Morgunblaðið - 14.09.2000, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000 57
UMRÆÐAN
Upp skal á kjöl klífa -
menningarferðaþj ónusta
á Norðurlandi vestra
Á undanförnum ár-
um hefur verið unnið
markvisst að uppbygg-
ingu menningarferða-
þjónustu á Norðurlandi
vestra. Hvatinn að
þeiri-i vinnu hefur m.a.
verið rýr hlutur svæð-
isins í uppbyggingu
ferðamennskunnar þar
sem flestir gestir þessa
svæðis hafa í gegnum
tíðina verið gestir sem
ekki kaupa mikla þjón-
ustu eða gista á svæð-
inu heldur aka beint í
gegnum kjördæmið.
Greiðfært er í gegnum
Norðm-land vestra,
vegir góðir og fáar hindranir. Með
uppbyggingu ferðaþjónustunnar
hefur verið unnið að því að fá gesti til
að staldra við og kynna sér það sem
svæðið hefur upp á að bjóða, og það
er fjölmargt. Menning svæðisins
hefur verið færð í söluvænar umbúð-
ir sem kynnt er ferðamönnum á
margvíslegan hátt. Fjölmörg söfn
eru á Norðurlandi vestra og mörg
þeirra mjög sérhæfð. Dæmi um slík
söfn eru Síldarminjasafnið á Siglu-
fírði, Vesturfarasetrið á Hofsósi,
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi
og Vex-siunaiTninjasafnið á Hvamms-
tanga. Þá eru ótalin byggðasöfn
svæðisins sem sýna þróun byggðar
og lífshætti fyrri tíma eins og önnur
byggðasöfn víða um land. Auk þess
að státa af mörgum söfnum hefur
vinnan að uppbyggingu
menningarferðaþj ón-
ustu fætt af sér önnur
afkvæmi. Margir ferða-
þjónustuaðilar flétta
menningu síns svæðis
samanvið ferðaþjón-
ustu sína. Fjöruhlað-
borðið á Vatnsnesi er
nærtækt dæmi um
hvernig matarmenn-
ingu við sjávarsíðuna á
fyrri tíð eru gerð skil á
skemmtilegan hátt.
Draugaröltið á Hólum
er hins vegar dæmi um
hvernig nota má um-
gjörð sögufrægs staðar
til kynningar á sögum
sem mörgum eru kunnar. Þetta eru
aðeins örfá dæmi um það hvernig
menning og saga Norðurlands
vestra er færð í nýjan búning og
unnið markvisst að því að kynna
hana ferðamönnum. Á Norðurlandi
vestra er mikill áhugi á margvíslegri
og litríkri sögu svæðisins.
Þá er ótalinn þáttur verkefnisins
Leonardo Guide 2000 sem er
Evrópuverkefni á sviði menningar-
tengdrar ferðaþjónustu og hefur það
staðið í tæp 2 ár. Þar fer fram mikil
vinna, þar sem lagt er til grandvallar
hvernig nýta megi menningararf
Norðurlands vestra til uppbygging-
ar ferðaþjónustu og til að kynna
verðandi leiðsögumönnum það sem
okkar menning í nútíð sem og fortíð
hefur upp á að bjóða. Gefið verður út
Ferðaþjónusta
Fjölmörg söfn eru á
Norðurlandi vestra,
segir Þorvaldur Guð-
mundsson, og mörg
þeirra mjög sérhæfð.
kennsluefni fyrir leiðsögumenn og
nk. laugardag verður haldin ráð-
stefna á Hólum í Hjaltadal um
menningartengda ferðaþjónustu.
Ráðstefnan ber yfirskriftina „Upp
skal á kjöl klífa“. Þátttökulöndin auk
íslands era Danmörk, írland og ítal-
ía. fsland stýrir verkefninu og er
undirbúningur ráðstefnunnar unn-
inn í samvinnu við Reykjavík Menn-
ingarborg 2000. Markmið ráðstefn-
unnar er að efla umræðu um þau
tækifæri sem felast í menningu til
uppbyggingar ferðaþjónustu og
miðla reynslu frá Norðurlandi vestra
og þátttökulöndunum. Það ætti eng-
inn að velkjast í vafa um að þátttaka í
starfí sem þessu er afar gefandi og
skilar miklu til heimamanna á mjög
margan hátt og hefur orðið aflvaki
hugmyndaflæðis og framkvæmda.
Höfundur er ferðamálafulltrúi
Húnaþings vestra og situr i verkefn-
issljrírn verkefnisins Leouardo
Guide 2000 á íslandi.
Guðmundsson
Öryggismiðstöðvar Ísíands
öku tilboðsvert
Nú býðst korthöfum VISA heimagæsla á sérstöku tilboðsverði.
Einungis er greitt fyrir 10 mánuði á ári.
Bjóöum einnig þráðlausan búnað.
© í V/SA
FRÍÐINDAKLÚBBURINN
Síml533 2400
Mýkingarefni sálarinnar 1
• Gamanaðgefa Nautn að njóta
NELSON&RUSSELL
AROMATHERAPY
ILMKJARNAOLÍUR
NUDDOLÍUGRUNNUR
NUDDOLÍUR
FREYÐIBÖÐ
STURTUSÁPUR
AUGNMASKI
ANDLITSÚÐI
Apstekið
Síðumúla 24 -26 108 Reykjavík Sími 568 0606 www.kosy.is
Opnum í 1000 mhúsnæði á morgun
Við flytjum um setí Síðumúla 24-26
í miklu stærra húsnæði. Við munum bjóða upp á
enn meira úrval af ítölskum húsgögnum og
amerískum dýnum og þvúíkt úrval af ítölskum
fataskápum að annað eins hefur varla sést.
Fjöldi affataskápum eru til sýnis uppsettir
í versluninni á glæsilegu sýningarsvæði.
Ath. lokað í dag fímmtudag