Morgunblaðið - 10.08.2000, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2000 11
FRÉTTIR
Skaftárhlaup rénar nokkuð
27 enn innlyksa
í Skaftárdal
Nýr sæstrengur lagður næsta sumar
Fleiri varaleiðir
á meginlandinu
ALLS eru 27 manns enn innlyksa í
sumarhúsum í Skaftárdal, en vegna
hlaups sem hófst í Skaftá sl. laug-
ardag hefur vegur þangað verið
ófær. Ekkert amar að ferðalöngun-
um og gera þeir sér nú vonir um að
komast heim á morgun, föstudag.
Sigurbjörg Þorsteinsdóttir, ein
úr hópnum, segir að þeir sem eftir
eru séu á fólksbílum og vilji
ógjarnan skilja bíla sína eftir. Tólf
manns hafi þegar farið burtu á
jeppum, en skv. upplýsingum vega-
gerðarinnar eru ekki líkur til þess
að fært verði á fólksbílum yfir veg-
inn í dag, en það ætti þó að verða á
morgun.
„Hér er yndislegt að vera og góð
stemmning í hópnum," segir Sigur-
björg, en svonefndur Suðurlands-
hópur hélt í Skaftárdal í síðustu
viku til að dvelja þar yfir verslun-
armannahelgina.
Sigurbjörg segir að Sigurður
Pétursson, bóndi á Búlandi, hafi
komið á gröfu sinni yfir ána í gær
og haft með sér ýmsar vistir fyrir
ferðalanga, mjólk, brauð og þess
háttar. Þetta hafi komið sér mjög
vel.
LANDSSÍMINN reiknar með að
leggja nýjan sæstreng næsta sumar
og auka þar með fjai'skiptamögu-
leika við útlönd, en enn er verið að
gera við CANTAT-3-strenginn sem
slitnaði við Færeyjar fyrir rúmri
viku.
Netsamband Landssímans og
INTIS við útlönd slitnaði í gær og
olli það nokkrum óþægindum, að
sögn Olafs Þ. Stephensen, talsmanns
Landssímans. Ástæðan fyrir sam-
bandsleysinu var endurstilling á
spennugjöfum í Vestmannaeyjum og
í Pennant Point í Kanada svo að við-
gerð gæti hafist á strengnum. Ólafur
sagði önnur lönd hafa fleiri mögu-
leika á varaleiðum þegar svona gerð-
ist og að verið væri að bæta úr þessu
með því að koma upp öðrum sæ-
streng, en botnrannsóknir vegna
hans hefjast í næstu viku.
Dýrt að halda uppi
alþjóðlegum tjarskiptum
„Það er hlutfallslega dýrara fyrir
okkur að halda uppi alþjóðlegum
fjarskiptum á íslandi ef miðað er við
önnur lönd, en þar kemur til land-
fræðileg staðsetning okkar. Það eni
þá helst Færeyingar sem eiga við
sama vandamál að stríða," sagði Ól-
afur.
,Á meginlandi Evrópu er miklu
meira úrval af varaleiðum og því auð-
veldara að koma sambandi á aftur ef
bilun kemur upp og beina þá umferð-
inni á aðra strengi. Eina varaleiðin
okkar er gervihnattasamband og það
tekur alltaf einhvem tíma að koma
því upp. Þegar sambandsleysið kom
upp í fyrradag hefði litlu máli skipt
hvort við hefðum notað gervihnatta-
sambandið eða endurstillt spennu-
gjafana og breytt þar með aflfæðing-
unni á strengnum. Það hefði alltaf
verið sambandslaust um tíma,“ sagði
Ólafur og bætti við: „Með komu nýja
sæstrengsins verður hægt að skipta
umferðinni á strengina og það mun
taka miklu skemmri tíma að skipta á
milli ef eitthvað skyldi koma upp á.“
Kostnaður vegna nýja strengsins
liggur enn ekki fyrir en Landssíminn
mun vinna að uppsetningu hans í
samvinnu við færeyska símafyrir-
tækið Fproyatele.
Aukning á netviðskiptum
Talsverð aukning hefur orðið á
netviðskiptum hjá verðbréfafyrir-
tækjum landsins og getur sam-
bandsleysi við útlönd haft veruleg
áhrif á starfsemi fyrirtækjanna.
„Sambandsleysið í fyrradag hafði
ekki mikil áhrif á viðskiptavini okkar
vegna þess að markaðir vestanhafs
voru enn lokaðir þegar bilunin kom
upp,“ sagði Viggó Þórir Þórisson,
starfsmaður í erlendum viðskiptum
hjá Landsbréfum, en einungis var
sambandslaust um vesturleið
CANTAT-3-strengsins og var sam-
bandið komið á aftur um hádegisbilið
hjá Landssímanum og laust fyrir tvö
hjá INTIS. „Það hefði verið mun
verra ef sambandið hefði slitnað á
háannatíma. Það hefði valdið miklum
óþægindum,“ sagði Viggó, en að
hans sögn stunda margir viðskipta-
vinir fyrirtækisins viðskipti á Net-
inu. „Það tekur aðeins einn dag að
skrá sig í netviðskipti hjá okkur og
að því loknu getur viðkomandi farið
að eiga viðskipti á Wall Street.“
-------------------
Fjórir sóttu
um Seltjarnar-
nesprestakall
FJÓRIR sóttu um stöðu sóknar-
prests í Seltjarnarnesprestakalli en
umsóknarfrestur rann út í fyrradag.
Umsækjendur voru séra Guðný
Hallgrímsdóttir, fræðslufulltrúi í
fræðsludeild kirkjunnar, séra Sig-
urður Grétar Helgason, prestur í
Seltjarnarnesprestakalli, séra Þór-
hallur Heimisson, prestur í Hafnar-
fjarðarprestakalli, og séra Þórir
Jökull Þorsteinsson sóknarprestur á
Selfossi.
Samkvæmt upplýsingum biskups-
stofu liggur ekki fyrir hvenær
ákvörðun um ráðninguna verður tek-
in þar sem formaður valnefndar
prestakallsins, séra Sigurður Sig-
urðarson, vígslubiskup í Skálholti,
hefur verið erlendis. Hann var vænt-
anlegur til landsins í gærkvöldi.
Upplýsingaskilti um
Kárahnjúkavirkjun
KYNNINGARSKILTUM fyrir
ferðamenn hefur verið komið fyrir
beggja vegna Jökulsár á Brú við
Fremri-Kárahnjúk. Skiltunum er
ætlað að sýna hvernig fyrirhugað-
ar stíflur og lón Kárahnjúkavirkj-
unar koma til með að líta út. Einn-
ig hefur verið komið fyrir
upplýsingaskilti í Fljótsdal, þar
sem stöðvarhús fyrirhugaðrar
Kárahnjúkavirkjunar verður
grafið inn í bergið.
Upplýsingaskiltin eru sett upp í
tengslum við útgáfu göngu- og
ferðakorts sem ætlað er að kynna
fyrirhugaðar framkvæmdir vegna
Kárahnjúkavirkjunar og draga
saman á einn stað ferðaleiðh’ um
öræfin umhverfis Snæfell, hvort
sem um er að ræða vegslóða,
göngu- eða reiðleiðir.
Kortið er bæði til á íslensku og
ensku. I fréttatilkynningu segir
að það hafi fengið mjög góðar við-
tökur ferðamanna.
Það var Landsvirkjun sem
hafði frumkvæði að útgáfunni í
samráði við Náttúruvemd ríkis-
ins, Markaðsstofu Austurlands,
Samband sveitarfélaga á Austur-
landi og Þróunarstofu Austur-
lands.
tíníJDA HR-V 5 DYRA
Gunnar Bernhard ehf.
Vatnagörðum 24 • s. 520 1100
AKRANES: Bllversf., s!mi431 1985. AKUREYRI: Höldurhf., s!mi46l 3000. KEFIAVÍK: Bllasalan Bllavlk, slmi42l 7800. VESTMANNAEYJAR: BHaverkstæöiö Bragginn, slmi4811535
[HONDA HR-V 1.614x4 5 DYRA
105 hestöfl, 16 ventla, ABS, tveir
loftpúðar, rafdrifnar rúður og speglar,
hltl I sætum og speglum, fjarstýrðar^
samlæsingar, samlitaður.
varð fré
1.940.000 kr.-