Morgunblaðið - 04.11.2000, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Guðni og kyrin
'Guðni Ágústsson lætur vel að íslensku kúnum í fjósinu á Stóra-Ármól.i.
Guðnakossinn mun líka verða skráður á spjöld sögunnar.
JOLAKAKTUSAR
(Nóvemberkaktus)
fr TILBOÐ
og Kaninka
ur Loftkastalanum
heimsækja Jólalandið
í dag kl. 3
Stk.(stærH)
5800 500
Málþing um mannréttindi
Mannréttinda-
sáttmáli
Evrópu 50 ára
MALÞING í tilefni af
fimmtíu ára afmæli
Mannréttindasátt-
mála Evrópu verður haldið í
dag í ReykjavíkurAkad-
emíunni, 4. hæð JL-húsinu, á
vegum Mannréttindaskrif-
stofu íslands, Mannréttind-
astofnunar Háskóla Islands
og ReykjavíkurAkadem-
íunnar. Þingið stendur frá
kl.11.00 til 13.00. Flutt verða
þrjú framsöguerindi. Ragn-
ar Aðalsteinsson lögmaður
fjallar þar um lögfestingu
sáttmálans á íslandi og áhrif
hennar, Oddný Mjöll Amar-
dóttir lögfræðingur ræðir
um tólfta viðaukann við
Mannréttindasáttmálann er
lýtur að jafnrétti en hann
verður undirritaður í Róm í
dag og Ragnar Garðarsson stjórn-
málafræðingur flytur erindi er
kallast: „Einstaklingurinn í samfé-
laginu“. Að loknum framsöguerin-
dunum verða opnar umræður.
Ragnar Aðalsteinsson lögmaður
var beðinn að segja lítillega frá er-
indi sínu um lögfestingu Mannrétt-
indasáttmála Evrópu á íslandi og
áhrifum hennar hér.
„Ég ætla að byrja á að lýsa að:
draganda lögfestingarinnar 1994. í
undanfara lögfestingarinnar urðu
verulegar breytingar á aðstöðu ís-
lenskra dómstóla tO Mannréttinda-
sáttmála Evrópu. Lengst af höfðu
dómstólar algerlega hafnað því að
beita efiiisákvæðum sáttmálans en
á því varð breyting í upphafi árs ár-
ið 1990 þegar Hæstiréttur Islands
umbylti í einu vettvangi allri dóm-
stólaskipan landsins með því að
fallast á að sýslumannsfulltrúar
teldust ekki hæfir dómarar í saka-
málum sem rannsökuð höfðu verið
hjá embættum sem þeir störíúðu
við. Þessa ákvörðun tók Hæstirétt-
ur íslands með vísan til ákvæða
Mannréttindasáttmála Evrópu um
sjálfstæða og óháða dómstóla. Á
næstu árum gengu nokkrir dómar
í Hæstarétti þar sem ákvæði sátt-
málans réðu úrslitum, jafnvel í
beinni andstöðu landsréttar. Þegar
dómur gekk í máli Þorgeirs Þor-
geirssonar gegn Islandi sáu stjóm-
völd að óhjákvæmilegt var að taka
afstöðu til stöðu Mannréttindasátt-
mála Evrópu í íslenskum lands-
rétti. Dómsmálaráðherra skipaði
nefnd sem komst að þeirri niður-
stöðu að rétt væri að gera ákvæði
þessa alþjóðasamnings að hluta
landsréttar en jafnframt leiddi
dómurinn í máli Þorgeirs Þorgeirs-
sonar til breytinga á almennum
hegningarlögum."
- Hvemig eru þær breytingar?
„Það var varðandi gagnrýni á
starfsmenn hins opinbera en fram
til þessa gat sönn gagnrýni á
starfshætti embættismanna verið
refsiverð.“
- Árangur af lögfestingunni?
„Mikilvægasti ár- ___________
angurinn er líklega
aukin vitund ekki að-
eins dómara og lög-
manna heldur alls al-
mennings um viss svið
mannréttinda. Þar á
ég við þau hefðbundnu mannrétt-
indi sem fjallað er um í Mannrétt-
indasáttmála Evrópu, svokallaða
„fyrstu kynslóð" mannréttinda. Að
auk leikur ekki vafi á því að lögfest-
ingin hefur haft áhrif á íslenska
löggjöf, dómstóla og meðferð fram-
kvæmdavalds.“
- Hver eru þau áhrif?
„Ég held að þeir sem vinna að
undirbúningi löggjafar lyrir
stjómvöld séu meðvitaðri um ló-öf-
Ragnar Aðalsteinsson
► Ragnar Aðalsteinsson fæddist
1935 í Reykjavík. Hann lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um í Reykjavík 1955 og eftir
eins vetrar nám á Spáni fór
hann í lagadeild Háskóla Islands
og lauk þaðan lagaprófi 1962.
Hann varð héraðsdómslögmað-
ur sama ár og hæstaréttarlög-
maður, 1966. Hann hefur rekið
eigin lögmannsstofu og í félagi
við aðra lengst af sínum starfs-
ferli. Ragnar er kvæntur Onnu
Hatlemark ljósmyndara og
skrifstofumanni og eiga þau
fimm börn.
Mikilvægasti ár-
angurinn aukin
vitund um
mannréttindi
ur mannréttindareglna og gæti
þess betur en oft áður að taka til
þeirra fullt tillit. Þetta endurspegl-
ast síðan í löggjöfinni. Þá hefur lög-
festingin augljóslega haft þau áhrif
á dómstóla, ekki síst Hæstarétt, að
við túlkun mannréttindaákvæða í
stjómarskrá er tekið fullt tillit til
ákvæða mannréttindasáttmálans.
Akvæði hans hafa því nú stöðu sem
nálgast stöðu stjómarskrár-
ákvæða í réttarskipaninni. Ég tel
að áhugi fjölmargra, sem með
framkvæmdavald fara, á mann-
réttindum og þekking hafi aukist
við lögfestinguna og ég get nefnt
sem dæmi áhuga lögreglumanna
og aukna vitund þeirra. Meðal lög-
fræðinga er verulegur áhugi á
þessu sviði lögfræðinnar og ótrú-
legur fjöldi þeirra hefur lagt stund
á mannréttindalögfræði í fram-
haldsnámi í öðrupi löndum. Að
sjálfsögðu er Mannréttindasátt-
máli Evrópu ekki algóður og þess
er rétt að geta að alþjóðasamning-
ur Sameinuðu þjóðanna um borg-
araleg og stjómmálaleg réttindi
gengur lengra í vemd mannrétt-
inda en Mannréttindasáttmáli
Evrópu. Þó er þess að sjálfsögðu
að geta að mesta byltingin við gild-
istöku Mannréttindasáttmála
Evrópu á sjötta áratugnum var
ákvæði um rétt einstaklina til að
_________ skjóta málum til
mannréttindanefndar
og mannréttindadóm-
stóls í Strassburg en
með því fengu ein-
staklingar réttarstöðu
samkvæmt alþjóða-
samningi sem var nánast óþekkt
fram að því.“
- Hver eru næstu skref?
„Þau em annars vegar að lög-
festa fyrrgreindan alþjóðasamning
Sameinuðu þjóðanna um borgara-
leg og stjómmálaleg réttindi fólks
og hins vegar að lögfesta alþjóða-
samning Sameinuðu þjóðanna um
efnahagsleg, félagsleg og menn-
ingarleg réttindi og Félagsmála-
sáttmála Evrópu.