Morgunblaðið - 14.09.2000, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000 61
UMRÆÐAN
Ný tækifæri í líf-
eyrissparnaði
UNDANFARNA
áratugi hefur velmegun
á vesturlöndum vaxið
hröðum skrefum í kjöl-
far tækniframfara.
Umræddar tæknifram-
farir hafa gert fólki
kleift að vinna sömu
störf og meira til á
skemmri tíma en áður
þekktist. Aukinn frítími
og sú staðreynd að al-
menningur er sér nú
meira meðvitandi en
áður um góð áhrif
heilsusamlegs matar-
æðis og hreyfingar
mun leggja grunninn
að góðri heilsu og lífsgæðum á eftir-
launaárunum. Þessi þróun veldur því
m.a. að sífellt fleiri kjósa að hætta
störfum fyrr en áður og njóta ávaxta
erfiðis síns við góða heilsu við margs-
konar tómstundaiðju.
Til að hið síðastnefnda megi verða
að veruleika þarf hver og einn að búa
í haginn fyrir sig í lífeyrismálum en í
því sambandi eru tími og þolinmæði
ákaflega mikilvæg.
Stefnufesta og þolinmæði
Færa má góð og gild rök fyrir því
að hver sá einstaklingur sem hefur
tímann fyrir sér eigi að að byggja
spamað sinn að miklu leyti á safni
hlutabréfa. Með netvæðingu heimil-
anna hefur aðgengi almennings að
hlutabréfamörkuðum tekið miklum
og jákvæðum breytingum. Á það
jafnt við um innlenda og erlenda
hlutabréfamarkaði.
Mikilvægt er að einstaklingar
marki sér stefnu í lífeyrismálum
snemma á starfsævinni og haldi sig
við hana með það að
leiðarljósi að þeir eru
langtímafjárfestar, því
eitt er hægt að segja
með vissu um þróun
hlutabréfaverðs; það
sveiflast upp og niður
yfir tiltekið tímabil.
Þegar þannig háttar til
er mikilvægt að ein-
staklingar hviki ekki
frá stefnu sinni í lífeyr-
ismálum, enda jafnan
verið að horfa til
margra ára eða ára-
tuga. Reynslan sýnir að
þeir sem hafa fjárfest í
hlutabréfum og átt þau
í gegnum súrt og sætt hafa uppskor-
ið ríkulega gagnstætt við marga sem
hafa hlaupið inn og út úr mismunandi
fjárfestingarkostum með tilheyrandi
kostnaði.
Dreifing eigna er annað atriði sem
getur haft veruleg áhrif á hvemig til
tekst við uppsöfnun spamaðar. Það
er freistandi að hafa öll eggin í sömu
körfu í von um skjótan gróða en hafa
ber í huga að slík ráðstöfun getur
einnig gengið veralega nærri sparn-
aðaráformum einstaklinga.
Kostnaður er vafalítið vanmetinn
þáttur þegar kemur að samanburði
fjárfestingarkosta. Áhrif kostnaðar-
hlutfalls á uppsöfnun sparnaðar yfir
langt tímabil em mikil og því sannar-
lega þess virði að gaumgæfa það vel
þegar kemur að lífeyrisspamaði.
Séreignarlífeyris-
sparnaður
Greinarhöfundur óttast að mitt í
góðærinu sem hefur verið ríkjandi
hérlendis undanfarin misseri hafi ný
Lífeyrismál
*
Ohætt er að mæla með
séreignarlífeyrissparn-
aði, segir Gunnar Árna-
son, við hvern þann sem
treystir sér til að leggja
til hliðar af launatekjum
sínum og binda innstæð-
una til 60 ára aldurs.
tækifæri í lífeyrisspamaði ekki feng-
ið verðskuldaða athygli almennings.
Hinn 1. maí sl. vom heimildir ein-
staklinga til skattfrestunar í séreign-
arlífeyrissparnaði auknar úr 2,0% í
4,0%. Nýti launamaður heimildir til
skattfrestunar skv. ofanrituðu, að
lágmarki 2,0%, er launagreiðanda
skylt að leggja fram á móti 10,0% af
framlagi launamanns eða allt að
0,4%. Þessu til viðbótar hefur 2,0%
mótframlag vinnuveitanda nú verið
bundið í nýgerða kjarasamninga. Of-
angreindar greiðslur í séreignarlíf-
eyrissjóð og skattfrestun samhliða
þeim er jafnframt hrein viðbót við
frádráttarbæmi lögbundins iðgjalds
launamanns í lífeyrissjóð, nú 4,0%.
Samantekið hafa heimildir launa-
manna til skattfrestunar í lífeyris-
spamaði nú verið auknar í 8,0%.
Fullnýti launamaður sér heimildir til
skattfrestunar í séreignarlífeyris-
sparnaði fær hann að auki 2,4% í for-
mi mótframlags eða alls 6,4% í sér-
eign.
Gunnar Árnason
Mótframlag og
áhrif skattfrestunar
Inneign sem myndast í séreignar-
spamaði er bundin þar til viðkom-
andi einstaklingur nær 60 ára aldri.
Þá er hægt að semja um útgreiðslu
spamaðar á minnst sjö áram. Við út-
tekt séreignarsparnaðar er greiddur
tekjuskattur af útborgaðri fjárhæð.
Ekki er greiddur eignarskattur af
inneign og ekki er greiddur fjár-
magnstekjuskattur af vöxtum. í
hefðbundnum spamaðarformum er
greiddur 10,0% fjármagnstekju-
skattur af vöxtum. Nú kunna margir
að teija að séreignarlífeyrisspamað-
urinn fari halloka í samanburði við
önnur spamaðarform vegna hærri
skattprósentu og hærri skattstofns.
En svo er ekki. Þvert á móti er sér-
eignarlífeyrissparnaður mun hag-
stæðari en hefðbundin sparnaðar-
fonn. Mismunurinn, sem getur orðið
veralegur sé um langan binditíma að
ræða, liggur í mótframlagi launa-
greiðanda og frestun skattgreiðslna
þar til að útborgun spamaðar kemur.
Lokaorð ,<
Að þessu sögðu er óhætt að mæla
með séreignarlífeyrissparnaði við
hvem þann sem treystir sér til að
leggja til hliðar af launatekjum sín-
um og binda innstæðuna til 60 ára
aldurs. Með því móti skapar viðkom-
andi einstaklingur viðbót við lög-
bundinn lífeyrissparnað sinn. Þessi
viðbót er séreign hans og erfist við
andlát. Því fyrr sem bragðist er við á
starfsævinni því meiri líkur era á því
að séreignarsparnaðurinn verði kær-
komin viðbót við önnur lífeyrisrétt-
indi viðkomandi einstaklings. Tíminn w
vinnur með þér.
Höfundur er sjúðsíjóri hjá lífeyris-
sjóðnum Lífiðn.
Hörku-
spennandi
glæpasaga
eftir
Jógvan Isaksen
Mál og menninglwi
malogmenning.is I ItJ I
Ljúffengt og orkumikið hunangsristað
morgunkorn með þremur bragðtegundum
nú í nýjum og stærri 500g pakkningum sem
þýðir lægra verð pr.kg.
Sannarlega vænlegur kostur fyrir
morgunhana!
A J f * 1
honningristet
musli
ENDURBÆTT OG BETRA - NÚ í 500g PÖKKUM