Morgunblaðið - 10.08.2000, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2000 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Ný íbúðarbyggð á Hrólfsskálamel
Frystigeymslur gamla ísbjarnarhússins hafa þegar verið rifnar.
Morgunblaðið/Ásdís
Kanon arkitektum, þau Hall-
dóra Bragadóttir, Helgi B.
Thoroddsen, Þórður Stein-
grímsson og Þorkell Magnús-
son arkitektar. Verðlaun verða
veitt fyrir annað þrep keppn-
innar og nema þau samtals
3.600.000 krónum en þar af
hlýtur vinningshafi keppninn-
ar 1.700.000 krónur.
Þétt byggð og nútímaleg
Hrólfsskálamelur er í hjarta
Seltjamamesbæjar og blasir
við þegar ekið er inn á Nesið,
hvort heldur er um Nesveg
eða Suðurströnd. Gert er ráð
fyrir að byggðin verði talsvert
þétt og nýtingarhlutfall hátt
en lágmarksstærð íbúða verð-
ur 90 fermetrar. Dómnefnd
hefur lagt áherslu á að skipu-
lag verði með þeim hætti að
íbúar geti notið útivistar í
hverfinu og í því skyni verði
sérstaklega hugað að skjól-
myndun, afstöðu til sólar og
útsýnis. Einnig er lögð áhersla
á góð tengsl við aðliggjandi
byggð, þá sérstaklega við
verslunarmiðstöðina á Eiðis-
torgi. Meirihluti bflastæða
verður neðanjarðar í hverfinu
og gerðar verða talsverðar
kröfur til tæknilegra gæða
íbúða, til dæmis hvað varðar
loftræstingu, hljóðvist, nátt-
úmvæn byggingarefni og
orkuspamað.
Morgunblaðið/Kristinn
Síðasta íbúðarhverfi bæjarins
Seltjarnarnes
BÆJARYFIRVOLD á Sel-
tjamamesi hafa ákveðið að
íbúða- og þjónustubyggð verði
skipulögð á Hrólfsskálamel í
framtíðinni en þar standa í dag
gömul fiskvinnsluhús sem
hýsa geymslur bæjarins auk
ýmiss konar atvinnustarfsemi.
Húsin era í eigu bæjarfélags-
ins og stendur til að rífa þau öll
til þess að rýma fyrir nýrri
byggð. Þegar hefur verið haf-
ist handa við að rífa gamla
frystihús ísbjamarins, sem
stendur syðst í húsai'öðinni, en
leigutími annarra húsa rennur
út árið 2006. Þetta er síðasta
svæði á Seltjamamesi sem
skipulagt verður sem íbúða- og
þjónustuhverfi en svæðið nær
yfir tæpa tvo hektara lands.
Einnig er ætlunin að skipu-
leggja hverfi þjónustu- og
skrifstofubygginga á svoköll-
uðum Ráðhússreit sem er
svæði sunnan við Hrólfsskála-
mel, handan Suðurstrandar.
Ráðgert er að þessi hverfi
verði tengd saman með góðu
aðgengi fyrir fótgangandi
vegfarendur og bflaumferð.
Bæjarstjóm ákvað í ágúst
árið 1998 að svæðið yrði tekið
til deiliskipulags og var ákveð-
ið að efna til samkeppni meðal
arkitekta til þess að leita eftir
bestu mögulegri heildarlausn
á ásýnd og skipulagi svæðisins.
Efnt til tveggja
þrepa samkeppni
í mars síðastliðnum var efnt
til tveggja þrepa samkeppni
og bárast átta tillögur að
skipulagi hverfisins í fyrsta
þrep keppninnar. I júní valdi
dómnefnd síðan fjórar tillögur
sem héldu áfram í annað þrep
keppninnar en þar verða hug-
myndir og tillögur útfærðar
enn frekar. Tillögunum úr
öðra þrepi verður skilað inn
12. september næstkomandi
en áætlað er að dómnefnd ljúki
störfum í lok septembermán-
aðar og í framhaldi af því verði
verkið boðið út.
Þeir sem taka þátt í öðra
þrepi keppninnar era Arki-
búllan ehf. en arkitektar þar
era Heba Hertevig, Hólmfríð-
ur Jónsdóttir og Hrefna Björg
Þorsteinsdóttir. í öðram hópi
era arkitektamir Gestur 01-
afsson og Haukur Viktorsson.
í þriðja hópnum era Guðrún
Fanney Sigurðardóttir, Fiona
Meierhans, Laurent Bon-
thonneau og Nicholas Guichet.
Fjórði hópurinn kemur frá
Aðí
Reykjavík
MIKIÐ hefur verið um er-
lenda ferðamenn í Reykja-
vík í sumar og ferðast
margir þeirra um á reið-
hjdlum, klyQaðir farangri.
Tveir hjólreiðamenn hvfldu
lúin bein á grasbala í borg-
inni á dögunum og litu um
leið í ferðabækling. Þeir
hafa sjálfsagt verið að
velta fyrir sér næsta
áfangastað á ferðalagi sínu
um Island.
Bæjarstjórinn í Kópavogi segir að sér eins og öðrum sé sárt um landið milli Vatnsendavegar og Elliðavatns
Sex hæðir er
ekki heilög tala
Vatnsendi
SIGURÐUR Geirdal, bæj-
arstjóri í Kópavogi, segir að
sér sé eins og öðram sárt
um landið milli Vatnsenda-
vegar og Elliðavatns, þar
sem fyrirliggjandi deili-
skipulagstillaga gerir m.a.
ráð fyrir að nokkur fjölbýhs-
hús rísi, þar á meðal tvö 6
hæða. Ibúar við Vatnsenda
undirbúa nú mótmæli sín við
deiliskipulaginu sem er liður
í áformum um 5-6000
manna byggð í Vatnsenda-
landi.
Sigurður sagði að ráðgerð
staðsetning fjölbýlishúsanna
væri allfjam vatninu en
neðan vegarins. „Það er öll-
um sárt um landið neðan
vegarins og mér líka. Þar er
grænt belti sem við verðum
að halda í eins mikið af og
við getum,“ sagði hann. ,
I Morgunblaðinu í gær
lýsti Rut Kristinsdóttir, tals-
maður íbúa við Vatnsenda,
andstöðu við fjölmörg atriði
deiliskipulagstillagnanna og
eins atriði sem snúa að
vinnubrögðum bæjaiyfir-
valda við gerð þess. Áður
hafði Rut fyrir hönd um 120
húseigenda á svæðinu gagn-
rýnt skipulagsáformin í
heild og samskipti bæjarins
við húseigendur á svæðinu
en þeim hefur mörgum verið
sagt upp lóðaleigu með árs
fyrirvara.
Meðal annars gagnrýndi
Rut að vegna háhýsanna
yrði þéttleiki byggðar þarna
rneiri en fyiirliggjandi
skipulagsforsendur gerðu
ráð fyrir en áður hefðu
skipulagsyfirvöld lýst því yf-
ir að byggðin yrði lágreist
næst vatninu en háreistari
eftir því sem fjær drægi.
Spurður um þetta atriði
sagðist Sigurður Geirdal
ekki halda að háhýsin
myndu skyggja á neinn. „En
komi það í Ijós era 6 hæðir
ekki heilög tala,“ sagði hann.
Bæjarstjórinn sagði að
landnotkun væri í skipulagi
ákveðin sem hlutfall af
ákveðnu landsvæði og til-
skilinni landnotkun væri
annað hvort hægt að ná með
fáum háum húsum, þar sem
kæmust fyrir 20-30 íbúðir á
lítilli lóð eða mörgum einbýl-
ishúsum eða öðram lægri
húsum sem teygðu sig yfir
stærra landflæmi. „Þetta er
erfitt að glíma við og við
höfum alls staðar leyst þetta
með blandaðri byggð þar
sem blandað er saman fjöl-
býlishúsum, raðhúsum og
einbýlishúsum," sagði hann.
Bæjarstjórinn sagði ekki
koma á óvart að athuga-
semdir bærast við deili-
skipulagið; til þess væri leik-
urinn gerður að kynna
fyrirliggjandi hugmyndir og
kalla eftir athugasemdum
sem borgarar gætu sent inn.
„Þegar þetta stórt svæði er
deiliskipulagt væri eitthvað
skrítið ef ekki kæmu fram
mörg sjónarmið um hvernig
það ætti að vera,“ sagði
hann.
Nú stendur yfir lögbundin
endurskoðun aðalskipulags
og Rut Kristinsdóttir gagn-
rýndi í blaðinu í gær að
deiliskipulagstillögurnar
væru lagðar fram áður en
þeim endurskoðun væri lok-
ið. í aðalskipulagi era lagðar
meginlínur um landnotkun
en með deiliskipulagi er
byggð á einstökum svæðum
útfærð. Sigurður sagði end-
urskoðuninni nánast lokið og
það væri nú „í diplómatískri
og formlegri meðferð." Um
hvort deiliskipulagstillög-
umar væra þá gerðar á
granni fyrirliggjandi endur-
skoðaðrar aðalskipulagstil-
lögu sagði hann að ekki væri
þar um að ræða breytingu
frá því sem verið hefur varð-
andi það hvar byggð ætti að
rísa að frátalinni breytingu á
skika, sem hefur verið í eigu
Vatnsendajarðarinnar, og
var skipulagt sem landbún-
aðarsvæði en er nú skipu-
lagt fyrir íbúðabyggð, opin
svæði, afþreyingu, atvinnu-
starfsemi og þjónustu. Hann
sagði þetta gagnrýnisatriði
til marks um að það væri
vandlifað fyrir skipulagsyfir-
völd en tillagan væri nú lögð
fram til að koma til móts við
þær raddir sem bæðu um að
almenningi væru kynntar
skipulagshugmyndir meðan
vinna stæði yfir en ekki þeg-
ar fullmótaðar tillögur lægju
fyrir og kvaðst sammála því
sjónarmiði. Ekki væri betra
að loka öllum leiðum fyrst
og kynna síðan hugmyndir.
Betra væri að kynna málin á
því stigi að möguleiki væri
að gera breytingar á aðal-
skipulagi komi í ljós að fyr-
irætlanir um deiliskipulag
gangi ekki upp.
Dyrum haldið opnum
„Það er verið að reyna að
halda öllum dyram opnum
og ég held að það sé farsæl-
ast,“ sagði Sigurður.
Fyrrgreint svæði, sem
verið hefur landbúnaðar-
svæði í einkaeigu en er nú
skipulagt sem íbúðar-, úti-
vistar- og þjónustusvæði, er
um þessar mundir að kom-
ast í eigu bæjarins, að sögn
Sigurðar, en eignarnáms-
heimild er fengin og samn-
ingaviðræður við landeig-
endur langt komnar.
Aðspurður um kaupverð
sagði bæjarstjóri að ekki
væri hægt að upplýsa það að
svo stöddu.
„Það væri mjög óásættan-
legt af minni hálfu að hluti
af byggðinni væri á einka-
landi. Þá ætti viðkomandi
landeigandi að sjá þar um
þjónustu, mokstur og fleira
en auðvitað mundu íbúar
alltaf leita til okkar,“ sagði
hann.
Sigui-ður sagði að við end-
urskoðun aðalskipulagsins
og gerð deiliskipulagsins
væri öllum reglum um lög-
bundið skipulags- og kynn-
ingarferli fylgt mjög ná-
kvæmlega enda væra þær
reglur mjög stífar og fram-
kvæmdin undir eftirliti
Skipulagsstofnunar. Eins og
fyiT sagði kvaðst hann búast
við mörgum athugasemdum
og andmælum um svo við-
amikið mál og sagði að
hverri athugasemd yrði
svarað skriflega. Um það
hvenær hann teldi að fram-
kvæmdir hæfust á nýskipu-
lögðum svæðum kvaðst
hann telja að það yrðu nokk-
ur ár enda stæðu nú þegar
yfir framkvæmdir í Sala-
hverfi.
Rut Kristinsdóttir sagði í
Morgunblaðinu í gær að
ekki hefði verið unnið að
samningaviðræðum við hús-
eigendur á leigulóðum við
Vatnsenda frá því þeim var
sagt upp leigusamningum
með árs fyrirvara í vor en
bæjarstjórinn sagði að skoða
þyrfti hvern og einn samn-
ing og færi mestur hluti
þeirrar vinnu væntanlega
fram í vetur en nauðsynlegt
væri að taka samninga upp
til endurskoðunar og sam-
ræmingar í kjölfar þess að
nýr eigandi, Kópavogsbær,
tæki við hluta landsins.