Morgunblaðið - 14.09.2000, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Seiðavísitala þorsks sú næsthæsta sem mælst hefur
Efniviður í sterkan ár-
gang fjórða árið í röð
SEIÐAVÍSITALA þorsks við
landið er sú næsthæsta sem mælst
Segðu þeim góðu fréttirnar, þú ert nú ráðherrann, Árni minn.
Hagkaup opnar nýja verslun í Grafarvogi í nóvember
V el gengur að manna
nýjar stöður
KRISTÍN B. Eysteinsdóttir, ráðn-
ingarstjóri í Starfsmannaþjónustu
Baugs hf., gerir ráð fyrir því að ekki
verði erfitt að manna um það bil þrjá-
tíu stöðugildi í nýrri verslun Hag-
kaups í Spönginni í Grafarvogi.
Hún segir að stefnt sé að því að
verslunin verði opnuð í byrjun nóv-
ember nk. og var af því tilefni m.a.
auglýst eftir starfsfólki í sérvöru-
deild og matvörudeild verslunarinn-
ar í síðasta sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins. Auk þess var auglýst eftir
öryggisvörðum og gjaldkerum svo
fleiri dæmi séu nefnd. Kristín segir í
samtali við Morgunblaðið að alls
Upplagt í eldhúsiö
bráðsniðugt í barnaherbergið
hljómar vel í hjónaherbergi
stórgott í stofuna
■
Flötum 29 Slmi 481 3333
á aðeins 14.900 stgr.
www.ormsson.is
þurfi að ráða í rúmlega þrjátíu heil
stöðugildi í nýju versluninni auk þess
sem ráða þurfi í þó nokkur hlutastörf.
„Viðbrögð við auglýsingunni hafa
verið mjög góð,“ segir Kristín, „og ég
geri ekki ráð fyrir því að við verðum í
vandræðum með að manna stöðum-
ar.“ Segir hún að margir hafi hringt
og spurst fyrir um störfin - aðallega
fólk búsett í Grafarvoginum. „Við
vissum að fólk úr Grafarvoginum
myndi sækja um og því koma þessi
góðu viðbrögð okkur ekki á óvart.“
Segir hún m.a. dæmi þess að starfs-
fólk í öðrum verslunum Hagkaups
hafi áhuga á því að verða flutt til
verslunarinnar í Grafarvoginum
vegna þess að sú verslun sé í þess
hverfi. Auk þess sem dæmi séu um
áhuga meðal kvenna í Grafarvogi
sem hafi verið heimavinnandi en vilji
nú fóta sig á hinum almenna vinnu-
markaði. „Og þær sjá þama tækifæri
til þess að starfa nálægt heimilinu."
Aðspurð hvemig gangi að ráða í
sambærileg störf í öðmm verslunum
Baugs segir Kristín að það gangi upp
og ofan. Hún bætir því þó við að sept-
ember sé alltaf erfiður tími, m.a.
vegna þess að þá hætti margt sumar-
fólk störfum til að halda áfram námi.
„En það er heldur erfiðara að ráða
fólk í ár en áður. Það er ekki hægt að
neita því.“
-----------------
Fjármáiaráðuneytið
Staða ráðu-
neytisstjóra
auglýst
STAÐA ráðuneytisstjóra í fjármála-
ráðuneytinu verður auglýst á næstu
dögum.
Staðan losnaði þegar Arni Kol-
beinsson var skipaður hæstiréttar-
dómari. Árni tekur við starfi dómara
1. nóvember nk. og er stefnt að því
að þá verði búið að ráða nýjan ráðu-
neytisstjóra.
Evrópska listaþingið IETM
Gjöfult og spenn-
andi samstarf
Ása Richardsdóttir
HINN ö. til 8. októ-
ber eiga Sjálf-
stæðu leikhúsin
von á 150 evrópskum koll-
egum sínum á fjögurra
daga listahátíð. Þetta fóik
kemur hingað í tengslum
við Evrópska listaþingið
IETM Reykjavík, en
stjómandi þess er Ása
Richardsdóttir. Hún var
spurð hvað þarna væri
nánar til tekið að gerast?
„Þetta er í senn fjögurra
daga listahátíð þar sem við
bjóðum okkar erlendu
gestum upp á kröftuga
listadagskrá, og ráðsteíha
með málþingum, kynning-
arfundum og samræðu-
stundum. Auk þess er
IETM-þing tækifæri til
kynningar; dagar þar sem
samtök, stofnanir, listhóp-
ar og einstaklingar geta
komið á framfæri upplýsingum
um störf sín og verkefni, myndað
tengsl og hugsanlega fundið sam-
starfsfélaga. Þetta er stærsti hóp-
ur sem komið hefur hingað til
lands í þessum tilgangi."
-HvaðerlETM?
„Það er tengslanet, skammstöf-
unin stendur fyrir The „Informal
European Theatre Meeting". í
IETM em yfir 450 félagar frá 42
löndum. Þeir em stjórnendur
listahátíða, leikhúsa, danshúsa og
menningarstofnana. Þeir em líka
sjálfstætt starfandi listamenn,
framleiðendur og hugsuðir. í raun
má segja að í IETM sé öll sviðs-
listaflóran í Evrópu. Allt frá ein-
staklingum til listahátíðar í Avign-
on í Frakklandi, sem er ein sú
stærsta í Evrópu."
-Hefur þessi starfsemi verið
lengi hér?
„Nei, alls ekki. Sjálfstæðu leik-
húsin gengu í IETM í lok síðasta
árs og em fyrstu íslensku félag-
arnir. IETM sjálft er hins vegar
20 ára gamalt tengslanet. Það
elsta og öflugasta í Evrópu."
- Höfum við mikið gagn af
þessu samstaríi?
„Já, sannarlega. Við teljum að
vöxtur sviðslista sem atvinnu-
greinar muni til lengri tíma séð
byggjast á samskiptum við önnur
lönd. Hér er um að ræða tækifæri
fyrir hvern sem er úr íslensku
listalífi og áhugasama leikmenn til
að mynda tengsl við fjölda
evrópskra kollega. Við þurfum á
því að halda að stækka atvinnu-
markað íslenskra listamanna. En
við höfum ekki aðeins gagn af
þessu samstarfi sem mögulegum
vettvangi fyrir listamennina til
starfa, heldur sem tækifæri til að
læra af öðra fólki, kynnast nýjum
samstarfsaðferðum og hugmynd-
um, stækka sjóndeildarhringinn.
Við höfum ekki búið til heimasíðu
fyrir þingið sérstaklega en heima-
síða IETM sjálfs er www,-
itm.org.“
- Hvað gerist á þessari listahá-
tíð?
„Við bjóðum þessum gestum
okkar upp á 24 leik- og danssýn-
ingar og annars konar
listviðburði. Fólki alls
staðar að úr listageir-
anum var boðið að taka
þátt í listadagskránni
og fengum við mjög góð
viðbrögð. Erfitt að tala
um eitt frekar en annað
í þessu sambandi en þó
vil ég nefna að við eig-
um von á tveimur erlendum gesta-
sýningum. Þetta em Sóló eftir
hinn þekkta belgíska danshöfund
og myndlistarmann Jan Fabre,
dansað af íslendingnum Emu
Ómarsdóttur og tvö verk eftir ven-
esúselska danshöfundinn Söm
► Ása Richardsdóttir fæddist í
Reykjavfk 19. ágúst 1964. Hún
lauk stúdentsprófí frá Mennta-
skólanum í Kópavogi, er með
BA-próf frá Bretlandi í alþjóða-
stjórnmálum og er með diploma í
evrópskri menningarstjórnun.
Hún starfaði sem fréttamaður
hjá Sjónvarpinu og raunar við
fleiri störf, var framkvæmda-
stjóri hjá Kaffileikhúsinu en er
nú stjómandi evrópska lista-
þingsins IETM Reykjavík. Hún
er gift Hjáimar H. Ragnarssyni
tónskáldi og eiga þau tvö börn.
Gebran. Bæði þessi verk verða
sýnd í Tjamarbíói. Hvað varðar
ráðstefnuhluta dagskrárinnar þá
bjóðum við upp á tíu málþing,
kynningarfundi og samræðuhópa
eða fundi á þinginu. Þar vil ég sér-
staklega nefna tvo kynningar-
fundi, ekki síst ætlaða Islending-
um, sem báðir verða í Norræna
húsinu. Sá fyrri verður á föstudeg-
inum 6. október. Það er kynning-
arfundur um IETM og önnur
evrópsk menningartengslanet,
hlutverk þeirra og hugmynda-
fræði. Sá seinni verður daginn eft-
ir og ber yfirskriftina: Alþjóðlegt
samstarf - hvar á að byrja?“
- Hverjir standa að þessu lista-
þingi?
„Það em Sjálfstæðu leikhúsin,
sem em samtök tuttugu og sjö
starfandi leikhúsa og danslist-
hópa. Samstarfsfélagar okkar hér
heima em Hitt húsið, íslenski
dansflokkurinn, Listaháskóli Is-
lands, Norræna húsið og Reykja-
víkurakademian, en erlendir sam-
starfsfélagar okkar em IETM
sjálft sem hefur aðalskrifstofu í
Belgíu, Kultorkonzepte í Austur-
ríki og Nordisk Ide Fomm í Dan-
mörku. Þetta samstarf hefur verið
mjög gjöfult og spennandi."
-Hvað verða margir íslenskir
þátttakendur?
„Við getum tekið á móti um 120
íslenskum þátttakendum og er
skráning þeirra þegar hafin. Vægt
þátttökugjald greiðist við skrán-
ingu og hún fer fram á skrifstofu
okkar að Vesturgötu 3
eða í síma 552-9119.
Það er ákaflega mikil-
vægt að sem flestir úr
íslenska listgeiranum
nýti sér þetta tæki-
færi.“
-Hvað með árang-
ur?
„Starf IETM snýst um sam-
skipti og samstarf. Við vonumst til
að í kjölfar evrópska listaþingsins
IETM Reykjavík muni fleiri en
áður úr listageira okkar sjá mögu-
leika á að leita út fyrir landstein-
anna með hugmyndir sínar og
verkefni. Þá er árangrinum náð.“
Um er að
ræða tækifæri
fyrir hvern
sem er í ís-
lensku
listaiífi