Morgunblaðið - 14.09.2000, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000 39
K
Ljósmynd/Halldór Böm Runólfsson
Hluti af myndskreytingum Edwards Fuglu í anddyri Norræna hússins.
eldri Antoníu, sem verða að þreyja
myrkrið á leið sinni með varning á
handvagni yfir dimma og drunga-
lega heiði utan við þorpið. Skrekk-
inn magnar ímyndunarafl stúlk-
unnar þegar hún reynir að stríða
litla bróður sínum, sem þó er
hennar eina vörn gegn ógninni
sem hún kemur af stað.
Trúlega er sögunni enginn
greiði gerður með myndskreyting-
um Edwards Fuglps. Þær bæta
ekki söguna heldur breyta henni
einungis úr bernskuminningu
handa fullorðnum í barnabók-
menntir, sem er auðvitað viss sig-
ur út af fyrir sig því þar með sann-
ast enn sém fyrr að listaverk á
borð við smásögu er ekki lokað
kerfi heldur nýtist sem aukafóður í
annars konar listmenntir, í þessu
tilviki bók handa börnum.
Sem slíkur gjörningur eru
myndskreytingar Fuglps góðra
gjalda verðar og stundum býsna
vel út færðar. Við þurfum litlar
hryllingssögur fyrir yngstu kyn-
slóðina þó að ekki sé nema til að
styrkja ímyndunarafl hennar. Að
vísu má það ekki ganga svo langt
að börnin okkar verði hvekkt eins
og Þórbergur heitinn. Hann þorði
hvorki að hafa kveikt hjá sér því
þá gátu morðingjarnir auðveldlega
miðað hann út frá fylgsni sínu ut-
an við gluggann, né slökkt því þá
ofsóttu hann draugar og önnur yf-
irskilvitleg öfl.
En myndir Fuglo, sem nú prýða
útgáfu Máls og menningar á sögu
Heinesen, munu varla framkalla
slíkar hremmingar þótt þær séu
vissulega dramatískar. Vatnslita-
og olíupastelmyndir hans er nefni-
lega nægilega hlýlegar til að taka
broddinn úr ógninni. Útkoman er
því prýðileg og trúlega til þess
fundin að veiða viðkvæm börn á vit
góðra bókmennta.
Halldór Björn Runólfsson
Clinique tryggir:
Fallega húö
Svo mikla trú hefur Clinique á
3ja þrepa kerfinu.
í þremur fljótlegum þrepum,
tvisvar á dag fær það allar húð-
gerðir á öllum aldri til að líta vel
út.
Það er þróað af húðlæknum,
sniðið til að uppfylla sérstakar
þarfir húðar þinnar og er 100%
ilmefnalaust.
Þrep 1. Facial Soap.
Hreinsar á mildan hátt.
Þrep 2. Clarifying Lotion.
Fjarlægir dauðar
húðfrumur.
Þrep 3. Dramatically Different
Moisturizing Lotion.
Gefur raka.
Með reglulegri notkun 3ja
þrepa krefisins - tvisvar á dag,
á hverjum degi - mun húð þín
líta betur út.
Það tryggir Clinique.
Facial Soap frá kr. 1.205,-
Clarifying Lotion
frá kr. 1.096,-
Dramatically Different
Moisturizing Lotion
frá kr. 1.480,-
clinique 100% ilmefnalaust
Snyrtitaska með 3ja
þrepa kerfinu frá
Clinique á kr. 1588.-