Morgunblaðið - 10.08.2000, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 10.08.2000, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2000 35 LISTIR Klerkurinn, rabbíninn og’ kaupsýslukonan KVIKMYIVDIR B í ó b o r g i n, L a u g a r á s b í 6 KEEPING THE FAITH ★ ★‘A Leikstjóri: Edward Norton. Hand- ritshöfundur: Stuart Blumberg. Tónskáld: Elmer Bernstein. Kvik- myndatökustjóri: Anastas N. Michos. Aöalleikendur: Ben Stiller, Edward Norton, Jenna Elfman, Anne Bancroft, Eli Wallach, Milos Forman. Sýningartími: 128 mín. Framleiðandi: Touchstone Pictures. Árgerð 2000. KVIKMYNDAHÚSAGESTIR eiga því að venjast að sjá hinn unga og magnaða leikara Edward Norton í af- brigðilegum hlutverkum í ofbeldis- myndum einsog „The Fight Club“ og „Ámerican History X“. Pví er það kærkomin tilbreyting að fá að sjá hann spreyta sig í nokkumveginn „normal“ hlutverki í „Keeping the Faith“, sem að auki er íyrsti próf- steinninn á hæflleika hans sem leik- stjóra. Faðir Brian Finn (Edward Norton) situr kófdukkinn og hálfvolandi á bar og veltir mynd af þrem stálpuðum krökkum milli handanna á meðan hann segir barþjóninum sögu sína. Myndin er af honum, besta vini hans, Jake, og stórvinkonu beggja, fjörkálf- inum Önnu Riley. Þau voru óaðskilj- anleg uns foreldrai' hennar fluttu frá New York til vesturstrandarinnar. Það var fyrsta áfallið í lífi þeirra. Árin líða. Jake og Brian búa áfram í New York, samrýmdii' sem fyir, þótt trúarbrögðin séu ólík. Brian er írskur kaþólikki og er orðinn prestur en gyð- ingurinn Jake er hinsvegar orðinn rabbíni í söfnuði sínum. Báðir hug- myndaríkir, hressir og nútímalegir kennimenn. Og allt leikur í lyndi. Einn góðan veðui-dag gerast ör- lagaríkir atburðir. Hver ætli sé að flytja aftur í bæinn önnur en sprelli- gosinn Anna? Það verður uppi fótur og fit og vinirnir taka á móti gamla fé- laganum sínum á flugvellinum, og missa andlitið. Anna er orðinn stór- glæsilegur hörkukvenmaður og kaupsýslukona í fremstu röð. í stuttu máli verða þeir báðir ástfangnir við fyrstu sýn, en ljón eru í veginum. Jake gyðingur og rabbíni í ofanálag, þeir eiga ekki að blanda blóði sínu við aðra en réttrúaða. Brian vitaskuld harðgirtur sínu skírlífisheiti. Lengst af er Keeping the Faith óvenju vel skrifuð og leikin rómantísk gamanmynd, með skemmtilega óvenjulegan bakgrunn. Brian og Jake eru tímamótamenn í kennimanna- stétt sem galsast við söfnuði sína og handritshöfundurinn, Stuart Blum- berg, dregur upp skýra og oft bráð- íyndna mynd af hinum ólíku trúar- samfélögum. Æskuárin eru einnig sýnd í notalega léttum dúr, fáeinum stuttum svipmyndum af þrem gal- gopum (sem við minnumst vonandi sjálf úr æsku). Upphafsatriðið á bam- um er einnig vel skrifað og hittir í mark; fyndið og tilfinningaríkt, mað- ur hreinlega hlakkar til framhaldsins. Allt gengur vel um hríð. Þtta er skemmtileg blanda að íylgjast með, harðsoðinn kaupsýslumaður og mót- mælandi og lífsglaður gyðingur og kaþólikki. Samsteypa mannlífsins í New York, þar sem nánast öllum trúarhópum og þjóðarbrotum heims lýstur saman í eina, litríka kviku. Sjálf- sagt fer Blumberg frjálslega með hefð- ir og siði hópanna, það skiptir ekki öllu máli. Hinsvegar tekst honum að gera þennan samruna glaðhlakkalegan - uns ástin kemur til sögunnar. Keeping the Faith hættir að vera jafn hress og skynsamleg afþreying þegar vinimii- fara að bítast um vin- konuna og versnar enn til muna er hún breytist í einskonar „Rocky í samkunduhúsinu" og þar fram eftir götunum. Höfundurinn grípur til ódýrustu bragða til að kalla fram happ í endinn, þetta viðkunnanlega og áhugaverða fólk verður allt í einu gamalkunnar holhvúddklisjur. Mikil synd, eins fína spretti og myndin á. Uppúr stendur hörkugóður leikur hjá Norton og Stiller, sem kemur ekki á óvart Norton margbúinn að sanna sig sem einn besti kvikmyndaleikari sam- tímans og Stiller hefur gert minnis- stæða hluti, ekki síst í There’s Some- thing about Mary. Jenny Elfman er spumingarmerldð. Kemur ákaflega flott og galvösk til leiks en yfir henni er einhver óaðlaðandi æðibunugangur leikara sem hefiir allt lært í sjónvarps- grínþáttum. Gömlu brýnin, Ann Ban- croft og Eli Wallach, em alltaf til bóta. Útkoman er misjöfti mynd, lengst af skemmtileg og skynsamleg uns hún fær í kollinn Hollywood-fluguna að allt sé gott ef það bara endar nógu fjári dúllulega. Úeikstjómin hjá Norton? Einsog hann hafi ekki gert annað um dagana. Sæbjörn Valdimarsson W I i 1 I I I 1 I ; I 1 I I 1 i I I I I I 1 1 I i I g I 1 i 1 1 1 I g I ! He&E ir Dregið verður úr skorkortum (aðeins viðstaddra) að lokinni keppni. Vinningar m.a.: Glæsilegar matarkörfur frá Argentínu Vöruúttektir frá Flísabúðinni o.fl. o.fl. FLfSASKERAR 'ÖCFLfSASAGIR Aukaverðlaun fyrir að vera næstur holu á öllum par 3 holunum, 2. högg á 18. braut og lengsta upphafshögg á 7. braut. Rástímar fyrir hádegi kl. 8-10, eftir hádegi kl. 13-15. Keppnisgjald kr. 2.000 Skráning í síma 482 3380 eftir kl. 17.00. !|J Stórhöfða 21 við Gullinbrú, i i FLISABUÐIN 2000 Opið golfmót á Öndverðarnesvelli laugar- daginn 12. ágúst - 18 holu punktakeppni Glæsileg verðlaun fyrir 1.-6. sæti I 1 I 1 I I I i I I I I S 1 £ I 1 s i | ! I i 0 r3J3J3J3J3J3J3í3J3J3J3J3J3J3J3J3J3J3J3J3í3J3J3J3J3J3J3J3J3J3J3í3J3J3J3J3J3J3J3J3J3J3J3J3J3J3J 0 -*v.. mmjL ^ | staf staf. | hinn árlegi stórdansleikur MILUÓMAMÆRIMGAMMA ásam t Bjarna Arasyni, Páli Ósk ari, 'agnan Djarnasgm, og Dogomi 12. ógúst á Bpoadwcnj I Fcnt FORSALA AÐGONGUMIÐA fimmtudag og föstudag í Hljóðfæraversluninni Samspil-Nótan, Skipholti 21, sími 595 1960 Laugardag frá kl. 13.00 á Broadway, simi 533-1100 SPARIKLÆÐNAÐUR MIÐAVERÐ KR. 1.700 HÚSIÐ OPNAÐ KL. 22.00 Jj samspil znútan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.