Morgunblaðið - 14.09.2000, Page 60
MORGUNBLAÐIÐ
60 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000
\ .........
UMRÆÐAN
Góðæri hinna fáu
Á SÍÐASTA ári var viðskipta-
hallinn rúmir 42 milljarðar og hann
fer vaxandi. Ástæðan fyrir þessum
halla er einföld þótt af ýmsum
ástæðum sé málið stundum gert
flóknara en ástæða er tíl. Viðskipta-
halli er merki um meiri kaupmátt
og meiri neyslu en fjárhagur lands-
ins stendur undir. Þetta kann að
koma nokkuð flatt upp á þann fjöl-
menna hóp launþega sem býr við
rýrnandi kaupmátt þar sem neyslan
takmarkast við brýnustu nauðþurft-
ir, að ég nú ekki tali um þann hóp
" bótaþega sem beinlínis býr við
neyðarástand. En skýringin er að
sjálfsögðu sú að hér qr um meðaltal
að ræða. Kaupmáttur hefur vaxið
og neysla aukist hjá ákveðnum
hluta þessarar þjóðar í þvílíkum
mæli að tilfinnanlegur skortur ann-
arra hrekkur ekki til þess að jafna
metin.
Tvær þjóðir
Góðæri undanfarinna ára hefur
ríkisstjórn Davíðs og Halldórs not-
að til þess að búa hér til tvær þjóð-
ir sem fátt eiga sameiginlegt. Ánn-
ars vegar ei*u ellilífeyrisþegar,
öryrkjar og bótaþegar af ýmsu tagi
sem búa við stöðugt versnandi lífs-
' kjör og mæta af hálfu stjórnvalda
blöskranlegum hroka og lítilsvirð-
ngu og á sama báti rær einnig það
'ólk sem nú er á hröðum flótta úr
immönnunarstörfum af ýmsu tagi,
Vá grunnskólum, leikskólum, elli-
fieimilum, heimahjúkrun og spítöl-
iim því það getur ekki lengur lifað
af launum sínum. Og það stendur
oessum hópum ekki fyrir svefni
hvort skattar þeirra séu á al-
mannavitorði, hitt kynni að vefjast
fyrir þeim hvort unnt sé að standa
skil á þeim.
Hin þjóðin í landinu
eru einkum svonefndir
fjármagnseigendur en
slíkir greiða sem kunn-
ugt er aðeins 10% fjár-
magnstekjuskatt af
eyðslueyri sínum og
hafa það bara takk
bærilegt ef marka má
afkomutölur fyrirtækja.
Þenslan
ógnrlega
Þegar spurt er hvað
valdi því að fólk hrekst
úr bráðnauðsynlegum
umönnunar- og þjón-
ustustörfum ár eftir ár
í góðærinu miðju horfa
ráðamenn til himins og svara því
einu til, forkláraðir á svip, að þessu
valdi þenslan. Við þessari voðalegu
þenslu hafa menn einkum brugðist
með því að hækka vexti og að
draga úr framkvæmdum.
Vextir hér eru nú til muna hærri
en í helstu viðskiptalöndum okkar.
Mér er raunar til efs að í nálægum
löndum þekkist sú skipan mála að
venjulegir viðskiptamenn banka
greiði okurvexti af lánum sínum
sem séu að auki verðtryggð og oft
að auki tryggð með undirskrift
ábyrgðarmanna því að sjálfsögðu
sjá bankar landsins að okurvextir
ásamt verðbótum á viðsjáverðum
tímum gera fjárhag skuldara svo
ótryggan að vissara er að vinir og
vandamenn þeirra firri bankana
allri ábyrgð.
Tvenns konar
skuldarar
En vaxtahækkanir til þess að
draga úr neyslu valda því m.a. að
arðbært verður fyrir fjármálastofn-
anir að taka erlend
lán á lægri vöxtum og
endurlána innanlands
með þeim afleiðingum
að neysla fer vaxandi
ásamt viskiptahalla.
Niðurstaðan af
fjármálaæfingum af
þessu tagi verður
með öðrum orðum sú
að hinn almenni
skuldari sem rær líf-
róður til þess að
greiða niður námslán,
húsnæðisskuldir og
þess konar nokkuð,
hann stendur verr en
áður. Sá skuldari sem
Jafnrétti
Versnandi samkeppnis-
staða fyrirtækja, segir
Sigríður Jóhannesdótt-
ir, er ekki af völdum
þess fólks sem gleymd-
ist í góðærinu.
hins vegar er í aðstöðu til þess að
taka erlend lán á lágum vöxtum
mun að sjálfsögðu gera slíkt og
auka þar með bæði neyslu og kaup-
mátt með vaxandi viðskiptahalla;
vaxandi þenslu.
Til þess að draga úr þenslu þykir
þjóðráð að draga úr fjárfestingum
og einkaneyslu. Gallinn á þvi þjóð-
ráði er hins vegar sá að þótt stjóm-
völd geti í þessu skyni frestað opin-
berum framkvæmdum, s.s.
vegabótum er takmarkaður áhugi á
Sigríður
Jóhanncsdóttir
því að koma böndum á einkaneyslu
þeirra sem geta sótt sér erlent
lánsfé á lægri vöxtum en hér tíðk-
ast og aukið því bæði þenslu og við-
skiptahalla á eigin spýtur.
Gengissig
Þegar margnefnd þensla hefur
svo náð ákveðnu stigi er næsta vers
gengisfelling.
Afleiðingar hennar verða hækk-
un á vöruverði og vísitölubindingar
draga með sér hækkun skulda í
takt við verðlag. Þar sem skuldir
em tengdar vísitölu en laun ekki
leiðir gengislækkun til versnandi
lífskjara almennings.
í þessu sambandi skiptir litlu
hvort gengið er fellt í einu stökki
eða látið síga. Nú þegar hefur verð-
bólga að mestu hirt ávinning síð-
ustu kjarasamninga hjá launafólki.
Hér má t.d. nefna að á fyrsta fjórð-
ungi ársins hækkuðu laun að með-
altali skv. samningum um 3,4% en
vísitala neysluverðs um 5,8%.
Samkvæmt því rýrnaði kaup-
máttur dagvinnulauna á þessu
tímabili um 2,3%. Þróist mál áfram
með þessum hætti hafa undangeng-
in góðærisár fært launafólki versn-
andi kjör.
Misnotað góðæri
Ekki fer á milli mála að undan-
farin ár höfum við notið einstaks
góðæris hvað allar ytri aðstæður
snertir. Einhvern tímá hefði þótt
góður siður á slíkum tímum að
safna til mögru áranna, sem vísast
munu koma, en ríkisstjórnin hefur
hins vegar notað þessar aðstæður
til þess að gefa útvöldum, ekki að-
eins óveiddan fisk í sjó heldur líka
arðbærustu fyrirtæki landsins.
Reynt hefur verið með skipulegum
hætti að veikja velferðarkerfið og
eyðileggja það öryggisnet sem sam-
hjálp er þeim sem á þurfa að halda.
Þetta er gert m.a. með því að skera
niður stuðning við aldraða og ör-
Viðskiptasambönd
eru verðmæt!
Efldu tengslin með persónulegum
og eftirtektarverðum hætti.
Gjafaáskrift að lceland Review er í senn
fyrirhafnarlaus og mjög ódýr leið til þess að
minna á sig fjórum sinnum á ári.
Ársáskrift kostar aðeins 3.175 kr. með vsk..
sendingarkostnaður innifalinn. Við sendum fallegt
gjafabréf til móttakanda gjafaáskriftar.
Hrinadu strax í síma 550 3000
Treystu böndin á ódýran
og fyrirhafnarlausan hátt.
Iceland
Review
subscribe@icenews.is www.icenews.is
yrkja, með því að velta æ stærri
hluta lyfjakostnaðar yfir á sjúklinga
með því að krefjast þess að sífellt
fleiri stofnanir séu sjálfbærar sem
hefur í för með sér vaxandi kostnað
fyiár neytendur. I heilbrigðiskerf-
inu er, eins og víðar, stefnt að
auknum einkarekstri þótt vitað sé
að slíkur rekstur er ekki aðeins
dýrari fyrir þjóðfélagið heldur líka
óskilvirkari fyrir skjólstæðinga
kerfisins.
Þeir sem hrifnastir eru af þvílík-
um framtíðarmöguleikum eru jafn-
vel famir að tala opinskátt um að
almenningur geti bara keypt sér
einkareknar sjúkratryggingar. I
ljósi gríðarlegra hækkana á skyldu-
tryggingum bifreiða, sem fjármála-
eftirlitið ypptir bara öxlum yfir, er
sú hugmynd ekki aðlaðandi.
Þessari andúð á velferðarkerfinu
fylgir einnig sú árátta að svelta all-
ar þær stofnanir og allt það starfs-
fólk sem kemur að umönnunar-
störfum.
Hallalaus fjálög, að ég nú ekki
tali um fjálög með afgangi, eru of
dýru verði keypt ef menn strika
einfaldlega út fjárþörf heilbrigðis-,
skóla- og tryggingarkerfis.
Okkar niðurlæging
kemur að utan
Nú þessa dagana berast af því
fréttir utan úr heimi að efnahags-
stjórn íslands hafi verið verðfelld á
heimsmarkaði. Samkeppnishæfni
fyrii-tækja hefur fallið um 6 sæti á
alþjóðlegum lista. Ástæðurnar eru
einkum þær að viðskiptahalli hefur
vaxið um þriðjung milli ára. Ástæða
þessa er vaxandi neysla; neysla
þeirra sem skammta sér laun og
ákveða sjálfir skattleysi sitt. Önnur
ástæða er of mikill munur á inn- og
útlánsvöxtum, m.ö.o. of mikill gróði
bankanna. En gróða bankanna þarf
að halda uppi svo þeir verði seljan-
legri og hlutabréf þeirra hækki í
verði. Síðast en ekki síst þykir
matsmönnum sem skattar á meðal-
tekjur séu hér langt um of háir.
Það er öllum ljóst að vaxandi
neysla og viðskiptahalli er ekki á
þeirra ábyrgð sem búa nú við rým-
andi kjör, það eru heldur ekki þeir
sem borga skuldir og námslán af
launum sínum sem hafa sérstaka
hagsmuni af miklum vaxtamun. Það
er hins vegar augljóst að skattar á
launafólk verða að vera mjög háir
meðan svo fáir greiða þá. Versn-
andi samkeppnisstaða fyrirtækja er
ekki af völdum þess fólks sem
gleymdist í góðærinu.
Það eru gullkálfar stjórnvalda
sem þannig launa nú ofeldið.
Höfundur er alþingismaður Sam-
fylkingar í Reykjanesi.
Heildsoltidreifinft. s. 897 6567
Fingur
tannbursti
Barnaefni
í úrvali
Skólavörðustíg 21, sími 551 4050