Morgunblaðið - 10.08.2000, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 10.08.2000, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Lausnargjalds krafíst fyrir þrjá af starfsmönnum Rauða krossins í Georgíu Grunur beinist að tsje- tsjenskum skæruliðum Tibilisi. AFP, AP. TVEIMUR sendifulltrúum Al- þjóðaráðs Rauða krossins sem starfa í Georgíu og þarlendum bíl- stjóra þeirra var rænt sl. föstudag nærri landamærunum við Tsjet- sjníu og þykir líklegt að menn hlið- hollir tsjetsjenskum skæruliðum hafi fólkið í haldi og krefjist lausn- argjalds. Samkvæmt heimildum AFP úr innanríkisráðuneyti lands- ins er líklegt að fólkinu, tveimur er- lendum konum og georgískum karl- manni, verði sleppt innan skamms og lýstu lögregluyfirvöld því yfir í gær að vitað væri um verustað mannræningjanna. Embættismaður innanríkisráðu- neytis landsins sagði að Kakha Bakuradze, innanríkisráðherra Georgíu, hafi samið við gíslatöku- mennina, með milligöngu þriðja að- ila, og honum heitið lausn gíslanna á næstu dögum. Hafi gíslatöku- mennirnir tjáð ráðherranum að ekki væri farið fram á neitt lausn- argjald og að þeir hefðu aðeins ver- ið að „hrinda fyrirskipunum í fram- kvæmd“. Bifreiðin finnst mannlaus Að sögn Pauline Ceinaix, tals- manns sendinefndar Alþjóðaráðs Rauða krossins í Georgíu, voru sendifulltrúarnir Sophie Procofiev, Reuters Temur Arabuli, lögreglustjóri í Akhmeta-hér- aði í austurhluta Georgíu, stendur við Toyota- bifreiðina sem starfsfólk Rauða krossins var í er því var rænt. sem er frönsk að þjóðerni, og ít- alinn Natascia Zullino, að störfum ásamt bílstjóra þeirra í Pankisi-dal sem er nærri landamærunum við Tsjetsjníu í liðinni viku. Er hafa átti samband við þau sl. föstudag náðist ekkert samband og lögregluyfirvöld því látin vita. Eftir umfangsmikla leit fannst bifreið þeirra mannlaus í vegarkanti um helgina og skilríki þeirra auk skemmdrar talstöðvar þar skammt frá og virtist flest benda til að fólkinu hefði verið rænt. í kjölfar mannránsins til- kynnti Rauði kross- inn að hjálparstarfi í Pankisi-dal hefði ver- ið hætt tímabundið. ITAR-TASS- frétt- astofan hafði það eft- ir öryggissveitum í Georgíu að vitað sé hverjir mannræn- ingjamir eru og hvar þeir haldi sig en vegna öryggis gísl- anna hefur upplýs- ingunum verið haldið leyndum. Þrátt fyrir það hefur skipuleg leit haldið áfram og hafði fréttastofan eftir einum leitar- manna að nokkrir munir hefðu fundist á víðavangi og slóð mannræningjanna því kunn. Sagði hann að íbúar á svæðinu teldu að mannránið hefði verið í tengslum við innbyrðis átök hópa Tsjetsjena á svæðinu. Talsvert hefur verið um gíslatök- ur og mannrán í Georgíu, sérstak- lega í fjalllendinu í norðausturhluta landsins, þar sem lögregluyfirvöld hafa litla stjórn. Þá hafa rússnesk stjórnvöld gagnrýnt Georgíustjórn harðlega fyrir að amast lítið við veru tsjetsjenskra skæruliða á svæðum innan landamæra Georgíu. Hafa þarlend stjórnvöld vísað gagnrýninni á bug og eftir mann- ránið á föstudag lýsti Edúard Shev- ardnadze, forseti landsins, því yfir að hjálparsamtökum væri fullkun- nugt um hættuna sem væri viðvar- andi á þessum svæðum. Hjálparstarf að beiðni stjórnvalda Samkvæmt upplýsingum Al- þjóðaráðs Rauða krossins, sem hef- ur starfað í landinu í átta ár, hefur sendinefnd samtakanna m.a. veitt á sjöunda þúsund flóttafólks frá Tsjetsjníu, sem sest hefur að í Pankisi-dal, aðstoð á undanförnum mánuðum. Hefur það verið gert að beiðni stjórnvalda í Tibilisi, höfuð- borg Georgíu. Árið 1996, eftir fyrra Tsjetsjníu- stríðið, yfirgáfu alþjóðleg hjálpar- samtök landið eftir röð mannrána og morða á Rússum og erlendu fólki. Sama ár voru sex starfsmenn Rauða krossins myrtir í Grozní, höfuðborg Tsjetsjníu. Eftir síðustu átök rússneska hersins og tjsetjsenskra skæruliða hefur ný alda mannrána sprottið upp og hafa afar fáir hjálparstarfsmenn hætt sér til landsins vegna ótryggs ástands. Sigarettusala 1 Serbíu Sonur Milos- evic tengdur smygli Zagreb. AFP. LÖGREGLAN í Króatíu hefur komið upp um glæpahring sem smyglar sígarettum til Serbíu og virðist sonur Slobodans Milosevic Júgóslavíuforseta, Marko Milosevic, vera flæktur í málið, að sögn blaðsins Jutarnji í Króatíu. Sígarettumar er framleiddar í Ronhill-verksmiðjunni í borg- inni Rovinj á Adríahafsströnd Króatíu. Þær voru keyptar i Ljubljana í Slóveníu en síðan smyglað þaðan til Belgrad. Lögreglan er sögð hafa rann- sakað málið í 16 mánuði og meðal annars komist að raun um að Marko Milosevic eigi fyr- irtæki, skráð í Liechtenstein, sem flækt sé í smyglið. Smygl á sígarettum, áfengi, kaffi og ol- íuafurðum er umfangsmikið og ábatasamt í Serbíu, Króatíu og Bosníu-Herzegovínu og smygl hefur reyndar verið mikill at- vinnuvegur á Balkanskaga öld- um saman. Jutranji segir að eftir að viðskiptafélagi Milosev- ic yngri, Vlada Kovacevic, var skotinn til bana árið 1997 hafi forsetasonurinn náð undir sig sígarettusmygli til Serbíu. Hafi honum tekist að hrekja smygl- ara frá Svartfjallalandi út af markaðnum. SKÖMMU áður en George W. Bush, forsetaefni Repúblíkanaflokksins í Bandaríkjunum, tilkynnti val á vara- forsetaefni sínu, Dick Cheney, komu A1 Gore, varaforseti og forsetaefni Demókrataflokksins, og aðstoðar- fólk hans, auga á óvænt tækifæri. Hópurinn var sammála um að aðferð Bush og hans manna við valið á vara- forsetaefni hefði verið meingölluð og kjósendum hefði sýnst repúblík- anamir lausmálgir, ófagmannlegir og að það hefði verið asi á þeim. Fréttaskýrendur The New York Times, David Barstow og Katharine Q. Seelye, segja í gær að Gore og hans fólk hafi ákveðið að reyna að nýta sér það hvernig repúblíkanam- ir hefðu virst hafa klúðrað málum er Cheney var valinn, og breyta sjálfu valferlinu á varaforsetaefni í póli- tískt vopn. Talsmenn Gores tóku sig saman og gerðu hróp að Bush fyrir að hafa leitað að varaforsetaefni „eins og hann væri á skólaballi“. Bentu þeir á að Gore væri yfirvegað- ur, skipulagður og léti ekki hafa áhrif á sig við val á sínu varaforseta- efni, en um fram allt fengi enginn að vita hvað Gore væri að hugsa. Mitchell kom aldrei til greina En, segja þau Barstow og Seelye, leyndin sem hvíldi svo þungt yfir val- ferlinu hjá Gore huldi fyrir almenn- ingi ákaflega pólitískt, mjög kapp- samt og stundum örvæntingarfullt val. Hvað eftir annað hafi leit Gores að varaforsetaefni einkennst af strangpólitískum atriðum sem hafi haft lítíð með að gera það sem hann hafí þó sagt skipta mestu, þ.e.a.s. að finna mann sem gæti tekið við for- setaembættinu ef með þyrfti. Til dæmis hafi George J. Mitchell, fyrrverandi þingflokksformaður í Oldungadeildinni, aldrei komið til greina vegna þess, að minnsta kosti, að hann hafði gegnt starfi málpípu fyrir tóbaksverkendur, að því er haft er eftir fólki sem tók þátt í því að velja Gore varaforsetaefni. Öldunga- deildarþingmaðurinn Evan Bayh sætti ámæli frá fylgismönnum fóst- ureyðinga og hafði gefið samþykki sitt fyrir því að kosningaherferðin yrði notuð til að svara gagnrýni á það hvernig hann hefði greitt atkvæði í þinginu, en engu að síður hvarf hann sjónum. Öldungadeildarþingmaður- inn Bob Graham galt þess að hann hafði þann vana að skrifa í dagbækur sínar allt sem á daga hans dreif, Við val varaforsetaefn- is skipta smáatriði máli Val AI Gores á varaforsetaefni var þraut- skipulagt og réðst bæði af pólitískum þátt- um og óvæntum smáatriðum, að sögn bandarískra fréttaskýrenda. sama hversu óáhugavert það var. Einhver benti á að hann skrifaði meira að segja niður hvað hann borð- aði í morgunverð. Hafi sumir demó- kratar talið að þessi vani Grahams myndi líta út sem sérviska í augum Iqósenda. Aftur á móti hafi ítrekaðar tilraun- ir Bush til að sverta Gore með því að rifja upp framhjáhald Bills Clintons forseta átt töluverðan þátt í því að öldungadeildarþingmaðurinn Jos- eph Lieberman varð á endanum fyr- ir valinu sem varaforsetaembætti. Lieberman varð fyrstur demókrata til að gagnrýna Clinton á þinginu fyrir framhjáhald. Segir mikið um forsetaefnið Val á varaforsetaefni er ætíð mik- ilvægt fyrir forsetaefni, skrifa Bar- stow og Seelye, og segir mikið um forsetaefnið sjálft. Aðstoðarfólk Gor- es hafi haldið því fram, að það hvern- ig Gore hafi farið að því að velja Lieberman hafi dregið fram í dags- ljósið marga sterkustu eiginleika hans, og þá sérstaklega hversu vel hann undirbúi sig áður en hann taki mikilvægar ákvarðanir. Aldrei hafi athuganir á ferli þeirra sem til greina komu verið eins nákvæmar. Gore hafði tilkynnt í apríl sl. að Warren Christopher, fyrrverandi ut- anríkisráðherra Bandaríkjanna, myndi verða yfirmaður hópsins sem vann að valinu, en Gore hóf undir- búning sinn mun fyrr. Hópnum var skipt í minni hópa sem hver um sig kannaði feril eins þeirra sem til greina komu. Hópurinn sem kannaði feril Liebermans gekk svo langt að kanna yfir 800 dómsúrskurði sem Lieberman felldi þegar hann var dómsmálaráðherra Connecticut-rík- is á níunda áratugnum. Þegar Christopher var spurður hvers hann hefði orðið vísari um Gore meðan á valinu stóð sagði hann: „Ég fór að bera virðingu fyrir gildum hans og dómgreind. Eg komst að því að hann tók ferlið alvarlega og vann samviskusamlega." Repúblíkanai’ komust að annarri niðurstöðu eftir að hafa fylgst með því hvernig Gore valdi sér meðframbjóðanda. Þeir hafa hælt Lieberman og sagt hann heiðvirðan mann, en aðferð Gores við valið hafi sýnt og sannað að vara- S A borg- arafundi AL GORE, væntanlegur for- setaframbjóðandi demókrata í kosningunum 7. nóvember nk., og varaforsetaefni hans, Joseph Lieberman, efndu til borgar- afundar í heimabæ Gores, Carth- age í Tennessee, í gær. Sagði Gore að hann væri óhræddur við að hafa sér við hlið varaforsetaefni er væri sér ósammála. Hét Gore því að sem forseti myndi hann verða andvígur því að í menntamálum myndi hið opinbera láta hverju barni í té ákveðna fjárhæð til að greiða fyrir skólagöngu en foreldrar geti ákveðið í hvaða skóla barnið fari. Hefur Lieberman aftur á móti ekki hafnað þessari hugmynd, sem sum- ir repúblíkanar hafa lagt fram. Gore og flestir demókratar eru þeirrar skoðunar að þessi háttur myndi grafa undan almennri menntun. Lieberman gerði lítið úr ágreiningsefnum sínum og Gores. „Við höfum sömu gildi í heiðri, við höfum sömu framtíðarsýn,“ sagði Lieberman við AP- fréttastofuna. Gore tjáði kjós- endum að hann vildi „lyfta á hærra plan“ um- ræðum í kosninga- baráttunni við George W. Bush, forsetaefni repúblíkana. „Ég mun ekki segja eitt einasta neikvætt orð um Bush ríkis- stjóra eða Dick Cheney [varafor- setaefni hans],“ sagði Gore. „Við ætlum að stunda kosningabaráttu sem sýnir virðingu fyrir bandarisku þjóðinni." Lieberman sagði í sjón- varpsviðtölum í gærmorgun að þótt þeir væru ekki sammála á öll- um sviðum myndi varaforsetinn styðja allar ákvarðanir sem for- setinn tæki. forsetínn sé vægðarlaus í herkænsku sinni og hafi tílhneigingu tíl að kríta liðugt til pólitísks ávinnings. Ari Fleischer, talsmaður Bush, sagði ekkert hæft í því að Gore hefði sýnt meiri yfirvegun og skipulag en Bush við val á varaforsetaefni. Hefur verið haft eftir Fleischer að margt af því sem Gore hafi gert, þ. á m. að tala um að auk þeirra sex sem hann hafi valið í „lokaúrtak" væri einn „óþekktur", hefði ekki verið annað en sjónarspil. Það sem máli skipti væri að Bush, og stuðningsmenn hans, hefðu boðið Lieberman vel- kominn, en Gore og menn hans hefðu aftur á móti gert atlögu að Cheney. „Það hefur alveg farið framhjá þeim hvernig heildarmyndin er, og hvað fólki finnst um sífelldar árásir,“ hafa Barstow og Seelye eftir Fleischer. Skipulagðir lekar Þau segja ennfremur að leikstjórn Gores á valinu hafi verið svo fáguð, að jafnvel upplýsingalekar hafi verið skipulagðir þannig að þeir myndu hafa sem mest áhrif. Gore vildi ólm- ur vinna konur meðal kjósenda á sitt band, og þess vegna lagði hann áherslu á að nokkrar konur kæmu sterklega til greina sem varaforseta- efni. I síðustu viku var þeim upplýs- ingum komið á framfæri að í „lokaúr- takinu", sex manna hópi, væri ein kona, Jeanne Shaheen, ríkisstjóri í New Hampshire. Hún hafði engu að síður þá þegar tilkynnt að hún hefði ekki áhuga á því að verða varafor- setaefni, og þar að auki hafði einn af samstarfsmönnum Gores sagt að hún hefði fyrir allnokkru hætt að koma til greina. En hversu mjög sem Gore vandaði valið var eitt sem starfsmenn hans athuguðu aldrei, og það var hvernig kjósendur myndu bregðast við strangtrúuðum gyðingi í forseta- framboði. Allmargir þeirra sem Christopher og menn hans ráðguð- ust við nefndu að trú Liebermans kynni að verða vandamál. En Gore, hversu sem hann kann að láta stjóm- ast af skoðanakönnunum og almenn- ingsáliti, eins og repúblíkanar segja, gaf fyrirskipun um að ekkert skyldi gert til að finna út hvernig fólk myndi bregðast við trúarskoðun Liebermans. „Gore sagði: Ég er ekki þannig. Ég hugsa ekki þannig. Ég ýti þessu til hliðar," sagði Christ- opher.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.