Morgunblaðið - 14.09.2000, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000 45
hafin. Hún hófst á tregafullan hátt en
jafnframt fallegan og Mðsælan.
Margt var það sem þú kenndir mér.
Mai'gt sem þú gerðir sem vekur hjá
manni góðar minningar og bros á vör
og maður fyllist söknuði er maður
hugsar um þær, en á þeim lifir maður.
Mig langar til að rifja upp og segja frá
nokkrum sem sitja svo í mér og koma
mér alltaf til að brosa og hlæja.
Ég man er ég kom fyrst í Raufar-
selið. Ég og Aslaug komum seint
heim enda að byrja sambandið og til-
hugalífið pg afar ástfangin líkt og í
dag. Við Aslaug sáum að það virtist
vera slökkt inni og allir farnir að sofa.
Við læddumst inn en ég sá að það var
kveikt á sjónvarpinu. Ég gekk að því
inn í stofu og þar sastu í jógastelling-
unni þinni sem var svo sérstök, og al-
veg sama hvað ég reyni næ ég henni
ekki. Ég gekk að þér og á einu augna-
bliki fólnaði ég! Ég man hvað þú
starðir á mig enda var þarna mættur
stór og mikill maður með dóttur
þinni. Þú hafðir heyrt af honum en
aldrei séð hann. Ég stamaði út úr mér
einhver orð og þú gerðir það sama.
Báðir vandræðalegir og ekki laust við
að vera hálf feimnir. Ég gékk svo upp
en man að ég bauð þér góða nótt.
„Góða nótt,“ sagðir þú svo. Þessar
nætur áttu svo eftir að verða æði
margar enda var það lærdómsríkt er
við Aslaug bjuggum hjá ykkur. Svo er
ég alltaf þakklátur fyrir það er við Ás-
laug eignuðumst íbúðina okkar sem
var jafnframt sú fyrsta. Þú og Asa
komuð með okkur að skoða. Eg var
ofsa spenntur og hoppaði um eins og
krakki sem var að fá pakka og beið
eftir að fá að opna hann. Pakkann
opnuðum við svo stuttu seinna. Pakk-
inn var íbúðin og ibúðina fengum við,
með ykkar aðstoð.
Svo var það San Diego-ferðin
fræga sem er ógleymanleg. Manstu
hvað við gleymdum okkur við að
horfa á herskipin og hvað við vorum
agndofa yfír stærðinni á þeim. Þú
varst svo vel að þér í sögu skipanna
þannig að við þurftum ekki að hlusta
á leiðsögumanninn. Manstu hvað
sjúkraskipið var stórt? Þú varst fljót-
ur að reikna út hvað við þyrftum
marga Landspítala til að fylla það
skip. Og eftir sátum við fránumin af
hrifningu. Manstu er við rukum á
barinn, ég og þú, í skipinu í skoðunar-
ferðinni um Coronado Island? Leið-
sögumaðurinn sagði, á ensku, að bar-
stúlkan væri íslensk. Við spruttum
upp og ætluðum að ræða við hana og
hún starði á okkur furðuleg á svip er
við byrjuðum að tala. Hún var ekkert
íslensk og var leiðsögumaðurinn með
einstakan brandara í gangi! Við vor-
um ekki lengi að slá stúlkunni gull-
hamra, en hún hefði alveg eins getað
verið íslensk en var bandarísk. Þú
sagðir að hún væri svo falleg að hún
gæti verið íslensk, og ég sagði að á
Islandi væri bara fallegt kvenfólk.
Flottir vorum við; fannst þér ekki?
Svo hlógu Ása og Áslaug bara að okk-
ur.
Manstu er við fórum yfír til
Mexíkó? Annar heimur! Öll fátæktin
og prúttið við götusalana. Þú varst
lunkinn við það að prútta og stjórnað-
ir verðinu og því hvað allt yrði keypt
á. Götusalamir voru hissa á að þú
kynnir þessa klæki. Svo var ég alveg
orðlaus yfír allri eymdinni og vildi
fara aftur til San Diego, en þá sagðir
þú við mig þessa gullnu setningu:
„Sveinn minn, þú verður að sjá hvern-
ig heimurinn er, en ekki sjá hann eins
og þú vilt hafa hann!“ Mikið var það
rétt. Svo lágum við saman og hvíldum
okkur yfír sjónvarpinu á hótelinu og
hrutum eins og hrútar, hlið við hlið.
Svo var það dagurinn sem við átt-
um saman inni á líknardeild. Þú hafð-
ir verið svo veikur en þennan dag
varstu svo hress og þér leið svo vel.
Við sátum hjá þér, ég og Áslaug,
lengi, lengi. Við ræddum margt milli
himins og jarðar. Við ræddum um líf-
ið og hve dýrmætt það er, við rædd-
um um fjölskylduna og hve áríðandi
það er að hún haldi tryggð og sam-
heldni. Við ræddum um pólitík, við
ræddum um bameignir, við ræddum
um vonir, þrá og framtíðina. Þú gafst
okkur góð ráð fyrir framtíðina. Þau
ráð geymi ég og reyni að fai-a eftú
þeim með bestu getu, því þau voru
góð.
Elsku Mummi minn. Ég dáðist að
því hvað þú barðist mikið í veikindum
þínum. Við lærðum margt af þessu.
Ég þakka starfsmönnum líknardeild-
arinnar í Kópavogi íyrir allan stuðn-
inginn - sá stuðningur er ómetanleg-
ur.
Nú ertu aftur farinn í ferðalag og
hittir marga sem þú þekktir. Þú
þekktir svo marga.
Gangi þér vel. Ég verð góður við
Áslaugu. Skilaðu kveðju til allra og
Guð veri með þér.
Kveðja,
þinn tengdasonur,
Sveinn Hjörtur Guðfinnsson.
Skapari himins og jarðar hefur
með meistarahöndum gert fjöll og
dali, vötn og líf.
Verkin hafa verið unnin án sam-
ráðs við okkur mennina. Við höfum
ekki í önnur hús að venda og verðum
að njóta og gjalda þess sem okkur er
gefið. Við getum lítið meir en gefið
smíðum skaparans nöfn til að lýsa því
sem fyrir augu ber, tilfinningum okk-
ar og skoðunum.
Fyrir fáum árum urðum við Guð-
mundur Bjamleifsson mágur minn
samferða yfir Fimmvörðuháls. Þar
rekur hver hjallinn annan svo mjúk-
lega að brekkan er nánast samfelld
þegar komið er sunnan að. Þetta var
ánægjuleg gönguferð sem farin var
beint af augum en heldur lá Guð-
mundi þyngra orð til hjallanna eftir
því sem leið á uppgönguna. Um efstu
hjallana talaði hann tæpitungulaust.
Þegar hallaði á hinn veginn og komið
var niður í Bröttufönn mýktist vitnis-
burðurinn, Heljarkamburvar þrædd-
ur án orða og Morinsheiði lofuð fyrir
áferðina.
Það var með þessa gönguferð eins
og líf Guðmundar. Hann naut þess
sem íyrir augu bar en ólatúr sagði
hann hug sinn um menn og málefni og
hvað eina sem á vegi hans varð. Hann
hafði yndi af skylmingum með orðum,
vel pólitískur og hneigður fyrir fé-
lagsstarf. Honum var gjamt að fara
beina leið upp hjallana og tók það
ekki nærri sér þó að hann hitti fyrir
þá sem höfðu andstæðar skoðanir en
latur var hann að víkja fyrir þeim.
Guðmundur hitti marga á lífsleiðinni
hvort sem það var til sjós, í járnsmíði,
kennslu, sölumennsku eða viðskipt-
um. Ferill hans var sarpur reynslu
sem hann naut og miðlaði af.
í augum barna má lesa hvað þeim
finnst um hugarþel fullorðinna. Guð-
mundur laðaði til sín afastrákana.
Þeir voru hans menn og Guðmundur
var þeirra maður. Hann var líka okk-
ar maður sem tilheyrum fjölskyldu
hans.
María Jóhannesdóttir tengdamóð-
ir mín var móðir Guðmundar. Hún
var hæglát kona, lítt framhleypin og
valdi fremur sneiðinga en bratta.
Samt náði hún því marki sem hún
vildi enda rík í skapi þótt hljótt færi.
María hafði séð mig áður en ég sá
hana fyrst. Samt var hún feimin við
mig þar sem hún stóð innan við búð-
arborðið en ég unglingurinn í tygjum
við dóttur hennar fyrir framan borðið
með vörur. Hún sagði „komdu sæll“
og fékk svarið „sæl“ í staðinn. Seinna
rjátlaðist feimnin af okkur og hún tók
mig undir vemdarvæng sinn eins og
aðra í fjölskyldunni. Samskiptin voru
opin og það var gaman að kankast á
við hana og fá meitluð tilsvör hennar
þegar þannig stóð á. María veitti okk-
ur ómetanlegan stuðning fyrstu bú-
skaparárin. Alla tíð leit hún á hag
barna sinna og fjölskyldna þeirra sem
sinn hag. Hún á drjúgan þátt í góðum
merg barnabama sinna. Tryggð og
góðmennska fyllir hveija síðu í vega-
bréfi tengdamóður minnar. Hún lagði
fyrir að útför sín færi fram í kyrrð og
ró.
María og Guðmundur sonur henn-
ar lögðu upp í hinstu ferð sína með
tveggja daga millibili. Hún hafði ekki
hug á að lifa böm sín. Hann vildi
verða samferða móður sinni úr því
sem komið var. Þessi ráðstöfun lýsir
þessu fólki. Tryggðin og samheldnin
rofnaði ekki þó að þrekið og heilsan
nálgaðist endamörk.
Olík voru kjör móðurinnar og son-
arins síðustu mánuðina. Hún fór
hæglát sneiðingana og yfir slétta
heiði þar til sá sem gaf henni andann
tók hann aftur. Guðmundi var gert að
fara hörðustu leiðina upp mestan
brattann. Öfugt við ferðina yfir
Fimmvörðuhálsinn forðum var minna
sagt eftir því sem fleiri hjallai’ voru að
baki. Að þessu sinni var ekki komist
yfir Heljarkambinn. Samt vom til
stuðnings fólkið hans, eiginkonan,
börnin, tengdabömin og systkini
beggja. Þau gáfu allt sem þau áttu en
lífið tapaði fótfestunni. Það er enginn
snauður sem leggur upp í ferð með
þessu fólki. Skapari himins og jarðar
hefur séð til þess að menn þurfi ekki
að ferðast einir þegar verk hans taka
að gefa sig.
Fjölskyldan hefur breyst. Tveir
máttarstólpar era farnir. Áðrir vaxa
upp. í minningu Maríu og Guðmund-
ar höldum við hópinn og hlið við hlið
tökum því sem okkur er ætlað af
verkum skapara himins og jarðar.
Snorri S. Konráðsson.
Nú ertu farinn í aðra vídd
þú blíði drengur góði.
I hugarró og kyrrð ert þú nú
að rökræða við máttarvöldin.
Eneffirsitjaástvinir
ísöknuðiogharmi.
En Ijósið mun lýsa þeim leiðina
er þú umvefur þau örmum þínum.
Elsku Mummi. Guð blessi þig og
megi allar þínar hugsjónir lifa um alla
framtíð.
Þín mágkona,
Lijja.
Jæja Guðmundur minn, það fór þá
þannig að maðurinn með Ijáinn sigraði
að lokum, loksins þegar þú ætlaðir að
fara njóta lífsins, eiga þægileg eM ár.
Þín verður sárt saknað í hádeginu, þar
sem við ásamt fjölda af frábæra fólki
börðumst hetjulegri baráttu við að
halda taktinn og gera allar æfingar
eins réttar og okkur var sýnt. Oft var
nú hlegið og gantast að tilburðum
bæði okkar og þeirra sem næstir okk-
ur vora og alltaf þegar ég mætti þá var
búið að taka frá pall eða palla í okkar
fræga fiflahomi, eins og við skírðum
það, því eins og við margræddum þá
vildum við ekki fá einhveija ókunnuga
náíægt okkur til að trafla sprellið og
umræður dagsins. Margar heitar um-
ræður urðu til í gufubaðinu á eftir,
sumar svo mergjaðar að ekkert mátti
leka út úr klefanum þar sem við sát-
um, fastafélagar í Hreyfingu, nokkr-
um sinnum í viku hverri, börðumst
hetjulegri baráttu við kílóin, ekki
granaði mig að þessar stundir tækju
svo fljótt af, enda varst þú bjartur eftir
aðgerðina í vor sem leið. En þú gerðir
þér alltaf grein fyi-ir öllu sem gæti
komið upp á, við ræddum það í léttum
tóni en þó við vissum báðir að það gat
bragðið til beggja vona.
Kæri vinur, þín verður sárt saknað
og skarð þitt vandfyllt í hominu okk-
ar fræga en minning um góðan mann
lifir. Ég þakka þér fyrir okkar góðu
kynni í gegnum árin.
Við félagarnir í Hreyfingu sendum
eiginkonu og fjölskyldu okkar dýpstu
samúðarkveðjur.
Þinn leikfimisfélagi,
Jón P. Jónsson.
Kærleikur er máttuga aflið í heim-
inum, sem öU tilvera er háð. Því guð
er kærleikur. Og sá sem trúir á hann
mun eiga eUíft líf.
Þegar þú, Ása mín, hringdir í mig
klukkan 10 hinn 6. september sl. og
sagðir við mig með þinni rósemi, sem
þér er einni gefin: „Gerða mín.hann
Mummi er látinn,“ þá sagði ég ég trúi
því ekki. Mummi minn sem hringdi í
mig í vetur og sagðir: „Nú þarf ég á
þínum líknai- höndum að halda. Ég er
svo slæmur í hnakkanum og læknir-
inn sagði að ég væri með svo mikla
vöðvabólgu." Eg gaf þér tíma og þú
komst til mín í nudd, en ég sagði:
„Mummi minn, þetta er ekki vöðva-
bólga, farðu strax niður á bráðamót-
töku og biddu um heilaskönnun." Þú
trúðir mér ekki, en annað kom í Ijós.
Það reyndist vera heilaæxli illkynjað
við heilann. Aðgerðin gekk mjög vel
og þú náðir þér mjög fljótt. Ég gleymi
því aldrei þegar þú komst niður á
stofu til mín svo ánægður og glaður.
Eftir aðgerðina varstu aftur bytjaður
að vinna. Ég varð svo glöð að ég
sagði, þú ert hreint kraftaverk. Við
Ása konan þín höfðum mikið sam-
band. Þegar þú gekkst undir þessa
aðgerð.
Hún vissi hvað við voram miklir fé-
lagar og vinir frá barnæsku, við ól-
umst upp á sama stað í Höfðaborg-
inni í Reykjavík.
Gengum saman í skóla, voram jafn
gömul, þú hafðir gaman af því að
minna mig á þegar ég var að búa til
sögur fyrir neðan Höfða. Þá átti ég
það til að segja svo magnaðar sögur
að ég varð hrædd sjálf og sagði, núna
verð ég að fara heim, og var fyrst
heim, þú þekktir músarhjartað í mér,
og vissir að ég var sjálf hrædd. Ég
gleymi því ekki hvað þú hlóst þegar
Guðrún Stefensen kennarinn okkar
kom niður á Skúlagötu 40. Þegar við
stelpurnar héldum þorrablót, fyrir
unga sem gamla. Og sagðir að einu
sinni þegar hún fór úr stofunni og við
krakkarnir voram ein inni í stofu og
ég réði ekki við ykkur strákana, þá lét
ég líða yfir mig. Þið vorað búnir að
væta töflusvampinn og láta leka yfir
mig vatn. Þið hélduð að ég væri dauð.
Og það fyrsta sem þið sögðuð þegar
hún kom inn. Hún Gerða er dauð. Það
eina sem hún sagði: Já, og hver drap
hana?“ Hún þekkti mig og vissi hvað
mikill leikari ég var og hvemig ég gat
leikið á ykkur strákana. Eftir að ég
fluttist til Breiðdalsvíkur fylgdist þú
með því, þú og fjölskyldan þín komuð
og heimsóttuð mig. Svona varst þú
alltaf, gleymdir engum, varst alltaf
sami góði vinurinn.
Ég gleymi því ekki hvað þú varst
glaður þegar ég flutti aftur til
Reykjavíkur og þú hittir mig í Kola-
portinu við að auglýsa stofuna mína
og smyrslin mín. Hvað sagðir þú oft
við mig: „Þú drepur þig á allri þessari
vinnu.“ Stundum komst þú með mat í
vinnuna og færðir mér guði sé þér
þökk fyrir það. Enda veiktist ég og
brann yfir. Fyrir tveimur árum, ég
veiktist á annan hátt en þú Munni
minn. Guð sé þökk að ég er með guðs
hjálp, komin yfir mín veikindi. Ég á
fallegt heimili í dag og ég hefði viljað
að þú hefðir getað séð það. Ég get
endalaust haldið áfram, og skrifað
heila bók. Um okkar bemsku og
æsku. Betri bróður og betri vin hef ég
ekld átt en og þig. Eg ætla að muna
þig eins og þú varst bam, unglingur
og fullorðinn maður. Þú varst það
góða í mínu lífi og lífi annarra. Þú
fylltir lífið ljósi. Og ljósið þitt og
Drottins lýsir minninguna um þig,
sem góðan vin, leikbróður og skóla-
bróður.
Elsku Ása mín, guð blessi þig og
þína fjölskyldu. Minning um góðan
eiginmann, föður og afa lifir í hjörtum
ykkar.
Haustið er komið, sumarið frá, með
sólina sína björtu. Láttu samt Jesú
drottinn minn þá. Ljósin skína í
hjörtu.
Gerður Benediktsdóttir.
Guðmundur Bjamleifsson var fé-
lagshyggjumaður í orðsins fyllstu
merkingu. Hugsjónir hans snerast
um réttlæti fyrir alla þegna þjóðfé-
lagsins og honum var misboðið að
horfa upp á misréttið, sem víða blasir
við og vildi bæta úr með þátttöku í
stjórnmálasamtökum, sem leggja
meM áherzlu á manngildi en auð-
hyggju.
Það verður tæplega sagt, að Guð-
mundur hafi alist upp við allsnægtir í
bernsku, en hann ólst upp við gott at-
læti í fjölbreytilegu umhverfi, þar
sem unglingar höfðu frjálsræði og
áttu sína drauma um framtíðina.
Ungur að árum fór Guðmundur að
sækja æfingar á félagssvæði Fram,
sem þá var fyrir neðan Sjómanna-
skólann. Hann var góður liðsmaður
Fram og lék með unglingaliðum fé-
lagsins. Æ síðan fylgdi hann félaginu
að málum og var áhugasamur um vel-
ferð þess. Kynni okkar Guðmundar
hófust á þessum áram og héldust upp
frá því.
Það má segja, að með stofnun
Reykjavíkurlistans hafi sambandið
við Guðmund orðið nánara, en hann
fagnaði innilega, að félagshyggjufólk
í Reykjavík skyldi taka höndum sam-
an um stjórn borgarinnar. Var hann
mjög áhugasamur um atvinnulífið og
að vel væri staðið að uppbyggingu
þess í því skyni, að atvinnuöryggi
borgarbúa yrði tryggt sem bezt. Att-
um við ófá samtöl útaf þeim málum.
I erfiðum veikindum stóð fjöl-
skylda Guðmundar vel við bakið á
honum og segja má, að eiginkona
hans Ása Þorsteinsdóttir hafi vakað
yfir honum dag og nótt. í síðasta
skiptið, sem ég hitti Guðmund á líkn-
ardeild Landsspítalans var baráttu-
hugur hans óbugaður og hann ræddi
um framtíðar áform sín. Nokkram
dögum síðar var hann allur.
Ég sendi fjölskyldu Guðmundar
innilegar samúðarkveðjur vegna hins
ótímabæra fráfalls góðs drengs.
Alfreð Þorsteinsson. J
í dag, ftmmtudaginn 14. septem-
ber, kveðjum við okkar gamla leikfé-
laga og vin Guðmund Rúnar Bjam-
leifsson, af okkur og fleiram oftast
kallaður Mummi.
Minningar frá æskuáranum urðu
Ijóslifandi fyrir nokkram áram þegar
Mummi stóð fyrir því að við nokkrir
æskuvinir kæmum saman. Sumir
höfðu ekki sést mánuðum og jafnvel
árum saman en það hvarf fljótt þegar
farið var að ræða um leikina, „saklaus
prakkarastrik“, fótboltann og fleira.
En kvöldstundin leið fljótt. Á stundu *
sem þessari saknar maður þess að
hafa ekki notað tímann betur til sam-
vera og það var okkur efst í huga við
lok hverrar heimsóknar til Mumma
nú í lok veikinda hans.
í heimsóknunum var verið að ræða
um það sem skemmtilegt hafði skeð
hér fyrram, við hlógum og gerðum
grín hver að öðram. Mummi var ekk-
ert að flagga veikindum sínum. í sí-
mtölum í sumar ræddi hann þau
aldrei við okkur heldur var honum
mjög í mun að finna lausn á vanda
annarra en sjálfs sín. Þannig var
hann, ætíð með hugann við velferð fé-
laga sinna og samborgara. Hann tók
þátt í margvíslegu félagsstarfi og
vildi á þann hátt láta gott af sér leiða
fyrir samfélagið.
Mummi var einn af þeim sem stóðu
fyrir því að fólk sem hafði búið á æsk-
uslóðum hans í Höfðaborginni kæmi
saman. Þessi samkoma varð að fleir-
um þannig og endurnýjaði mörg vina-
tengslin auk þess sem fólk úr fleM
hverfum borgarinnar hefur tekið upp
þennan hátt á að viðhalda kunnings-
skapnum. Honum var mikið í mun að
Höfðaborgarar héldu áfram að koma
saman. Mummi lærði járnsmíði og
vann við það eða tengd störf bæði hér
á landi sem erlendis. Aðrir okkur"
fróðari um lífshlaup hans munu gera
því skil.
Þess gerist ekki þörf að lýsa
Mumma sem manni, hann gerði það
best sjálfúr nú þegar dró að lokum.
Þegar hann ræddi um hvert stefndi
talaði hann ekki um hverju hann væri
að missa af heldur hvað hann væri
lánsamur að hafa fengið 55 góð ár, átt
góða eiginkonu, böm og fjölskyldu.
Margir hefðu fengið styttri tíma og
jafnvel sumir nær engan. Fyrir það
bæri honum að þakka og vona að það
sem hann hefði gert gæti komið öðr-
um til góða eða verið til eftirbreytni.
Tveimur dögum fyrir andlát
Mumma lést móðir hans. Munu þau
hafa rætt saman um hvert stefndi og ..
mun hún hafa óskað eftir að fara héð-
an í kyrrþey. Er það lýsandi fyrir líf
mæðra okkar, sem lifðu við að barátt-
an fyrh’ lífsafkomunni var mjög hörð
og hún háð án þess að kvarta eða vera
í sviðsljósinu. Þessi sjónarmið og lífs-
reynsla mótuðu félagsmálastarf
Mumma mjög seinna á lífsleiðinni.
Við eram vissir um að skósmiðurinn
Bjarnleifur bíður nú spenntur eftir
sínu fólki til að ræða við það um það
sem er efst á baugi. Ekki verður langt
í umræðuna um fótbolta og erfitt
verður þá fyiir Mumma að skýra
stöðuna hjá sínu gamla félagi Fram.
Þeir feðgar munu fylgjast vel með
hverju fram vindur.
Við sendum eiginkonu, bömum, _
systkinum og öðram ættingjum okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur. Miss-
irinn er mikill en megi minningin um
góðan dreng og þann góða tíma sem
við fengum að njóta samvista við
hann veita ykkur styrk á þessari
sorgarstundu.
Guð blessi minningu Mumma.
En minning þín
ermjúkoghlý
og mun oss standa nærri,
með hverju vori hún vex á ný
ogverðurávalltkærri.
(Magnús Asgeirsson.) ,
Ágfúst og Hafsteinn
og fjölskyldur.
• Fleirí minningargreinar um Guð-
niund Kúnar Bjarnleifsson bíða
birtingar og munu birtast (blaðinu
næstu daga.