Morgunblaðið - 31.08.2000, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDÁGUR 31. ÁGÚST 2000 33
LISTIR
Níu daga djasshátíð
haldin í Reykjavík
JAZZHÁTÍÐ Reykjavíkur hefst
laugardaginn 2. september með
setningartónleikum í Ráðhúsi
Reykjavíkur kl. 16
Á laugardagskvöld leikur Tómas
R. Einarsson með Jens Winther á
Kaffi Reykjavík , kl. 20.30. Á efri
hæð Kaffi Reykjavíkur leikur
Drum & Brass kl. 22.
Sunnudaginn 27. september
verða þakkargerðartónleikar til-
einkaðir Jóni Múla í Kirkju óháðra
kl. 15. Um kvöldið, kl. 20.30, leikur
Útlendingahersveitin á Broadway
og Tríó Olafs Stolzenwald leikur á
Kaffi Reykjavík kl. 22. Mánudaginn
4. september hefst dagskráin kl.
20.30 á Hótel Borg. Þar verður
sameiginleg dagskrá norrænu
menningarborganna þriggja, Ber-
gen, Helsinki, Reykjavík undir yfir-
skriftinni TRÉ. A Kaffi Reykjavík
kl. 22 verður tónleikar með yfir-
skriftinni Jazzvakning 25 ára og
þar kemur fram Tríó Arne For-
chhammer og kl. 23.30 koma fram
Tríó „Jazzandi" og „Fortral" tríó á
efri hæðinni.
Þriðjudaginn 5. september leikur
Tríó Töykeát frá Finnlandi á Kaffi
Reykjavík kl. 20.30 og á efri hæð
leikur Kvartett Árna Heiðars kl. 22.
Miðvikudaginn 6. september verða
tónleikar í Islensku óperunni kl.
20.30. Þar koma fram Maria
Schneider og Stórsveit Reykjavík-
ur. Á Kaffi Reykjavík leikur Tríó
„FLÍS“ kl. 22.
Hádegis- og pönnukökudjass
Fimmtudaginn 7. september leik-
ur Gítar Islancio með danska klar-
inetleikaranum Jörgen Svare í
Kaffileikhúsiu kl. 20.30 og kl. 22
verða tónleikar með Circumpolar
Tour, kvintett Jóels Pálssonar, á
Kaffi Reykjavík. Föstudaginn 8.
september verða tvennir tónleikar
á Kaffi Reykjavík: Kl. 21 skemmtir
Finnsk-íslenskur kvintett Kristjönu
Stefánsdóttur og kl. 23 Tríó Sigurð-
ar Flosasonar. Laugardaginn 9.
september hefst dagskráin á Hótel
Borg með hádegisdjassi, „Jazz-
brunch“. Þar skemmta Ómar Axels-
son og félagar. í Norræna húsinu
kl. 16 verður Norræn djassungliða-
keppni. Kl. 21 á Kaffi Reykjavíkur
kemur fram 17 manna Bigband
Samúels Samúelssonar og kl. 23
verður Jam session og Funkmast-
ers-dansleikur á Kaffi Reykjavík.
Á síðasta degi hátíðarinnar,
sunnudaginn 10. september, hefst
dagskráin kl. 15 með yfirskriftinni
Pönnukökujazz - Tvöfaldur kvart-
ett Reynis Sigurðssonar og loka-
tónleikarnir verða kl. 20.30 í ís-
lensku óperunni með tónleikum
Dave Holland kvintett.
Vefsíða hátíðarinnar er http://
Go.to/ReykjavikJazz.
Rýmmgarsölunni