Morgunblaðið - 01.07.2000, Qupperneq 50
50 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Sigurður Fannar
Frá Norðurlandamótinu á Hótel Ork.
Herslumun-
inn vantar
BRIDS
IV o r ð u r 1 a n d a m ó t
HÓTEL ÖRK
Norðurlandamótið í brids verður
haldið á Hótel Örk í Hveragerði
dagana 27. júní til 1. júlí. Heimasíða
mótsins er www.bridge.is
ÍSLENDINGAR töpuðu naum-
lega fyrir Færeyingum í opnum
flokki, 14-16, í 6. umferð á Norður-
landamótinu í Hveragerði í gær-
morgun. Það er eins og herslumun-
inn hafi vantað hjá íslenska liðinu
það sem af er mótinu en þetta var
var þó fyrsta tap liðsins í Hvera-
gerði. Færeyingar hafa hins sótt
verulega í sig veðrið og unnu m.a.
* góðan sigur á Finnum í 5. umferð.
Þessi úrslit voru auðvitað ekki að
vonum en staðan á toppnum breytt-
ist lítið því Svíar unnu aðeins naum-
an sigur á Dönum, 17-13, og Finnar
unnu Norðmenn, 16-14 og var þetta
jafnframt fyrsti sigur Finna í mót-
inu.
Svíar voru efstir með 119,5, stig
eftir 6 umferðir, Norðmenn voru
með 105,5, íslendingar 99, Danir
76,5, Færeyingar 74 og Finnar 59,4
stig.
I kvennaflokki unnu Svíar Dani,
16-14, og Norðmenn unnu Finna,
24-6. Finnar héldu samt forustunni
með 114 stig, Danir höfðu 100 stig,
Norðmenn 99, Danir 95, íslendingar
« 81 stig og Færeyingar ráku lestina
með 43 stig.
7. og 8. umferð voru spilaðar í gær
og þá spiluðu íslensku liðin við Norð-
menn og Finna og í lokaumferðunum
í dag spilar ísland við Svíþjóð og
Danmörk.
Sveitarfélagar
til bjargar
Það er oft sagt að einkenni góðra
sveita sé að þegar öðru parinu verði
mislagðar hendur í einhverju spili
komi sveitarfélagamir til bjargar við
hitt borðið. Það er óhætt að segja að
þetta hafi átt við íslensku sveitina í
opna flokknum í þessu spili frá leikn-
um við Dani í 5. umferð mótsins.
Norður gefur, AV á hættu
Norður
*KG6
v 842
♦ D87
+ AD75
Austur
♦ D872
v G5
♦ G1032
♦ KG6
Suður
♦ 54
v ÁKD107
♦ ÁK96
♦ 98
Við annað borðið sátu Magnús
Magnússon og Þröstur Ingimarsson
með spil NS og eftir að Magnús opn-
aði á 1 laufi í norður hætti Þröstur í
suður ekki fyrr en í 6 hjörtum, þótt
austur varaði við slæmri legu með
því að dobla laufafyrirstöðusögn.
Þetta spil var auðvitað vonlaust eftir
lauf út frá vestri og slemman endaði
2 niður.
Við hitt borðið stoppuðu Danirnir í
4 hjörtum eins og raunar öll önnur
NS pör í mótinu. Anton Haraldsson
var frekar fljótur að spila út og valdi
spaðatíuna!
Sagnhafi lét eðlilega gosann í
blindum og Sigurbjöm Haraldsson
fékk slaginn á drottningu. Hann
skipti í hjarta og sagnhafi þurfti að
velja spilaleið. A opnu borði er aug-
ljóst að spilið vinnst með því að spila
spaða á kónginn en sagnhafi taldi
víst að ásinn væri hjá austri. Ef
gjafaslagur var á tígul var auðvitað
hugsanlegt að sá sem ætti 4-lit í tígli
ætti einnig 3-lit í hjarta, og síðan var
laufasvmingin einnig eftir.
Svo sagnhafi tók ÁK í hjarta og
síðan ÁKD í tígli. Anton trompaði
þriðja tígulinn og spilaði laufi, sagn-
hafi svínaði drottningunni og Sigur-
bjöm fékk á kóng og spilaði loks
spaða á ás Antons, sagnhafa til mik-
illar hrellingar. Þannig fóm 4 spaðar
einn niður og Islendingar töpuðu 2
stigum í stað þess að tapa 11.
Guðm. Sv. Hermannsson
Vestur
* Á1093
v 963
* 54
* 10432
BRIPS
Umsjðn Arnðr G.
Ragnarsson
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík
TVÍMENNINGSKEPPNI var
spiluð í Ásgarði, Glæsibæ, fimmtu-
daginn 22. júní. 18 pör tóku þátt og
meðalskor var 216 stig.
Árangur N-S
Júlíus Guðmundss. - Oliver Kristóferss. 281
BaldurÁsgeirss.-MagnúsHalldórss. 266
SæmundurBjömsson-JónAndrésson 258
Árangur Á-V
KristjánÓlafsson-EysteinnÓlafsson 258
Ólafur Ingvarsson-Jóhann Lúthersson 235
Ingibjörg Stefánsd. - Þorsteinn Davíðss. 219
Mánudagur 26. júní. 24 pör. Með-
alskor 216 stig.
ÁrangurN-S
Albert Þorsteinss. - Auðunn Guðm.son 279
AldaHansen-MargrétMargeirsdóttir 261
Júlíus Guðmundss. - Oliver Kristóferss. 255
Árangur A-V
Ingibjörg Stefánsd. - Þorsteinn Davíðss. 268
JónBondó-SigrúnSigurðardóttir 249
Sigurður Pálsson - Elín Jónsdóttir 243
Vestur-íslendingar
ieita ættingja sinna hér
heima.
Sjá: www.kristur.net
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Fjölmiðlar
og pólitík
ÞANN 28. júní sl. skrifar
Magni Kristjánsson í Morg-
unblaðið grein sem ber yfir-
skriftina Fjölmiðlar og póli-
tík. Ég undirritaður sendi
grein í vikublaðið Austur-
land fyrir skemmstu, þar
sem ég ræddi um safn Jósa-
fats Hinrikssonar, þar sagði
ég eitthvað á þá leið að
Magna Kristjánssyni væri
best treystandi til þess að
koma því í höfn að Norðfirð-
ingar tækju við safninu að
gjöf. Þetta hefur ekki fallið í
kramið hjá ritstjóm Aust-
urlands og þvi hefur grein
minni verið stungið undir
stól eins og það heitir á ís-
lensku. Það er nú oft þannig
að ef einhveijar skoðanir
falla ekki í kramið hjá við-
komandi fjölmiðli, þá er
greinum einfaldlega stung-
ið undir stól. Ég vek athygli
á því að þar sem Magni
Kristjánsson er það mildll
áhugamaður á því að þetta
safn verði að veruleika beri
einnig að geta þess að safn-
ið er alveg ómetanlegt,
einkum fyrir Norðfirðinga,
svo og það kemur til með að
laða að fjöldann allan af
ferðamönnum. Það er alveg
vonlaust árið 2000 að setja
menn út í horn ef þeir eru
ekki sömu línu í pólitík. Það
vill nú einu sinni svo til að
það eru fleiri fjölmiðlar í
þjóðfélaginu. Mér finnst
ekki breyta neinu hvort
maðurinn er í stjórnarand-
stöðu við meirihlutann í
Fjarðarbyggð, aðalatriðið
er að hann sé að vinna að
góðum málum fyrir sína
heimabyggð. Magni Krist-
jánsson, haltu ótrauður
áfram að gera góða hluti
fyrir Norðfirðinga.
Gunnar G.
Bjartmarsson.
Hvar þarf að bera að
dyrum, svo ansað sé?
MIG langar að senda þakk-
arorð til allra þeirra sem
hafa skrifað greinar um
aldraða og öryrkja og allra
þeirra sem eru að vekja at-
hygli á kjörum þessa fólks.
Hvar þarf að bera að dyr-
um, svo ansað sé? Það sem
hefur gerst í þessum málum
er að það hefur frekað
lækkað framlagið til aldr-
aðra á milli ára. Maður er
eitt spumingarmerki um öll
þessi mál. Það væri óskandi
að þessi mál næðu eyrum
þeirra sem ráða. Það er allt-
af verið að tala um afgang
hjá ríkissjóði, því í ósköpun-
um má ekki nota þann af-
gang til aldraðra og ör-
yrkja?
Anna
Sigurbjörnsdóttir.
Frábær grein
ÉG er svo innilega sammála
Ævari Rafni Kjartanssyni,
sem skrifaði grein í Morg-
unblaðið 25. júní sl. og heitir
RÚV-öryggistæki íþrótta-
manna? og Bergþóru Árna-
dóttur sem skrifaði í Vel-
vakanda 29. júní sl. Þetta er
eins og talað út úr mínu
hjarta. Greinin hans Ævars
er alveg frábær. Út um
allan bæ, á vinnustöðum og
í fjölskyldum eru þessi mál
rædd fram og til baka. Ég
skora á Ríkisútvarpið/
Sjónvarp að gera skoðana-
könnun meðal ahnennings
um hvað því finnst um þetta
ágæta ríkisbákn.
Hafliði Helgason.
Dýrahald
Skuggi í Skipasundi
er týndur
SKUGGI, sem er svartur
og hvítur fressköttur, hvarf
frá heimili sínu Skipasundi
46 laugardaginn 24. júní sl.
Hann er með gráa hálsól
með nafni, heimilisfangi og
símanúmeri. Hann gæti
hafa lokast inni á fáfömum
stað, svo sem bílskúr, garð-
húsi eða þvottahúsi. Þar
sem hann er nýfluttur í
hverfið er hugsanlegt að
heimaríkari kettir hafi
hrakið hann út fyrir hverfið.
Ef einhverjir geta gefið
upplýsingar um Skugga eru
þeir vinsamlega beðnir að
hringja í síma 568-6052.
Blíðfinn vantar
heimili
ÉG er h'till, grár kettlingur
(högni) og er kallaður
Blíðfinnur og ég þarf að
eignast gott heimili. Upp-
lýsingar í síma 553-0457 eða
553-0447.
Lítill kettlingur
hvarf að heiman
NIU mánaða kettlingur,
hvítur og rauðleitur, hvarf
að heiman frá sér að Lækj-
arsmára mánudaginn 26.
júní sl. Hann er ekki með
hálsól, en eyrnamerktur á
hægra eyra 00G87. Ef ein-
hver hefur orðið hans var
vinsamlega hafið samband í
síma 554-1010 eða 864-0110.
Tapad/fundiö
Giftingahringnr
fannst á Búðum
ÉG fann í fórum okkar á
Hótel Búðum giftingahring
sem er jafnvel búinn að
liggja hjá okkur 1 nokkur
ár. Þetta er sjálfsagt hring-
ur eiginmannsins þar sem
hann er stór og inn í hann er
grafið Fríða 13.4. ’57. Þeir
sem kannast við gripinn
geta hringt í Viktor í síma
894-4111.
SKÁK
llmsjón Ilelgi Áss
Grétarsson
STAÐAN er frá opna Ordix
atskákmótinu í Frankfurt
sem lauk fyrir stuttu síðan
og er á milli hollenska stór-
meistarans Loek Van Wely
(2646), hvítt, og þýsku skák-
drottningarinnar Gisela
Fischdick (2233). 18...Rxc5!
19.dxc5 Bxc5+ 20.Kg2 d4
21.Re2 Þessi leikur orkar
tvímælis. Betra var 21.Re4
Rxe4 22.fxe4 Hxe4 23.Bd3
He3, en þá engu að síður
hefur svartur afbragðs færi
fyrir manninn. 21...Rd5
22. BÍ2? 22.Kh2 hefði veitt
harðvítugri vörn. 22...d3!
23. Rc3 Hvorki 23.Dxd3
Re3+ né 23.Bxc5 dxe2
24. Bxe2 Hxe2+ hefðu
bjargað hvíta taflinu.
23...Bxf2 24.Rxd5 Hel
25. Rc3 Hxdl 26.Hxdl Bb6
27.Hxd3 Df6 28.h5 He8
29.hxg6 fxg6 30.Hd2 Df4
31.Hc2 Bc7 32.Re2 Dd6
33.Kgl c5 34.KÍ2 c4 35.Kel
Dd3 og hvítur gafst upp.
Svartur
á leik.
Víkverji skrifar...
JARÐSKJÁLFTARNIR á Suður-
landi hafa illu heilli orðið vatn á
myllu andstæðinga beinna útsend-
inga af stórviðburðum á knattspymu-
sviðinu. Ríldssjónvarpinu hefur verið
legið á hálsi fyrir að sinna ekki skyldu
sinni varðandi fréttaflutning af þess-
um náttúruhamforum og menn hafa
ruðst fram á ritvöllinn til að ausa
stofnunina svívirðingum af þessum
sökum. Og ef til viU geta menn þar á
bæ dálítið sjálfum sér um kennt.
í lesandabréfi sem birtist í Morg-
unblaðinu segir meðal annars: „Það
er með ólíkindum að meðan allt Suð-
urlandið, og jafnvel allt landið, skelf-
ur vegna jarðhræringa, ungir og al-
dnir á svæðinu í losti og ráðvilltir og
hræddir, skuli ekkert að hafa í sjónv-
arpinu „okkar“ nema boltaleiki. Þetta
er mikil vanvirðing við blessað fólkið
sem hefur orðið fyrir barðinu á nátt-
úruhamförum."
Annar sem lét málið til sín taka á
prenti fullyrti að „fótboltabullur"
hefðu tekið völdin á Ríkissjónvarpmu
og leiðarahöfundur DV segir undir
yfirskriftinni „Nagli í kistu Ríkissjón-
varpsins" að „síðustu haldbæru rökin
fyrir tilvist ríkisrekins fjölmiðils og
skylduáskriftar landsmanna ruku út í
veður og vind vegna slælegra vinnu-
bragða og hugsunarleysis".
Að mati Víkverja er hér fulldjúpt í
árinni tekið þótt vissulega megi taka
undir með útvarpsráði, að hnökrar
hafi verið á útsendingum og að gera
hefði mátt betur þegar jarðskjálftinn
reið yfir á þjóðhátíðardaginn og það
voru vissulega mistök að senda ekki
út fréttir á hefðbundnum fréttatíma,
klukkan 19.00, þennan dag, þrátt fyr-
ir mikilvægi leiks Englendinga og
Þjóðverja, sem stóð yfir á sama tíma.
ÖUum verður á og segja má að
batnandi mönnum sé best að lifa.
Víkverji var að horfa á síðbúna út-
sendingu í Ríkissjónvarpinu frá leik
Portúgala og Þjóðverja, aðfaranótt
miðvikudags, þegar seinni skjálftinn,
„sólstöðuskjálftinn", reið yfir. Þá
þegar birtist á skjánum orðsending
þess efnis að fréttir af slqálftanum
yrðu sagðar á Rás tvö og langbylgju
og gat Víkverji fengið þar allar þær
upplýsingar sem hann þurfti meðan
hann horfði á leikinn. Þar brást Ríkis-
útvarpið snöfurmannlega og rétt við
aðstæðum og stóð sig vel í framhald-
inu næstu daga að mati Víkverja.
x x x
NÁTTÚRUHAMFARIR eins og
Suðurlandsskjálftinn er vissu-
lega stórviðburður og sjálfsagt að
greina frá honum sem ítarlegast í
fréttatímum ljósvakafjölmiðla og á
fréttasíðum dagblaða. En menn
verða að gæta stillingar og gæta sín á
að fara ekki offari þegar fjallað er um
menn ogmálefni.
Víkverja finnst að oft hafi gætt full-
mikillar dómhörku í garð starfs-
manna Ríkisútvarpsins. Allir geta
gert mistök. En það er eins og sumir
séu komnir með Ríkisútvarpið á heil-
ann og finni því allt til foráttu. Það er
orðið einskonar þráhyggja eða kækur
að tala illa um þessa ágætu stofnim.
Evrópumótið í knattspymu er líka
stórviðburður sem þúsundir manna
hafa gaman af að horfa á. Að mati
Víkverja hefur Ríkissjónvarpið staðið
vel að málum í þeim efnum.
Víkverji er ekki sammála þeim sem
hafa haft uppi stór orð um vanhæfi
íþróttafréttamanna Ríkisútvarpsins
og brigslað þeim um að mæta illa
undirbúnir í útsendingar. Þvert á
móti telur Víkverji að þeir hafi staðið
sig vel og nefnir hér sérstaMega Sam-
úel Örn Erlingsson í því sambandi.
Það er einkar skemmtilegt að hlusta
á Samúel Öm lýsa leikjum. Hann lifir
sig inn í leikinn, er vel máli farinn og
kryddar mál sitt oft með fomum
orðatilækjum sem setja skemmtileg-
an svip á lýsingamar. Af nokkrum
skondnum orðatiltækjum Samúels,
sem koma upp í hugann svona í fljót-
heitum, má nefna orðatiltæMð „að
skripla á skötunni" þegar leikmenn
renna til á vellinum, að „bíta í skjald-
arrendumar“ þegar blásið er til sókn-
ar. Svo kemur íyrir að menn þurfa
„að binda skóþveng sinn“ og „láta kné
fylgja kviði“ þegar svo ber undir. Og
hér á dögunum komst Samúel Öm
sérlega skemmtiiega að orði er hann
sagði að nú þyrftu Belgar að fara að
„gyrða sig í brók“ ef þeir ætluðu sér
að vera áfram í keppninni, en þeir
vom þá að tapa fyrir Tyrkjum.
Úrslitaleikurinn í Evrópukeppn-
inni í knattspymu er nú framundan
og ef að líkum lætur verður þéttset-
inn bekkurinn fyrir framan sjón-
varpstæM landsmanna á meðan leik-
urinn fer fram. Vonandi verður
Samúel Örn við hljóðnemann.