Morgunblaðið - 10.08.2000, Síða 37
36 FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 2000 37
fNtggmiMflifeifr
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson.
Ritstjórar: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
LÍNUR FARNAR AD SKÝRAST
Flokksþing Repúblikanaflokks-
ins var haldið í síðustu viku
og nú liggur fyrir hver verða
varaforsetaefni frambjóðendanna
tveggja. Síðar í mánuðinum halda
demókratar flokksþing sitt í Los
Angeles og í kjölfar þess hefst loka-
sprettur bandarísku kosningabarátt-
unnar.
Val frambjóðenda á varaforseta-
efni getur haft töluverð áhrif á af-
stöðu kjósenda en í ljósi reynslunnar
ræður það vart úrslitum. Jafnvel
þótt flestir séu sammála um að Dan
Quayle hafi ekki verið heppilegasti
kosturinn sem George Bush hefði
getið valið árið 1988 breytti það ekki
því að Bush vann sigur í kosningun-
um.
Varaforsetaefnið getur hins vegar
styrkt forsetaframbjóðandann með
því að bæta hann upp á þeim sviðum,
þar sem hann er hvað veikastur fyrir.
Sé litið til kosninga síðustu áratuga
hefur valið á varaforsetaefni fyrst og
fremst haft áhrif í skoðanakönnunum
þegar greint er frá því hver hefur
orðið fyrir valinu. Áhrifanna gætir
hins vegar vart þegar fram í sækir og
kosningabaráttan sjálf hefst. Þó er
val John F. Kennedys á Lyndon B.
Johnson 1960 sennilega skýrt dæmi
um það, að val varaforsetaefnis geti
ráðið úrslitum kosninga.
Það er forvitnilegt að velta fyrir
sér vali frambjóðendanna tveggja á
varaforsetaefni. George W. Bush,
sem sakaður hefur verið um reynslu-
leysi og státi ekki af öðru en að vera
ríkisstjóri í Texas, valdi Dick Chen-
ey, fyrrum öldungadeildarþingmann
og varnarmálaráðherra. Gore, sem
hefur átt erfitt með að losa sig undan
arfleifð Clintons, tilnefnir Joseph
Lieberman, sem reis upp í öldunga-
deildinni á sínum tíma og gagnrýndi
Clinton harðlega fyrir framferði
hans í Lewinsky-málinu. Lieberman
gæti því hugsanlega losað Gore úr
álögum Clintons.
Stundum ráða landfræðileg sjón-
armið vali varaforsetaefna. Sú er
ekki raunin í þetta skipti heldur hafa
þeir Gore og Bush báðir valið reynda
og hæfa menn, sem þeir telja sig geta
treyst og átt auðvelt með að starfa
með sigri þeir í kosningunum í haust.
ENN ALVARLEGT
Fólk var ekki búið að jafna sig á
fréttum um hin hörmulegu slys
verzlunarmannahelgarinnar, þegar
nýtt áfall reið yfir í gærmorgun
vegna alvarlegs umferðarslyss, þar
sem tveir létu lífið og hinn þriðji er
alvarlega slasaður.
Umferðaryfirvöld hafa gripið til
rpjög víðtækra ráðstafana á undan-
förnum vikum til þess að reyna að
koma í veg fyrir slys. Þrátt fyrir
góðan vilja og alvarlegar ráðstafan-
ir hefur það ekki tekizt.
Slysið, sem varð í gærmorgun,
vekur m.a. eftirfarandi spurningar:
Er nauðsynlegt að grípa til enn
róttækari aðgerða gegn hröðum
akstri á þjóðvegum með harðari
refsingum og hærri sektum?
Umferð stórra flutningabíla með
tengivagna og rútubíla hefur stór-
Valið á varaforsetaefnum varpar
hins vegar litlu ljósi á það, hvaða mál
verða sett á oddinn í kosningabarátt-
unni. Skoðanir þeirra Gore og
Liebermann eru þannig ólíkar í ýms-
um málum. Báðir eru þeir staðfastir
stuðningsmenn frjálsra alþjóðavið-
skipta. Lieberman hefur hins vegar
tekið sér stöðu til hægri við Gore í
mörgum málum og má nefna stuðn-
ing hans við hugmyndir um ávísana-
kerfi í skólakerfinu sem dæmi. Ekki
síst er það athyglisvert að Lieber-
man er gyðingur og strangtrúaður
sem slíkur. Liggur þegar fyrir að
hann muni ekki taka þátt í kosninga-
baráttu demókrata á hvíldardögum
gyðinga. Þrátt fyrir að gyðingar hafi
gegnt lykilhlutverki í Bandaríkjun-
um alla síðustu öld og að gyðingar
hafi skipað mörg æðstu embætti rík-
isins (má nefna Henry Kissinger
fyrrum utanríkisráðherra og hæsta-
réttardómarana Louis Brandeis og
Felix Frankfurter sem dæmi) yrði
Lieberman fyrsti gyðingurinn í vara-
forsetaembætti í sögu Bandaríkj-
anna, næði Gore kjöri. Jafnframt á
eftir að sýna sig hvort trúmál gegni
einhverju hlutverki í bandarískum
forsetakosningum í fyrsta skipti frá
því hinn kaþólski John F. Kennedy
náði kjöri árið 1960. Alls ekki er víst
að svo verði. Lieberman nýtur virð-
ingar í flestum hópum, jafnvel meðal
íhaldsmanna, og mun valið á honum
vafalítið styrkja stöðu Gores.
Það hefur jafnframt dregið athygl-
ina frá repúblikönum sem böðuðu sig
í sviðsljósinu í síðustu viku á flokks-
þingi sínu í Fíladelfíu. Þar kom
greinilega fram að Bush leggur
áherslu á að hann er „mýkri“ íhalds-
maður en margir af samflokksmönn-
um hans og virtist eitt helsta mark-
mið flokksþingsins vera að sýna fram
á að Repúblikanaflokkurinn væri
ekki einskorðaður við miðaldra, hvíta
karlmenn heldur væri hann pólitískt
afl er höfðaði til allra þjóðfélags-
hópa. Áherslubreyting Bush er ekki
einungis á ímyndarsviðinu heldur
einnig efnisleg líkt og hin ríka
áhersla hans á menntamál ber vott
um. Rétt eins og frambjóðandi demó-
krata hefur Bush tekið stefnuna inn
á hina pólitísku miðju.
UMFERÐARSLYS
aukizt með vaxandi vöruflutningum
á landi og verulegri fjölgun ferða-
manna. Er nauðsynlegt af þessum
sökum að setja sérstakar reglur um
hámarkshraða flutningabíla og
rútubíla?
íslenzka vegakerfið er ekki gert
fyrir þá miklu flutninga, sem um
það fara. Á þjóðvegum í öðrum
löndum aka þessir stóru bílar á sér-
stökum akreinum. Hér eru einungis
tvær akreinar og öllum ljóst, að
þegar umferð er mikil er það ekki
bara óþægilegt heldur varasamt.
Vel má vera, að það sé nauðsynlegt
að leggja verulega fjármuni í að
fjölga akreinum á helztu þjóðveg-
um. Það er a.m.k. alvarlegt umhugs-
unarefni. Við getum ekki sætt okk-
ur lengur við þessa óöld á
þjóðvegunum.
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
Jónas Hallgrímsson hefur lengi verið í forystu Smyril Line og hefur um tíma verið for-
maður stjórnar félagsins.
Morgunblaðið/HG
Fred Garbe, framkvæmdastjóri Skipasmíðastöðvarinnar í Flensborg, og Óli Hammer,
framkvæmdastjóri Smyril Line, skrifa undir samning um smíði nýrrar Norrönu.
Anægður ferðamaður
er bezta auglvsingin
Ljósmynd/Pétur Kristjánsson
Mikilla hafnarframkvæmda er þörf áður en hin nýja Norröna getur lagzt að bryggju á Seyðisfirði.
FARÞEGAFERJAN Nor-
röna hefur verið tengilið-
ur okkar við Færeyjar,
Noreg, Hjaltland og
Danmörku mörg undanfarin ár.
Það er um aldarfjórðungur síðan
Smyrill hóf áætlunarsiglingar milli
íslands, Færeyja, Noregs og Dan-
merkur, en Norröna tók við af
honum árið 1983. Nú hefur verið
ákveðið að byggja nýja Norrönu
og verður hún afhent 31. marz
2002. Skipið kostar um 6,4 millj-
arða íslenzkra króna og er stærsta
einstaka fjárfesting einkaaðila í
Færeyjum.
Það eru Færeyingar sem eiga
meirihlutann í Smyril Line, sem
gerir Norrönu út, en félagið á
einnig hótel í Færeyjum, ferða-
skrifstofur á Norðurlöndunum og
flutningafyrirtæki í Danmörku svo
eitthvað sé nefnt. Islendingar eiga
um 6% hlutafjár í Smyril Line, en
þeir komu inn í dæmið 1983. Jónas
Hallgrímsson hefur setið í stjórn
Smyril Line um langt árabil og
síðastliðum 5 árin hefur hann ver-
ið stjórnarformaður. Hann á
ásamt feiri Austfirðingum og rek-
ur fyrirtækið Austfar, sem sér um
afgreiðslu farþega og fragtar á
Seyðisfirði. Morgunblaðið ræddi
við Jónas vegna þessa mikla
áfanga í starfseminni:
Hófst árið 1975
„Þetta byrjaði allt í upphafi árs-
ins 1975,“ segir Jónas. „Færeying-
arnir fóru fyrst af stað undir for-
ystu ungs og upprennandi manns
að nafni Thomas Arabo, sem þá
nýlega var orðinn forstjóri
Strandfaraskipa landsins og reikn-
uðu út að þetta ætti allt að geta
gengið upp. Þeir keyptu þá notaða
ferju sem hét Morten Mols. Þetta
skip fékk nafnið Smyrill og það
kom til íslands í fyrsta sinn í júní
1975. Fjórum til fimm árum seinna
keyptu þeir svo systurskip Smyr-
ils sem fékk nafnið Teistan. Hún
var svo svo notuð í siglingar milli
eyja í Færeyjum og sem varaskip í
íslandssiglinguna þegar Smyrill
hafði ekki undan og kom hún
nokkrum sinnum til Islands.
Færeyska landstjórnin átti og
rak útgerðina fyrst í stað og voru
miklar deilur í Færeyjum um
þennan ráðahag, einkum uta-
landssiglinguna og hermt er að
ekki færri en tvær landstjórnir
hafi fallið á málinu. Eiiihverjir
vildu vildu kaupa stærri skip og
fullkomnara og sigla líka yfir vet-
urinn, en það féll ekki í góðan
jarðveg hjá einkaaðilum í líkri
starfsemi. Þetta endaði svo með
því árið 1982 að stofnaður var fé-
lagsskapur sem hlaut nafnið
Smyi'il Line og tók hann utan-
landssiglinguna yfir. Þetta er al-
rnenningshlutafélag stofnað að for-
göngu Óla Hammer,
framkvæmdastjóra félagsins með
þátttöku landsstjórnar Færeyja,
og komu íslendingar inn í rekstur-
inn snemma árs 1983 og eiga þeir
um 6% til 7% hlutafjár nú. Það var
svo 1983 sem nýtt skip, Norröna,
var keypt og kom hún iyrst til Is-
lands í júní sama ár. Hún hefur
verið 1 þessum áætlunarsiglingum
sleitulaust öll sumur síðan og í
ýmsum öðrum verkefnum á vet-
urna. Þetta hefur reynst mikil
happafleyta, afburðagott skip og
farsælt í alla staði.
Gekk misvel að
fínna verkefni
Fyrstu árin var mikil vinna við
að finna skipinu verkefni þegar
það var ekki í áætlunarsiglingum
og það gekk upp og ofan. Ferjan
var stundum leigð til annarra
skipafélaga til að leysa af skip sem
þurftu að fara í slipp. Hún var
einnig leigð til NATO og síðan
sem flóttamannaskip í Kaupa-
mannahöfn í þrjá vetur. Við
reyndum einnig eigin rekstur með
nýrri línu milli Korsör og Kiel, en
það gekk ekki. Þegar svo var kom-
ið að takmarkaðir möguleikar voru
á því að leigja skipið út vildi svo
heppilega til að uppgangstímar
voru að hefjast í Færeyjum á ný.
Stjórn Smyril Line tók því þá
ákvörðun að gera tilraun með að
sigla allt árið og það hefur gengið
nokkuð vel nú í tvö ár. Þá er siglt
til Hanstholm í Danmörku einu
sinni til tvisvar í viku yfir veturinn
og byggðust þessar siglingar fyrst
og fremst á fragt. Að sumrinu höf-
um við svo orðið að leigja flutn-
ingaskip til að geta þjónustað okk-
ar ágætu viðskiptavini í
Færeyjum. I fyrra vorum við með
skip sem hét Claire í þrjá mánuði
og nú erum við með skip sem heit-
ir Tango og það er reyndar burð-
armeira en Norröna og siglir einu
sinni til tvisvar í viku milli Dan-
merkur og Færeyja með fragt.
Nýsmíði boðin út.
Við vorum búnir að leita að skipi
til að leysa Norrönu af hólmi í
nokkur ár, en varð ekkert ágegnt.
Norröna er svo sérhæft og gott
skip og hentar svo vel inn í þessa
áætlun, að það fannst einfaldlega
ekkert nýrra skip sem hentaði í
hennar stað. Það var því ákveðið
að fara í útboð á nýsmíði, sem 7
skipasmíðastöðvar tóku þátt í. Síð-
an var samið við skipasmíðastöð-
ina í Flensborg, sem átti hagstæð-
asta tilboðið, um smíði skipsins,
enda höfðum við góða reynslu af
þeirri skipasmíðastöð, því Norröna
hafði verið þar svo oft til viðgerða.
í þessu skipi verður að segja má
allt sem í einu skipi getur verið og
það er því sambland af hóteli og
fragtskipi. Þetta er lúxushótel með
góðum vistarverum, sem mismikið
ei' lagt í, en í hverjum klefa verður
sjónvarp og baðherbergi. Það er
mikið verzlunan'ými og margir
veitingasalir og barir, fólk getur
farið í bíó, í sund, gufubað, í sól-
baðstofu og líkamsræktina og
margt fleira er til afþreyingar.
Það ættu því allir að geta unað sér
vel um borð.
Þetta er að sjálfsögðu ekki allt
fyrir hendi í gömlu Norrönu, enda
var hún smíðuð upphaflega til
stuttra ferða milli Svíþjóðar og
Þýskalands. Því er mun fæn-a til
afþreyingar þar og ekki gert ráð
fyrir því að fólk dvelji í klefunum
nema til að hvíla sig og sofa, að
undanskildum sex lúxusklefum,
sem eru í skipinu.
Breytt samsetning farþega
Með þessu nýja skipi gerum við
okkur vonir um að fá breytta sam-
setningu farþega. Það verði meira
af fólki, sem er einfaldlega að fara
í lystireisu. Fólki sem fer þá
hringinn og fer í land á hverjum
stað og verzlar og skoðar sig um.
Við gerum svo auðvitað ráð fyiir
því að áfram verði uppistaða far-
þega fólk sem fer á milli landa
með bílinn sinn. Enda eru engar
breytingar fyiirhugaðar á áætlun.
Auk þess að vera lúxushótel
verður nýja skipið nýtízkulegt
flutningaskip með mikla mögu-
leika á því sviði. Möguleikarnir á
báðum sviðum eru því miklir og
ekki ástæða til annars en að vera
bjartsýnn."
Mikil hagkvæmni í rekstri
Er þörf á svona stóru skipi?
„Þegar menn smíða nýtt skip
þarf að huga að því að það geti
þjónað markaðnum um langa
framtíð. Þetta skip leysir ekki
bara Norrönu af hólmi heldur
einnig þau skip sem við höfum
þurft að leigja til fragtflutninga á
sumrin. Það er mikil hagkvæmni í
þessu skipi. Það notar mun ódýr-
ari olíu en Norröna og þá er lagið
á ski'okknum og vélbúnaður allur
hannaður þannig að að rekstrar-
kostnaður verður mun minni en
stærðin bendir til.“
Skipið kostar um 6,4 milljarða
íslenzkra króna. Verður ekki erfitt
að ná endum saman?
„Þetta eru vissulega miklir fjár-
munir, enda er þetta stærsta fjár-
festing einkaaðila í Færeyjum fyrr
og síðar. Við hefðum aldrei gert
þetta nema forsendurnar væru í
lagi miðað við það sem við sjáum
framundan. Það eru ekki bara
stjórnendur Smyril Line sem sem
hafa komizt að þeirri niðurstöðu
að þetta geti gengið. Þeir sem
fjármagna það sem vantar upp á
Átta þilför verða í hinni nýju Norrönu og verður hæð hennar yfir sjávarmáli því eins og meðal fjölbýlishús.
Á neðsta þilfari eru vélarrými og ýmisleg rými tengd rekstri skipsins. Þar er einnig sundlaug, líkamsræktarstöð,
sólbaðsstofa og gufuböð. Á öðru þilfari eru meðal annars kojur í svokölluðum almenningi fyrir rúmlega
300 manns. Næstu tvö þilför eru fyrir fragt og bíla, en þar fyrir ofan á þremur þilförum eru klefar fyrir
farþega, verzlunarsvæði, matsalir, barir og ýmis afþreying.
Farþegaklefar
Þjónustu- og
tæknirými
Veitingasalir og verslanir
5. þilfar
Sundlaug og
sólbaðsstofa
LENGD skipsins er 163,4 metrar,
breiddin 30 metrar og djúprista
um 6 metrar. Hæð skipsins yfir
sjávarmáli er um 30 metrar og
það er um 40.000 tonn. Sem dæmi
um burðargetu á fragt má nefna
að það getur borið 4.300 tonn, á
bílaþilfari eru 1.830 svokallaðir
flutningavagnametrar. Það getur
tekið 130 flutningabfla sem eru 14
metrar á lengd eða 800 fólksbfla. I
skipinu eru fjórar aðalvélar sem
skila samtals 30.000 hestöflum, en
það skilar 21 mflu siglingahraða
að öllu jöfnu. Leyfilegur fjöldi far-
þega er 1.482, samanlagt pláss
framlag okkar, sem meðal annars
byggist á sölu gamla skipsins, hafa
að sjálfsögðu farið ítarlega yfir
þetta dæmi. Þeir hljóta líka að
hafa trú á stjórnendum fyi'h’tækis-
ins sem hafa sýnt mjög ábyrgan
rekstur og til dæmis aldrei tekið
þátt í undirboðum eins og því mið-
ur virðist í gangi um þessar mund-
ir hjá einstökum flugfélögum. Við
rekum þjónustufyrirtæki og reyn-
um að veita góða þjónustu og hún
kostar peninga.
Það er okkur mikill léttir að
þessi áfangi skuli vera í höfn og
það er fyrst og fremst að þakka
hinum ötula framkvæmdastjóra
okkar, Óla Hammer. Hann hefur
leitt hóp manna sem hefur borið
hitann og þungann af undirbún-
ingnum og gert það með einstök-
um sóma.“
Kostnaðarfrekar
framkvæmdir nauðsynlegar
Er höfnin á Seyðisfirði í stakk
búin fyrir svona stór skip og aukn-
ingu ferðafólks og bíla?
„Það er ljóst að við núverandi
aðstæður á Seyðisfirði er ekki
hægt að taka á móti þessu stóra
skipi. Það eru áform um þó nokkr-
ar framkvæmdir sem nauðsynleg-
ar eru og með góðum vilja á að
vera nægur tími til stefnu. Þessar
framkvæmdir gætu kostað í kring-
um 300 til 350 milljónir og felast
þær aðallega í dælingu á sandi úr
höfninni, uppfyllingu fyrir nauð-
synleg hús og bíla og að ramma
niður stálþil í viðlegukant fyrir
fyrir verzlanir er 310 fermetrar,
samanlagt rými veitingastaða og
afþreyingar er 1.420 fermetrar og
sæti á slíkum stöðum eru 1.000.1
skipinu er ein sundlaug, nuddpott-
ur, gufuböð, fjórar sólstofur, líka-
msræktarstöð og fjórar farþega-
lyftur.
í skipinu er ein svíta, 12 tveggja
manna lúxusklefar, 93 tveggja
manna klefar, 40 þriggja manna
klefar og 167 fjögurra manna
klefar. Auk þess eru 324 kojur í
stærri sölum. í áhöfn verða 118
manns.
skipið.
Mér virðist að bæjar- og hafnar-
yfirvöld á Seyðisfirði ætli að
standa með sóma að þessum mál-
um. Lengi hefur verið á áætlun að
dæla upp og dýpka hér til að bæta
aðstöðuna og nú virðist sem hið
opinbera ætli að koma að þessum
málum. En þess ber að geta að
ekki hefur verið mikið lagt til
hafnannála eða samfélagslegra
framkvæmda á Seyðisfirði undan-
farin ár. Við erum ekkert að öf-
undast út í aðra, margt hefur
áunnizt víða um land undanfarin
ár, en einhvern tíman hlýtur að
koma að okkur og nú er þörf fyrir
að hið opinbera taki þátt í þessu
með okkur, enda er um mikið
hagsmunamál fyrir landsbyggðina
að ræða.
Það hefur sýnt sig í könnunum
að ferðamennska af því tagi sem
tengist Norrönu skapar mikil um-
svif sem dreifast víða um landið.
Þetta gæti verið einn liðurinn í því
að bæta og treysta hag lands-
byggðarinnar.
Mikil og góð samstaða
Þetta hefur oft og tíðum verið
anzi hörð barátta og stundum
varla sézt út fyrir borðstokkinn,
einkum fyrstu árin. Hins vegar
hefur verið mikil samstaða og ein-
hugur með eigendum og stjórn-
endum Smyril Line og það hefur
ráðið úrslitum um það að fyrirtæk-
ið stendur nokkuð vel í dag. Fyrir
utan Norrönu eigum við og rekum
Hótel Færeyjar og nýbyggt far-
fuglaheimili við hliðina á því. Fé-
lagið á stórhýsi í miðbæ Þórshafn-
ar, þar sem við erum með
töluverðan rekstur. Við höfum
einnig stofnað flutningafyrirtæki í
Danmörku með aðalaðsetur í
Hanstholm og söfnum og dreifum
vörum um alla Danmörku. Félagið
hefur jafnframt aðstöðu í Kaup-
mannahöfn og Kolding til vöru-
móttöku. Þetta fyrirtæki er rúm-
lega eins árs og var rekið með
hagnaði á síðasta ári. Svo erum við
með ferðaskrifstofu í Reykjavík
sem Smyril Line á helminginn í og
ferðaskrifstofur í Bergen og
Kaupmannahöfn og þar fyrir utan
höfum við umboð vítt um veröld-
ina.
Að miklu leyti hugsjón
Koma þessa skips til Seyðis-
fjarðar hefur mikla þýðingu fyi’ir
staðinn og fyrir ferðaþjónustuna á
landsbyggðinni. Eg er viss um acj^
fólk fyrir norðan okkur og sunnan
á eftir að finna mikinn mun og
aukinn ferðamannastraum við
komu nýs skips. Þetta gefur mikla
möguleika en við, sem í þessari út-
gerð stöndum, verðum líka að
standa okkur í stykkinu og allir
verða að leggjast á eitt við að
finna afþreyingu fyrir ferðafólkið
svo það njóti bæði siglingarinnar
og dvalarinnar á Islandi, því
ánægður ferðamaður er besta
auglýsingin sem við getum fengið.
Sé miðað við íslenzkar aðstæður
gilda önnur lögmál í Færeyjum,
þegar rætt er um rekstur og arð-
semi. Arður af hlutafé í Smyril
Line hefur aldrei verið greiddur
og verður fyrirsjáanlega ekki
næstu árin. Það sem skiptir höfuð-
máli er uppbygging fyrirtækisins
og að fólk hafi atvinnu og ánægju
af því, sem það er að byggja upp
og starfa við. Það er mjög ánægju-
legt að fá að taka þátt í upp-
byggingu af þessu tagi og það gef-
ur lífinu meiri fyllingu. Ekki sízt
ef maður á kost á því að starfa
með svona afbragðs mönnum eins
Færeyingarnir eru. Þessi litla þjóð
er alveg einstök. Að þeir skuli
bæði vera búnir að byggja upp
hafnir og vegakerfi ásamt flugíéw
lagi með tveimur þotum á örfáum
árum og þetta ágæta skipafélag
segir einfaldlega sína sögu. Þótt
einstaklingar hafi haft forystu um
þetta málefni fram að þessu er það
heildin, sem skilar okkur á leiðar-
enda auk velviljaðs fólks í báðum
löndunum." segir Jónas Hall-
gn'msson.