Morgunblaðið - 14.09.2000, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ [■
FRÉTTIR
150 norrænir unglingar lentu í hrakningum í Þórsmörk
Fundust heil á húfí á Hlöðufelli
Morgunblaðið/Ásdís
Elin Kregert, Jacqueline Andersson, Nahrin Yakob og Jonas Gustafsson frá Svíþjóð.
Héldu sér vak-
andi með söng
FIMM ungmenni sem í fyrrakvöld
lentu í blindaþoku á Hlöðufelli,
sunnan Langjökuls, fundust heil á
húfi snemma í gærmorgun en
þeirra hafði þá verið leitað frá því
um nóttina. Ekkert amaði að fimm-
menningunum en þau eru öll nem-
endur í íþróttakennaraskólanum á
Laugai'vatni og höfðu verið í
gönguferð með hópi bekkjarfélaga
sinna og kennurum.
Hópurinn hafði verið á göngu
allan daginn en kom í skála við
Hlöðufell um fjögurleytið í fyrra-
dag. Ákváðu ungmennin fimm að
bregða sér í stutta göngu á fjallið
og hugðust þau vera komin aftur
fyrir átta um kvöldið til að borða
kvöldmat með hópnum. Þau skil-
uðu sér hins vegar ekki á tilsettum
tíma og hófu félagar þeirra þá leit,
gengu upp í fjallið með blys en síð-
an var ákveðið að þrír úr hópnum
gengju niður af fjallinu til að sækja
hjálp.
Björgunarsveitarmenn leituðu
fólksins allan síðari hluta nætur og
fannst það um kl. níu í gærmorgun.
Hafði skollið á blindaþoka þegar
þau voru komin upp í Hlöðufellið
og gengu þau þar um í u.þ.b. þrjá
tíma áður en þau ákváðu að halda
kyrru fyrir yfir nóttina.
Sagði Andrés Már Heiðarsson,
einn þremenninganna sem fór eftir
hjálp, að ungmennin fimm hefðu
hlaðið sér skjólvegg úr grjóti og
síðan hefðu þau haldið sér vakandi
yfir nóttina með því að syngja sam-
söng.
Lækir breyttust í
erfiðar torfærur
Flugmenn áhyggjufullir yfír sjúkrafluginu
Verið að fara 20
ár aftur í tímann
UM EITT hundrað og fimmtíu
unglingar frá Norðurlöndunum
báru sig vel í gær þó að þeir hefðu
lent í hinum mestu hrakningum á
þriðjudagskvöld þegar þeir vom á
leið með þremur rútum úr Básum í
Þórsmörk. Krakkarnir, sem halda
reyndar flestir heim á leið í dag,
koma frá öllum Norðurlöndunum
og eru hér í heimsókn frá vinabæj-
um Kópavogs í Svíþjóð, Finnlandi,
Noregi, Danmörku og Færeyjum.
Hannes Sveinbjörnsson hjá skóla-
skrifstofu Kópavogs sagði að
krakkamir, sem cru fimmtán ára,
hefðu komið hingað til lands fyrir
helgi og eru þeir frá Oðinsvéum í
Danmörku, Þrándheimi í Noregi,
Tampere í Finnlandi, Klakksvík í
Færeyjum og bæjunum Norrköping
og Ostersund í Svíþjóð. I gangi er
áætlun milli þessara landa um sam-
starf á skólamálasviði og var komið
að Kópavogi að halda vinabæjar-
mót nú í ár.
Hannes sagði að krakkarnir
hefðu gist í Hjallaskóla í Kópavogi
um síðustu helgi. Á mánudag var
lagst í ferðalög og fór hópurinn
fyrst á Gullfoss og Geysi en endaði
síðan í Þórsmörk þar sem gist var
um nóttina, bæði í Langadal og
Básum.
Hann sagði að um kvöldið hefði
byrjað að rigna mjög. Á sama tíma
var afar heitt í veðri og mikið rok.
„Okkur var sagt seinna að þegar
svona veðurskilyrði færu saman þá
yrði bráðnunin rosaleg í jöklunum.
Um morguninn reyndist enda mikið
vatn í ánum,“ sagði Hannes.
„Og það var ekki Krossá sem
reyndist vandamál heldur var mest
vatn í ánum sem renna úr hlíðun-
um, ám sem höfðu bara verið lækir
þegar við vorum á leiðinni upp eft-
ir.“
Á þriðjudag var lagt af stað með
rútum upp úr (jögur og var mein-
ingin að vera komin til Kópavogs
um áttaleytið. Ferðin niður úr Þórs-
mörk tók hins vegar átta tíma. „Það
er auðvitað aldrei gaman að velkj-
ast sum í rútu í átta tíma,“ sagði
Hannes, „en að minu mati var hins
vegar aldrei nein hætta á ferðum.“
Sagði hann að rútubifreiðastjórarn-
ir hefðu farið að öllu með gát.
Þegar loks var komið niður á
Hvolsvöll var ákveðið að fá sér í
gogginn og sagði Hannes að þar
hefðu allir látið vel af sér. Hópurinn
kom siðan aftur í Hjallaskóla í
Kópavogi um kl. 3 um nóttina.
Morgunblaðið ræddi við nokkra
af ferðalöngunum í gær og viður-
kenndu krakkarnir að ótti hefði
gripið um sig hjá mörgum meðan á
svaðilförinni úr Þórsmörk stóð.
„Þetta var heldur óhugnanleg
lífsrcynsla," sögðu þau Jonas
Gustafsson og Nahrin Yakob frá
Svíþjóð. „Við festumst í einni ánni
og þá brustu sumir í grát. Aðrir
gerðu að gamni sínu yfir þessu öllu
saman.“
„Við höfum ekkert í líkingu við
þessar aðstæður í Svíþjóð," bætti
Nahrin við. „Stundum trúðum við
því jafnvel að við myndum ekki
eiga afturkvæmt úr þessari för.“
Það hefði því verið mikill léttir
þegar þau komu niður á þjóðveginn
heil á húfi. Aðspurð lýstu þau hins
vegar ánægju með íslandsheim-
sókn sína og sögðu ljóst að þessa
sögu myndu þau segja vinum sfnum
heima í Svíþjóð.
Þær June Bolme og Lise Grönli
frá Noregi tóku í sama streng.
Ferðin niður úr Þórsmörk hefði
verið heldur óskemmtileg lífs-
reynsla. „Við vorum mjög hræddar
um að rútumar myndu fara á bóla-
kaf í ámar.“ Sögðu þær að sumir
félaga þeirra hefðu brostið í grát
vegna þessara aðstæðna en mikil
rigning var meðan á ferðinni stóð.
Þær vildu þó ekki meina að þessi
svaðilför væri hápunktur ferðar-
innar til íslands. Þar væri för í Bláa
lónið efst á blaði.
FÉLAG íslenskra atvinnuflug-
manna, FÍA, hefur miklar áhyggj-
ur af væntanlegu fyrirkomulagi
sjúkraflugs í landinu og hefur sent
heilbrigðisráðherra bréf vegna
þessa. Til stendur að bjóða út allt
sjúkraflug, sem mun hafa mið-
stöðvar sínar á Akureyri, en vélar
verða einnig til taks á Isafirði og í
Vestmannaeyjum. Heilbrigðisráðu-
neytið, Tryggingastofnun og sam-
gönguráðuneytið vinna nú sameig-
inlega að gerð útboðsgagna sem
afhent verða í næstu viku, bæði
fyrir sjúkraflugið sem og áætlun-
arflug til minni staða eins og
Siglufjarðar, Þórshafnar og
Grímseyjar sem ríkið hyggst
styrkja.
Franz Ploder, formaður FÍA,
sagði við Morgunblaðið að atvinnu-
flugmenn furðuðu sig á þeirri
kröfu í drögum að útboðsgögnum
að tveir flugmenn verði að vera í
flugi frá Akureyri en ekki frá
Vestmannaeyjum og Vestfjörðum.
Hafa þeir farið fram á svör ráð-
herra um ástæður þessa.
„Okkur fínnst einnig áhyggju-
efni að aðeins sé gerð krafa um
litlar níu sæta flugvélar með bens-
ínmótor í þetta sjúkraflug, ekki
skrúfuþotur með jafnþrýstibúnaði
líkt og notaðar eru almennt í áætl-
unarfluginu. Auðvitað er betra að
hafa jafnþrýstibúnað, þá komast
vélarnar hærra og það fer betur
um sjúklingana," sagði Franz.
Stjórn FÍA krefst þess einnig í
bréfí til heilbrigðisráðherra að
ávallt verði tveir flugmenn í áhöfn
vélanna og að báðir séu með rétt-
indi á viðkomandi vélum. Franz
sagði það allt of oft hafa tíðkast að
aðeins annar flugmaður sé með til-
skilin réttindi.
„Við erum einfaldlega að tryggja
starfsumhverfi okkar flugmanna.
Það er verið að fara 20 ár aftur í
tímann með því að notast við níu
sæta vélar með bensínmótor í stað
þess að nota skrúfuþotur á borð
við Dornier, Metro og Twin Otter.
Það er verið að spara á vitlausum
stað, líkt og verið væri að spara í
kaupum á sjúkrabíl með því að
kaupa Lödu Sport í stað Econo-
line. Ég vildi ekki vera fluttur í
sjúkraflugi í vitlausu veðri um
miðjan vetur í þessum litlu vél-
um,“ sagði Franz Ploder.
Breytingar
ekki útilokaðar
Dagný Brynjólfsdóttir hefur
unnið að gerð útboðsgagna fyrir
hönd heilbrigðisráðuneytisins.
Hún sagði við Morgunblaðið að
drög að gögnunum hefðu verið
send nokkrum aðilum til umsagnar
í sumar. Núna væri verið að skoða
umsagnirnar og á meðan gæti hún
ekki fullyrt um endanlega útgáfu
útboðsjgagna varðandi sjúkraflug-
ið. Utboðið yrði væntanlega
auglýst nk. sunnudag og gögnin
afhent á þriðjudag.
Um ástæður þess að í drögunum
hafi ekki verið gerð krafa um tvo
flugmenn í sjúkrafluginu frá Vest-
fjörðum og Vestmannaeyjum sagði
Dagný að vísast væri það vegna
fyrirkomulags flugsins til þessa.
Érfitt hefði verið að fá flugmenn
til að manna sjúkraflugsvélarnar,
sér í lagi á ísafirði yfír vetrar-
tímann.
„Við skoðum allar athugasemdir
sem berast og ekki útilokað að við
breytum þessum kröfum alveg
eins og einhverjum öðrum í út-
boðinu. Það verður bara að koma í
ljós,“ sagði Dagný.
Að hennar sögn hefur dagsetn-
ing ekki verið ákveðin um hvenær
tilboð í flugið verða opnuð. Þó liggi
fyrir að nýir samningar um
sjúkra- og áætlunarflug geti tekið
gildi um næstu áramót.
Verkfall boðað
á Selfossi
SAMÞYKKT var í atkvæða-
greiðslu ófaglærðs starfsfólks á
Heilbrigðisstofnun Suðurlands á
Selfossi sl. mánudag að boða til
verkfalls frá og með miðnætti 29.
september nk. Verkfallsboðunin
var samþykkt með öllum greidd-
um atkvæðum.
Samningur ófaglærðs starfs-
fólks á stofnuninni rann út í maí-
lok og hafa sáttaumleitanir enn
ekki borið árangur.
i2si§m
Viðskiptablað
Morgunblaðínu
í dag fylgir blað frá
Bison Bee-Q.
Morgunblað-
inu í dag fylg-
ir blað frá
NÓATÚNI
ÍÞR&mR
Gísli gripinn með byssu
....• ó lympíuþorpi n u/ C4
Stórsigrar Barceíóná*’**
og Manchester United/ C2