Morgunblaðið - 31.08.2000, Side 37
' MÖRGIJNBL'AÐID
LISTIR
' FIMMTUDAGUR'31. ÁGÚST2000 •B7
Morgunblaðið/Bragi Asgeirsson
Einu sinni var lítill gleðigjafi, miðpunktur alheimsins, olía á kúpt bólstr-
að léreft, 2000.
virk á því sviði síðan. Yeigur og
ávinningur myndanna liggur í því
hve vel er staðið að verki, ferskleiki
og útgeislan mikil, lifunarnándin
sterk.
Myndefnið er dótturminning,
meðganga jóðsins Matthildar, sem
lifði einungis í þrjá daga, og eru
þetta ímyndir vonglaðara hugrenn-
inga á níu mánaða meðgöngu, níu
sögur, - níu ævintýri sem móðirin
fékk aldrei tækifæri til að segja
barni sínu. En burtkústuð skyldi
sorg og sút, kraftbirtingur lífsins
virkjaður í minningu horfinnar dótt-
ur; Einu sinni var Lísa í Undralandi,
Einu sinni voru vinkonur í álfheim-
um, Einu sinni var prinsessan á
bauninni, Einu sinni var Öskubuska,
Einu sinni var Þumallingur í appels-
ínu, Einu sinni var lítill gleðigjafi
miðpunktur alheimsins... Þannig
hljóða heiti myndanna, jafnframt
ævintýrunum er aldrei náðu eyrum
barnsins, en birtast nú sjónskynjun
skoðandans sem myndbirtingar
móðurtilfinninga með lífsrásina ei-
lífu að leiðarljósi er gerir tímann að
hverfullri andrá. Það eru svo myndir
mattrar áferðar sem skila sér
ómengaðastar til áhorfandans, eink-
um tvær hinar síðastnefndu og eru
um leið nær æðra stigi handverks,
hugmyndin í þeim skyld yfirraunsæi,
surrealisma, bemskum kenndum
um leið...
Bragi Ásgeirsson
mmmámmmm
FULL BÚÐ
AF NÝJUM VðRUM
Leik mér að
minu gleðiefni
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Sigrún Jónsdóttir kirkjulistakona stendur í miðjunni og með henni eru
Stefanía Davíðsdóttir og Ingibjörg Gunnarsdóttir úr menningarkiúbbn-
um Emblu.
„MÍN hugsjón sem kona hefur verið
að sanna að nálin hafi sama listræna
gildið í hendi listamannsins og pens-
illinn.“ Þetta mælir Sigrún Jónsdótt-
ir kirkjulistakona en um þessar
mundir stendur yfir sýning á verkum
hennar á orgelloftinu í Hallgríms-
kirkju. Þar má líta þverskurð af þeim
verkum sem hún hefur unnið að síð-
astliðin 50 ár. Á sýningunni eru gler-
verk, batíkverk og keramikverk en
mest af útsaumuðum höklum og alt-
arisklæðum.
Sýningin ber heitið í ljósi dýrðar
og hefur kristilega skírskotun. „Öll
verkin eru trúarlegs eðlis,“ segir
Sigrún. „Það er afskaplega eðlilegt
fyrir mig sem er svona trúuð mann-
eskja að vinna trúarleg verk. Ég er
að leika mér að mínu gleðiefni sem er
máttur trúarinnar.“
Ekki hægt að meta tímann
sem fer í sköpunina
Menningarklúbburinn Embla í
Reykjavík stendur að sýningunni í
samvinnu við Listvinafélag Hall-
grímskirkju. „Konui-nar í Emblu áttu
hugmyndina að þessari sýningu og
sáu um að safna saman verkum mín-
um víðsvegar af landinu,“ segir Sig-
rún sem búið hefur í Stokkhólmi síð-
ustu þijátíu ár. Verkin voru lánuð til
sýningarinnar utan örfárra sem eru í
eigu listamannsins. Á sýningunni er
aðeins að finna brot af því sem Sigrún
hefur unnið að á sínum ferli, en yfir
tvöhundruð listaverk hennar prýða
kirkjur og híbýli víðsvegar um heim.
„Þegar ég er beðin um að vinna
verk fyrir kirkju fer ég á staðinn og
kynni mér sögu hans eða umhverfi og
tengi það trúarlegum táknum sem
koma fram í verkinu," segir hún
Hver sá sem skoðar verkin á sýn-
ingunni verður þess fljótt áskynja að
mikil vinna liggur að baki hverju
þeirra. „Ég á mjög erfitt með að
svara því,“ segir Sigrún þegar hún er
spurð hversu lengi hún hafi unnið að
fallega útsaumuðum hökli.á sýning-
unni. „Jafn erfitt og ég á með að
segja hversu mikinn tíma ég notaði í
að ala upp bömin mín.“
Sýningin á verkum Sigrúnar
stendur til sunnudags. Opið er til kl.
18 og er listamaðurinn ævinlega við-
staddur sýninguna eftir hádegi.
PÓST- OG FJ\RSKIFEYSTOFNUX
UMSOKN UM
REKSTRARLEYFI
FYRIR FARSÍMA
Póst og fjarskiptastofnun auglýsir eftir
umsóknum um þriðja rekstrarleyfið til að
starfrækja farsímanet og þjónustu samkvæmt
GSM staðli í 900 MHz tíðnisviðinu.
Gögn verða afhent á skrifstofu stofnunar-
innar, Smiðjuvegi 68-70 í Kópavogi, gegn
gjaldi að upphæð 50.000 kr.
Skrifstofan er opin daglega
frákl. 8.30 til 16.30.
Frestur til að leggja inn umsóknir
er til 15. desember 2000