Morgunblaðið - 14.09.2000, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913
210. TBL. 88. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Hörð mótmæli gegn benzínsköttum halda áfram í Bretlandi og víðar í Evrópu
Tony Blair segir manns-
lífum stefnt í hættu
Lundúnum. Reuters, AP.
Landlaus-
ir í bar-
áttuham
UM 400 félagar í samtökum land-
lausra landbúnaðarvcrkamanna 1'
Brasilíu (MST) skekja verkfæri og
eggvopn í mótmælaskyni fyrir utan
hliðið að búgarði Fernando Henr-
ique Cardosos, forseta Brasilíu, um
170 km frá höfuðborginni Brasihu í
gær.
Landlausir bændur voru 1 mikl-
um ham í gær og hdtuðu að ráðast
inn á búgarð forsetans. Þeir hættu
við það en efndu til mótmælastöðu
við aðalhliðið inn á landareignina
sem er 900 hektarar að stærð. Saka
hinir snauðu bændur ríkisstjómina
um að svíkja loforð um að þeim
verði útvegað búland og veitt lána-
fyrirgreiðsla.
Meðlimir MST hafa vakið al-
þjdðlega athygli á málstað sínum
með því að slá sér niður á landi sem
þeir álíta vannýtt, í því skyni að
þrýsta á stjórnvöld að hraða umbót-
um og enduruppskiptingu lands. I
Brasilíu er um 90% alls ræktarlands
í eigu 20% þjóðarinnar.
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, sagði í gær að hindrun elds-
neytisdreifingar í landinu síðastliðna
sex daga væri farin að stefna manns-
lífum í hættu og lýsti því yfir að hann
myndi ekki láta undan kröfum mót-
mælenda sem vilja knýja fram lækk-
un skatta á eldsneyti. Leiðtogar
Belgíu og Þýzkalands höfnuðu einn-
ig sams konar kröfum í gær.
Brezka varnarmálaráðuneytið
staðfesti í gærkvöld, að allt að 80
eldsneytisflutningabflar hersins
yrðu í viðbragðsstöðu til að sinna
neyðardreifingu á eldsneyti. Herinn
raeður yfir eigin olíubirgðastöðvum.
í öðru opinberu ávarpi sinu til
brezku þjóðarinnar á einum sólar-
hring skoraði Blair á flutningabfl-
stjóra og bændur, sem lokað hafa
fyrir umferð að
og frá olíuhreins-
unarstöðvum og
eldsneytisbirgða-
stöðvum, að láta
eldsneytisflutn-
ingabila komast
óhindraða leiðar
sinnar, í nafni ör-
yggis borgar-
anna. TonyBlair
„Heilbrigðisþjónustunni og ann-
arri mikilvægri þjónustustarfsemi
stafar raunveruleg hætta [af aðgerð-
unum],“ sagði Blair en ástandið sem
skapazt hefur vegna hinna víðtæku
mótmæla gegn háu eldsneytisverði
er einhver mesta prófraunin sem
ríkisstjórn Blairs hefur staðið
frammi fyrir frá því hún tók við völd-
um fyrir þremur árum. „Líf eru í húfi
ef fólk [sem starfar í þessum geirum]
kemst ekki til vinnu sinnar," sagði
forsætisráðherrann.
William Hague, leiðtogi brezka
íhaldsflokksins, hvatti til þess að
þingið yrði kallað saman úr sumar-
leyfi til að taka á benzíndeilunni og
Blair bjó sig undir að eiga fleiri
neyðarfundi með æðstu ráðgjöfum
sinum vegna málsins í dag.
Mótmæli í Þýzkalandi og Belgíu
Til svipaðra kröfuaðgerða um
lækkun eldsneytisskatta hefur kom-
ið í fleiri Evrópulöndum undanfarna
daga, einkum í Frakklandi, Belgíu,
Hollandi og Þýzkalandi, en alvarleg-
ast hefur ástandið orðið í Bretlandi.
I Þýzkalandi, þar sem frekari
hækkun eldsneytisskatta stendur
fyrir dyrum um næstu áramót, vöktu
mótmælendur athygli Gerhards
Schröders kanzlara á reiði sinni yfir
háu benzínverði er hann heimsótti
norður-þýzku borgina Schwerin. Þar
lokuðu mótmælendur leiðum að og
frá miðborginni er flogið var með
kanzlarann þangað í þyrlu. Varaði
Schröder við því að mótmæli af
þessu tagi myndu ekki leiða til ann-
ars en að skaða efnahag landsins.
Og belgíski forsætisráðherrann
Guy Verhoefstadt hafnaði einnig
kröfum um skattaívilnanir fyrii’
vöruflutningamenn. Umferð lá niðri í
gær, vegna mótmæla, um margar
helztu umferðaræðai' landsins.
■ Beinar aðgerðir/32
Bandaríkjamenn undirbúa aðgerðir
vegna hvalveiða Japana
IJtilokaðir frá
fiskveiðum
Japanir juku umfang hvalveiða
sinna í vísindaskyni í sumar og auk
hrefnu bættu þeir við búrhval og
skorureyði. Bandaríkjamenn telja að
Japanir hafi þar með brotið sam-
þykktir Alþjóðahvalveiðiráðsins og
gildandi náttúruverndarlög.
í framhaldi af þvi að Japanir hafa
ekki brugðist við harðorðum mót-
mælum Bandaríkjastjómar, beitir
hún nú ákvæðum bandarískra fisk-
verndunarlaga frá 1967. Þar er kveð-
ið á um refsiaðgerðir gegn ríkjum
sem vanvirða samþykktir ráðsins til
verndar hvalastofnum.
Mineta sagði að samkvæmt tillög-
um hans hefði Clinton fyrirskipað að
Japan gæti ekki öðlast réttindi til
fiskveiðiheimilda innan bandarískr-
ar fiskveiðilögsögu. En Bandaríkja-
menn ætla í fyrsta sinn í áratug að
veita erlendum skipum heimild til
veiða á makríl og sfld í haust. Japan
er nú eina landið sem ekki getur sótt
um slíkan kvóta. Viðkomandi ráðu-
neytum hefur enn fremur verið falið
að rannsaka hvernig hugsanlegum
refsiaðgerðum, þar með talið við-
skiptaþvingunum, verði háttað.
Talsmenn japanskra stjórnvalda
hafa hótað að fara með málið fyrir
Heimsviðskiptastofnunina í Genf
(WTO) ef Bandaríkin grípa til við-
skiptaþvingana.
MORGUNBLAÐiÐ 14. SEPTEMBER 2000
6909C
090000
Washington. Morgnnblaðid.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar
sem hann fól ríkisstjóminni að
kanna hugsanlegar refsiaðgerðh-
gegn Japönum fyrir veiðar þeirra á
vernduðum hvalategundum.
Norman Mineta, viðskipta-
ráðherra Bandaríkjanna, og John
Podesta, starfsmannastjóri Hvíta
hússins, tilkynntu á blaðamanna-
fundi að Bandaríkjastórn myndi
hefja aðgerðir gegn hvalveiðum Jap-
ana á vernduðum tegundum. Var
ákveðið að japönsk skip yrðu útilok-
uð frá veiðum í bandarískri lögsögu
og víðtækari aðgerðum hótað.
Léttir í mörgum Evrópulöndum yfír endalokum einangrunar Austurríkis
Andar köldu frá
Berlín og París
París, Klagenfurt, Vín. AFP, Reuters.
AUSTURRÍSKI hægrimaðurinn
Jörg Haider lýsti því yfir í gær að
einangrunaraðgerðir hinna Evrópu-
sambandsríkjanna gegn Austurríki
hefðu mistekizt með öllu. Jafnvel
þótt ákveðið hefði verið á þriðjudag-
inn að aflétta þvingunaraðgerðun-
um, sem beint var gegn ríkisstjórn-
arþátttöku Frelsisflokksins sem
Haider fór fyrir þar til í vor, komu í
gær fram vísbendingar um að það
þýddi ekki endilega að tengsl ann-
arra ESB-ríkja við austurrísku
stjórnina kæmust í samt lag á ný.
Gerhard Schröder, kanzlari
Þýzkalands, lýsti því yfir að hann
myndi að minnsta kosti það sem eftir
lifði þessa árs ekki leggja leið sína til
Austurríkis, né gerði hann ráð fyrir
að hann ætti eftir að taka á móti
austurrískum ráðamönnum í Berlín.
Franska vinstristjórnin, einn
harðasti gagnrýnandi hinnar sjö
mánaða gömlu samsteypustjórnar
austurríska íhaldsflokksins ÖVP og
hins umdeilda Frelsisflokks, lét svo
ummælt í gær, að ráðamenn í Vín
hefðu enga ástæðu til fagnaðarláta.
Er einangrunaraðgerðunum var
formlega aflýst í París í fyrradag var
skýrt tekið fram, að það breytti engu
um það, að náið yrði áfram fylgzt
með Frelsisflokknum sem sakaður
hefur verið um að reka áróður gegn
innflytjendum og að vilja leggja
stein í götu stækkunar ESB til aust-
urs.
Léttir yfir því að pólitískri ein-
angrun Austurríkis skuli lokið vai’
einkar áberandi í höfuðborgum
Norðurlandanna þriggja innan ESB
og viðbrögðin voru einnig jákvæð í
Bretlandi og Suður-Evrópuríkjum.
Einnig lýstu talsmenn stjómvalda í
Póllandi, Tékklandi og Ungverja-
landi ánægju með endalok aðgerð-
anna.
Styrkti þjóðernisvitund
Á blaðamannafundi í Klagenfurt,
héraðshöfuðborg Kámten-fylkis þar
sem Jörg Haider er fylkisstjóri,
sagði hann einangranaraðgerðirnar
hafa haft þau jákvæðu áhrif, að þau
hefðu styrkt þjóðernisvitund Aust-
urríkismanna.
í viðtali sem birtist í dag í tímarit-
inu News sakar Haider Gerhard
Schröder um „konunglegan hroka“.
Lýsir Haider löngun sinni til að færa
út kvíar stjómmálahreyfingar sinn-
ar til fleiri Evrópulanda; það sé ein-
mitt það sem Schröder og fleiri ráða-
menn ESB-ríkja óttist mest.