Morgunblaðið - 14.09.2000, Síða 56
56 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
i.
“■ /
Stúdentaráð mótmælir
mannréttindabrotum
Haukur Margrét Vilborg
Agnarsson Bjarnadóttir
EINS og alþjóð veit
kom Li Peng, forseti
kínverska þjóðþings-
ins, í heimsókn til Is-
lands í boði Alþingis í
byrjun þessa mánaðar.
Li Peng er sá sem tal-
inn er bera hvað mesta
ábyrgð á þeim voða-
verkum sem áttu sér
stað á Torgi hins
himneska friðar 4. júní
1989 þar sem fjölmarg-
ir kínverskir stúdentar
voru myrtir á kaldrifj-
aðan hátt þegar þeir
með friðsömum hætti
mótmæltu ástandnu í
Kína og kröfðust lýð-
ræðisumbóta.
Einróma ályktað gegn
mannréttindabrotum
Pegar slíkur maður heimsækir
ísland er skylda okkar stúdenta að
gagnrýna þá hörmulegu atburði sem
áttu sér stað. Röskva lagði því fram
tillögu í Stúdentaráði þar sem ódæð-
isverkin voru fordæmd og minnt var
á rétt stúdenta til frjálsra skoðana-
skipta og til að koma mótmælum
sínum með friðsamlegum hætti á
framfæri við stjórnvöld. Tillagan var
samþykkt einróma. Mannréttindi
eiga sér ekki landamæri og það er
nauðsynlegt að stúdentar allra landa
sýni samstöðu í baráttunni fyrir
þeim. Það er hinsvegar bein pólitísk
spuming hvort viðræður Islendinga
Mannréttindabrot
Það er afar óviðeigandi,
segja Haukur Agnars-
son og Margrét Vilborg
Bjarnadóttir, að nota
slíkt alvörumál, þar sem
fjöldi stúdenta beið
bana, til útúrsnúninga í
því skyni að koma póli-
tísku höggi á meirihluta
Stúdentaráðs.
við kínverska ráðamenn verði til
góðs eða ills, og ekki í verkahring
Stúdentaráðs að taka afstöðu í þeim
efnum í nafni allra stúdenta við Há-
skóla íslands. Sama gildir um hinar
íslensku námsmannahreyfingarnar,
BÍSN, SÍNE, INSÍ og FF, en engin
þeirra taldi í sínum verkahring að
svara þeirri pólitísku spurningu.
Pað er hinsvegar skylda stúdenta að
berjast fyrir mannréttindum stúd-
enta og votta fórnarlömbum slíkra
ódæðisverka virðingu sína og því
lagði Röskva til framangreinda
ályktun þar sem hinir hörmulegu at-
burðir voru fordæmdir og áhersla
lögð á réttindi stúdenta.
Útúrsnúningar Vöku
Pví miður hefur Vaka, félag lýð-
ræðissinnaðra stúdenta, kosið að
láta að því liggja að Röskva telji það
ekki skyldu sína og Stúdentaráðs að
mótmæla mannréttindabrotum.
Tveir Stúdentaráðsliðar Vöku
gengu m.a.s. svo langt í grein sinni í
Morgunblaðinu síðastliðinn laugar-
dag að velta upp spurningu eins og:
„Og hvers vegna skiptir Stúdenta-
ráð sér ekki af því þegar jafngróf-
lega er brotið á mannréttindum
stúdenta?“ Einnig segja fulltrúar
Vöku að Röskvu fmnist augljóslega
ekki tiltökumál að ábyrgðarmaður
stúdentadrápanna komi hingað til
lands. Þetta er afar einkennilegur
málflutningur af hálfu fulltrúa sem
voru viðstaddir Stúdentaráðsfund-
inn, þar sem fulltrúar Röskvu lögðu
fram tillögu í tilefni komu Li Peng,
þar sem mannréttindabrot voru for-
dæmd. Það er afar óviðeigandi að
nota slíkt alvörumál, þar sem fjöldi
stúdenta beið bana, til útúrsnúninga
í því skyni að koma pólitísku höggi á
meirihluta Stúdentaráðs. Þessi mál-
flutningur og útúrsnúningar Vöku
eiga ekki heima á vettvangi
Stúdentaráðs þar sem ötul hags-
munabarátta fer fram. I stað þess að
stunda pólitíska hnefaleika, þar sem
reynt er að fella andstæðinginn með
neðanbeltishöggum, ættum við stúd-
entar frekar að sameinast í barátt-
unni fyrir mannréttindum og öðrum
hagsmunamálum stúdenta.
Öflug hagsmunabarátta
Stúdentaráðs
Yfirstandandi starfsár Stúdenta-
ráðs er nú hálfnað. Hagsmunabar-
átta Stúdentaráðs hefur verið kröft-
ug, mikill árangur náðst og Stúd-
entaráð verið öflugur málsvari
stúdenta, jafnt innan skólans sem
utan. Þegar fréttist af heimsókn Li
Peng til landsins brást Stúdentaráð
að sjálfsögðu við, gagnrýndi voða-
verkin og lagði áherslu á mannrétt-
indi stúdenta. Að halda öðru fram er
rangt og það að reyna með útúr-
snúningum að skjóta pólitískum
skotum þegar stúdentar eru ein-
huga í afstöðu sinni til mannrétt-
indabrota er vanvirðing við þann
mikla íjölda stúdenta sem tapaði lífi
sínu í friðsamri baráttu fyrir sjálf-
sögðum mannréttindum.
Höfundnr sitja í Stúdentaráði fyrir
Röskvu.
Við biðjumst
velvirðingar
Á morgun kemur til þín nýr bœklingur
frá Rúmfatalagemum.
Á baksíðu varð okkur á að setja rangt verð
á „Francina“ gardínuefni og
biðjumst við velvirðingar á því.
„Francina"
gardínuefni
Jaquard ofið glæsiefni og kappar í
stíl. 57% polyester og 43% bómull.
5 mismunandi litasamsetningar sem
erfitt er að velja á milli.
Efni breidd 140 sm.
Verð pr. metra aðeins: I
Kappar rykktir með frönskum
rennilás. Hæð 42 sm.
Verð pr. metra aðeins:
Skoifunni13 Norðurtanga 3 Roykjavfkurvogi 72
108Reykjavfk 600 Akuroyri 220 Hafnarfjðröur
568 7499 462 6662 565 5560
ART2000 - Undirbún-
ingur á lokastigi
Undirbúningur að
fyrstu Alþjóðlegu raf-
og tölvutónlistarhátíð-
inni sem haldin hefur
verið á íslandi,
ART2000, er nú að
komast á lokastig. Há-
tíðin sem verður í Tón-
listarhúsi Kópavogs
dagana 18.-28. októ-
ber, stefnir í að verða
stærsti menningarvið-
burður sem fram hefur
farið í Kópavogi til
þessa.
ART2000 er sam-
starfsverkefni Tónlist-
arskóla Kópavogs,
Kópavogsbæjar og
Reykjavíkurborgar - M2000. Stofn-
endur og umsjónarmenn hátíðar-
innar eru tónskáldin Hilmar Þórð-
arson og Ríkharður H. Friðriksson,
forsvarsmenn Tónvers Tónlistar-
skóla Kópavogs, sem heldur um leið
upp á fimm ára afmæli sitt.
Meðal þátttakenda víðsvegar að
úr heiminum eru heimskunn tón-
skáld, fyrirlesarar og tónlistarmenn
á sviði raf- og tölvutónlistar, ásamt
breiðum hópi íslensks tónlistar-
fólks. Verndari hátíðarinnar er
menntamálaráðherra, Björn
Bjarnason, og mun hann flytja
ávarpsorð við upphaf hennar.
Að loknum hverjum hinna ellefu
tónleika í Kópavogi verða haldin
sérstök bar-kvöld á Gauki á Stöng.
Þau verða kynnt nánar síðar, en þar
verða margskonar spennandi tón-
listaruppákomur í boði.
Tónskáldafélag íslands, Erkitíð,
Tilraunaeldhúsið og Bibbi.is hafa
hvert um sig tekið að sér að sjá um
skipulagningu nokkurra tónleika
hátíðarinnar og gerir það dag-
skrána enn fjölbreytilegri og vand-
aðri en ella. Hægt er að kynna sér
dagskrána í heild á www.musik.is/
art2k/dagskra.htm
Alþjóðleg tónlistarhátíð af þess-
ari stærðargráðu er mikið fyrirtæki
og kostnaðarsamt. Undirbúningur
hefur gengið mjög vel og hafa und-
irtektir fyrirtækja og stofnana um
stuðning við framtakið verið góðar
og er fjáröflun enn í fullum gangi.
Sérstaklega hafa framsækin fyrir-
tæki í hátæknigeiranum tekið við
sér, en segja má að þar liggi sam-
eiginleg taug með tónlistinni sem
flutt verður á hátíðinni.
Nú þegar hefur verið gerður
samningur við margmiðlunarfyrir-
Hilmar Ríkharður H.
Þórðarson Friðriksson
Tónlistarhátíð
Alþjóðleg tónlistarhátíð
af þessari stærðar-
gráðu, segja Ríkharður
H. Friðriksson og
Hilmar Þórðarson, er
mikið fyrirtæki og
kostnaðarsamt.
tækið XNET (www.xnet.is) um
beinar útsendingar á Netinu frá öll-
um tónleikum hátíðarinnar ásamt
bar-kvöldunum. Má segja að
aðstandendur hátíðarinnar séu gott
fordæmi í landsbyggðarmálum, þvi
þannig gefst öllum landsmönnum
kostur á að fylgjast með hátíðinni.
Tónleikarnir verða síðan endur-
sýndir reglulega þannig að öll
heimsbyggðin getur fylgst með á
þeim tíma sem best hentar.
Þetta segja forsvarsmenn hátíð-
arinnar mjög mikilvægt spor því
með þessum hætti vekjum við mikla
athygli víðsvegar um heiminn, ekki
bara á hátíðinni heldur íslandi og
Tónlistarhúsinu, í ellefu sólar-
hringa samfleytt. Þá mun þetta
vera í fyrsta sinn svo vitað sé að
tónlistarhátíð er send í heild út á
Netinu. Útsendingin mun fara um
ljósleiðara Landssímans sem trygg-
ir mestu mögulegu gæði sendingar-
innar, en ljósleiðarinn verður form-
lega tekinn í notkun við upphaf
hátíðarinnar.
Framlag fyrirtækisins Landmats
(www.virtualiceland.com) verður þá
einnig kynnt, en fyrirtækið sérhæf-
ir sig í gagnvirkri miðlun landfræði-
legra upplýsinga í margmiðlunar-
og netumhverfi og hefur fyrirtækið
í tilefni þessarar fyrstu alþjóðlegu
raf- og tölvutónlistarhátíðar gert
sýndarferðalag um Tónlistarhúsið
sem skoða má á netinu.
Bókunarmiðstöð íslands hefur
(www.discovericeland.is) tekið að
sér að sjá um netforsölu miða á alla
tónleika ART2000 ásamt frekari
kynningu á ART20Ó0 í tengslum við
forsöluna. Þá skipuleggur B.I. sér-
stakar dagsferðir erlendu gestanna
t.d. á Þingvelli og í Bláa lónið,
ásamt skoðunarferðum í helstu
menningarstofnanir.
Þess ber að geta að auk stuðnings
Reykjavíkurborgar og Kópavogs-
bæjar hefur ART2000 hlotið styrki
úr eftirfarandi sjóðum sem aðstand-
endur líta á sem mikla viðurkenn-
ingu: NOMUS (Norræni tónlistar-
sjóðurinn) , Nordisk Kulturfond
(Norræni menningarsjóðurinn) og
Menningarsjóður íslandsbanka-
FBA. Til þess að gera hátíðina sem
veglegasta og treysta undirstöður
hennar sem best til frambúðar, var
nauðsynlegt að leita til fyrirtækja
og stofnana um frekari fjárstuðning
þar sem hátíð sem þessi er viðamik-
il, enda hefur undirbúningur að
henni staðið í rúm þrjú ár.
Við upphaf hátíðarinnar kemur
út bók á vegum ART2000 sem ber
heitið Fyrsta alþjóðlega raf- og
tölvutónlistarhátíðin á Islandi. Þar
verður m.a. fjallað um raf- og tölvu-
tónlist og helstu gesti hátíðarinnar
ásamt ágripum úr fyrirlestrum sem
fluttir verða meðan á hátíðinni
stendur. Auk þess birtist listi yfir
helstu bakhjarla hátíðarinnar
ásamt nöfnum aðila er vildu færa
Kópavogsbúum sérstakar ham-
ingjuóskir með ART2000 og hið
glæsilega Tónlistarhús sem nýtist í
fyrsta sinn til fulls við upphaf hátíð-
arinnar.
Aðstandendur ART2000 vilja
gjarna fá að koma á framfæri þakk-
læti til þeirra fyrirtækja og stofn-
ana sem þegar hafa veitt stuðning
sinn. Öðrum sem vilja styðja fram-
takið er bent á heimasíðu ART2000,
http://www.musik.is/art2000. Þar er
að finna allar helstu upplýsingar um
hátíðina ásamt stuðningsmöguleik-
um sem hægt er að velja úr og
ganga frá á Netinu.
Höfundar eru tónskáld.