Morgunblaðið - 10.08.2000, Síða 30
30 FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2000
MORGUNB LAÐIÐ
LISTIR
Freisting Jesú. Ef þú ert sonur Guðs, þá kasta þér ofan.
Lúk. 4:9.
Freisting Jesú. Þá fór djöfullinn frá Jesú. Og englar
koniu og þjónuðu honum. Matt.4:l 1.
Kristur
með augum
Karólínu
SÝNING á verkum Karólínu Lárusdóttur stendur yfir þessa
dagana í Hallgrímskirkju í tilefni af þúsund ára afmæli
kristnitöku á Islandi. Á sýningunni eru sjö vatnslitamyndir
og fjögur olíumálverk.
Það var Listvinafélag Hallgrímskirkju sem bauð Karólínu
að sýna í kirkjunni og þegar listakonan kom með myndirn-
ar frá Englandi í sumarbyrjun gaf hún Listvinafélaginu
þær til ágóða fyrir listastarf í kirkjunni.
Þóra Kristjánsdóttir hjá Listvinafélaginu segir myndirnar
mikinn feng fyrir kirkjuna og velur orðið höfðingsskapur
til að lýsa gjöfinni. Einkum ber hún lof á olíumyndirnar,
sem séu klárlega málaðar með fsland og íslenskan veru-
leika í huga.
„Þær sýna Krist og freistarann í íslensku landslagi og
eru ákaflega skýrar og klárar í einfaldleika sínurn. Kristur
er hvítklæddur og freistarinn svartklæddur. Á fyrstu mynd-
inni er freistarinn að segja Jesú að breyta íslensku hraun-
grjóti í brauð. Á annarri myndinni standa þeir uppi á þak-
inu á Hótel Borg og freistarinn segir Jesú að kasta sér þar
ofan. Á þriðju myndinni eru þeir úti í auðninni, á íslenskum
öræfum, og freistarinn segir: „Allt þetta mun ég gefa þér,
ef þú fellur fram og tilbiður mig.“ Og á þeirri fjórðu og síð-
ustu er djöfullinn flúinn frá Jesú og englar komnir til þess
að þjóna honum.“
Sjö myndir á sýningunni eru seldar og gerir Þóra fast-
lega ráð fyrir að hinar fjórar fari líka. Verð myndanna er á
bilinu 350-450 þúsund krónur.
Sýningin verður í kirkjunni út ágúst.
Freisting Jesú. Ef þú ert sonur Guðs, bjóð þú þá steini
þessum, að hann verði að brauði. Lúk. 4:3.
Freisting Jesú. Allt þetta mun ég gefa þér, ef þú fellur
fram og tilbiður mig. Matt. 4:9.
Ræktaðu garðinn þinn
MYNDLIST
gallerí@hlemmiir.is.
Þverholti 5
BLÖNDUÐ TÆKNI -
HILDUR JÓNSDÓTTIR
Til 13. ágúst. Opið fimmtudaga til
sunnudaga frá kl. 14-18.
HILDUR Jónsdóttir hefur sett
upp sýningu með myndbandi sem
hún kallar Garður og steinar -
Garten und Steine á þýsku - þar
sem hún stendur á hvítum kjól í
dúnmjúkri mosabreiðu - að öllum
líkindum í Eldhrauni á Síðu - og
dæmigerðu íslensku roki. Hún rétt-
ir fram stein í lófa sér og spyr
áhorfendur hvar setja skuli hann
niður svo hún geti fundið hann aft-
ur.
Umhverfís skjáinn hefur Hildur
komið fyrir töflum eða opnum skáp-
um með litblýantsteikningum af
garðinum sem í raun er endalaust
flæði náttúrunnar sem við þekkjum
svo vel þegar við yfirgefum byggð
og hverfum á vit landsins. Sumpart
íklæðist Hildur gyðjugervinu -
manni verður hugsað til fjallkon-
unnar; móður náttúru og allra
huldumeyjanna sem þjóðsögumar
segja að búi í ósnortnum hraun-
borgum og mosagrónum lautum -
en í annan stað er sýning hennar
áþekk kennslustund í umhverfis-
vemd; ákall gyðjunnar til áhorfand-
ans um að virða náttúruna sem lif-
andi svið einstaklingsbundinna
fyrirbæra.
Ef til vill munu einhverjir kveða
upp þann dóm yfir Hildi að sýning
hennar sé full af barnaskap. Henni
ætti að vera í lófa lagið að finna
steininn sinn aftur. Hún þarf ekki
annað en líma á hann skyndepil og
kalla hann svo upp með merkja-
nema. En Hildur er væntanlega að
tala um hvern stein og hverja jurt,
mosaþembu og hraunhvilft, sem
einungis verða kunnugleg þeim sem
þekkja svæðið eins og heimahaga
sína.
Það sem er eftirtektarvert við
sýningu Hildar er tilvísunin - vís-
vitandi eða ómeðvituð - til klass-
ískra tíma; upplýsingaraldarinnar
og bernsku rómantískrar náttúra-
dýrkunar með öllu því huldufólki og
náttúravættum sem átjánda öldin
tók að draga fram úr alþýðlegum
skúmaskotum. Ef til vill er það til-
viljun ein að Hildur skyldi gera
slíkt myndband í Þýskalandi - hún
hefur stundað framhaldsnám í
Hamborg á undanförnum áram -
og þó; hefði yrkisefnið komið til
hernnar með jafnsjálfsögðum hætti
ef hún hefði verið stödd annars
staðar? Án þess að skrifa of mikið á
kostnað dvalarlands Hildar þá má
segja að andi sýningar hennar komi
merkilega heim og saman við þýska
menningarsýn í nútíð og fortíð. Það
er auðvitað ekki til vansa því fyll-
ingin í verkum Hildar verður mun
meiri fyrir vikið. Ef til vill eram við
aftur komin til áfangastaðar í list-
þróuninni þar sem við getum kall-
ast á við fortíðina án þess að hljóma
of hjáróma. Með innileik sínum og
einlægri nálgun tekst Hildi að hitta
á vænlega bylgjulengd, ríka af
óplægðum möguleikum.
Halldór Björn Runólfsson
Kammertón-
leikar á Kirkju-
bæjarklaustri
flokknum Tel Jour Telle Nuit eftir
Francis Poulenc ásamt Eddu Er-
lendsdóttur. Næst leikur Islenska
píanótríóið, sem skipað er þeim Sig-
urbirni Bernharðssyni, Sigurði
Bjarka Gunnarssyni og Nínu Mar-
gréti Grímsdóttur, Píanótríó í e-moll
op. 67 eftir Dmitri Shostakovich.
Eftir hlé verður frumflutt verk Mist-
ar Þorkelsdóttur við texta Sigur-
björns Einarssonar biskups, sem ber
heitið Á kristnitökuári á Kirkjubæj-
arklaustri. Verkið var skrifað sér-
staklega af þessu tilefni og era flytj-
endur Sigurbjörn Bernharðsson, Sif
Tulinius, Guðrún Hrund Harðar-
dóttii', Sigurður Bjarki Gunnarsson,
Edda Erlendsdótth' og Finnur
Bjarnason. Á undan flutningi verks-
ins mun Sigurbjörn Einarsson lesa
ljóðabálkinn upp.
Sunnudagur
Á sunnudagstónleikunum sem
hefjast kl. 15 leikur íslenska píanó-
tríóið tríó í e-moll eftir Sveinbjörn
Sveinbjörnsson. Þá mun Finnur
Bjarnason flytja sex ljóð eftir Franz
Schubert ásamt Eddu Erlendsdótt-
ur. Síðast á efnisskránni er píanó-
kvintett í es-dúr op. 44 eftir Robert
Schumann, sem strengjakvartettinn
mun leika ásamt Eddu Erlendsdótt-
ur.
Morgunblaðið/Gísli Sigurðsson
Frá Kirkjubæjarklaustri.
ÞRENNIR tónleikai' verða haldnir á
vegum Kammertónleika á Kirkju-
bæjarklaustri um helgina. Þeir era
haldnir á föstudag, laugardag og
sunnudag og era efnisskrár þeh-ra
ólíkar hvert sinn.
Föstudagur
Tónleikamir á föstudag era um
kvöldið kl. 21. Tónleikarnir hefjast á
Tvfleik eftir Jón Nordal fyrir fiðlu og
selló, sem Sigurbjörn Bernharðsson
og Sigurður Bjarki Gunnarsson
munu flytja. Guðrún Hrund Harðar-
dóttir og Edda Erlendsdóttir leika
næst sónötu nr. 4 op. 11 eftir Paul
Hindemith fyrir víólu og píanó og
loks verða sungin fjögur Ijóð eftir
Johannes Brahms op. 9, af Finni
Bjarnasyni við undirleik Eddu Er-
lendsdóttur. Eftir hlé verður fransk-
ur blær á efnisskránni, þá flytja
Nína Margrét Grímsdóttir og Sif
Tulinius Tzigane eftir Maurice Ravel
fyrir fiðlu og píanó. Síðasta verkið á
tónleikum kvöldsins er ljóðaflokkur-
inn La Bonne Chanson íýrir píanó-
kvintett og tenór. Finnur Bjarnason,
Nína Margrét Grímsdóttir og
strengjaleikararnir fjórh' flytja.
Laugardagur
Á laugardag kl. 17 mun Finnur
Bjarnason hefja tónleikana á ljóða-