Morgunblaðið - 01.07.2000, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
VIt) HÖFUM SVO SANNARLESA ATT
SÓÖAR STUNDIR SAMAN, SRETTIR !
Ferdinand
MY BROTHER HAS
GONE BACK HOME
BECAU5E HE SAlö I
SHOULPN'T HAVE BEEN
LI5TENIIN6TO A CACTU5
UJHO EL5E CAN I
LI5TEN T07UJH0 ELSE
CAN I TALK TO ?
Bróðir minn fór heim aftur. En á hvern á ég að hiusta?
Hann sagði að ég ætti ekki Við hvem á ég að tala?
að leggja hlustir við því
sem kaktusar segja.
sem ég á.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1103 Reykjavík # Sími 569 1100 # Símbréf 569 1329
Kaþólska
unglingafélagið
Pílé kveður
Frá stjóm Píló:
EFTIR ellefu ára starfsemi lætur
Píló af störfum. Píló var stofnað ár-
ið 1989 eftir að pílagrímsferð var
farinmeð unglingshóp til Medjug-
oriu í Júgóslavíu. Síðan þá hefur
Pfló meðal annars staðið fyrir
þremur pflagrímsferðum, fjölmörg-
um ferðalögum, haldið bænastund-
ir og unglingamessur. Petta var fé-
lag þar sem unglingar hittust
vikulega og skemmtu sér saman í
trúnni.
Langtíma markmið félagsins var
að byggja upp öfluga miðstöð fyrir
unglinga innan kaþólsku kirkjunn-
ar þar sem þeir gætu komið til að
leita hjálpar eða til að skemmta
sér. Þar sem aðstaða félagsins var í
einu litlu herbergi var farið þess á
leit við yfirmenn kirkjunnar að
finna sómasamlegt húsnæði fyrir
starfsemina svo hægt væri að reka
þessa miðstöð fyrir unga fólkið.
Þeir sýndu þessu lítinn sem engan
áhuga og báru jafnvel allar eigur
félagsins út úr þeirri aðstöðu sem
það hafði fyrir og komu þeim fyrir í
litlu herbergi í Hafnarfirði án þess
að láta stjórn félagsins vita. Með
þessu hátterni er ljóst að yfirmenn
kaþólsku kirkjunnar á íslandi virð-
ast ekki bera hag unga fólksins
fyrir brjósti. Þar sem ekki fékkst
stuðningur frá kirkjunni sjálfri var
fótunum kippt undan starfsemi fé-
lagsins og ekki var lengur grund-
völlur fyrir starfsemi unglingafé-
lags innan kaþólsku kirkjunnar.
Einnig óskaði Píló eftir því að
stúlkur fengju að þjóna við altari
jafnt og strákar, sem var loksins
leyft hér á íslandi árið 1994. Stúlk-
urnar fengu einungis að þjóna í
vissum messum en aldrei í há-
messu og við stórhátíðir. Tæpu ári
seinna var svo tilkynnt af stjórn-
endum kirkjunnar að stúlkur
fengju aldrei að þjóna framar við
altari, þrátt fyrir að það sé leyft í
flestum löndum Evrópu og Amer-
íku í dag. Enn þann dag í dag skiij-
um við ekki þetta misrétti. Hvernig
útskýrum við fyrir unglingunum í
dag þessá mismunun við kynin?
Það fjármagn sem Píló átti hefur
verið gefið til barnastarfs Kvenna-
athvarfsins og vonumst við til að
það komi að góðum notum.
Vill Píló þakka þeim sem störf-
uðu með okkur og öllu safnaðar-
fólki ásamt fleirum sem veittu ökk-
ur stuðning í gegnum árin. Við
kveðjum með söknuði.
F.h. stjórnar Píló,
KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR,
ÍRIS MARÍA JÓNSDÓTTIR,
SYLVÍA ÓLAFSDÓTTIR.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Maestro
ÞITT FE
HVARSEM
ÞÚ ERT