Morgunblaðið - 14.09.2000, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heyfengur víðast góður
Meðlimur kín-
verska ríkisráðs-
ins til íslands
Æðsta kon-
an í stjórn-
kerfi Kína
ÆÐSTA kona í stjórnkerfi Kína, Wu
Yi, sem sæti á í kínverska ríkisráðinu,
kemur hingað til lands á morgun. Á
mánudag mun Yi flytja erindi ásamt
Valgerði Sverrisdóttur, viðskipta- og
iðnaðarráðherra á ráðstefnu um við-
skipti íslands og Kína og möguleika
íslenskra íyrirtækja í Kína.
Þá mun Yi einnig heimsækja ís-
lensk fyrirtæki og meðal annars
kynna sér starfsemi orkufyrirtækja.
Ríkisráðið er æðsta valdastofnun í
Kína, en í því eiga sæti forsætisráð-
herra, varaforsætisráðherrar og fá-
einir háttsettir fulltrúar. Yi er eina
konan sem sæti á í ráðinu, en hún hef-
ur um árabil verið áberandi í kín-
versku stjórnkerfi, var m.a. utanrík-
isviðskiptaráðherra Kína á árunum
1993 til 1998 og þar áður varaborgar-
stjóri Peking um þriggja ára skeið.
Auk íslands, sækir Wu Yi Dan-
mörku og Þýskaland heim í för sinni,
en hún verður viðstödd dag Kína á
heimsýningunni í Hannover í Þýska-
landi síðar í mánuðinum.
-----------------
Fréttir í
tölvupósti
FRÁ og með deginum í dag geta les-
endur Fréttavefjar Morgunblaðsins
sent öðrum fréttimar í tölvupósti
með einföldum hætti. Neðan við
hverja frétt er sérstakur tengill og sé
smellt á hann birtist nýr gluggi þar
sem skráð er netfang viðkomandi og
einnig er hægt að láta skilaboð fylgja.
Viðtakandi fær texta fréttarinnar auk
slóðar viðkomandi íréttar á mbl.is.
EINSTAKA bændur í Eyjafirði
eru enn í heyskap, þött komið sé
fram í miðjan september. Ólafur
G. Vagnsson, ráðunautur hjá
Búnaðarsambandi Eyjafjarðar,
sagði að víðast hvar væri hey-
fengur góður í sumar.
Hann sagði þó að þar sem tún
eru þurrlendari hafi spretta verið
frekar treg eftir fyrri slátt vegna
þurrka seinni partinn í júlí. Tún
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur
um að hafna kröfum réttargæslu-
manns ungrar stúlku um að teknar
yrðu skýrslur af henni í Barnahúsi
en ekki í dómshúsi Héraðsdóms
Reykjavíkur. Yfirheyrslurnar
tengjast meintu kynferðisafbroti
gegn stúlkunni. Hæstiréttur var
sammála héraðsdómara um að
húsnæði í dómhúsi Héraðsdóms
Reykjavíkur fullnægði i hvívetna
kröfum reglugerðar um tilhögun
skýrslutöku fyrir dómi af brota-
þola sem er yngri en 18 ára.
I úrskurði Héraðsdóms kemur
fram að lögreglan í Reykjavík hafi
farið þess á leit við héraðsdóm
Reykjavíkur, að skýrsla yrði tekin
af stúlkunni vegna gruns um kyn-
ferðisbrot gegn henni. í boðun
kom fram, að skýrslutakan skyldi
fara fram í sérútbúnu húsnæði
dómsins til þess að yfirheyra börn.
hafi þó verið að koma til seinni
part sumars og menn því enn að.
„Maður hefur séð ágætt gras
komið á tún ef menn hafa þráast
við að bíða nógu lengi, ef svo má
segja.
Þannig að ég held að þetta hafi
yfirleitt verið í góðu lagi.
Bændur á Norðurlandi urðu
margir fyrir miklu tjóni vegna
kalskemmda í túnum í fyrravor
Þá var sérhæfður kunnáttumaður
kvaddur til aðstoðar við skýrslu-
tökuna. Tæpum þremur klukku-
stundum áður en skýrslutakan átti
að hefjast bárust dómara skrifleg
mótmæli réttargæslumanns stúlk-
unnar við því að yfirheyrslan færi
fram í dómhúsi héraðsdóms. Rétt-
argæslumaðurinn krafðist þess, að
yfirheyrslan færi þess í stað fram í
Barnahúsi.
I greinargerð með kröfunni seg-
ir orðrétt um aðstöðuna í héraðs-
dómi: „Biðaðstaða er ekki góð,
barnið kemst ekki hjá því að verða
vart við allan þann umgang sem
fylgir daglegum störfum í dómhúsi
og ekki er unnt að tryggja að
barnið hitti ekki sakborning ef
hann er viðstaddur yfirheyrsluna.
Þá er salernisaðstaða afleit. Hins
vegar er vísað til þess, að sjálft yf-
irheyrsluherbergið er stórt og þar
eru bæði spegill andspænis sæti
og varð heyfengur víða rýr vegna
þessa. Ólafur sagði að tún í Eyja-
firði væru mun betri heldur en
reiknað var með eftir ástandið í
fyrra. „Tún hafa náð sér veru-
lega á strik í sumar. Allra verstu
túnin eru þó ekki farin að ná sér
en heilt yfir hafa tún komið ótrú-
lega vel til. Það lítur því alveg
þokkalega út með heyfeng al-
mennt.“
vitnisins og sýnileg upptökuvél. Er
það almennt til þess fallið að
hamla einbeitingu og athygli ungra
barna og kann einnig að verka
fráhrindandi og ógnvekjandi fyrir
þau. Við slíkar aðstæður, sem eru
afar framandi fyrir lítið barn, er
rík hætta á að spenna og kvíði leiði
til lakari skýrslu og óáreiðanlegri
auk þess að valda barninu vanlíðan
og óþarfa óþægindum."
Héraðsdómur féllst ekki á kröf-
una og á mánudaginn staðfesti
Hæstiréttur úrskurð héraðsdóms.
I úrskurði héraðsdóms er gagnrýni
réttargæslumannsins hafnað. Bent
er á að í dómshúsinu hafi verið út-
búið sérstakt hliðarherbergi og
það útbúið í samráði við sálfræðing
barnaverndarnefndar Reykjavíkur.
Tekið er fram að salernisaðstaða
er á hæðinni og gerðar eru ráð-
stafanir til að koma í veg fyrir að
sakborningur hitti brotaþola.
Hæstiréttur staðfestir úrskurð héraðsdóms
Kröfu um skýrslutöku
í Barnahúsi hafnað
Geisladiskataska ! Skipulagsmappa / Penni
Námsmannaiinudebetkort / Biiprófsstyrkir
Námsmannaiinureikningur/ Netklúbbur
Framfærslulán / Lægri yfirdráttarvextir
Námsstyrkir / Námslokalán / Tölvukaupalán
ISIC afsláttarkort f Heimilisbankinn
®BÚNAÐARBANKINN
Traustur banki
námsmannalínan
Síma-
útvarp
í næsta
mánuði
RÍKISÚTVARPIÐ hyggst
hefja rekstur símaútvarps upp
úr miðjum næsta mánuði. Not-
endur þjónustunnar hringja í
ákveðið símanúmer á símatorgi
á vegum Landssímans og geta
þar keypt sér aðgang að fréttum
RÚV. Mínútan á að kosta 24,90
krónur.
Þorsteinn Þorsteinsson,
markaðsstjóri RÚV, segir að
þetta hafi verið í vinnslu í hálft
ár. Notendur geti valið yfirlit
frétta, fréttatímann í heild eða
valið ákveðnar fréttir, og hlust-
að á flutning þeirra í símanum.
Til stendur að bjóða í fyrstunni
upp á fréttatíma kl. 8,12,18 og
22 og verður hægt að tengjast
fréttatímunum í síma 10-15 mín-
útur eftir flutning fréttanna-
þeirra í útvarpi. Þegar fram í
sækir ætlar RUV að bjóða upp á
alla fréttatímana.
Þorsteinn segir að unnið sé að
lausn tengingar frá útlöndum og
það sé í sjálfu sér ekki tæknilegt
vandamál. Málið snýr hins veg-
ar að gjaldtökunni sem er flókn-
ara úrlausnarefni þegar hringt
er t.d. með farsíma frá útlönd-
um. Sama mínútugjald verður
þótt hringt sé frá útlöndum en
við bætist símkostnaður vegna
utanlandssímtalsins.
RÚV hefur ekki gert áætlanir
um telýur af þessari þjónustu en
Þorsteinn segir að bundnar séu
vonir við að hún skili hagnaði.
Tilkostnaður sé ekki verulegur.
RÚV hefur pantað átta símalín-
ur vegna þjónustunnar og hugs-
anlegt er talið að fjölga þurfi
þeim. Þorsteinn segir að líklegt
sé að boðið verði upp á meira út-
varpsefni þegar fram í sækir,
eins ogt.d. íþróttalýsingar.
Braut reglur
í Hvalfjarð-
argöngum
FLUTNINGABÍLSTJÓRI
braut reglur um hámarkshæð
farms á ferð norður um Hval-
fjarðargöng sl. föstudags-
kvöld. Lögreglan fékk tilkynn-
ingu frá vegfaranda í Hvalfirði
um að farmur á vöruflutninga-
bíl hefði rekist upp í og brotið
niður hæðarslá yfir veginum
skammt sunnan gangamunn-
ans.
Bílstjórinn var stöðvaður í
gjaldhliðinu að norðan og þar
tók lögregla af honum skýrslu.
Flutningabíllinn var með vagn
í eftirdragi og á honum stóð
vinnulyfta sem mældist 4,50
metra há. Leyfð hæð farms er
hins vegar 4,20 metrar.
Bílstjórinn má búast við að
þurfa að greiða sekt fyrir til-
tækið.
Vegurinn
í sundur
við Högná
VEGURINN um Þorska-
fjarðarheiði fór í sundur við
Högná sl. þriðjudag vegna
vatnavaxta. Skemmdir urðu
ekki miklar og var viðgerð
lokið í gærmorgun og vegur-
inn þá opnaður á ný.
Á vef vikublaðsins Bæjar-
ins besta á ísafirði kemur
fram að vegfarendur á leið til
Vestfjarða kvörtuðu yfir þvi
að lokun þessi hefði ekki ver-
ið tilkynnt heldur hefðu þeir
komið að lokunarskilti við
Músará í Þorskafirði þar sem
vegurinn liggur upp á heið-
ina.