Morgunblaðið - 10.08.2000, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 10.08.2000, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Heitur fimmtudagur í Deiglunni Fusion- kvartett á djasskvöldi Á SJÖUNDA Tuborgdjassi á heitum fimmtudegi í Deiglunni. 10. ágúst kl. 21.30 leikur Fusion-kvartettinn sem samanstendur af eftirtöldum hljóð- færaleikurum úr röðum djassleik- ara: Eyþóri Gunnarssyni á píanó, Jó- el Pálssyni á saxófón, Jóhanni Hjörleifssyni á trommur og Jóhanni Ásmundssyni á bassa. Kvartettinn leikur vel valin „fus- ion“-ættuð lög frá áttunda og níunda áratugnum. Lög eftir meistara eins og Brecker-bræður, Weather report, Mike Manieri, Michel Camillo o.fl. Dagskráin er létt og skemmtileg og ætti að höfða til allra sem hafa gaman af kraftmikilli og rytmískri tónlist. Aðgangur er ókeypis á tónleikana sem þakka ber þeim fyrirtækjum sem styrkja og kosta þessa starf- semi: Ólgerð Egils Skallagrímsson- ar, Karolína-restaurant, Akureyrar- bær, KEA, Sparisjóður Norð- lendinga, VSÓ-ráðgjöf á Akureyri og Kristján Víkingsson. Fólki er bent á að koma tímanlega til að ná sér í sæti. Morgunblaðið/BEG Hæsti tindur Ljósufjalla, en þau eru hæstu fjöll í Hnappadalssýslu. Á myndinni til vinstri eru Sigurður Erlingsson prófessor, Rögnvaldur Gíslason, bóndi í Gróf í Strandasýslu, og Sigurkarl Stefánsson menntaskólakennari. Á myndinni til hægri er Snæfell, hæsta fjall í Norður-Múlasýslu. Gengur á hæsta fj all í hverri sýslu BJARNI E. Guðleifsson, náttúru- fræðingur á MöðruvöIIum í Hörg- árdal, er vanur fjallgöngumaður. Hann hefur á síðastliðnum árum gengið mikið á fjöll á Tröllaskag- anum en fyrir nokkrum árum setti hann sér það markmið að ganga á hæsta fjall í hverri sýslu. Morgun- blaðið forvitnaðist um tildrög þessa og hvemig það gengi fyrir sig. „Eg hef gengið vítt og breitt um Qöll hér á Tröllaskaganum og skrifað nokkur greinarkorn um þær fjallgöngur. Síðan hefur það atvikast þannig að fólk er alltaf að spyrja hvort ég hafi ekki gengið á fræg fjöll, Baulu, Esju, Herðubreið o.s.frv., þannig að ég sá að þetta væri heldur einhæft hjá mér og fannst að ég þyrfti að víkka sjón- deildarhringinn," sagði Bjami. Að hans sögn er óljóst hvenær þetta gæluverkefni hans hófst í raun og veru. „Ég gekk á hæsta fjallið í Gullbringusýslu fyrir ein- um sex ámm og það má kannski segja að það sé byrjunin, en það var auðgengið enda ekki hátt í loftinu." Leiðist að ganga á jökla Bjami sagði að hann hefði held- ur reynt að flækja verkefnið en hitt. „Ég ákvað til dæmis að sýsla eins og Snæfellsnes- og Hnappa- dalssýsla væri tvær sýslur og fjölgaði þannig fjöllum sem ég þarf að ganga á. Hins vegar leiðist mér að ganga á jökla þannig að ég tók Vatnajökul, Hofsjökul og Langjökul út úr áætluninni, en þó ætla ég nú að ganga á Hvanna- dalshnúk, hæsta fjallið," sagði Bjarni. Hann segir að hluti af ánægjunni sé að finna út hvert sé hæsta fjallið í hverri sýslu og það gerir hann með því að liggja yfir kortum og lesa heimildir. Eitt íjall í tveimur sýslum „Það getur líka komið fyrir að með einu fjalli nái ég fleiri en einni sýslu. Það má geta þess að með því að ganga á fjallið Trölla- dyngju á Holtavörðuheiðinni tel ég mig ná tveimur sýslum, þ.e. Strandasýslu og Dalasýslu,“ sagði Bjami. Hann segir að hann hafi gengið á fjöllin með þremur til fjórum fé- lögum sínum en oftast sé það frændi hans og vinur úr Reykja- vík, Sigurkarl Stefánsson, mennta- skólakennari, sem hafi gengið með honum. Þegar hann er spurður að því hvað þetta áhugamál endist honum lengi, svarar hann því til að þetta sé æviverkefni. „Ég verð mörg ár að þessu. Sýslurnar eru 24 og oftast geng ég einungis á eitt af þessum fjöllum á ári. í ár er t.d. útlit fyrir að ég nái ekki að bæta sýslu í safnið þar sem ég var erlendis á besta göngutímanum,“ sagði Bjarai en hann hafði stefnt á að ganga á Herðubreið í sumar. „Ég held að þessi kerfisbundna fjallasöfnun sé hluti af þeirri söfn- unaráráttu sem ég er haldinn. Ég dunda mér við þetta fram í ell- ina,“ sagði Bjarni að lokum. Kirkju- starf GRENIVÍKURKIRKJA: Guðsþjónusta í kirkjunni sunnudagskvöldið 13. ágúst kl. 21. Morgunblaðið/Rúnar Pór Oft var mjótt á mununum hjá hinum ungu og áhugasömu siglingaköpp- um sem tóku þátt í Akureyrarmótinum í gær. Akureyrarmót í siglingum AKUREYRARMÓT í siglingum fór fram í gærdag í ágætisveðri, hlýind- um og sunnanvindi. Keppt var í tveimur flokkum, A og B, en það fer eftir reynslu siglingakappanna í hvorum flokknum þeir lenda. Úrslit urðu þau að Pétur Orri Tryggvason var í fyrsta sæti í A- flokki, Smári Sigurðarson í öðru sæti qg Valgeir Torfason var í þriðja sæti. í B-flokki sigraði Aron Már Böðvar- sson, Friðrik Dýrfjörð varð annar og Sigurður Óli Ragnarsson þriðji. Akureyrarmótið er liður í undir- búningi fyrir íslandsmótið í sigling- um sem haldið verður á Pollinum við svæði Siglingaklúbbsins Nökkva um helgina, en það hefst síðdegis á föstudag og stendur fram á sunnu- dag. Þátttakendur verða ríflega 30 talsins, þar af um 10 heimamenn en aðrir koma úr siglingaklúbbum af höfuðborgarsvæðinu og Keflavík. Þátttakendur á Islandsmótinu eru á aldrinum 10 til 15 ára. Þátttakendur í æfingabúðum fyrir unglinga sem Tennis- og badmintonfélag Akureyrar stóð fyrir nýlega, þjálfarinn Árni Þór Hallgrímsson er fyrir miðri mynd í aftari röð. Unglingar í æfingabúðum TENNIS- og badmintonfélag Akur- eyrar ásamt foreldrafélagi þess stóð fyrir æfingabúðum fyrir unglinga í fé- laginu á dögunum. Þátttakendur voru níu talsins á aldrinum 15 til 17 ára og var þjálfari Ámi Þór Hallgrímsson. Hann er landsliðsþjálfari í badminton og starfar einnig hjá Tennis- og badmintonfélagi Reykjavíkur. Æfingabúðirnar voru á Þelamörk í Hörgái’dal og stóðu æfingar yfir frá kl. 9 á morgnana til kl. 16.30 á daginn. Öll aðstaða var hin besta og fengu krakkamir góðar móttökur hjá Helga Jóhannssyni staðarhaldara og hans fólki. Bautabúrið, Mjólkursamlag KEA og Kristjánsbakarí styrktu æf- ingabúðirnar. Ljósmynd/Gunnar Jónsson Baggabíll HEYSKAPUR í Svarfaðardal hefur gengið afar vel í sumar enda sum- arið verið einkar sólríkt. Eitthvað hefur þó heyrst að grasspretta væri ekki nógu góð vegna mikilla þurrka. Það skyldi þó ckki hafa vakað fyrir þeim gárungum, sem vöfðu þennan forláta Land Rover- jeppa inn í rúllubaggaplast, að drýgja sér vetrarforðann. Ætli blessuðum kúnum þætti hann þó ekki fullharður undir tönn?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.