Morgunblaðið - 14.09.2000, Blaðsíða 68
J8 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
4,
TT
>
J
4
Rifsber o g
krækiber
Matur og matgerð
Kristín Gestsdóttir skrapp til Seyðis-
fjarðar um daginn og sá þar meira af
berjum en hún hefur nokkru sinni séð.
HLÍÐARNAR voru bókstaflega
þaktar af aðalbláberjum, bláberj-
um og krækiberjum og á Hall-
ormsstað var býsn af hrútaberj-
um. En fleira er blátt á Seyðisfirði
en ber - þar er líka blá kirkja, sem
er geysifalleg bæði að utan og inn-
an. Unaðslegt var að sitja í henni
og hlýða á fjölbreytta tónleika.
Þama er menningin svo sannar-
lega í blóma.
Á Seyðisfirði hefur ýmislegt
breyst þótt sumt hafi staðið í stað.
Götur hafa verið færðar tíl, mikil
uppfylling komin þar sem ég óð út
á leiruna í æsku og smábátahöfn
er komin fyrir neðan húsið sem ég
ólst upp í. En Verzlun E. J.
Waage stendur enn svo til
óbreytt, nema nú eru högl og púð-
ur ekki lengur vigtuð í búðinni en
því meira er af tískuvörum, gard-
ínuefnum og skóm. Gaman var að
heilsa upp á Pálínu Waage sem
hefur rekið búðina í áratugi og
koma inn í stofu að baki búðarinn-
ar og sjá myndir af forfeðrunum
sem stofnuðu og ráku búðina í fal-
legum römmum uppi á vegg.
Á Seyðisfirði eru mörg geysifal-
leg hús sem búið er að gera upp,
enda vel byggð þar sem velsæld
var mikil í bænum. Bærinn er nú
er gjörbreyttur, en fjöllin eru á
sínum stað. Nú í fyrsta skipti
fannst mér sem Bjólfurinn mundi
detta fram fyrir sig og steypast
yfir mig. En Strándartindur er
fastur fyrir og enn fegurri en ég
mundi hann.
Krækiberja/
rifsberjahlaup
(ábsetisréttur)
V2 lítri hreinn krækiberjosafi
'/2 lítri hreinn rifsberjasofi
_________2 dlsykur______
10 blöð matarlím
________1 peli rjómi ___
____2 meðalstórir bananar
1. Byrjið á að hakka krækiber.
Eg notaði blandara, en nota má
önnur tæki svo sem berjapressu,
hakkavél eða matvinnslukvöm.
Síið berin á fínu sigti eða í grisju
og mælið V2 lítra af safanum.
2. Sjóðið rifsber, síið og mælið
V2 h'tra af safanum og blandið
saman við krækiberjasafann.
Setjið í pott og bætið sykri út í.
Hitið síðan að suðu.
3. Leggið matarlímið í bleyti í
kalt vatn í 5 mínútur. Kreistið
matarlímið og bræðið í heitum
berjasafanum. Hellið í hringform
eða annað form og látið standa í
kæliskáp í hálfan sólarhring.
4. Við notkun: Dýfið foi-minu
augnablik í heitt vatn og hvolfið á
fat.
5. Þeytið rjómann. Merjið
bananana lauslega með gaffli og
blandið varlega saman við rjóm-
ann. Ef þetta er hrært of mikið,
verður það seigt og leiðinlegt.
Setjið í skál og berið með.
Það hlaup sem hér er uppskrift
af er bæði mjög fallegt og geysi-
gott. Þau rifsber sem ég notaði
voru vel þroskuð en nokkuð af
hálfgrænum berjum var með.
Hlaupið hljóp mjög vel. Stilkarnir
og nokkuð af laufi var með. Ef
berin eru yfirþroskuð þarf að nota
sultuhleypi. (Vinsamlega farið eft-
ir leiðbeiningunum á umbúðun-
um.)
Krældberja/
rifsberjahlaup
(sulta)
V2 lítri hreinn krækiberjasafi (sjó
________fyrri uppskrift)___
1 kg rifsber, helst ekki mjög þrosk-
uð (stilkar og nokkur lauf meS)
tæplegg 100 g sykur í hvern dl af
____________safg___________
1. Setjið krækiberjasafann í
pott, setjið rifsberin saman við og
sjóðið við hægan hita í V2-I klst.
Merjið berin með kartöflustapp-
ara.
2. Helhð á grisju og látið síast í
nokkra klukkutíma. Kreistið þá
grisjuna vel.
3. Mælið safann, setjið tæplega
100 g af sykri í hvem dl af safa.
Sjóðið í víðum potti við hægan
hita í 15 mínútur. Fleytið froðuna
ofan af.
4. Sjóðið krukkur og skrúfuð
lok. Hellið hlaupinu í krukkurnar,
hafið þær fleytifullar og lokið
strax meðan allt er sjóðandi heitt.
5. Merkið með innihaldi og dag-
setningu.
Oscar Peterson
og tónleikar
hans
í ÞÆTTINUM „í góðu
tómi“ á Rás 1 í útvarpinu
föstudag og laugardag 8.
og 9. september var m.a.
fjallað um Oscar Peterson
djasspíanista og stórkost-
lega tónleika hans hér-
lendis sumarið 1978 - tón-
leika sem mörgum djass-
áhugamanninum líður
seint úr minni. Af því sem
fram kom í þættinum
finnst mér ástæða til
vekja athygli á eftirfar-
andi: Fyrri helming tón-
leikanna, fram að hléi, lék
Oscar Peterson einsamall.
Hann tilkynnti áheyrend-
um í upphafi að Joe Pass
gítarleikari, sem átti að
spila með honum, hefði
fengið sykursýkisáfall og
orðið að leggjast inn á
spítala í London. Síðan
settist Oscar við flygilinn
og lék heilu söfnin frá
„Blues“ og „Boogie Woog-
ie“ til standarda Duke
Ellingtons, Cole Porters,
Richard Rogers o.fl. auk
þess sem hann sýndi stíl-
brigði og tækni ýmissa
gamalla meistara. Nefna
má James P. Johnson,
Luckie Roberts, Fats
Waller og Art Tatum sem
nokkur dæmi af mörgum.
Strax eftir fyrstu taktana
varð ekki vart við að neinn
hefði orðið eftir í London
- áheyrendur voru í sam-
felldri sæluvímu fram að
hléi.
Nils Henning 0rsted
Pedersen lék ekki með á
þessum tónleikum fyrr en
eftir hlé en seinni hluta
þeirra fóru þeir félagar á
kostum eins og þeirra var
von og vísa. í útvarps-
þættinum kom þetta ekki
fram heldur hefði mátt
ætla að NH0P hefði spilað
með allan tímann.
I þættinum var minnst á
samkvæmi sem efnt hafði
vi:i\\k\rvm
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
verið til hjá Menningar-
stofnun Bandaríkjanna,
sem þá var á Neshaga, að
loknum tónleikum og til
heiðurs Oscar Peterson
sem þó hefði ekki látið sjá
sig. Hér hefði mátt taka
það fram, til að forðast
misskilning, að Oscar Pet-
erson er Kanadamaður en
ekki Bandaríkjamaður
eins og ráða hefði mátt af
útvarpsþættinum „I góðu
tómi“.
Djassáhugamaður.
Málleysingjar og
aðfarir gegn þeim
ÉG GET ekki annað en
tekið mér penna í hönd og
tekið upp hanskann fyrir
málleysingjana, því það
virðist enginn ætla að
gera það. I DV. miðviku-
daginn 30. ágúst sl. birtist
manni ófögur sjón á for-
síðu blaðsins. Stór mynd
af dreng með barefli í
hönd á leiðinni að murka
lífið úr fýl, sem enga björg
gat sér veitt, þar sem
hann var varnarlaus á
jörðu niðri og gat ekki
flogið upp. Þarna voru
fleiri drengir sem horfðu
á. Þetta virðist vera fjöl-
skylduskemmtun. Eg bara
spyr: Hvernig eru börnin
alin upp? Þegar ég var i
sveit sem barn var manni
kennt að bera virðingu
fyrir málleysingjum og
vera góður við þá. Okkur
börnunum fannst nú nógu
leiðinlegt, þegar dýrin
voru leidd í sláturhús að
hausti, mörg tár féllu þá af
hvörmum. En nú til dags
virðast ekki margir for-
eldrar kenna börnum sín-
um að umgangast þau með
virðingu og vera góð við
þau. Við höfum nægan
mat í dag, þannig að fugl-
arnir mættu vera í friði
fyrir manninum sem er
mesta rándýrið. Einnig
langar mig að bæta hér
við að mér finnst komið
nóg af að heyra í Sigmari
og þessum skotglöðu
mönnum um að þeir vilji
fá leyfi til þess skjóta
hrossagaukinn. Nú finnst
mér komið nóg. Þeir
drepa nóg sér til skemmt-
unar. Frekar mætti friða
fleiri fugla, þar á meðal
rjúpuna, þennan fallega
fugl.
Dýravinur
111043-2139.
Frelsaður
ÞRÆLAHALD er einn
ljótasti bletturinn í sögu
Vesturlanda. En ábatasöm
varð samt sú iðja. Margar
stærstu og fallegustu
byggingar í Evrópu voru
byggðar fyrir ágóða af
sölu þræla. Menn hugsa
lítið um slíkt í dag nema
talað sé um áfengis-, lyfja-
og kynlífsþræla. En þræla
er hægt að „frelsa".
Það var þarft og gott
átak sem efnt var til á
kristnihátíðarári að leysa
börn á Indlandi úr þræla-
haldi. Menn hafa horft til
Indlands sem fyrirmynd-
arríkis í ljósi fjölskrúð-
ugra trúarbragða og um-
burðarlyndis ólíkra hópa
sem mynda annað fjöl-
mennasta ríki heimsins.
En ekki er allt sem sýnist
og greinilega kom fram
hjá biskupi að ekki dugði
að kaupa frelsi fyrir þræl-
ana, það þurfti einnig að
tryggja að þeir yrðu ekki
að þrælum á ný.
Þetta minnir mig á Jes-
úm Krist, þegar hann er
nefndur til sögunnar sem
frelsari mannanna. Okkur
á Islandi finnst þetta ekki
hrífandi orð að vera frels-
ari okkar. Menn spyrja
auðvitað, frelsari frá
hverju? Orðin „frelsaður"
og „frelsarinn" eru þýð-
ingar úr gríska orðinu
„soter“. En það þýðir ’sá
sem frelsar, leysir og
varðveitir’. Merking sem
kom greinilega fram hjá
biskupi gagnvart leysingj-
unum á Indlandi. Börnin
skyldu frelsuð og reynt að
tryggja að það entist út
lífið.
Kristin trú boðar okkur
mönnunum að Jesús
Kristur hafi komið til að
„frelsa“ synduga menn.
Leysa og varðveita frá
synd. En gerist það? Er
það reynsla okkar Islend-
inga að sú von sem við
syngjum um: „Frelsaður
kem ég fyrir þinn dóm“
eigi hljómgrunn í huga
okkar ? Er sá frelsaður,
sem aftur og aftur fellur
fyrir „Bakkusi", vændi,
eiturlyfjum, þjófnaði, inn-
brotum, baktali, peningum
eða því að dala í trú og
gleyma Guði ? Tækjum við
þátt í því að leysa sömu
indversku börnin úr
þrældómi eftir mánuð eða
ár eða aftur og aftur? Að
vera frelsaður þýðir þess
vegna, að Guð hafi keypt
okkur undan þrælahaldi
syndar og djöfuls. Hann
borgaði með lífi og blóði
Jesú Krists - himneskum
auði, til að þú sem lætur
frelsast varðveitist frels-
aður. Þeir sem varðveita
ekki frelsið sitt í Jesú
Kristi glatast.
Fer Hallgrímur Péturs-
son með lygi þegar hann
segir: „Einn veg hann öll-
um greiðir inngang í
heimsins rann, marg-
breyttar list mér leiðir
liggi þó út þaðan.“ Ekkert
er jafn mikilvægt okkur
mönnunum ogað vera
frelsaður frá synd, sukki
og solli. Fyrir þá er him-
inninn gjörður.
Snorri í Betel.
Tapad/fundid
Kettlingar fást gefins
FJÖGURRA til fimm
mánaða kettlingar fást
gefins á góð heimili. Þeir
eru gulbröndóttir og hvít-
ir, grábröndóttir og hvítir
og einn svartur og hvítur.
Upplýsingar í síma 483-
4906.
Víkverji skrifar...
LESTIR eru einhver þægilegasti
ferðamáti og fyrirhafnarminnsti
sem hægt er að hugsa sér. Sé ferðast
milli tveggja stórborga taka menn
lestina í einni miðborg og halda beint
í miðborg áfangastaðarins. Engar
sérstakar ferðir á flugvelli fyrir utan
borgirnar, engar biðraðir eftir að
skrá sig eða krafa um að mæta löngu
fyrir áætlaðan brottfarartíma.
Lestarvagnar eru yfirleitt þýðir og
renna mjúklega eftir brautarteinun-
um enda eru þeir að sjálfsögðu renni-
sléttir og ekki hendast farþegar til í
kröppum beygjum eða brekkum.
Þeir eru líka ágætlega hljóðeinangr-
saðir. Þetta á að minnsta kosti við um
þær lestir sem eru á lengri leiðum og
er hér ekki átt við sporvagna eða út-
hverfalestir sem minna er lagt í.
Helst koma hvellir og smellir þegar
lestir fara um mörg skiptispor á stór-
um stöðvum. Einn kostur við lestim-
ar er að yfirleitt er plássið nóg. Hægt
er að panta sæti fyrirfram (sem
kannski kostar eitthvað aukalega).
Þá ganga menn að því vísu og hreiðra
þar um sig annaðhvort með farang-
urinn í hillu ofan við sætin eða í
stærri hillum við innganginn í lestar-
vagninn. Hér er verið að tala um
stóra lestarvagna en ekki t.d. sex
manna klefa en þeir eru fremur not-
aðir þegar ferðast er langar leiðir að
næturlagi.
Ekki má heldur gleyma einu aðal-
atriðinu í lestarferð en það er að
sjálfsögðu heimsókn í veitingavagn-
inn. Þar geta menn unað sér lengi við
mat og drykk, í félagsskap samferða-
manna eða setið einir og lesið eða
unnið. Og vitaskuld má sjá farþega
með GSM-símann í annarri hönd og
drykk í hinni sinna bráðnauðsynleg-
um símtölum í næsta bæ eða landa á
milli. Menn væru nú annars ekki
menn með mönnum enda tók Vík-
veiji þátt í símaleiknum af fullum
þunga. Nema hvað.
Lestir eiga einkum í samkeppni
við flugið á meðallöngum leiðum en
trúlega aðallega einkabílinn á þeim
styttri. Samkeppnin er ekki aðeins á
sviði farþegaflutninga heldur og ekki
síður í vöruflutningum. Standa lestir
kannski höllum fæti gegn flutninga-
bílum sem sækja í sig veðrið með
meiri burðargetu og minnkandi
mengun. Þá þarf á sama hátt og í
flugi talsverð mannvirki vegna lesta-
samgangna og báðir þessir ferða-
möguleikar hafa kosti og galla, m.a.
með tilliti til umhverfisins.
En aftur að ferðamátanum. ís-
lendingnum finnst þetta kannski
rómantík þar sem hann kemst ekki í
tæri við lestir nema hann ferðist í út-
landinu. Og er þá kannski helst í or-
lofi. En Víkverji sér í öllu falli ýmsa
kosti lestaferða fram yfir flug, þótt
hann hafi líka sérlega gaman af flug-
ferðum, og mun áreiðanlega nýta sér
þennan kost meira ef og þegar tæki-
færi gefst.
XXX
NÝLEGA var Víkverji á ferð í
Finnlandi þar sem áhugavert
fólk býr í fallegu landi. (Og þar eru
líka lestir). Þar tala menn einkum
finnsku en sænska er þó einnig opin-
bert mál. Hennar gætir þó einkum í
suðvesturhluta landsins. Þegar kom-
ið er í aðra landshluta getur íslend-
ingurinn orðið nokkuð ráðvilltur þar
sem hann er gjörsamlega einangrað-
ur ef hann býr ekki yfir finnskukunn-
áttu. Hann getur ekki spurt til vegar
og ekki stautað sig gegnum leiðbein-
ingar af þvi tungumálið er svo gjör-
samlega frábrugðið öðrum málum
sem við helst kunnum. Það gagnar
lítið að vita að ravintola þýðh- veit-
ingastaður og kyrjakauppa bókabúð
því yfirleitt er nokkuð auðséð gegn-
um gluggana hvað fer fram á þessum
stöðum. Kannski er hægt að stynja
upp keskusta sem þýðir miðbær í því
skyni að fá leiðbeiningar en málið
getur vandast ef varið er bara á
finnsku! Þá verður bara handapatið
að duga.
Og það er hægt að fara flatt á því
að þykjast kunna eitthvað. Víkverji
kom á veitingastað og sló um sig með
því að segja kolme sem þýddi að
hann þyrfti pláss fyrir þrjá. Þjónninn
kom með einhverja spurningu á móti
á finnskum orðaflaumi. Þar sem Vík-
veiji varð augljóslega mát spurði
þjónninn einfaldlega á ensku hvort
við vildum sitja í reyk eða reyklausu
svæði. Eftir þetta sér Víkverji að það
er líklegra gáfulegra að læra eitthvað
almennilega í þessum framandi mál-
um í stað þess að slá um sig með stik-
korðum og þykjast kunna eitthvað.