Morgunblaðið - 01.07.2000, Page 44
44 LAUGARDAGUR1. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR/KIRKJUSTARF
Frá Reykjavíkurprófastsdæmi
Engarguðsþjónustur verða haldnarí kirkjum Reykjavíkurprófastsdæma
á morgun, sunnudaginn 2. júlf, vegna kristnihátíðar á Þingvöllum.
Prófastar Reykjavíkurprófastsdæma
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Reykjavík -
Kristskirkja: Sunnudag: Messa kl.
10.30 og kl. 14. Kl. 18: Messa á
ensku. Virka daga og laugardaga:
Messurkl. 18.
Reykjavík - Maríukirkja vlð Raufar-
sel: Sunnudag: Messa kl. 11. Virka
daga: Messa kl. 18.30. Laugardag:
Messa kl. 18.30 á ensku.
Riftún, Ölfusi: Sunnudag: Messa kl.
17.
Hafnarfjörður - Jósefskirkja: Sunnu-
dag: Messa kl. 10.30. Mánud., mió-
vikud., fimmtud. & föstud.: Messa
kl. 18.30.
Karmelklaustur:Sunnudag: Messa
kl. 8.30. Laugardag og virka daga:
Messa kl. 8.
Keflavík - Barbörukapella Skóla-
vegi 38: Sunnudag: Messa kl. 14.
Stykklshólmur - Austurgötu 7:
Sunnudag: Messa kl. 10. Laugardag
og virka daga: Messa kl. 18.30.
ísafjörður - Jóhannesarkapella
Mjallargötu 9: Sunnudag 2. júlí:
Messa kl. 11.
Bolungarvík: Sunnudag 2. júlí:
Messa kl. 16.
Flateyri: Laugardag: Messa kl. 18.
Þingeyri: Mánudag: Messa kl.
18.30.
Akureyri - Péturskirkja - Hrafna-
gilsstrætl 2: Sunnudaga: Messa kl.
11. Laugardaga: Messa kl. 18.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Vísað er
til kristnihátíðar á Þingvöllum. Prest-
ar og sóknarnefnd.
VÍDALÍNSKIRKJA: Engin guðsþjón-
usta í dag vegna kristnihátíðar á
Þingvöllum. Mætum þangað og
gleðjumst á þessari einstöku hátíð.
Prestarnir.
BESSASTAÐAKIRKJA: Engin guðs-
þjónusta í dag vegna kristnihátíðar á
Þingvöllum. Mætum þangað og
gleöjumst á þessari einstöku hátíð.
Prestarnir.
KÁLFATJARNARKIRKJA: Engin
guðsþjónusta í dag vegna kristnihá-
tíðar á Þingvöllum. Mætum þangað
og gleðjumst á þessari einstöku há-
tíð. Prestarnir.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum:
Messa í Landakirkju feilur niður
vegna kristnihátíöarmessu á Þing-
völium kl. 13.30. Litlir lærisveinar
syngja á hátíðinni. Þeir sem ekki
komast á Þingvelli geta hlýtt á
kristnihátíöarmessu af Skansinum á
ÚV FM 104 kl. 16. 5. júlí kl. 20.30:
Opiö hús í KFUM&K-húsinu fyrir ungl-
inga. Óli Jói og Skapti Örn alltaf sval-
ir á svæðinu.
BOÐUNARKIRKJAN: Samkoma kl.
11. í dag sér Steinþór Þórðarson
bæði um prédikun og biblíufræðslu.
Á laugardögum starfa barna- og ungl-
ingadeildir. Allir hjartanlega vel-
komnir.
VEGURINN: Samkoma kl. 20. Högni
Valsson prédikar. Allir hjartanlega
velkomnir.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Sam-
koma kl. 20. Samkoma fellur niður
vegna kristnihátíóar á Þingvölium.
SELFOSSKIRKJA: Engin messa 2.
júlí vegna hátíöarhalda á Þingvöllum.
Morgunbænir þriöjudaga til föstu-
daga kl. 10. Foreldrasamvera mið-
vikudaga kl. 11. Sóknarprestur.
Ár og helgar stundir
Árin gefast öll úr Drottins hendi og aðeins fyrir náð hans hjarta slær. Inn í tímann Orð og líf sitt sendi svo anda birtir vitund hver og blær. Þó sýni stjömur himins sporin hans Hann hingað kemur nær í líki manns. Lögberg hjarta helgistaðar myndar og hamragjáin kveður trúarljóð. Hraunbreiður og háir fjallatindar helgidóminn glæsta færa þjóð. Sækir hún þar fögnuð Guðs og frið og finnur lífsgrunn sinn í kristnum sið.
Mynd hans sést í mildum jötusveini er mannkyns syndir reyndi langan dag svo unnið gæti bæði á böli og meini og bægt frá öllu er spillir jarðlífs hag. Hann brúar gjár og bætir lífsins tjón og blessar veg og gefur himinssjón. Helgir vellir friðinn þjóðum færa. Þar fyrirmynd er kristnitaka að sátt svo samlyndi og sáttarþel þær læra og samstarf efla og horfa í sólar átt. Álfur mætast, brúast gjár og bil er blessun færist yfir hamragil.
Fyrir þjóð og þegna varðar mestu að þekkja hans veg og geta sótt hans mið. Á þings síns völlum valdi kjörin bestu er vígaslóð var hafnað fyrir frið. Er nú liðið árþúsund frá því og ávallt játist honum þjóð á ný. Bjartir tónar hefji sál til hæða, öll helguð list er blessun miðlað fær svo hljómar streymi innst til lífsins æða er endurómi að hjarta Guðs er nær. Hreinan tón og takt fær strengur hver ef tign og návist Drottins um hann fer.
Kristnitöku vonir vakna og rætast er vitund andar til sín blænum hans svo jarðarlíf og himinshæðir mætast og helgast geta ævisporin manns. Þá nýjan kraft frá Kristi lífið fær og kynslóð hver hún færist honum nær. Fram á mið og inn í verk og iðju andblær berist stöðugt honum frá, við sjónhring hvern sé miskunn hans í miðju, við mosalyng, og gróðurvin og á. Boðin hans og sælu sigurmerki sýni gildi lífs í hverju verki.
Yfir kristnum árþúsundamótum opnast sýn til þess sem Kristur gaf. Líknar hans og leiðsagnar við njótum og ljóssins sem að blessar land og haf. Er endumýjum einlæg trúarheit hann áfram svarar lífsins þrá og leit. Andblær hans og áhrif jafnan gefa aukið skyn á lífsins gang á jörð svo nær að vaxa efni frá og efa og allt sem hrærist vottar þakkargjörð. Árin líða öll með gleði og þraut en ofar þeim er himins víða braut.
Gunnþór Ingason, sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju.
Áskorandi svarar fyrir sig
Safnaðarstarf
Ytri-Njarðvíkurkirkja
Bjöllukór
frá Pittsburg
í Ytri-Njarð-
víkurkirkju
Á MORGUN, sunnudaginn 2. júlí kl.
20, heldur bjöllukór frá Pittsburg í
Pennsylvaníu tónleika í Ytri-Njarð-
víkurkirkju. Bjöllukórinn, The
Southminster Ringers, var stofnað-
ur í september 1969 og hefur haldið
tónleika víðs vegar um heiminn. Kór-
inn er reglulegur gestur í sjónvarpi
vestan hafs og í Hvíta húsinu hjá for-
setum Bandaríkjanna. Stjórnandi
kórsins frá upphafí er Thomas C.
Flynn og er hann einnig tónlistar-
stjóri í Southminster Presbyterian
kirkjunni í Pittsburg.
Kórfélagar eru allir meðlimir
þeirrar kirkju og leika á oft á bjöll-
urnar við guðsþjónustur safnaðar-
ins.
Hallgrímskirkja. Hádegistónleik-
ar kl. 12-12.30. Karstein Askeland
frá Bergen leikur á orgel.
SKAK
Frankfurt
Fujitsu-Siemens-mótið
22.-25. júní 2000
FUJITSU-SIEMENS-risamótinu
í atskák lauk fyrir skömmu í Frank-
furt og tóku 6 stigahæstu skákmenn
heims þátt í mótinu. Skemmst er frá
því að segja að mótinu lauk með stór-
sigri indverska stórmeistarans Vishy
Anand er hlaut 7VÉ vinning af 10
mögulegum og varð lVz vinningi fyrir
ofan næsta mann, Gan-y Kasparov.
Pessi sigur Anands hefur án efa verið
honum kærkominn þar sem Kaspar-
ov hyggst í haust tefla einvígi við
Vladimir Kramnik um hver sé besti
skákmaður heims, en til stóð að An-
and stæði í þeim sporum. Indverjinn
viðkunnanlegi sýndi mikla baráttu-
gleði í mótinu eins og síðari skák hans
gegn Shirov sýnir.
Hvítt: Vishy Anand
Svart: Alexei Shirov
Frönsk vörn, klassíska afbrigðið.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. e5
Rfd7 5. Rce2
Þessi óvenjulegi riddaraleikur hef-
ur það að markmiði að halda peða-
stöðu hvíts á miðborðinu óbreyttri og
beita riddaranum á kóngsvængnum á
f4 eða g3.
5. ... c5 6. c3 Rc6 7. f4 Db6 8. Rf3
Be7 9. a3 0-0 10. h4 f6 11. Hh3 Ra5
Uppbygging svarts hefur verið ei-
lítið fálmkennd, þannig er ekkert til
fyrirstöðu fyrir hvítan að verða sér
úti um meira rými á báðum vængjum.
12. b4! cxb4 13. axb4 Rc4 14. Rg3
a5 15. Bd3 f5 16. Rg5! Hd8 17. Dh5!
Bxg518.Dxg5Hf819.Rh5
Riddarinn er nú kominn á besta
stað til að ráðast á veiku punktana á
f6ogg7.
19.... Hf7 20. Hg3 g6
Erfitt er að sjá hvemig hvítur á að
bæta stöðu sína þar sem flestar línur
virðast honum lokaðar. Indverjinn
snjalli var vandanum vaxinn og
tryggði sér þar með sigurinn á mót-
inu.
21. Bxc4! dxc4 22. b5!
Svörtu reitirnar verða svörtum að
falli þar sem biskup hvíts kemst á a3-
f8 skálínuna.
22. ... Dxb5 23. Ba3 b6 24. Dh6
Bb7
25. Hxg6+
Augljós, en engu að síður snotur
hróksfóm.
25. ... hxg6 26. Dxg6+ Kh8 27.
Dxf7 Hg8 28. Bf8!
Glæsilegur lokahnykkur sem
neyddi svartan til uppgjafar þar sem
hann verður mátaður bæði eftir 28....
Hxf8 29. Dg7 # og 28.... Rxf8 29. RfB.
Fyrir mótið í Frankfurt hafði
Garry Kasparov einungis tapað íyrir
Jeroen Piket á bikarmóti skákvefjar
síns sem haldið var í febrúar á Net-
inu. í sjöundu umferð mætti hann
ungverska stórmeistaranum Peter
Leko og varð að bera sigur úr býtum
til þess að eygja von um að ná Anand í
kapphlaupinu um sigurinn á mótinu.
Hinsvegar sannaðist enn einu sinni
að kapp er best með forsjá.
Hvítt: Garry Kasparov
Svart: Peter Leko
Gmenfelds-vöm
1. d4 Rf6 2. Rf3 g6 3. c4 Bg7 4. Rc3
d5 5. Db3 dxc4 6. Dxc4 0-0 7. e4 a6
8. Db3 c5! 9. dxc5
Framkvæði hvíts virðist lítið sem
ekkert eftir þetta. 9. d5 var annar
möguleiki.
9. ... Da5 10. Db6 Dxb6 11. cxb6
Rbd7 12. Be2
Ef hvítur hefði verið gíragur og
viljað halda peðinu með 12. Be3
myndi svartur svara því vel með 12.
...Rg4.
12. ... Rxb6 13. Be3 Rbd7 14. Rd4
Rc5 15. f3 e5
16. Rc6!
Skemmtilegur leikur sem tryggir
hvítum smávægilegt frumkvæði.
16. ... bxc6 17. Bxc5 Hd8 18. Kf2
Be6 19. Hhdl Rd7 20. Be3 Bf8 21.
Hd2 f5 22. Hadl Be7 23. g3 Kf7 24.
b3 a5 25. Hc2 Rf6 26. Hxd8 Hxd8 27.
exf5 gxf5 28. Ra4 Bd5 29. Bb6 Ha8
30. Bc5 Rd7 31. Bxe7 Kxe7 32. Ke3
Kd6 33. Bd3
Hvítum hefur ekki tekist að bæta
stöðuna eftir 16. leik sinn og þar með
er staðan einungis í jafnvægi. Að öllu
jöfnu myndu keppendur láta gott
heita innan skamms og sættast á
skiptan hlut, en „Skrímslið með þús-
und augun“ er ekki vant að sætta sig
við annað sætið á skákmótum og
leggur því allt undir!
33. ... f4+! 34. gxf4 exf4+ 35.
Kxf4?!
Öraggara og betra var 35. KÍ2.
Hvíti kóngurinn lendir nú í ógöngum.
35.... Hf8+ 36. Kg5 Re5 37. Bxh7
Rxf3+ 38. Kh6 Hf4! 39. He2 Hh4+
40. Kg7 Rxh2 41. Rc3 Rf3 42. Re4+
Kc7 43. Rf6 Rd4 44. Rxd5+?! cxd5
45. Hd2 Kd6 46. Bd3? Re6+! 47. Kf6
Hf4+
og hvítur gafst upp þar sem eftir
48. Kg6 Hd4 er fokið í flest skjól sök-
um hótunarinnar 49.... Rf4.
Úrslit hraðskákkeppni
taflfélaga
Það verða Taflfélagið Hellir og
Skákfélag Akureyrar sem tefla til úr-
slita í hraðskákkeppni taflfélaga.
Takist Helli að stilla upp sínu sterk-
asta liði verður félagið að teljast sig-
urstranglegra, en að öðram kosti get-
ur allt gerst. Teflt verður í
Hellisheimilinu, Þönglabakka 1 í
Mjódd, og hefst taflið klukkan 14.
Skákáhugamenn eru hvattir til að
koma og fylgjast með þessari spenn-
andi og hröðu keppni.
Atkvöld á mánudag
Taflfélagið Hellir heldur eitt af sín-
um vinsælu atkvöldum mánudaginn
3. júlí og hefst mótið kl. 20. Fyrst eru
tefldar 3 hraðskákir þar sem hvor
keppandi hefur 5 mínútur til að Ijúka
skákinni og síðan þijár atskákir, með
tuttugu mínútna umhugsun.
Sigurvegarinn fær verðlaun, mat
fyrir tvo frá Pizzahúsinu. Þá hefur
einnig verið tekinn upp sá siður að
draga út af handahófi annan kepp-
anda, sem einnig fær máltíð fyrir tvo
hjá Pizzahúsinu. Þar eiga allir jafna
möguleika, án tillits til árangurs á
mótinu. Þátttökugjald er kr. 300 fyrir
félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og
yngri) og kr. 500 fyrir aðra (kr. 300
fyrir 15 ára og yngri).
Skákmót á næstunni
2.7. Hellir. Hellir-SA kl. 14
3.7. Hellir. Atkvöld kl. 20.
Daði Örn Jónsson
Helgi Ass Grétarsson