Morgunblaðið - 14.09.2000, Side 35

Morgunblaðið - 14.09.2000, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000 35 LISTIR Nýjar bækur • Blikktromman, þriðja og síðasta bindi, eftirþýska nóbelsverðlauna- hafann Giinter Grass. Blikktromman er saga Óskars Matzeraths sem rifjar upp sér- kennilega og viðburðaríka ævi sína. Blikktromman var fyrsta skáldsaga Giinters Grass og hefur verið talin eitt af merkustu verkum hcimsbók- menntanna á 20. öld en bókin hefur ekki áður komið út á íslensku. Þýðandi lokabindisins, eins og fyrri bindanna tveggja, er Bjarni Jónsson leikhúsfræðingur. Sem kunnugt er hlaut Grass bók- menntaverðlaun Nóbels 1999 og er þessa dagana gestur bókmenntahá- tíðarinnar í Reykjavík. Utgefandi er Vaka-Helgafell. Blikktromman, 3. bók, er 240 bls. að lengd. Wilfried Bullerjahn hannaði bókarkápu, Oddi hf prentaði bókina. Leiðbeinandi verð hennar er 4.280 kr. • Skáldsagan Ofurnæfurer eft- ir Erlend Loe, ungan norskan höf- und sem þessa dagana er gestur bókmenntahátíðarinnar í Reykja- vík. Ofurnæfur er óvenjuleg skáld- saga um ungan mann sem skyndi- lega veit ekki hvert stefna skal í líf- inu Ofumæfur hefur vakið athygli víða um Iönd fyrir það hversu góða innsýn höfundurinn gefur í veru- leika ungs fólks þar sem gömlum gildum og verðmætum hefur verið hafnað. Bókin hefur verið þýdd á fjölda tungumála. Þórarinn Elcijárn liefur þýtt bókina á íslensku. Útgefandi er Vaka-Helgafell. Of- urnæfur er 238 bls. að lengd. Loftur Leifsson hannaði bókarkápu. Bókin erprentuð hjá Odda hf. Leiðbein- andi verð hennar er 3.980 kr. • Taumhald á skepnum skáldsaga eftir Magnus Mills í þýðingu ísaks Harðaisonar. Bókin fjallar um þriggja manna hóp skoskra farandverkamanna sem sendur er út til Englands til að leggja girðingar. Þeir em ákaflega tortryggnir á allt enskt. Með þessari sögu hefur Mills sleg- ið nýjan tón í breskri skáldsagna- gerð. Frásögnin er afar knöpp, upp- ákomurnar í bókinni eru með ólíkindum og húmorinn kolsvartur. Bókaútgáfan Bjartur gefur bókina út. Bókin er prentuð íprentsmið- junni Gutenberg. Hún er 176 bls. Kápugerð annaðist Snæbjöm Arn- grímsson. Verð bókarinnar er kr. 1.880. y<M-2000 Fimmtudagur 14. september NORRÆNA HÚSIÐ KL. 12 Alþjóðleg bókmenntahátíð í Reykja- vík Silja Aðalsteinsdóttir ræðir við A.S. Byatt um verk hennar. IÐNÓ KL. 20.30 Upplestur Monika Fagerholm, Edward Bunker, Siawomir Mrozek, Braga Ólafssonar og Guðrúnar Evu Mínervudóttur. Hátíðin stendur til 16. september. www.nordice.is www.reykjavik2000.is, wap.olis.is Morgunblaðið/Ámi Sæberg Bókmenntir og kvikmyndir voru yfirskrift pallborðsumræðnanna í Norræna húsinu. Hér má sjá skandinavisku rithöfundana velta vöngum og hlýða á það sem Edward Bunker hafði til málanna að leggja. an tauminn, en svo þegar þú sérð kvikmynd upp úr bókinni breytist sú hugarmynd og samræmis kvik- myndinni. Á þann hátt er kvikmynd- in bókinni yfirsterkari, þó ég myndi ekki segja að hún eyðileggi hana.“ Einar Már benti á í framhaldi af þessu að bækur væru margradda, en að við þýðingu yfir í kvikmynd sé oft aðeins leitað að einni rödd í bókinni. „Kvikmyndin er ekki sá miðill sem gerir rithöfundum hæst undir höfði,“ sagði Bunker. „Kvikmyndir er aðal- vettvangur leikstjórans því hann hefur úrslitavaldið um endanlegt út- lit. Hann gæti til dæmis tekið upp á því að setja fyrsta atriðið í handrit- inu aftast í myndina." Hann heldur áfram. „Ég hef reyndar átt mjög gott samstarf við leikstjóra. Mín skoðun er að ef þeir eru góðir í sínu fagi þá hlusta þeir á ráðleggingar rit- höfundarins." Bunker sagðist alltaf fagna því þegar ráðist er í að þýða verk hans yfir á kvikmynd. Það leiði af sér aukna sölu á bókinni. Linn spurði hann þá að því hvort það skipti máli ef myndin væri slæm og hann sagði svo ekki vera svo fremi sem hún glæddi söluna. Flestir rit- höfundarnir við pallborðsumræðuna voru engu að síður sammála um að góð bók myndi lifa af þó að gerð væri eftir henni miður góð mynd. Þeir voru einnig sammála um að bestu kvikmyndirnar væru þær sem hefðu einkenni bæði frá kvikmyndagerð í Hollywood og Evrópu. Prjóna ekki peysuna tvisvar Ólíkt karlmönnunum við pallborð- ið hafa þær Linn og Monika ekki komið að gerð kvikmyndahandrita sem byggjast á skáldsögum þeirra. Sveinbjöm spurði þær hverju það gegndi. „Þegar ég hef lokið við að skrifa eina bók vil ég snúa mér að þeirri næstu,“ segir Monika „Ég get ekki hugsað mér að vinna í henni áfram og draga út einstaka atriði fyrir kvikmynd. Mér finnst heiður að því þegar fólk sýnir bókinni minni áhuga og vill gera kvikmynd eftir henni en læt það alfarið í þeirra hendur." Linn var þessu sammála. „Að vinna handrit upp úr bók sem ég hef lokið við að skrifa væri fyrir mér eins og að prjóna peysu í tvígang úr sama þræðinum." í lok þessa umræðna gafst tími fyrir spurningar úr sal. Ein var á þá leið hvort að rithöfundum fyndust þeir vera höfundar að kvikmyndinni eða hvort þeir teldu leikstjórann eiga heiðurinn. „Þetta er leikur að hug- tökum,“ svaraði Hallgrímur. „Við getum orðað það þannig að bókin er einsog kjörbúð sem leikstjórinn verslar í. Hann velur það sem hann vill og fer með heim til sín og eldar. Það getur vel verið að hann sé góður kokkur, en ég á samt búðina.“ _5-35% afsláttur af Ice-Lux frystikistum Verð frá 240 Ktra kr. 23.995.- 36í>0a 320 Ktra kr. 28.995.- 39^90 370 Ktrakr. 31.995,- 3339CL 460 Ktra kr. 35.995,- 49í>9a Kr.23.995, Skráðu þig %) í vefklúbbinn www.husa.is HÚSASMIÐJAN Sími 525-3000 • www.husa.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.