Morgunblaðið - 10.08.2000, Side 22

Morgunblaðið - 10.08.2000, Side 22
22 FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2000 URVERINU MORGUNBLAÐIÐ Siglingastofnun fslands 1,1 milljarður til hafnargerðar REKSTRARGJOLD Siglingastofn- unar árið 1999 námu 454 milljónum króna og opinber framlög til rekstrar 457 milljónum króna. Sér- tekjur stofnunarinnar voru 142 milljónir en framlag á fjárlögum 315 milljónir. Kostnaður við ríkis- styrktar framkvæmdir sem Sigl- ingastofnun hafði umsjón með árið 1999 nam samtals 1.246 milijónum en þar af var kostnaður við hafnar- gerð 1.197 milljónir og kostnaður við sjóvarnargarða 49 milljónir. Ársskýrsla Siglingastofnunar ís- lands er komin út en hún er nú í fyrsta skipti gefín út á nýju formi og koma þessar upplýsingar þar fram. í formála Hermanns Guð- jónssonar, forstjóra Siglingastofn- unar, segir að mikil gerjun sé í þeim verkefnum og reglum sem stofnunin vinnur að vegna aukins Evrópusamstarfs. Stofnunin hefur gengist undir margar samræmdar reglur sem samdar eru erlendis og gerir það auknar kröfur til stofnun- arinnar. Jafnframt leggur Her- mann áherslu á aukna áherslu á upplýsingamiðlun en stofnunin hef- ur leitast við að byggja upp öflugt upplýsinganet á liðnum árum. Stofnunin er með eigin heimasíðu auk þess sem hún gefur reglulega út fréttabréfið Til sjávar þar sem upplýsingar um allt það helsta sem viðkemur stofnuninni er að finna. Á árinu var jafnframt tekin ákvörðun um að ráðast í ritun sögu vitamála. Níu bátar voru sviptir veiðileyfi FISKISTOFA svipti níu báta veiðileyfi í júlímánuði með vísan til laga um nytjastofna sjávar en allir voru bátarnir sviptir veiðileyfi fyr- ir afla umfram aflaheimildir. Bát- arnir eru Gjafar VE, Reynir GK, Bjarmi VE, Bára IS, Una SU, Guðbjörg Ósk VE, Pétursey VE, Flatey AK og Hafnarey SF. Leyf- issvipting gildir þar til aflamarks- staða bátanna hefur verið lagfærð en Gjafar, Bjarmi og Guðbjörg Ósk hafa allir fengið leyfi sitt aft- ur. Vandaðir sturtuklefar Ifö og Megius sturtuklefarnir eru fáanlegir úr plasti eða öryggisgleri, rúnaðir og homlaga. Framhurðir og horn, einnig heilir klefar. Ifö - sænsk gæðavara 74 - 80 - Hornlaga 77 - 80 - Rúnaðir 87 - 90 - Rúnaðir 86 - 92 - Hornlaga Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur Sími: 5641088 • Fax: 5641089 • tengi.is Vilhelm Þorsteinsson EA í skipasmiðastöð Kleven Verft AS í Noregi. Nýtt Samherjaskip kemur í september VERIÐ er að leggja lokahönd á smíði tog- og nótaveiðiskipsins Vil- helms Þorsteinssonar EA fyrir Samherja hf. hjá Kleven Verft AS í Noregi en þangað var skipsskrokk- urinn dreginn um miðjan mars sl. frá Stocznia skipasmíðastöðinni í Gdansk í Póllandi. Að sögn Krist- jáns Vilhelmssonar, framkvæmda- stjóra útgerðarsviðs Samherja, er áætlað að verklok verði í lok ágúst og skipið komi til landsins í sept- ember. Búið sé að gangsetja flest- an búnað en svo fremi sem ekkert komi upp á í álagsprófunum eigi áætlanir að standast. Kostnaður við smíðina er áætlað- ur um 1.400-1.500 milljónir króna. Skipið verður án efa eitt best búna skipið í íslenska fiskiskipa- flotanum. Það er 79 metra langt og 16 metra breitt. Aðalvél þess er 7.500 hestöfl. Um borð verður full- kominn vinnslubúnaður til fryst- ingar og vinnslu á bolfiski, síld og kolmunna. Frystilestir skipsins rúma 650 tonn af frosnum afla í fyrstilest og um 1.100 tonn af fiski í kælitönkum. I skipinu eru íbúðir fyrir 28 manns. Islendingar flylja út norska rækju án tolla BÆÐI ísland og Noregur hafa gert samninga við Evrópusambandið um evrópskt efnahagssvæði en Norð- menn eru nú farnir að velta fyrir sér hversu ólíkir samningarnir eru. Á meðan Norðmenn greiða 7,5% toll af pillaðri og frystri rækju umfram 5.500 tonn sem flutt er til landa Evrópusambandsins borga Islend- ingar engan toll, ekki heldur af iðn- aðarrækju sem keypt er af Norð- mönnum og unnin til útflutnings hér. ESB vill ekkert gera Kolbjorn Pettersen, sölustjóri Uniprawn í Tromsö, segir í samtali við fréttavef FIS að Norðmenn hafi rætt þessi mál við Evrópusambandið en þeir hafi ekkert viljað gera. Hann segir jafnframt að rækjuútflytjend- ur hafi talað við norsk stjórnvöld en ekkert hafi komið út úr því heldur. „Við erum að keppa við Islending- ana á breska markaðnum en þar geta þeir undirboðið okkur vegna tollanna sem aðeins við þurfum að greiða." Það sem Norðmönnum þyk- ir þó verra er að stór hluti rækjunn- ar sem seld er sem íslensk á breska markaðnum er norsk rækja sem hef- ur verið flutt til íslands og endurút- flutt til Bretlands. Á fyrstu sex mánuðum ársins fluttu íslendingar 5.834 tonn af rækju inn frá Noregi samanborið við 3.422 tonn árið áður en það er um 70% aukning. „Islendingar endur- vinna og pakka norsku rækjunni sem íslenskri og flytja hana síðan til Bretlands án tolla á meðan við þurf- um að greiða 7,5% tolla fyrir sömu rækju,“ segir Pettersen. Þrátt fyrir þetta þýðir aukinn út- flutningur Norðmanna til íslands það að þeir geta keypt meira magn rækju af rússneskum togurum til vinnslu. Það sem af er þessu ári hafa rússneskir togarar landað 13.000 tonnum af rækju sem er 60% aukn- ing frá fyrra ári. Pettersen segir að ef Norðmenn flytji rússnesku rækjuna beint til einhverra landa Evrópusambands- ins leggist á hana 20% tollar. Þeim er hins vegar heimilt að hafa 10% af rússneskri rækju í rækjunni sem þeir flytja út og það nota þeir sér óspart. Pettersen segir að gæði hráu, frosnu rækjunnar frá Rússun- um séu mikil en hann segir hins veg- ar að soðna rækjan sem þeir eru að selja sé ekki eins góð og líkti henni við gamalt strokleður. Rafræn fískviðskipti beint milli fyrirtækja á Netinu SeafoodAlliance markar stefnuna MEÐLIMIR SeafoodAlliance.com funduðu á dögunum í New York með fyrirtækinu Terrapin Partners, en það hefur annast tæknilega vinnu fyrir fyrirtækjahópinn. Tvö íslensk fyrirtæki eiga aðild að vinnuhópnum, Coldwater og SIF, en íyrirtækja- hópnum er ætlað að kanna mögu- leika fiskiðnaðarins á rafrænum við- skiptum fyrirtækja á milli á vefnum, en hópurinn hefur unnið að þessu verkefni undanfarna þrjá mánuði. Niðurstöður hópsins sýna að vef- urinn og rafræn viðskipti á milli fyr- irtækja gefa mikla möguleika í fram- tíðinni. Nú er verið að kanna hvort það kemur betur út fyrir fyrirtækin að stofna sína eigin vefþjónustu utan um viðskiptin eða hvort þau eiga að ganga inn í þjónustu sem til er fyrir, en það kom fram að ekki hefur fund- ist þjónusta sem uppfyllir öll þau skilyrði sem fyrirtækin setja. Það var þó samdóma álit allra fyrirtækj- anna að halda áfram að vinna að verkefninu. Henry Demone, yfirmaður Sea- foodAlliance.com, segir að hópurinn muni vinna áfram að sérlausnum fyr- ir iðnaðinn. „Allir aðilar hópsins eru ánægðir með þá hugsanlegu hag- ræðingu sem netvæðing viðskipt- anna hefur í för með sér. Við munum halda þessari vinnu áfram og innan skamms mun koma í ljós hvert fram- haldið verður. Forsenda áætlana okkar er að bæta viðskipti íýrir- tækja og landa á milli og fá fleiri þátttakendur í lið með okkur víðs- vegar að úr heiminum." Aðilar SeafoodAlliance.com eru Coldwater Seafood, SÍF, American Seafood, The Barry Group, Clearwater Fine Foods, Fishery Product International, High Liner Food, Pacific Trawler, Pacific Sea- food Group, Sanford Ltd., Scandsea AB og Youngs Bluecrest Seafood Ltd. Saman selja þessi fyrirtæki sjávarfang fyrir sem nemur 400 milljarða íslenskra króna árlega.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.