Morgunblaðið - 04.11.2000, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000 1 3
Bræla eftir góða byrj-
un á sfldarvertíðinni
Övissa ríkir
um setflutn-
Sfldveiðar- og vinnsla hefur gengið vel í haust.
Myndin er tekin í Isfélaginu í Eyjum.
ÞRATT fyrir rysjótt tíðar-
far að undanförnu hafa veið-
ar og vinnsla síldar gengið
ágætlega í haust þar til í
brælunni síðustu daga.
Þeim, sem rætt var við
eystra í gær, bar saman um
að síldin í haust hefði verið
óvenju væn og falleg. Hún
hefur að mestu verið veidd í
troll en einnig í nót.
Hjá Kaupfélagi Fáskrúðs-
firðinga var Þorri Magnús-
son framleiðslustjóri fyrir
svörum og sagði útlitið vera
gott á síldarvertíðinni.
Arney hefur
lokið veiðum
Arney KE 50, sem hefur
landað hjá þeim á Fáskrúðs-
firði, hefur gengið mjög vel.
Arney var í fyrradag búinn
að veiða 3.000 tonn af sfld
allt í troll og er hætt veið-
um. Þorri sagði að sfldin
hefði verið óvenju falleg og
væn og enginn meðafli hefði verið
komið í trollið. Þá er Hoffell SU 80
einnig að síldveiðum fyrir Kaupfé-
lag Fáskrúðsfirðinga og veiðir alla
sína síld í troll.
Hjá kaupfélaginu er reiknað
með að um 18 ársstörf skapist
með vinnslu uppsjávarfisks. Síld-
arvertíðin hófst í september og ef
allt gengur að óskum vonast Þorri
eftir því að síldarvertíðin standi
til loka janúar. Þá tekur við eftir-
flökun á saltaðri síld þar til loðnu-
frysting hefst um miðjan febrúar
og stendur hún yfir í allt að þrjár
vikur. Að loðnunni lokinni er aftur
tekið við eftirflökun á saltaðri síld
og stendur sú vinna oftast út apríl
ár hvert.
Vinnsla uppsjávarfisks stendur
því yfir í 6 mánuði á ári hjá flestum
síldarverkendum á Austfjörðum.
Þorri sagði að með þessu væri
það bil brúað sem myndast hefði
með minnkandi bolfiskkvóta og
væri nú hægt að halda úti fisk-
vinnslu allt árið með þessu móti.
Þannig skapaðist grundvöllur fyrir
því að halda því góða starfsfólki
sem hjá þeim vinnur, sem nær ein-
göngu er heimafólk, en fáir útlend-
ingar vinna hjá þeim. Það sem af er
vertíðinni hefur kaupfélagið saltað
6000 tunnur af saltsfld, en það af
henni sem ekki fer í endurflökun er
selt á markaði í Finnlandi og Sví-
þjóð, þá er búið að frysta 300 tonn
af flökum.
Saltað í 12.000 tunnur
í Neskaupstað
Jón Gunnar Sigurjónsson, verk-
stjóri í uppsjávarfiski hjá Sfldar-
vinnslunni í Neskaupstað, sagði
vinnsluna hafa gengið vel á þessu
hausti. Þeir hefðu verið með tvo
báta, Beiti NK og ísleif VE, en ís-
leifur væri hættur í bili. Þegar
væri búið að heilfrysta og flaka
samtals 2.000 tonn sem fara á
markað í Evrópu, aðallega til Pól-
iands, Þýskalands og Frakklands.
Verðin eru svipuð og á síðasta ári.
Þá væru þeir búnir að salta í
12.000 tunnur af sfld sem færi til
endurflökunnar og eins beint á
markað í Skandinavíu og væri
ABBA í Svíþjóð stærsti kaup-
andinn af saltsíld eins og undan-
farin ár. Jón Gunnar var sammála
kollegum sínum um það að sfldin
sem veiðst hefði fyrir austan þetta
haustið væri óvenju falleg og stór.
Hátt í 80 manns hafa atvinnu af
sfldinni hjá Síldarvinnslunni í Nes-
kaupstað og gerð Jón Gunnar sér
vonir um að vertíðin stæði allavega
fram yfir 20. janúar.
Beitir NK 123 frá Síldarvinnsl-
unni á Neskaupstað landaði sl.
miðvikudag vænum afla,
584 tonnum,sem náðist á
stuttum tíma. Að sögn Þor-
steins Björgvinssonar vél-
stjóra var þetta blönduð
síld og veidd í troll. Þeir
eru nýbyrjaðir veiðar en
voru áður á kolmunna.
Freysteinn Bjarnason
framkvæmdastjóri útgerð-
ar Síldarvinnslunnar kvað
menn bjartsýna á fram-
haldið og búið væri að
landa á milli 8 og 9.000
tonnum. Bræla hefði haml-
að veiðum síðustu daga en
kolmunnabátar fóru út til
veiða í gærmorgun.
Gunnar Jónsson skip-
stjóri á ísleifi VE 63 kvaðst
í samtali vera hættur síld-
veiðum í bili enda verið
ógæftir vegna brælu síð-
ustu daga. „Reynsla síð-
ustu tveggja ára er að
sfldin leggst niður undir
botn á þessum tíma þegar
farið er að reyna við trollið." Hann
kvaðst eiga um 600 tonn eftir af
kvótanum en vera rólegur því hægt
væri að færa 20% milli ára. Það
sést hins vegar mikið af síld og út-
lit er nokkuð gott að hans sögn.
Beðið á tánum hjá Skinney
Hjá Skinney á Hornafirði var
menn verulega farið að lengja eftir
sfld enda ekkert borist til vinnslu í
viku vegna ógæfta. Gunnar Ás-
geirsson sagði góðar torfur hafa
sést á Hrollaugseyjarsvæðinu og
einnig á Meðallandsbugt.
Að sögn Gunnars hefur vinnsla
gengið mjög vel og aðeins um 400
tonn farið í bræðslu af um 6.500
tonnum sem komin eru.
„Markaður virðist vel opinn og
hægt að vinna síld og selja allt nið-
ur í 180 grömm. Hins vegar er verð
lágt,“ sagði Gunnar Ásgeirsson hjá
Skinney.
Helgi Einarsson, framleiðslu-
stjóri hjá Skagstrendingi á Seyðis-
firði, sagði að nótaskipið Sveinn
Benediktsson sem væri í eigu S.R.
Mjöls væri að hefja veiðar og
myndi skipið landa hjá þeim, en á
bilinu 35-40 manns hafa atvinnu af
síldinni hjá Skagstrendingi. Helgi
sagði góðar horfur á sölu heil-
frystrar síldar til Rússlands og á
flökum til Evrópulanda.
Ljósmynd/Finnbogi Jónsson
Þjóðvegur 60 um Vattames í Barðastrandarsýslu er endurbættur á 2,7 kflómetra kafla og teknar af honum
beygjur. Vinstra megin á myndinni sést Svínaneshlið og til hægri sést yfír á Skálmames.
Beinni braut um Vattarnes
UNNIÐ er að lagningu 2,7 kfló-
metra langs vegarkafla á Vattar-
nesi í Reykhólasveit í Austur-
Barðastrandarsýslu, þar sem áður
hét Múlasveit. Vegurinn er nýr og
mun beinni en gamli vegurinn sem
liggur á sömu slóðum. Hann verð-
ur þó ekki með bundnu slitlagi.
Framkvæmdirnar hófust í sept-
ember og verklok eru ráðgerð í
júní á næsta ári. Verktaki eru
Berglín í Stykkishólmi og kostn-
aður nemur um 50 milljónum
króna.
Þá er unnið að umhverfismati á
leiðinni frá Vattarnesi fyrir Skálm-
arfjörð og Klettsháls niður Múla í
Kollafírði sem er í beinu framhaldi
af yfirstandandi framkvæmdum.
Er sá kafli á áætlun Vegagerð-
arinnar innan fjögurra ára, að
sögn Gísla Eirikssonar, umdæmis-
stjóra Vegagerðarinnar á ísafirði.
inga í Mý vatni
SAMKVÆMT umsögnum þeirra
vísindamanna sem vitnað er í í
úrskurði umhverfisráðherra um kís-
ilgúrvinnslu í Mývatni kemur fram
að veruleg óvissa er ríkjandi varð-
andi áhrif námavinnslu á setflutn-
inga í Mývatni. Umhverfisráðuneyt-
ið leggur áherslu á að fylgst verði
stöðugt með í hvað miklum mæli
nýmyndað set sest í fyrirhugaðar
námur. Jafnframt segir ráðuneytið
að fram þurfi að koma í starfsleyfi
verksmiðjunnar ákvæði sem kveði
skýrt á um hvernig bregðast skuli
við komi í Ijós að vinnslan hafi
veruleg áhrif á undirstöður vist-
kerfisins í vatninu.
I skýrslu um umhverfísmat á kís-
ilgúrvinnslu í Mývatni segir um set-
flutningana: „Erfitt er að gera sér
skýra grein fyrir afleiðingum rösk-
unar sem verður á samsetningu sets
og setmyndun utan námasvæðanna.
Sumir líffræðingar hafa lýst áhyggj-
um af því að verði settap ofan í
námugryfjur af þeim stærðarskala
að það sé hátt hlutfall af magni sets
sem nýmyndast við náttúruleg skil-
yrði geti slíkt valdið breytingum á
undirstöðum lífríkisins. Þetta skýrist
af þeirri einföldu staðreynd að í
grunnum vötnum eru frumframleið-
endur á botni hlutfallslega mikil-
vægir auk þess sem mikilvægustu
stofnar botndýra byggja afkomu
sína á lífræna laginu sem liggur í
efstu millimetrum setsins eða situr á
botngróðri. Nálgist settapið að vera
jafnmikið og nýmyndunin eða meira
geta rofsvæði sem fyrir eru stækkað
og jafnvel ný myndast. Þetta getur
leitt til þess að botninn verði send-
inn líkt og gerst hefur í Ytriflóa.
Slíkar breytingar geta haft áhrif á
innri ákomu og hringrás næringar-
efna í vatninu. Óljóst er hvaða af-
leiðingar þær breytingar hefðu á
frumframleiðslu og smádýrasamfé-
lög á botni.“
í skýrslu alþjóðlegs matshóps
(DHI) sem skipaður var af iðnaðar-
ráðuneyti í apríl sl. er fjallað um
þessi atriði, en þar segir „Hætta er
á að ferskasta setið, sem einnig er
fínkomast og lífrænast, flytjist niður
á dýpkuð svæði og skilji eftir nær-
ingarsnautt, sandkennt og mest-
megnis ólífrænt set. Þótt þetta yrði
til þess að botndýraframleiðni ykist
á dýpkuðu svæðunum af því að stöð-
ugt flyttist þangað fóður yrði það
einnig til þess að framleiðsla á öðr-
um svæðum hið næsta minnkaði að
sama skapi. Þetta gæti orðið afdrifa-
ríkt í Syðriflóa ef tiltölulega lítið
svæði yrði til þess að framleiðni
minnkaði á öllum öðrum svæðum.
Ekki hefur þó verið sýnt fram á það
að svo örlagaríkar breytingar hafi
orðið í Ytriflóa. Breytingar á set-
flutningum vegna vinnslu gætu
einnig haft áhrif á lykfltegundir
meðal botnþörunga eins og Clad-
ophora-kúlur.“
Umhverflsráðuneytið vill
vöktun á setflutningum
Þessi alþjóðlegi matshópur reyndi
að leggja mat á setflutninga í Mý-
vatni, en niðurstöður hópsins hafa
verið nokkuð hai’ðlega gagnrýndar af
íslenskum vísindamönnum. í úr-
skurði umhverfisráðuneytisins er að
nokkru leyti tekið undir þessa gagn-
rýni. Þar segir að ráðuneytið taki
undir „að umsögn DHI hafi verið
háð annmörkum og að þeir hafi farið
út fyrir sitt sérsvið í áliti sínu“.
DHI taldi að gera mætti ráð lyrir
að settap í gryfjur yrði um 2%, en
ráðuneytið taldi að út frá eldri rann-
sóknargöngum mætti áætla að set-
flutningar væru a.m.k. 10% miðað
við að svæði 1 og 2 yrðu nýtt í Syðri-
flóa. Niðurstaða ráðuneytisins varð
hins vegar að leyfa einungis vinnslu
á svæði 2%.
Vísindamennimir eru hins vegar
sammála um að setflutningar yrðu
minni ef námumar í Syðriflóa yrðu
litlar og djúpar frekar en víðar og
grunnar.
I úrskurði skipulagsstjóra, sem
kærður var til umhverfisráðherra,
em sett ellefu skilyrði íyrir efnistöku
í Syðriflóa. Umhverfisráðuneytið
ákvað að bæta við skflyrði þar sem
fjallað er um vöktun með nýmynd-
uðu seti.
„Framkvæmdaraðili leggi fram
tillögu að vöktunaráætlun vegna
nýmyndaðs sets. Vöktunaráætlun-
inni er ætlað að leiða í ljós hlutdeild
nýmyndaðs sets í heildarappsöfnun
sets á námusvæðum í Syðriflóa.
Henni er einnig ætlað að leiða í ljós
hvað það er stór hluti af framleiðslu
á nýmynduðu seti í Syðriflóa. Fara
skal að sömu skilyrðum og í lið 5
um það hvemig bregðast skuli við
ef í Ijós kemur að vinnslan hafi
áhrif á undirstöður vistkerfisins í
vatninu,“ segir í niðurstöðu um-
hverfisráðuneytisins.
Bflstjórar óánægðir
með viðbrögð
olíufélaganna
SAMSTARFSHÓPUR bflstjóra,
sem mótmælt hefur verðhækkun-
um olíufélaganna, sendi yfirlýsingu
frá sér í gær þar sem lýst er yfir
miklum vonbrigðum með þá
ákvörðun olíufélaganna að draga
ekki til baka síðustu verðhækkanir
á eldsneyti. Hópurinn ítrekar þá
skoðun sína að hækkunin hafi verið
í engu samræmi við þær forsendur
sem olíufélögin hefðu upplýst um
verðmyndun eldsneytis. I ljósi
þessa muni hópurinn ráða ráðum
sínum og ákveða næstu aðgerðir.
Unnur Sverrisdóttir, talsmaður
hópsins, sagði við Morgunblaðið,
aðspurð af hverju ekki hefði verið
gripið til aðgerða í gær, að slíkar
ákvarðanir hefðu aldrei legið end-
anlega fyrir. Hópurinn hefði aðeins
gefið til kynna að gripið yrði til
frekari aðgerða en þeirra er fram
fóru í Örfirisey á miðvikudag, án
þess að nefna tímasetningu.
Samstarfshópurinn mun eiga
fund með fjármálaráðherra á
mánudaginn og í fyrrnefndri yfir-
lýsingu segir að þá fáist svör við
þeim kröfum bílstjóra sem lúta að
lækkun þungaskatts og almenns
vörugjalds af bensíni. Einnig
væntir hópurinn þess að á fundin-
um liggi fyrir svar Samkeppnis-
stofnunar við erindi viðskiptaráð-
herra um meint verðsamráð
olíufélaganna frá byrjun síðasta
mánaðar.
Hjá Samkeppnisstofnun fengust
þær upplýsingar í gær hjá Guð-
mundi Sigurðssyni, forstöðumanni
samkeppnissviðs, að ekki væri búið
að afgreiða erindi ráðherra.
„Við höfum snúið okkur til olíu-
félaganna með ósk um tilteknar
upplýsingar og nýverið fengum við
svör frá þeim. Það á eftir að vinna
úr þessum svörum, en við stefnum
að því að geta svarað þessari fyrir-
spurn á næstunni," sagði Guð-
mundur.