Morgunblaðið - 14.09.2000, Síða 36

Morgunblaðið - 14.09.2000, Síða 36
36 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Hin jákvæða blekking TOIVLIST Hailgrímskirkja KÓRTÓNLEIKAR Kirkjuleg verk eftir Þorkel Sigur- bjömsson (Heyr, himna smiður), Jónas Tómasson (Drottinn er minn hirðir), Oliver Kentish (Turn Thee Unto Me), Jón Leifs (Requiem), Jón Hlöðver Askelsson (Tignið Drottin), Atla Heimi Sveinsson (Maríukvæði) og John A. Speight (Sam’s Mass). Marta G. Halldórsdóttir sópran, Daði Kolbeinsson óbó; Schola Cantorum undir stjórn Harðar Áskelssonar. Mánudaginn 11. september kl. 20. SCHOLA Cantorum er á förum til Helsinki sem fulltrúi íslenzkra kirkjukóra á norræna kirkjukóra- mótinu Jubilemus (,,Fögnum!“) 2000. Kórinn markaði upphaf fimmta starfsvetrar síns með ekki nema þokkalega sóttum tónleikum í Hallgrímskirkju á mánudagskvöld, enda úti veður vont. Dagskráin sam- anstóð eingöngu af íslenzkri and- legri tónlist, og burtséð frá „Requ- iem“ Jóns Leifs var flest tiltölulega nýlegt af nálinni. „Heyr, himna smiður“ eftir Þor- kel Sigurbjörnsson var efst á blaði og markaði söngurinn þegar í upp- hafi flutningsgæði af þeirri gráðu sem eiginlega kemur umfjallanda í ákveðinn bobba. Því líkt og með klénan flutning má á vissan hátt spyrja hvort afburðatúlkun sýni al- veg rétta mynd af óárennilegu nú- tímatónverki, þótt með öfugum for- merkjum sé, þegar jafnvel minnsti vottur erfiðleikans er horfinn og fegurðin ein stendur eftir; eða m.ö.o. þegar varla má á milli Sjá hvað sé höfundi að þakka og hvað flytjand- anum. En ætli verði ekki að gera ráð fyr- ir að flestir höfundar kjósi fremur þennan seinni kost en hinn fyiri. Tæknilega séð var Himnasmiður Þorkels, ólíkt mörgu sem á eftir kom, að vísu mjög viðráðanlegt verk. Engu að síður er jafnan erfitt að flytja hið slétta og fellda virkilega vel. Og þegar svo vel er flutt sem hér gat að heyra, án þess að gæðin rýrn- uðu skynjanlega í tæknilega meira krefjandi verkum þeim sem á eftir komu, er ljóst, að túlkendur hafa náð því stigi þar sem flestir vegir eru færir. Þetta má við íslenzkar að- stæður útleggja sem flutning í sér- flokki. Að öðrum fremstu kórum landsins ólöstuðum virtist jafnljóst, að enginn hefur komizt lengra til þessa að marki hæstu atvinnu- mennsku en Schola Cantorum komst þetta umrædda kvöld - með smáfyrirvara um textaframburð, sem ævinlega má skerpa, þótt kunni að vísu að kosta annað í staðinn. Skrafa mætti lengi um ýmis ágæt- iseinkenni kórsins, en hér skal látið nægja að benda á eitt, sem verið gæti mörgum hérlendum kórum til fyrirmyndar og þótt víðar væri leit- að: hvergi vottaði fyi'ir þeirri „aftur- reigingu", ef svo má kalla, sem svo víða heyrist, þegar inntónun er fín- stillt með því að læðast í tóninn og herða síðan á styrk. Vera má að til þurfi söngmenntað kórfólk eins og hér var um að ræða - en mikið ósköp er þá líka ljúft að vera laus við téða tiktúru og þann ámáttlega blæ sem henni fylgir! Vel að merkja þegar tónstaðan helzt tandurhrein, eins og ávallt átti við um söng Scholae Cantorum, hvort heldur í einföldu líðandi lagferli eða í erfiðum inn- komum og stórstígum tónbilum. Af framansögðu má gruna, að flutningur kórsins hafi verið það jafn um alla dagskrá að til lítils sé að reyna að gera upp á milli túlkunar stakra atriða. Hvað verkin sjálf varðar má aftur á móti segja, að flest ef ekki öll birtust hlustendum sem meiri eða minni meistaraverk, a.m.k. við fyrstu heyrn, og hjúpuð þeirri jákvæðu blekkingu sem felst í framúrskarandi túlkun, hvað svo sem tíminn og ítrekuð hlustun á eftir að vinza úr, þegar töfrum augna- bliksins linnir. Hinar velþekktu smáperlur Þor- kels og Atla Heimis stóðu meira en vel fyrir sínu þetta kvöld og sömu- leiðis hið stutta en síferska Requiem Jóns Leifs. Hin nokkru lengri verk Jónasar Tómassonar og Olivers Kentish, „Drottinn er minn hirðir" við 23. Davíðssálm og „Turn Thee Unto Me“ (1999) við hinn 25. sam- einuðu, líkt og verk Jóns Hlöðvers Askelssonar (og raunar einnig síð- asta verk kvöldsins eftir John Speight), fornt og nýtt tónmál, hvert á sinn hátt. Sérkennilegur leiðslublær var yf- ir verki Jónasar, sem hélt sér við fremur fábreyttan stíl og tíð unisoni án þess þó að glata áhrifum. Verk Olivers var mun fjölleitara að áferð og stundum allágengt í samræmi við textann og oft stutt hermikontra- punkti, víða litað allt frá tvíundar- kryddi í þéttriðnasta hljómaferli, og hneig til viðar á kosmískum klasa- hljómi er leystist í tóman fimmund- artvíhljóm. I „Tignið Drottinn" Jóns Hlöðvers Áskelssonar frá 1997 kenndi jafnt þjóðlegrar samstigni sem nútímalegri tónmeðala. I byrj- un mátti heyra áhrifamikla beitingu undirsöngsþrástefs hjá körlum við sjálfstætt efni kvenradda, og lauk með glæsilegri fagnandi á „heilagur, heilagur". Hið nærri hálftíma langa verk Johns Speight, „Sam’s Mass“ (1997), var samið fyrir kór, ein- söngssópran og óbó. Því miður til- færði söngskráin ekki latneska requiemtextann heldur aðeins ívafs- texta úr ljóðum eftir William Blake, og því örðugt að glöggva sig til fulls á formbyggingu verksins í fyrstu at- rennu. Engu að síður var eftirtekt- arvert hvað það hélt góðri athygli þrátt fyrir mikla lengd og oft njörv- aðan satz, og var það að líkindum mikið til fjölbreyttri áferð að þakka, þar sem sólistarnir komu í góðar þarfir með tilbreytandi einleiks- eða meðleiksinnslögum. Meðal sam- tengjandi þátta voru andaktsvekj- andi blævængshljómar á „requiem" og „sanctus“ og sérkennileg rísandi (síðar hnígandi) 3-5-7-9 „tröppu“- frum. Að mörgu leyti framsækið verk með nútímaeffektum eins og klösum og talkórum, þótt einnig gætti fortíðaráhrifa allt frá greg- orsku lagferli og Ars Nova. I heild viðamikil og oft spennandi tónsmíð í frábærum flutningi kórs, einsöngv- ara og óbóista, sem fjaraði eftir- minnilega út á dapurri óbóstrófu „lontano", eða úr fjarska. Ríkarður Ö. Pálsson Kvennakórinn Léttsveit Reykjavfkur. Ljósmynd/Grímur Bjamason Léttsveitin í nýjum búningi STOFNAÐUR hefur verið nýr kvennakór í Reykjavík og hefur hann hlotið nafnið Kvennakórinn Léttsveit Reykjavíkur. Fyrirrenn- ari kórsins var Léttsveitin, sem til- heyrði Kvennakór Reykjavíkur. Þegar grundvöllur fyrir samstarfi Léttsveitarinnar við Kvennakórinn brast sl. vor ákváðu áhugasamir fé- lagar hennar að halda áfram starf- seminni og hyggjast halda form- legan stofnfund 22. september nk. Stjórnandi Léttsveitarinnar verður sem áður Jóhanna Þórhalls- dóttir og verður Aðalheiður Þor- steinsdóttir pianóleikari. Eins og nafnið gefur til kynna leggur Léttsveitin áhcrslu á létta og skemmtilega tónlist, bæði íslenska og erlenda, s.s. þjóðlög, dægurlög, djass og gospel. Léttsveitin mun á komandi starfsári halda tvenna tónleika, auk þess sem hún tekur að sér að koma fram við ýmis tækifæri. Klassíska vinaástin KVIKMYJVDIR Stjörnubíó BOYS AND GIRLS ★ % Leikstjóri: Robert Iscove. Handrit: Andrew Lowery og Andrew Miller. Aðalhlutverk: Freddie Prinze Jr., Claire Forlani, Jason Biggs, Am- anda Detmer og Heather Donahue. Dimension Films 2000. ÞAU eru agalega falleg. Mikið fal- legra gerist fólk ekki. En þau passa ekkert sérstaklega vel í hlutverkin sín. Hvemig á maður að trúa því að Freddie Prinze Jr. sé algjör lúði af því að hann er með gleraugu? Hann get- ur ekki mikið leikið. Claire Forlani er reyndar líklegri sem hin glaðlynda og léttlynda Jennifer, en þessi skötuhjú verða bestu félagar í háskóla án þess að vilja viðurkenna íyrir sjálfu sér og hvort öðru að þau eru ástfangin upp íyrir haus. Svo þurfum við, aumingja áhorf- endumir, að sitja undir atriðum sem eiga að vera rosalega krúttleg og skemmtileg þar sem þau fara út að dansa og á hjólaskauta og geta ekki tekið hendumar af hvort öðm, og bíða þar til í lokin, þegar þau loksins fatta hvers vegna þeim verður heitt í mallanum þegar þau sjá hvort annað. Og mikið hefði nú verið gaman ef lokaatriðið hefði verið glæsilegt eða alla vega fmmlegt. En endirinn er svo mikil klisja að maður roðnar. Og hvað var hún að standa upp á kaffihúsi og halda einhveija fáránlega ræðu um ást? Þá sekkur maður í sætinu. Og af hveiju? Við höfum hundrað sinnum séð rómantískar gamanmyndir sem em fyrirsjáanlegar en samt lifað okk- ur inn í þær af öllu hjarta. Þessi mynd er bara öll eitthvað svo klunnaleg og endirinn toppar allt. Rómantískar gamanmyndir eiga að vera hnyttnar og skondnar, en höf- undar þessarar myndar tína saman uppáhaldsatriðin úr uppáhalds róm- antísku gamanmyndunum sínum og umbreyta þeim í lélega útgáfu, og það er það sem þessi mynd er. Metnaður- inn er greinilega alveg að fara með fólk í Hollyood. Persónurnar þyrftu t.d ekki að vera svo vitlausar. Bestu vinir Jenni- fers og Ryans, þau Amy (Amanda Detmer) og Hunter (Jason Briggs) era bæði í mikilli sjálfsmyndarkrísu auk þess að vera ástsjúk, sem er raunsætt vandamál og getur verið býsna fyndið, en þau em bæði gerð að „íyndna vininum" sem á ekki að taka alvarlega. Þau era öll að rembast svo við að vera fyndin að þau verða bara bjánaleg og aumkunarverð. Þessi mynd vekur áhuga yngri kynslóðar unglinga tíu til fjórtán ára, og ég held að persónumar allar, og þær sálarkreppur sem þau eiga að standa fyrir, séu ekki nógu nákvæm- lega dregnar upp til að unglingamir skilji almennilega hvað þau em að pæla. Ég átti frekar erfitt. Þar að auki felst söguþráðurinn aðallega í þróuninni í sambandi Ryans og Jennifer og hún er hæg. Krakkar þarfnast þess að hetjumar þeirra hafi sjáanlegri markmið en það að afneita augljósri ást. Þessi saga er klassísk og verður alltaf, og virkaði t.d mjög vel í „When Harry met Sally“, en það verður að vinna úr efniviðnum á við- eigandi hátt. Þá sem langar að sjá myndina Boys and Girls geta notað það fyrir afsökun að undir kreditlistanum í enda mynd- arinnar er ótrúlega sérstakt grín- atriði með Jason Biggs (American Pie) og súpermódelum Victoria’s Secret kvennærfatamerksins. Hildur Loftsdóttir Skýr mótun tónhendinga TQjVLIST Langholtskirkja ORGELTÓNLEIKAR ANDREW PAULHOFMAN frá Boston lék verk eftir Buxtehude, Niels W.Gade, IQell Mörk Karlsen, Daniel Pinkham og J.S. Bach. Þriðjudagurinn 12 september, 2000. TÓNLEIKARNIR hófust á Prelúdíu í g-moll BuxWV 149, eftir Buxtehude en prelúdíuform- ið hjá Buxtehude var oftast mjög frjálst og innihélt oft tvo til þrjá milliþætti, frjálslega unnar fúgur. Fyrsti kaflinn var venjulega viða- mesti hluti prelúdíunnar, bæði leiktæknilega og hvað snertir úr- vinnslu hugmyndanna. Nafngiftin „Prelúdía og fúga“ finnst ekki í handritum Buxtehude og gæti slík nafngift aðeins átt við fimm prelúdíur, þar sem um er að ræða aðeins eina fúgu. Prelúdían var leikin af öryggi og með tölu- verður tilþrifum, sérstaklega upphafskaflinn Tvö kóralforspil, eftir Niels W. Gade, voru smekklega flutt og era þýð og falleg tónlist, sér- stakléga seinna kóralforspilið, sem er unnið yfir sálmalagið Hver sem ljúfan Guð lætur ráða, eftir Georg Neumark, þó sjálfur sálmurinn hafi verðið einum of freklega sterkt registreraður. Eftir Kjell Mörk Karlsem flutti Hofman fimm þátta partítu, „post moderne11 tónsmíð, sem var á köflum skemmtileg í radd- skipan, sérstaklega þrástefja (ostinato) þátturinn og kvartett- inn fyrir krummhornin. Passac- alian var hins vegar lítilfjörleg tónsmíð og því lítið hægt að gera úr henni. Hofman er nokkuð leikinn orgelleikari og mótar leik sinn mjög skýrlega, svo sem heyra mátti í tólf prelúdíum eftir Daniel Pinkham (1923). Prelúdíurnar tengjast frásögnum af dýrðling- um og píslarvottum en yfirskrift verksins er „Dýrðlingadagar". Þetta eru stutt eins stefs verk, byggð á mjög ákveðnum stefjum, sem unnið er úr á sannfærandi máta og var bæði raddskipan og flutningur oft mjög vel mótaður af Hofman. Danile Pinkham er Bandaríkja- maður, menntaður við Harvard og sótti einnig einkatíma hjá Nadiu Boulanger í París. Hann hefur samið fimm einleiks- konserta, fjórar sinfóníur, leikhús og kvikmyndatónlist, kammert tónlist og kirkjuleg verk, enda mátti vel heyra, að Pinkham er leikinn tónsmiður og er tónmálið í prelúdíunum bæði nútímalegt og vísar einnig til hefðbundinna gilda, bæði er varðar „tematík“ og á köflum „tónalan" rithátt. Hofman lauk tónleikunum með prelúdíu og fúgu í C-dúr, BWV 547, eftir J.S. Bach. Þetta er leik- tæknilega skemmtilegt verk og það sem er sérkennilegt við fúg- una og frekar fátítt í orgelverk- unum, er að stefið er sérlega stutt, einn taktur, sem meistar- inn bætir sér upp með því að leika stefið í lengingu og spegla þessa lengingu einnig í pedal- röddinni, er gefur verkinum virðulegan endi. Hofmann er góð- ur orgelleikari, og naut sín sér- lega vel í verki Pinkhams, þar sem leikur hans var sérlega skýr og einnig var mótun tónhendinga vel útfærð í prelúdíunni eftir Buxtehude. Hinsvegar var flutn- ingurinn á Bach ekki alls kostar snurðulaus og í heild svolítið lit- laus en borinn upp af töluverðri tækni. Jón Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.