Morgunblaðið - 14.09.2000, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Skógræktarfélag Eyfírðinga áformar að byggja upp
útivistarmöguleika í Hánefsstaðaskógi í Svarfaðardal
Aðstaða gesta bætt með
fræðslustígum og leiktækjum
SKÓGRÆKTARFÉLAG Eyfirð-
inga áformar að auka mjög útivistar-
möguleika í Hánefsstaðaskógi í
Svarfaðardal, aðstaða fyrir gesti
skógarins verður bætt, komið upp
leiktækjum og lagðir fræðslustígar.
Á síðasta ári var gerður samstarfs-
samningur milli Skógræktarfélags
Eyfirðinga og Dalvíkurbyggðar um
rekstur útivistarsvæðis í Hánefs-
staðaskógi, töluverðar framkvæmdir
voru í skóginum nú í sumar og á
næstu árum verður unnið að verk-
efninu í anda samningsins.
Vignir Sveinsson, formaður Skóg-
ræktarfélags Eyfirðinga, Hallgrím-
ur Indriðason, framkvæmdastjóri
þess, og Kristín Gunnarsdóttir,
garðyrkjustjóri Dalvíkurbyggðar,
kynntu áform um uppbyggingu
skógarins en þar er margt á döfinni.
Um 25 tegundir í skóginum
Vignir gerði grein fyrir sögu skóg-
arins, sem rekja má til þess að Eirík-
ur Hjartarson eignaðist jörðina
Hánefsstaði árið 1941 og hóf þar
skógrækt árið 1946, þá um sextugt.
Sagði Vignir það mikið þrekvirki af
svo fullorðnum manni að hefja skóg-
rækt á þessum árutn. Eiríkur hafði
stundað nám í Bandaríkjunum á
yngri árum og fékk hann mikið af
plöntum þaðan, sumar óvenjulegar.
Um 25 plöntutegundir eru í skógin-
um, m.a. svartgreni sem líkur eru á
að sé hið eina sinnar tegundar í
Eyjafirði.
Alls er talið að á árunum 1946-
1954 hafi Eiríkur plantað um 90 þús-
und plöntum í reitinn, en alls vel á
annað hundrað þúsund plöntur.
Hann var mikill ræktunarmaður og
lagði m.a. grundvöll að skógrækt
Grasagarðsins í Laugardal í Reykja-
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
BjóÖum eitt mesta úrval
á íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
'‘lW&j8gBgfée' œ3g& sTm HF v
- vogir eru okkar fag
Síðumúla 13, sími 588 2122
www.eltak.is
vík. Mikið af þeim plöntum sem hann
plantaði á Hánefsstöðum ræktaði
hann sjálfur í eigin græðireit.
Árið 1965 gerði Eiríkur arfleiðslu-
skrá þar sem hann ánafnaði Skóg-
ræktarfélagi Eyfirðinga Hánefsstaði
í minningu foreldra sinna. Taldi fé-
lagið að rekstur jarðarinnar væri
ekki vænlegur og var hún því í sam-
ráði við afkomendur Eiríks seld, en
skóginum haldið eftir í eigu og umsjá
félagsins.
Dæmi um árangur
við erfið skilyrði
Skógurinn er að mestu birkiskóg-
ur og fremur þétt gróðursettur. Af
öðrum tegundum sem náð hafa góð-
um árangri má nefna alaskaösp,
sitkagreni, rauðgreni og lerki. Birkið
hefur verið grisjað nokkrum sinnum
en það er vandasamt verk og þarf að
ýmsu að gæta vegna snjóþyngsla. Þó
svo að Svarfaðardalur sé snjóþung
sveit þegar svo árar er skógræktin á
Hánefsstöðum dæmi um hvaða ár-
angri hægt er að ná við erfið skilyrði.
Skógurinn telst nú fullplantaður
en auka á fjölbreytni svæðisins,
fjölga trjátegundum og koma upp
fræðslustíg þar sem komið verður
upp merkingum trjátegunda og upp-
lýsingum um vaxtarmöguleika
þeirra. Leiktæki hafa verið sett upp í
einhverjum mæli en bætt verður við
þau og þá verður umhverfi tjamar
sem í skóginum er lagfært og gert
aðgengilegra. Flöt sem hentar til
samkomuhalds hefur verið þurrkuð
upp og þar verður væntanlega bætt
við bekkjum og komið fyrir útigrilli.
„Það fer auðvitað eftir örlæti sveitar-
stjórnar Dalvíkurbyggðar hvað
hægt verður að gera mikið og á
hvaða tíma,“ sagði Hallgrímur Indr-
iðason. „Við viljum sjá sem flest fólk
koma í skóginn og munum kapp-
kosta að glæða hann mannlífi með
því að bæta aðstöðuna.“
Morgunblaðið/Kristján
Örn Arngrimsson, starfsmaður garðyrkjudeildar Dalvíkurbyggðar,
Rögnvaldur Skíði Friðbjörnsson bæjarsljóri og Kristín Gunnarsdóttir,
garðyrkjustjóri í Dalvíkurbyggð, á göngu um Hánefsstaðaskóg.
Morgunblaðið/Kristján
Rögnvaldur Skíði Friðbjörnsson, bæjarstjóri í Dalvíkurbyggð, Hall-
grímur Indriðason, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga,
Kristín Gunnarsdóttir, garðyrkjustjóri í Dalvíkurbyggð, og Vignir
Sveinsson, formaður stjórnar Skógræktarfélags Eyfírðinga, við minnis-
varða um Eirík Iljartarson sem hóf skógrækt á Hánefsstöðum. Afkom-
endur hans létu gera þesssa lágmynd og er hún til í tveimur eintökum, í
Hánefsstaðaskógi í Svarfaðardal og Grasagarðinum í Laugardal, en
Eiríkur var frumkvöðull að skógrækt þar.
Eyþing vill að iðn- og verkmenntun verði byggð upp við VMA
Höfuðstöðvar sjávarút-
vegsmenntunar verði á
N or ðurlandi ey stra
VINNA ber að því að höfuðstöðvar
menntunar í skipstjórn, vélstjórn
og öðrum greinum tengdum sjávar-
útvegi verði á Norðurlandi eystra,
en þetta kemur fram í ályktun frá
aðalfundi Eyþings, samtökum
sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyj-
arsýslum. Fundurinn hvatti einnig
til þess að unnið verði að uppbygg-
ingu iðn- og verkmenntunar við
Verkmenntaskólann á Akureyri
jafnframt því að auka samstarf
framhaldsskólanna á Norður- og
Austurlandi.
í greinargerð með ályktuninni
segir að mikil þekking sé fyrir
hendi í sjávarútvegi á Norðurlandi.
Auk þess sé háskólanám í sjávar-
útvegsfræðum í boði við Háskólann
á Akureyri. Sérhæfing aukist stöð-
ugt í þjóðfélaginu og jafnframt því
aukist kröfur um sérhæfða mennt-
un og búnað.
Þá kemur fram að miklar breyt-
ingar séu framundan á iðn- og verk-
menntun sem leiða muni til þess að
þeim skólum sem annast þá kennslu
muni fækka. Ástæða þessa er m.a.
aukin áhersla á sérhæfingu skóla,
bæði hvað varðar tækjabúnað og
kennara. Við Verkmenntaskólann á
Akureyri sé til staðar aðstaða og
kennarar með mikla reynslu á sviði
iðn- og tæknimenntunar. „Það hef-
ur hins vegar háð skólunum nokkuð
hversu hæg uppbygging verknáms-
álmanna hefur verið. Með nýrri
byggingadeild hefur verið stigið
stórt skref til að tryggja að skólinn
geti í samstarfi við aðra framhalds-
skóla á Norður- og Austurlandi
annast alla kennslu í bygginga-
greinum. Sams konar þróun ætti
einnig að geta orðið á námi í öðrum
greinum,“ segir í ályktuninni.
Morgunblaðið/Kristján
Verk Óla G. Jóhannssonar á sýn-
ingunni í Kaupmannahöfn, sem
heitir I norðursins yzta auga.
Óli G. sýnir
í Kaup-
mannashöfn
ÓLI G. Jóhannsson myndlistarmað-
ur frá Akureyri er þessa dagana með
málverkasýningu í Galleri Marius
Vrontos í Kaupmannahöfn í Dan-
mörku. Þar sýnir Óli 35 verk, akrýl-
málverk og teikningar. Sýningin var
opnuð þann 24. ágúst sl. en henni
lýkur nk. laugardag.
Óli hefur áður sýnt verk sín er-
lendis, síðast í St. Moritz í Sviss. Yf-
irskrift sýningarinnar í Kaupmanna;
höfn er, „í sólinni hefst það.“ í
umsögn um sýninguna segir að í
verkunum gæti áhrifa úr heimahög-
um. Afstrakt ekspressjónísk áhrif
gefa áhorfandanum tilfinningu fyrir
stórbrotinni náttúru á Islandi sem
leysast upp og gefa til kynna sögu-
legar staðreyndir. í blekteikningun-
um er þetta enn skýrara þar sem
svartir og hvítir fletir ráða ríkjum.
Verk Öla verða á sýningunni Cop-
enhagen Art 2000 sem opnuð verður
21. þessa mánaðar í Forum, þar sem
dönsk og sænsk gallerí kynna lista-
menn sína. Sýningin er opin í þrjá
daga.
------*-+-*------
Svala hættir
hjá Þór
SVALA Stefánsdóttir hefur látið af
störfum sem formaður og fram-
kvæmdastjóri íþróttafélagsins Þórs.
Kristján Guðmundsson, þjálfari
meistaraflokks félagsins í knatt-
spyrnu, mun gegna starfi fram-
kvæmdastjóra þar til ný stjórn fyrir
félagið hefur verið kosin á aðalfundi,
sem áætlaður er í október.
í fréttatilkynningu frá Þór kemur
fram að fyrsta verk nýrrar stjórnar
verði að ganga frá ráðingu fram-
kvæmdastjóra félagsins og er ráð-
gert að hann taki við starfinu um
næstu áramót. Iþróttafélagið Þór
þakkar Svölu fyrir gott og óeigin-
gjarnt starf síðustu þrjú ár og óskar
henni jafnframt velfarnaðar í nýju
starfi í höfuðborginni.
-----------------
Djass í
Safnahúsinu
D JASSTÓNLEIKAR verða í Safna-
húsinu á Húsavík föstudagskvöldið
15. september og hefjast þeir kl.
20.30.
Fram koma þeir Gunnar Gunnars-
son píanóleikari og kontrabassaleik-
arinn Tómas R. Einarsson. Þeir fé-
lagar hafa leikið mikið saman hér á
landi og komið fram í Norðurlanda-
húsinu í Færeyjum.
REYKIAVIK-AKUREYRI-REYKJAVIK ...f/júgðu frekar
—
Atta sinnum
Bókaiu í síma 570 3030 og 460 7000
•930 kr .meðflujvallarsköttum
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Fax 570 3001 • websales@airiceland.is • www.1lugfelag.is