Morgunblaðið - 04.11.2000, Side 34
34 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Ljósahátíðin verður árlegur viðburður
MÖGULEIKARNIR
í MYRKRINU
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Ljós Önnu Jónu berast niður Elliðaárnar.
SETNING hátíðarinnar Ljósin í
norðri var við gömu rafstöðina við
Elliðaár í gær kl. 17.30. Ljósin í
norðri er fyrsta hátíðin sinnar teg-
undar hér á landi en slík hátíð hef-
ur verið haldin árlega í byrjun
vetrar í Helsinki síðastliðin 6 ár og
er markmið hennar að beina sjón-
um fólks að sem flestum hliðum
ljóssins í svartasta skammdeginu.
Listamenn frá norrænu menning-
arborgunum, Reykjavík, Bergen og
Helsinki, munu fram á mánudags-
kvöld lýsa upp borgina með verk-
um og viðburðum af ýmsu tagi.
Borgarstjórinn í Reykjavík, Ingi-
björg Sólrún Gisladóttir, opnaði
hátíðina formlega og sagði meðal
annars við það tækifæri að hún
væri hátíð í hátiðinni því menning-
arárið væri allt búið að vera ein
samfelld hátíð. „Með atburðum
eins og þessum hefur það sýnt okk-
ur hvers við erum megnug og hvað
er hægt að gera. Ég er sannfærð
um að hátíðir af ýmsu tagi eiga eft-
ir að leika æ stærra hlutverk í
mannlífl og menningarlífi borgar-
innar, - og reyndar í öllu hagkerfi
borgarinnar og landsins alls. Slíkir
viðburðir munu verða stærri hlutur
í hagkerfi framtíðarinnar," sagði
borgarstjóri.
Við viljum nýta
okkur myrkrið
Borgarstjórinn sagði ennfremur
að Reykvíkingar hefðu hugsað sér
að læra af þessari reynslu Hels-
inkibúa og reyna að gera ljósahá-
tíðina að árlegum viðburði. „Við
viljum nýta okkur myrkrið og
hætta að líta á það einvörðungu
sem neikvæðan hlut og reyna að
sjá gæðin og möguleikana sem í
því felast ásamt þeim andstæðum
sem veturinn og myrkrið hefur upp
á að bjóða.“
Að loknu setningarávarpi borg-
arstjóra gengu gestir út fyrir húsið
þar sem kórinn Heimsljósin söng
fyrir viðstadda. í kórnum eru 22
börn frá 10 þjóðlöndum og munu
þau skemmta borgarbúum í
Hljómskálagarðinum um helgina.
Myndlistarmaðurinn Anna Jóa
framkvæmdi að því loknu Ijósa-
gjörning í Elliðaánum, en hún
fleygði litríkum sjálflýsandi ljósum
út i árnar og var fallegt að horfa á
þau berast með straumnum í
myrkrinu. Fjölmargir gestir nuta
þessa fyrsta Ijósaviðburðar í still-
unni við gömlu rafstöðina og virtist
ljóst að margir hafa áhuga á að
kanna áhrifamátt ljóssins eins og
það birtist okkur í samspili við
skammdegið í borginni á þessari
ljósahátið um helgina.
Aðalfundur Bandalags
íslenskra listamanna
BANDALAG íslenskra lista-
manna heldur aðalfund sinn í
dag í Listasafni Reykjavíkur,
Hafnarhúsinu við Tryggvagötu
kl. 10.
I fréttatilkynningu segir: „Til
hádegis verða almenn aðalfund-
arstörf. Klukkan 12.30 mæta
þau Björn Bjarnason, mennta-
málaráðherra, og Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir, borgarstjóri, og
munu þau taka þátt í umræðum
um framhald menningarársins
og almenna framtíðarsýn í
menningarmálum.
í pallborðsumræðunum ætla
listamenn að varpa fram spurn-
ingum á borð við:
Hvað má læra af menningar-
árinu og hvernig nýtist sú
reynsla í stjórnsýslunni? Hvað
verður um þær íjárfestingar í
■nýsköpun sem menningarborg-
arárið leiddi af sér? Hvernig
verður blómlegu menningarlífi
viðhaldið og er það vilji opin-
berra aðila að viðhalda því til
framtíðar?"
Fundurinn fer fram í „fjöl-
notarými" listasafnsins.
Ný Harry
Potter-bdk
komin út
SALA hefst í dag á nýjustu Harry
Potter-bókinni, Harry Potter og
fanginn frá Azkaban. Þetta er þriðja
bókin í flokknum um galdradrenginn
Harry Potter og í þetta sinn glímir
hann við illræmdasta fanga allra
tíma, Sirius Black. Bókabúðir víðs-
vegar um land verða með sérstaka
dagskrá af þessu tilefni. Netverslun
Hagkaups gekkst fyrir forsölu á
bókinni í október og bárust á annað
þúsund fyrirframpantanir, að sögn
bókaútgáfunnar Bjarts sem gefur
bókina út, og er verið að dreifa þeim
bókum sem pantaðar voru fyrirfram
til kaupenda.
Kraftar ljdssins í Grafarvogi
KRAFTAR ljóssins er yfirskrift
ljósaviðburðar sem fram fer við
fjölbýlishús í Goðaborgum 8 í
Grafarvogi á hátíðinni „Ljósin í
norðri“ í kvöld kl. 19-22.
Þar er á ferð norski listamaður-
inn Axel Sundbotten með fulltingi
BOB, „Bergen og omegn bolig-
byggelag". Verkið er hluti af
framlagi Bergen til ljósahátíðar-
innar og mun einnig verða á dag-
skrá Ijósahátíðanna í Helsinki og
Bergen.
í sýningunni er m.a. leitað
fanga í norrænni goðafræði, guð-
imir Óðinn og Þór koma við sögu
og dansarinn Ásne Sunneva
Sareide kemur fram í gervi álf-
konu og dansar við norska þjóð-
lagatónlist og tónlist eftir Edvard
Grieg blandaða íslenskum tónum
hljómsveitarinnar Mezzoforte.
Samtímis verður ljósi og myndum
af börnum frá norrænu menning-
arborgunum þremur varpað upp á
veggi fjölbýlishússins.
>01-2000
Laugardagur 4. nóvember
SALURINN, KÓPAVOGI KL. 20
íslensk tónlist í lok 20. aldar: Fram-
tíðarsýn
AGON Orchestra frá Tékktandi.
Á efnisskrá tónleika AGON eru verk
eftir tékknesku tónskáldin Martin
Smolka, Rudolf Komorous ogZbyn-
ek Vostrak, danska tónskáldið Henn-
ing Christiansen og íslenska tón-
skáldið Hauk Tómasson. Stjórnandi
er Kofron Petr.
www.listir.is
LISTASAFN REYKJAVÍKUR - HAFNAR-
HÚSI
ísland öðrum augum litið
Á þessari sýningu er leitast við að
flétta saman verk nokkurra íslenskra
listamanna og verk erlendra lista-
manna sem hafa sótt mikið hingað
til lands síðustu áratugi. í sýningunni
verðurfengist við spurninguna um
sýn viðkomandi listafólks á ísland
auk þess sem fléttað er inn rituöu
máli, sem og myndlýsingum eftirer-
lenda rithöfunda og fræðimenn, er
orðið hafa fyriráhrifum afíslenskri
menningu. Meðal Hstamannanna
sem um ræðir má nefna Roni Horn,
Douwe Jan Bakker, Roman Signer,
Birgi Andrésson og Hörð Ágústsson.
Sýningin stendur fram á næsta ár.
www.rvk.is/1istasafn
Ljósin í norðri - Almennar sýningar í
gangi til 6. nóvember
BORGARHOLT í GRAFARVOGI, KL. 19-
22
í dag hefst Máttur Ijóssins
Axel Sundbotten og BOB (Bergen og
Omegn Boligbyggelag) færa okkur
Ijósaviðburð þarsem tónlist og Ijós
ráða ríkjum. ísýningunni erm.a. leit-
að fanga í norrænni goóafræði.
UOSAFLUG YFIR BORGINA- EFTIR
MYRKUR
Ljósahópur frá LHÍog flugfélagið LÍO
bjóða borgarbúum í flugyfir borgina.
Ljósahópinn skipa Elín Helena
Evertsdóttir, Gunnhildur Hauksdóttir,
Sirra Sigrún Sigurðardóttir, Vilhjálm-
urEgill Harðarson, Amfinnur Jóhann
R. Amazeen, Gunnildur Una Jóns-
dóttir, Helene Kaaber frá Danmörku,
Kerstin Krieg frá Þýskalandi, Pertu
Saksa frá Fmnlandi og Sidsel Stubbe
Schou frá Danmörku. Leiðbeinandi
hópsins erMagnea Ásmundsdóttir.
Ferðin er ókeypis, en sætafjöldi
takmarkaður. Tekið er við bókunum í
síma 595 2025 kl. 14-16 á hverjum
degi á meðan sæti endast.
HUÓMSKÁLAGARÐURINN KL. 18
Heímsljósin
Barnakórinn Heimsljósin er fjöl-
menningarlegur barnakór sem kem-
ur fram í fyrsta sinn (tilefni hátíðar-
innar. Á tónleikaskránni eru verk frá
heimkynnum söngvaranna. Einnig
verða sýndar myndir frá heimahög-
um þeirra. Kórinn er framlag Mið-
stöðvar nýbúa en stjórnendur eru
Júlíana Rún IndriöadóttirogÓsk Vil-
hjálmsdóttir.
www.reykjavik2000.is
NORRÆNA HÚSIÐ, FJÖLSKYLDUDAGUR
KL. 11,13,14,15 OG 16
Stjörnuverið
Stjörnufræðifélagið URSA í Finnlandi
kynnir Stjörnuverið þar sem boðið er
upp á geimferð undir leiðsögn
Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnar-
ness. Gestir skríða inn í uppblásið
Stjörnuverið eftir stuttum göngum.
Sýningin byrjar þegar Ijósið er deyft
og þá sjást aðeins skærustu stjörn-
urnar á næturhimninum. Smátt og
smátt venjast augun myrkrinu og þá
kvikna þúsundirstjarna.
HAFNARSVÆÐIÐ FYRIR FRAMAN KOLA-
PORTIÐ KL. 19 OG 21
Ég veiddi vampíru í Svíþjóð
Litfríð og Ijóshærð sænsk vampíra
mun birtast þar sem iítið Ijós er fyrir.
Hún mun jafnvel koma öllum að óvör-
um á Kaffi Thomsen á Club Lux á
föstudags- og laugardagskvöld.
USTASAFN REYKJAVÍKUR - HAFNAR-
HÚSI - PORTIÐ, GENGIÐ INN AUSTAN-
MEGIN, FRÁ KL. 21
Eldur/Vatn
Innsetning Aðalsteins Stefánssonar.
Verkið fjallar um samspil rýmis, elds,
vatns og skugga.
KAFFITHOMSEN FRÁ KL. 23
Ljósin í norðri - Club Lux
Samstarfsverkefni mynd- og tón-
listarmanna frá norrænu menningar-
borgunum Reykjavík, Bergen og
Helsinki. Fram koma m.a. Translight
frá Reykjavík, DJ Björn Torske ogDJ
Thomas Dybsland.
GERÐARSAFN í KÓPAVOGI
Yfiriitssýning á verkum Tryggva
Ólafssonar
Efnt er til sýningarinnar í tilefni sex-
tugsafmælis Tryggva ogsjötugsaf-
mælis Búnaðarbankans. Sýningin er
í boði bankans og önnur afþremur
sýningum sem hann stendur fyrir á
afmælisári. Sýningunni lýkur 26.
nóvember.
Búnaðarbankinn heldur einnig sýn-
ingu á rúmlega 40 verkum úreigin
safni í listglugga á heimasíöu sinni.
Þargeturhver sem aðgang hefur að
Netinu notið myndlistar fjölmargra
framúrskarandi íslenskra mynd-
listarmanna.
www.bi.is
RÁÐHÚSIÐ - TJARNARSALUR KL. 20
Unglist í Reykjavík
Nemendurí fataiðndeild lönskólans í
Reykjavík standa fyrirtískusýningu.
SUNDHÖLL REYKJAVÍKUR KL. 21-22.30
Neogeo stendur fyrir sund-
innsetningu Trilogy 3/3 -
neðanvatnstónleikar afbestu gerð.
Tónlistarmennirnir Borko og
músikvatur. Kristín Björk og co.
koma fram.
Unglist Egilsstöðum:
Handverksnámskeið kl. 22-24.
Helgarsport í íþróttahúsinu á Egils-
stöðum.
Unglist Vestfjörðum:
GAMLA APÓTEKIÐ Á ÍSAFIRÐI KL. 21-
24.
Tónleikar Gleöisveitarinnar og
óvæntar uppákomur í Gamla apótek-
inu ísafiröi.
Unglist Akureyri:
STOMPSMIÐJA í KOMPANÍINU14-18.
Opnun Ijósmyndasýningar i Nettó og
myndlistarsýningar í Deiglunni.
www.hitthusid.is