Morgunblaðið - 04.11.2000, Síða 28
28 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Ferðaskrifstofan Sól hf. hefur starfsemi hér á landi um næstu áramót
Nýir mögu-
leikar í utan-
landsferðum
NÝ FERÐASKRIFSTOFA, Sól
hf., mun hefja starfsemi um næstu
áramót og bjóða landsmönnum
ýmsa nýja möguleika í ferðalögum
erlendis. Á bak við fyrirtækið
stendur hópur fjárfesta og hefur
Ómar Kristjánsson, fyrrum for-
stjóri Flugstöðvar Leifs Eiríksson-
ar, verið ráðinn framkvæmdastjóri
ferðaskrifstofunnar. Auk þess hef-
ur Goði Sveinsson verið ráðinn
markaðsstjóri, Ingibjörg Krist-
jánsdóttir sölustjóri og Ingibjörg
Sverrisdóttir framleiðslustjóri, en
öll hafa þau langa reynslu af störf-
um í ferðaþjónustu á íslandi.
Ferðaskrifstofan nýja mun m.a.
bjóða upp á fastar heilsársferðir til
Kýpur, Israels og Egyptalands í
leiguflugi.
Ferðaskrifstofureksturinn mjög
áhugaverð starfsgrein
Afkoma fyrirtækja í ferðaþjón-
ustu hefur ekki verið með besta
móti undanfarið, en Ómar Krist-
jánsson sagði í samtali við Morgun-
blaðið að þeir aðilar sem stæðu á
bak við ferðaskrifstofuna væru
engu að síður bjartsýnir á gott
gengi, „enda erum við okkur með-
vitandi um þann vanda sem þessi
atvinnugrein hefur átt við að etja.
Ferðaskrifstofureksturinn er
mjög áhugaverð starfsgrein og
ferðaþjónustan er reyndar sú at-
vinnugrein sem er í einna mestum
uppgangi í heiminum og vex hvað
hraðast. Slíkur rekstur þarf að
sjálfsögðu að ganga vel, til að
áhugavert sé að fjárfesta í honum.
Ég vil að sjálfsögðu ekki tjá mig
um erfiðleika annarra í greininni,
en þetta snýst samt talsvert um
það hversu mikla áhættu menn eru
tilbúnir að taka.“ Ómar segir að
hann hafi gengið til liðs við öflugan
hóp fjárfesta um rekstur þessarar
nýju ferðaskrifstofu, en hlutafé
Sólar hf. er 100 milljónir króna.
„Við hluthafarnir leggjum
áherslu á að fjárhagslegur styrkur
fyrirtækisins verði mikill alveg frá
upphafi."
I stjórn fyrirtækisins eru Jóhann
Óli Guðmundsson, eigandi Securit-
as, sem er stjómarformaður, en
Helgi Magnússon, framkvæmda-
stjóri Hörpu, er varaformaður
stjórnar. Aðrir í stjórn eru Ásgeir
Bolli Kristinsson kaupmaður, Osk-
ar Magnússon hæstaréttarlögmað-
ur og Hannes Guðmunds-son við-
skiptafræðingur. I varastjórn situr
séra Pálmi Matthíasson.
Að sögn Ómars mun ferðaskrif-
stofan sinna allri almennri ferða-
þjónustu, en skera sig úr með
nokkrum nýjungum þegar í upp-
hafi, en hann segir að þeim eigi eft-
ir að fjölga á komandi árum.
Skipulagðar ferðir til
Líbanons, ísraels og Jórdaníu
„Meðal annars má nefna að við
munum strax í vetur taka upp
beint leiguflug til Kýpur og halda
úti leiguflugi þangað allt árið. Kýp-
ur er einn af vinsælustu ferða-
mannastöðum í Miðjarðarhafinu og
þaðan munum við bjóða upp á
kynnisferðir til Jerúsalem og
Betlehem og inn í Israel. Einnig
verðum við með skipulagðar ferðir
til Egyptalands, Líbanons og Jórd-
aníu og í sumu þeirra verða ís-
lenskir fararstjórar.“
Að sögn Ómars er það mat
stjórnenda nýju ferðaskrifstofunn-
ar að tími sé kominn til að bjóða
Kýpur sem öflugan valkost fyrir ís-
lenska ferðamenn, jafnt sumar sem
vetur.
„Reynslan sýnir að Evrópubúar
og Bandaríkjamenn flykkjast til
Kýpur. Það er einn vinsælasti
ferðamannastaðurinn núna og alls
ekki gott að komast þar að. En við
höfum gert mjög hagstæða gisti-
samninga á Kýpur á heilsársgrund-
velli og verðum þar með öfluga
stapfsemi."
Ómar segir að ferðaskrifstofan
muni einnig taka upp beint leigu-
fiug til viðurkenndra áfangastaða
íslendinga, og verður Albufeira í
Portúgal helsti áfangastaður Sólar
hf. til að byrja með, en þar hefur
ferðaskrifstofan gert samninga um
aðstöðu á nýju íbúðarhóteli í Albu-
feira.
„Þetta er eitt allra glæsilegasta
hótel sem byggt hefur verið í
Portúgal, þar sem aðstaða er öll
framúrskarandi. Þetta er alveg ein-
stök bygging og þarna er búið að
semja um gistingu fyrir fulla vél af
Islendingum, sem verða með íbúðir
þarna á hverjum tíma. Svona að-
staða hefur ekki verið á þessum
stað áður, en gististaðurinn heitir
Paraíso og ferðaskrifstofan Sól hef-
ur fengið einkaumboð fyrir hann á
íslandi. Til Portúgals munum við
fljúga í beinu leiguflugi."
Heilsuferðir til
Tékklands og
Ungverjalands
Auk þess að bjóða ferðalög til
sólarlanda ætlar Sól hf. að vera
með heilsuferðir til landa eins og
Ungverjalands og Tékklands, en
ferðaskrifstofan stendur nú í við-
ræðum við aðila þar um gistingu á
heilsuhótelum á þeim slóðum.
„Þarna er verðlag mjög lágt en
aðstaða og búnaður af fullkomn-
ustu gerð. Þetta hefur verið mjög
vinsælt og eftirsótt, t.d. af Þjóð-
verjum og Bandaríkjamönnum og
við vonumst til að geta boðið Is-
lendingum hagstæðar ferðir á
þessa staði síðar á næsta ári,“ seg-
ir Ómar.
Hann segir að lögð verði mikil
áhersla á góða þjónustu, þar sem
að treysta megi því sem ferðaskrif-
stofan býður, bæði hvað varðar
flug og gistingu.
Leggjum mikla
áherslu á gæðin
„Stefna ferðaskrifstofunnar Sól-
ar er ekki að leggja megináherslu
á fjöldann/magnið, heldur gæðin.
Við viljum að farþegar finni fyrir
því að vel sé hugsað um þá og að
okkur sé umhugað um að allir komi
ánægðir heim.“
Að sögn Ómars skýrast húsnæð-
ismál ferðaskrifstofunnar innan
skamms.
„Við förum síðan á fulla ferð
strax um áramótin og áætlum að
hefja okkar fyrsta leiguflug í byrj-
un apríl. Við höfum þegar gengið
frá ráðningum nokkurra lykil-
starfsmanna með mikla reynslu úr
ferðaþjónustunni og mjög margir
hafa boðið sig fram þannig að okk-
ur skortir ekki hæft starfsfólk."
f-serin
PHOSPHATIDYLSERINE
i mmo\i
BETRA MINNI - SKARPARIHUGSUN
BRAINB0W er fæðubótarefni sem eflir starfsemi
heilans og talið er bæta verulega minnið með þvi
að hjálpa taugaboðum að berast á milli taugamóta.
Ölíklegt að
Sonera finni
félaga á
þessu ári
Ósló. Morgunblaðið.
FINNSKA fjarskiptafyrirtækið Son-
era hefur dregið úr umsvifum sínum í
tilboðum í þriðju kynslóðar farsíma-
leyfi. Forsvarsmenn fyrirtækisins
hafa einnig staðfest að ólfldegt sé að
Sonera finni heppilegt fyrirtæki til
samruna á þessu ári. Þetta kemur
fram í Financial Thnes.
Afkoma Sonera á fyrstu níu mán-
uðum ársins var í samræmi við vænt-
ingar markaðsaðila en hagnaður
tímabilsins nam um 20 milljörðum ís-
lenskra króna. I tengslum við kynn-
ingu á afkomu félagsins sagði vara-
forstjóri Sonera, Kaj-Erik Relander,
að markmið félagsins væri að byggja
upp UMTS farsímakerfi í Eystra-
saltslöndunum, auk Þýskalands. Fyr-
irtækið horfði ekki lengur til Frakk-
lands eða Sviss í þeim tilgangi að
byggja upp þriðju kynslóðar farsíma-
kerfi þar sem markaðshlutdeild gæti
aldrei orðið viðunandi. Sonera hyggst
einnig minnka hlut sinn í samstarfsfé-
laginu við Telefonica á Spáni.
Sonera er enn í leit að fyrirtæki til
að sameinast og hefur átt í viðræðum
við sex fyrirtæki í þeim tilgangi. Það
er mat forsvarsmanna fyrirtækisins
að samruni við annað fyrirtæki verði
til þess að auka fjárhagslegan styrk
og vöxt fyrirtækisins, auk þes að
stækka markaðssvæði Sonera.
------------------
Lyfjaverslun
Islands hf.
Eagle Invest-
ment Holding
eykur hlut sinn
EAGLE Investment Holding hefur
keypt 1.500.000 krónur að nafnverði
hlutafjár í Lyfjaverslun íslands hf. á
verðinu kr. 5,50. Eagle Investment
Holding er í eigu Amar Andréssonar
sem situr í stjórn Lyfjaverslunar Is-
lands hf. Eignarhlutur Eagle Invest-
ment Holding eftir kaupin er
10,289%, eða 30.867.949 krónur að
nafnvirði, en var áður 9,79% eða
29.367.949 krónur að nafnvirði.
Morgunverðarfundur á Grand Hótel
miðvikudaginn 8. nóvember 2000, kl. 8:00 - 9:30
Efnahagsmál á
óvissutímum
-álit Seölabankans á stööu og horfum í efnahagsmálum
Framsögumenn:
Birgir ísleifur Gunnarsson, bankastjóri Seölabanka Islands.
Sigurður Atli Jónsson, forstjóri Landsbréfa hf.
Ari Skúlason, framkvæmdastjóri Alþýöusambands íslands.
Fundargjald (morgunverður innifalinn) kr. 2.000,-
Fundurinn er öllum opinn en æskilegt er
að tilkynna þátttöku fyrirfram í síma 510 7100
eða bréfasíma 568 6564 eða með tölvupósti
mottaka@chamber.is.
www.chamber.is
VERSLUNARRÁÐ ÍSLANDS
4