands í
Evrópusambandið. Það
var því ekkert framlegt
við það að ungliðafor-
ysta flokksins knúði á
um aðildaramsókn á
þingi sínu á dögunum.
Þeir vora einfaldlega að
fylgja foringja sínum.
Tíðindin era eingöngu
þau að nú er staðfest að
formaður Framsóknar
og formaður ungliða-
hreyfingarinnar hafa
stillt saman stengi sína
Hjörleifur
Guttormsson
vera sinn Steingrím
Hermannsson og
marga fleiri. Um stjórn-
arskrárþátt málsins var
þá mikið rætt. Ekkert
hefur breyst að formi til
síðan. Alla tíð hefur ver-
ið Ijóst að íslendingar fá
litlu sem engu ráðið um
lagasetningu í Brassel
og ekki batnar sú staða
við inngöngu, þótt ein-
hverjir reyni að telja
sér trú um það.
Það er hins vegar
ekki umdeilt að íslenska
stjómarskráin heimilar
ekki að óbreyttu aðild
íslands að ESB. Til
LÉTTIÐ vinnuna og
MARGFALDIÐ
afköstin með
ELGO múrdælunni!
Leitið tilboða!
I steinprýði
Stangarhyl 7, Rvík
Sími 567 2777
Fax 567 2718
og vilja báðir leita aðildar. Framsókn-
arforystan er þannig síst eftirbátur
Samfylkingarinnar í áhuga sínum á
að fá ísland innlimað í stórríkið. Hitt
blasir jafnframt við að róðurinn verð-
ur áfram þungur hjá formanni Fram-
sóknar að fá meirihluta í flokknum á
sitt band, að ekki sé talað um þá sem
kosið hafa flokkinn fram að þessu.
Hvers vegna að veifa
nú sijórnarskrá?
Það er dálítið skondið af formanni
Framsóknar að ætla að nota stjómar-
skrána til að ryðja brautina fyrir að-
ildaramsókn. Ekki bar mikið á
áhyggjum Halldórs af stjómar-
skránni þegar aðild íslands að
Evrópsku efnahagssvæði var til um-
ræðu. Um það greindi hann á við for-
þess er valdaafsalið of nakið. Þetta
veit formaður Framsóknar og skoð-
anabræður hans í Samfylkingunni.
Þess vegna knýja þeir nú á um stjóm-
arskrárbreytingu með vísan í EES-
samninginn. Þeir vilja að hindranum
stjómarskrárinnar verði vikið úr vegi
fyrirfram af öðra tilefni, þannig að
deilan um stjómarskrárbreytingu
falli ekki saman við umræður um að-
ild að Evrópusambandinu.
Lítill hljómgrunnur fyrir aðild
Hljómgrannurinn fyrir aðild að
Evrópusambandinu hefur ekki verið
mikiil meðal íslendinga, hvað sem h'ð-
ur yfirborðskenndum skoðanakönn-
unum. Um það vitnar hversu illa
áhugamönnum um aðild gengur að ná
eyrum almennings. Þeir era síkvart-
Evrópusambandið
Það er dálítið skondið af
formanni Framsóknar,
segir Hjörleifur Gutt-
ormsson, að ætla að
nota stjórnarskrána til
að ryðja brautina fyrir
aðildarumsókn.
andi undan að málið sé ekki á dag-
skrá, rétt eins og einhverjir séu að
vama þeim orðs um hugðarefni sín.
Orðalagið „á dagskrá" jafngildir í
þeirra munni ákvörðun um að sækja
um aðild.
Vel má vera að umræða skerpist á
næstunni um stöðu Islands í EES og
aðild að Evrópusambandinu. Ekki
væri það harmsefni, því að þjóðin þarf
vissulega að halda vöku sinni. Öraggt
má telja að fjöragar umræður verði í
Framsóknarflokknum um stefnuna
að þessu leyti og trúlega verður einn-
ig hvíslast á um aðildardrauminn inn-
an Samfylkingarinnar. Þeir sem
áfram vilja standa vörð um fullveldi
íslands hljóta að fylgjast með þessum
hræringum og taka á móti gerist þess
þörf.
Höfundur er fyrrverandi
alþingismaður.
Waestro ÞITT FÉ HVAR SEM ÞU ERT